Dagur - 07.10.1985, Blaðsíða 9
7. september 1985 - DAGUR - 9
Uesendahorniá.
Venjulegar tekjur leyfa
ekki hitaveitumunað
Háttvirta bæjarstjóm Akureyrar.
Ég sný mér til ykkar vegna
„óskabarnsins" okkar, Hitaveitu
Akureyrar, þessa brekabarns
sem hún er orðin og er að rýja
sína nánustu, þ.e. neytendur, inn
að skyrtunni. Hver er sjálfum sér
næstur og sem ellilífeyrisþegi get
ég þess að ellilaun hjóna eru tæp
tíu þúsund á mánuði. Hitareikn-
ingur okkar var kr. 4.743 fyrir
september þ.e. um helmingur
þessara launa. En það er einmitt
gamla fólkið sem býr í hitafrek-
ustu íbúðunum. Við búum þó í
nýju vel einangruðu raðhúsi um
125 fm. Við tökum tvo lítra á
mánuði og nýting hitans er góð,
affall 25-30 stig. En ég held að
þetta dæmi sanni að venjulegar
tekjur manna hér í bæ leyfi ekki
þann munað að nota hitaveituna
eins og nú horfir. En er ekkert
hægt að gera? Vitanlega eru
skuldir veitunnar miklar og vextir
háir, en óhugsandi er að þessi
kynslóð greiði nema brot þess
sem fyrirtæki, er þjóna skal
ókomnum kynslóðum kostar.
Ég spyr því: Er ekki nauðsyn-
legt að þið, sem við höfum falið
að sjá um velferð okkar, hefjist
nú handa um að létta þessu oki af
herðum okkar? Var ekki hinn
skorinorði iðnaðarráðherra að
bjóða aðstoð? Nú verðið þið að
leggjast djúpt í björgunaraðgerð-
um.
Sárgrætilegast er að heita
vatnið, sem mig minnir að ætti að
selja okkur um 80 stiga heitt, hef-
ur verið hér í hverfi 58-60 stig í
allt sumar. Nú í sept. um 68,
mest 70 stig. Ég finn engin ráð til
að spara hitann. Gamalt fólk sem
dútlar heima hjá sér þarf notaleg-
heit. Það þarf einnig útivinnandi
fólk sem kemur þreytt heim að
kvöldi og börnin við nám eftir
skóla. Mér sýnist þetta nú mál
mála og væri gaman að heyra frá
ykkur hvort þið kunnið ráð og
viljið reyna!
Akureyri 2/10 ’85.
Virðingarfyllst,
N.n. 5848-3443.
„Djásn“ við íþróttahöllina
Ég átti leið um íþróttahöllina
okkar góðu núna rétt um daginn.
Þangað fer ég stundum ef eitt-
hvað er að gerast í íþróttamálum
þar. Þó það skipti ekki máli, þá
kallar maður sem ég þekki,
íþróttahöllina, krabbameinið á
sundlaugartúninu. Það segir
kannski svolítið um álit manna
sem ekki hafa áhuga á íþróttum,
Rás 2 - Svæðisútvarp:
„Vil qeta valið“
Kæra lesendasíða.
Nú er mér sko nóg boðið. Mikið
ofsalega reiddist ég í gær (1. okt.)
þegar svæðisútvarpið hóf starf-
semi sína á ný. Þarna hafa þeir þá
lagt undir sig síðustu klukku-
stund Rásar 2 á hverjum virkum
degi. Þeir hjá RÚVAK vita senni-
lega sem er að enginn myndi
nenna að standa upp til að stilla
útvarpið á þá og til þess að fá ein-
hverja hlustendur þá er auðvitað
einfaldast og þægilegast að yfir-
taka Rás 2. Hvers á maður að
gjalda?
Ég fyrir mitt leyti hef mjög svo
takmarkaðan áhuga á að hlusta á
efni frá RÚVAK, að vísu eru frétt-
irnar stundum ágætar, en ég vil
að minnsta kosti geta valið um
það og Rás 2. Þar að auki eru oft
bestu þættir Rásarinnar á milli kl.
