Dagur - 07.10.1985, Blaðsíða 12

Dagur - 07.10.1985, Blaðsíða 12
RAFGEYMAR V,ÐHALDSVFE2RÉTT í BÍLINN, BÁTINN, VINNUVÉLINA MERKI Plasteinangrun: Milljón plastpokar! Ekki vitum við hvort kona Jóns Sólnes hafi kennt honum handtökin, en fag- mannlegur var hann með prjónana er hann settist niður í verslun Sigurðar Guðmundssonar sl. föstudagsmorgun. Þá hóf hann fyrir hönd Akureyringa keppni í treflaprjóni við Reykvíkinga en þar syðra var það Jón Helgason ráðherra sem „tók fyrstu lykkjurnar“. Mynd: KGA Hrað- lestrar- námskeið Um næstu helgi hefst á Akur- eyri hraðlestrarnámskeið, en þar gefst mönnum færi á að læra tækni sem veldur því að lestrarhraðinn stóreykst og jafnvel er talið að menn muni betur það sem þeir lesa með þessari aðferð. Með þessari aðferð margfalda menn les- hraðann. Á námskeiðinu læra menn einnig námstækni. Það er Olafur Johnson úr Reykjavík sem heldur þetta nám- skeið. Það hefst á laugardag og stendur nokkuð lengi, eða sex laugardaga í röð, u.þ.b. hálfan annan tíma í senn. Það er ekki að ástæðulausu að námskeiðið tekur yfir sex vikur, því gert er ráð fyrir að þeir sem sækja það eyði klukkustund hvern dag þennan tíma til æfinga. Þessi námskeið hafa verið ákaflega vinsæl erlendis og er þessi tækni kennd í nánast hverj- um háskóla í Bandaríkjunum. Kennedy forseti var þekktur fyrir það hvað hann var fljótur að til- einka sér lesmál og hann efndi til námskeiða af þessu tagi fyrir starfsmenn sína. Svona námskeið hafa verið haldin í Reykjavík um nokkurra ára skeið. Námskeiðsgjald verður 3.800 kr. og upplýsingar er hægt að fá hjá Olafi í síma 91-16258. HS Mynd: - KGA Kröfluvirkjun 1984: Reksturínn gekk vel í skýrslu Rafmagnsveitna ríkis- ins fyrir áríð 1984 kemur fram að rekstur Kröfluvirkjunar á árinu hafl gengið vel þá 8 mán- uði sem virkjunin starfaði. Samkvæmt orkusölusamningi við Landsvirkjun var orkuvinnsla stöðvuð í 4 mánuði á tímabilinu 1. maí til 1. september. Auk þess þurfti samkvæmt sama samningi að skerða afl 3 síðustu mánuði ársins úr 30 MW í 22 MW og var hvort tveggja bagalegt fyrir virkj- unina. Annars vegar mikil skerð- ing á afköstum Kröfluvirkjunar og hins vegar hefur löng stöðvun yfir sumarið ýmsa rekstrarlega erfiðleika í för með sér og getur jafnvel valdið skemmdum á bún- aði. „Þetta hefur verið smátt í snið- um undanfarin ár en í sumar náðum við samningum við verslunardeild Sambandsins um að framleiða þessa poka fyrir öll sláturhús innan þeirra vébanda og ef fjöldi þeirra 6 tegunda sem við framleiðum fyrir þá eru lagðar saman þá eru þetta um milljón eining- ar.“ Þetta sagði Sigurður Arnórs- son framkvæmdastjóri Plastein- angrunar hf. á Akureyri í samtali við Dag. Fyrirtækið hóf fram- leiðslu á plastpokum sem notaðir eru utan um kjötskrokka fyrir um 10 árum, en þá pantaði Arnþór Jensen á Eskifirði um 2000 slíka poka. Að sögn Sigurðar er fram- leiðslan í dag ekki eingöngu bundin við þessa poka því einnig er um að ræða minni poka fyrir innmat og þessi framleiðsla fer í sláturhús um allt land. Unnið við framleiðslu á plastpokunum hjá Plasteinangrun hf. Á Ári æskunnar: Norðurlandsbyggö framtíðarinnar Fyrirhugað er að halda eins konar ráðstefnur í framhalds- skólum á Norðurlandi þar sem fjallað verður um byggða- málefni og framtíð norð- lenskra byggða undir yfírskríft- inni „Norðurlandsbyggð fram- tíðarinnar“. Tilgangur þessarar ráðstefnu er að vekja sterka byggðavitund þeirrar kynslóðar sem á næstu árum mun koma til áhrifa á Norðurlandi og fá hana til að taka fangbröðum á þeim vanda sem steðjar að landsbyggðinni; vakning sem síðar leiðir til sókn- ar og nýrra sigra. Nefnd sú sem stuðlaði að því að Norðurlandsleikar æskunnar voru haldnir í sumar, mun standa að skipulagningu þessara ráð- stefna í samráði við skólastjóra og kennara framhaldsskólanna. Gert er ráð fyrir að nemendur sjálfir leggi til umræðuefnið og mestan málatilbúnað. í framhaldi af þessum ráðstefn- um er svo gert ráð fyrir að hver skóli sendi einn fulltrúa á sam- eiginlega ráðstefnu sem haldin yrði á Akureyri í nóvember, eins konar fjórðungsþing æskunnar, þar sem æska Norðurlands ræddi sín málefni um framtíð norð- lenskra byggða. BB „Engin lausn sjáanleg“ - segir sveitarstjórinn á Vopnafirði um læknisleysið þar - Þórshafnar- búar læknislausir bráðlega? „Ég sé ekkert sem bendir til þess að úr þessu muni rætast á næstunni,“ sagði Sveinn Guð- mundsson sveitarstjóri á Vopnaflrði er við ræddum við hann um læknamál staðarins. nú fyrir helgina. Læknislaust hefur verið á Vopnafirði í nokkrar vikur eftir að læknirinn þar hélt í ársleyfi, en hann stundar nú framhalds- nám í Svíþjóð. Sveinn sagði að einn læknir hefði sýnt stöðunni áhuga en ekkert hefði orðið úr því að hann tæki hana að sér. - Nýr læknir á Þórshöfn, sem kom þangað um mánaðamótin, hefur sinnt Vopnfirðingum og kom þangað tvívegis í síðustu viku. Er það að sjálfsögðu til bóta en sá hængur er á að sá mun ekki ráðinn til Þórshafnar nema til 4 vikna og allt bendir til þess að þá verði Þórshafnarbúar einn- ig læknislausir. „Þetta er afar slæmt ástand," sagði Sveinn Guðmundsson. „Ég er búinn að ræða við land- lækni um þetta mál og hann sér enga lausn í sjónmáli. Við bind- um þó vonir við að í árslok gæti þetta batnað, en það er ekkert til þess að byggja á.“ gk-.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.