17.00 og 18.00.
Nú, ég skora á þá hjá RÚVAK
að bæta úr þessu hið snarasta, því
ég veit ekki betur en að við höf-
um sama rétt og aðrir sem hafa
Rás 2 að hlusta á hana. Þeir sem
vilja geta svo hlustað á svæðisút-
vapið.
Ein ofsareið.
.mínir dagar og annarra.
á þessari framkvæmd.
En snúum okkur að málinu.
Um leið og íþróttahöllin stendur
rétt rúmlega fokheld, er verið að
byggja einhverja viðbót við suð-
austurgafl hússins. Þegar ég
spurðist fyrir um þessa fram-
kvæmd, vissu fáir nokkuð um
þetta. Sumir héldu að þarna ættu
að koma tröppur. Aðrir sögðu að
þetta hlyti að vera einhver geym-
sla, eða eitthvað í þá áttina. Nú
hef ég fyrir víst að þarna sé verið
að byggja stóreflis blómaker.
Síðan er búið að fylla þessa bygg-
ingu af möl og skiptir magnið
tugum, ef ekki hundruðum tonna
sem hafa farið í „djásnið“.
Mér er spurn hvert er verið að
fara með slíkum framkvæmdum?
Er þetta ekki svipað því sem ein-
hver benti á um daginn þegar
malbikaðar voru gangstéttar við
Frostagötu, það sem kallað er að
byrja á öfugum enda. Mér sýnist
ekki vanþörf á að bæta aðstöðu
innanhúss í Höllinni. T.d. lag-
færa leka, að ég tali nú ekki um
þá smán að ekki sé til klukka sem
treysta má í kappleikjum. Nóg í
bili. Takk fyrir birtinguna.
P.S. Ég hef heyrt að þessi
framkvæmd kosti tugi ef ekki
hundruð þúsunda. Er þetta
hægt? „Sportari“ á Akureyri
Haustfegurð septemberdaga
Þeir eru að líkindum margir hér
norðanlands, sem telja sig í tak-
markaðri þakkarskuld við gjaf-
arann góðra hluta, vegna þess
hversu sumarhlýindin voru
naumlega skömmtuð og hey-
þurrkarnir stopulir.
Og smávaxin berin frusu í
móunum áður en komst í vcrk
að fara í bcrjamó. En vert er þó
að j>akka dálítinn sumarauka,
sem okkur gafst seint í sept-
embermánuði, þegar brá fyrir
þeirri hlýju sunnanátt, sem var
svo kærkomin forðum daga.
Og þessa dagana er það
haustfegurðin, sem ræður
ríkjum.
Ekkert fegra a' fold ég leit
en fagurt kvöld ú haustin. “
sagði Steingrfmur Thorsteins-
son. Litadýrð haustsins er
óviðjafnanleg. Móarnir birtast í
dökkrauðum purpurabjarma og
í görðum fólks keppast tré og
runnar við að koma upp skraut-
sýningu og einkum er reynivið-
urinn óhemjulegur í litagleði
sinni. Málarar vorir eru hug-
kvæmir og sm^kkvísir t lita-
blöndun, stundum, en litadýrð
reyniviðarins getur enginn
framkallað nema guð sjálfur.
Fyrst ég er farinn að néfna
það skáld, sent orti eitt fegursta
haustljóð íslenskra bókmennta
langar mig til að minnast hans
frekar.
Ég hefi hér við hendina ís-
lenska lestrarbók, er Sigurður
Nordal setti saman og kom út
árið 1924.
Sigurður gerir grein fyrir höf-
undum og um Steingrínt Thor-
steinsson segir hann meðal
annars:
jtó að kvæði hans hafi orð-
ið mjög vinsæl, er hann óvíða
frumlegur og brestur hag-
mælsku.
Mest kveður að ádeilukvæð-
um hans og vísum og víða
kentst hann spaklega að orði.“
Mér er það minnisstætt að
Einar
Kristjánsson
skrifar
ungur bóndi í Kelduhverfi,
Björn Haraldsson, tók upp
þykkjuna fyrir skáldið, og hann
skrifaði greinarkorn í blaðið
Dag á Akureyri og mótmælti
þessum ummælum prófessors-
ins og þurfti þó nokkra dirfsku
tit, því að Sigurður Nordal var
itijög virtur og mikils metinn,
sent skáld og fræðimaður.
Ég á erfitt með að gera mér
grein fyrir þvt' hvers vegna ég
man svona vel eftir þessu og ég
ntá segja að ég muni orðrétt það
sem Björn skrifaði í Dag.
Hann sagði: „Þetta kalla ég
nú augljósa gloppu.
Sá maður sent skortir hag-
mælsku og frumleik, segir
naumast margt spaklega.“
En tlestir munu geta orðið
sammála um það að Steingrím-
ur hafi um sfna daga sagt margt
spaklega og af ríkulcgri hlýju og
mörg ljóð hans kunni öll þjóðin
og söng á hátíðlegum stundum.
Síðasta erindið í kvæðinu,
sem ég vitnaði í áðan, er á þessa
ieið:
Fagra haust, þá fold ég kved
t'aömi vefmig þínum.
Bleikra laufa láttu beð
ad legstad verda mínum.
Gúmmískór
Stærðir 7-10 (26-45).
Stígvél, Nokia og Viking, flestar stærðir.
Dömutöfflur, stærðir 36-40.
Verð aðeins kr. 175,-
Opið alla daga daga frá kl. 9-12.
Eyfjörð
Hjalteyrargötu 4 - sími 22275
Aðstoð á
tannlæknastofu
Aðstoðarstúlka óskast sem fyrst á tann-
læknastofu í 60% starf.
Æskilegt er að umsækjandi hafi starfsreynslu á
tannlæknastofu, sjúkraliðamenntun eða stúd-
entspróf.
Skriflegar umsóknir er greini aldur, menntun og
fyrri störf sendist Þórarni Sigurðssyni, Glerárgötu
34.
Stýrimann og háseta
vana netaveiðum vantar á Eyborg EA 59 strax.
Upplýsingar í símum 61712 á daginn og 61784 á
kvöldin.
Oskum eftir að ráða:
1. Rafvirkja.
2. Bílaréttingamann.
Nánari uppl. gefur Gunnar í síma 95-4128 og á
kvöldin í síma 95-4545.
Vélsmiðja Húnvetninga
Blönduósi.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Norðurgötu 4, norðurenda, Akureyri,
þingl. eign Guðrúnar Fríðu Júlíusdóttur og Björns Snorrason-
ar, fer fram eftir kröfu Skúla J. Pálmasonar hrl. á eigninni sjálfri
föstudaginn 11. október 1985 kl. 13.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Hjallalundi 1f, Akureyri, þingl. eign Gunn-
ars Sveinarssonar, fer fram eftir kröfu Björgvins Þorsteinsson-
ar hdl., veðdeildar Landsbanka fslands, Gunnars Sólnes hrl.,
Róberts Á. Hreiðarssonar hdl. og Ásgeirs Thoroddsen hdl. á
eigninni sjálfri föstudaginn 11. október 1985 kl. 15.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Eyrarlandsvegi 12 e.h., Akureyri, þingl.
eign Herberts Halldórssonar, fer fram eftir kröfu Gunnars
Sólnes hrl., veðdeildar Landsbanka íslands, Ásmundar S. Jó-
hannssonar hdl., Þorfinns Egilssonarhdl., Jóns Þóroddssonar
hdl., Búnaðarbanka íslands, Reykjavík, bæjargjaldkerans á
Akureyri og Ragnars Steinbergssonar hrl. á eigninni sjálfri
föstudaginn 11. október 1985 kl. 14.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annaö og síðasta á Hafnarstræti 88, norðurhl. n.h., Akureyri,
þingl. eign Stefáns Sigurðssonar, fer fram eftir kröfu Gunnars
Sólnes hrl., Iðnlánasjóðs, Iðnaðarbanka íslands, Ólafs Ragn-
arssonar hrl. og bæjargjaldkerans á Akureyri á eigninni sjálfri
föstudaginn 11. október 1985 kl. 14.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.