Dagur - 07.10.1985, Page 6
6 - DAGUR - 7. september 1985
7. september 1985 - DAGUR - 7
Knal 1- II1
spyrr úrsli IU“ it
Úrslit í 11. umferð ensku
knattspymunnar í 1. og 2.
deild um helgina urðu þessi:
Arsenal-Aston Villa 3:2 1
Birmingham-Sheff. Wed, 0:2 2
; Everton-Oxford 2:0
Luton-Man. United 1:1 x
Man. City-Chelsea 0:1
Newcastle-West Ham 1:2 2
Nott. Forest-Ipswich 3:1 1
QPR-Liverpool 2:1 1
Southampton-Watford 3:1 1
WBA-Tottenham 1:1 x
2. deild:
Barnsley-Portsmouth 0:1 2
Blackbum-Bradford 3:0
Brighton-Carlisle 6:1
Charlton-Sunderland 2:1
Fulham-Shrewsbury 2:1 1
Huddersfíeld-Leeds 3:1 1
Hull City-Stoke 0:2 2
Middlesb.-C. Palace 0:2
Norwich-Wimbledon 1:2
Oldham-Grimsby 2:1
Sheff. United-Millwall 1:3
Staðan
Man. United 11 10 1 0 28:4 31
Liverpool 11 632 26:3 21
Chelsea 11 632 15:10 21
Everton 11 623 20:12 20
Arsenal 11 623 15:12 20
Sheff. Wed. 11 623 17:18 20
Newcastle 11 S 3 3 18:16 18
Q.P.R. 11 6 0 5 15:15 18
Tottenham 11 524 23:13 17
Watford 11 5 15 22:18 16
West Ham 11 443 19:15 16
Birmingham 11 5 1 5 10:16 16
Aston Villa 11 353 15:13 14
Luton 11 353 14:15. 14
Coventry 11 3 44 16:14 13
Nott. Forest 11 4 1 6 16:17 13
Southampton U 254 13:13 11
Oxford 12 246 17:24 10
Leicester 11 236 11:16 9
Man. City 11 236 10:19 9
Ipswich U 2 1 8 5:18 7
W.B.A. 11 0 2 9 8:32 2
Kjartan og Þóroddur dæma áfram í 1. dcild.
Tveir nýir að
norðan í 1. deild
i
■
Á laugardag var fundur hjá Knattspyrnudóm-
arasambandi íslands.
Dagskrá fundarins var meðal annars niður-
stöður hæfnisnefndar frá í sumar og gerðar
voru breytingar á þeim hópi dómara sem
dæma í 1. deild fyrir næsta ár meðal annars út
frá niðurstöðum hennar.
í 1. deild er valinn 15 manna hópur hverju
sinni sem sér um dómgæslu á hverju sumri,
síðan á haustin eru gerðar breytingar á þeim
hópi m.a. út frá niðurstöðum hæfnisnefndar.
Að þessu sinni féllu 2 kunnir dómarar út af
Ílistanum, það voru þeir Ragnar Öm Péturs-
son er dæmir fyrir Val, og Friðjón Eðvarðs-
son er dæmir fyrir ÍA. í staðinn komu þeir
Bragi V. Bergmann er dæmir fyrir Árroðann
í Öngulsstaðahreppi og Magnús Jónatansson
er dæmir fyrir Þór.
Já tveir nýir 1. deildar dómarar frá Norður-
landi, og er það 50% aukning frá í fyrra. Fyrir
í þessuin hópi eru þeir Kjartan Tómasson og
Þóroddur Hjaltalín en þeir dæma báðir fyrir
Þór.
Er það ánægjulegt að vita að norðlenskir
dómarar skuli vera svo hátt skrifaðir og von-
andi eiga þeir eftir að skila sínu mcð sóma á
næstu sumri.
1 I
- Þór vann 30:21 eða 30:19
& ZEROWATT 5304
Þvottavél á tilboðsverði
Umsjón: Kristján Kristjánsson
Það undarlega gerðist á föstu-
dagskvöldið í leik Þórs og
Hvergerðinga í Hveragerði að
dómarar leiksins vantöldu
mörk Hvergerðinga í fyrri hálf-
leik, og misstu því Hvergerð-
ingar 2 mörk sem þeir höfðu
réttilega skorað.
Ekki er þó líklegt að þessi
mörk hefðu gert neinn regin-
mun þar sem Þórsliðið var all-
an tíman mun sterkari aðilinn
og sigur þess öruggur eins og
tölurnar bera með sér.
Þórsarar hófu leikinn strax af
miklum krafti og náðu strax í
upphafi 3 marka forskoti sem
þeir bættu svo við fyrir leikhlé.
Staðan í leikhléi samkvæmt
bókhaldi undirritaðs og bókhaldi
ritara leiksins var 16:10, en dóm-
ararnir virtust hafa gleymt að skrá
hjá sér 2 mörk Hvergerðinga, svo
opinber staða í hálfleik var 16:8.
Bæði ritari leiksins og undirrit-
aður áttu í vandræðum með að
ákveða af hvaða leikmanni ætti
að taka þessi 2 mörk. Engu var
líkara en að þetta atvik hafi
þjappað Hvergerðingum saman,
því í upphafi seinni hálfleiks
börðust þeir vel og náðu að saxa
á forskot Þórsara, og á tímabili
var munurinn 4 mörk, en svo gáf-
ust Hvergerðingar hreinlega upp
og Þórsarar juku forskotið jafnt
og þétt tii leiksloka, og unnu sem
fyrr segir 30:19 samkvæmt taln-
ingu dómara.
Lið Hveragerðis er fremur
slakt og byggir allt upp á einum
manni, Stefáni Halldórssyni
(fyrrum Víkingsmiðverði í knatt-
spyrnu) en hann bæði stjórnar
spilinu og skorar bróðurpartinn
af mörkunum. Aðrir sem komust
þokkalega frá leiknum gegn Þór
voru hornamaðurinn Anton
Tómasson, línumaðurinn Gunn-
ar Einarsson og markvörðurinn
Ólafur Ragnarsson sem varði 9
skot og þar af eitt víti.
Þórsliðið spilaði ágætlega í
þessum leik en mótherjinn var
einfaldlega of slakur til þess að
hægt sé að dæma getu liðsins af
þessum leik. Þó er hægt að full-
yrða að þetta fremur unga lið (að
undanskildum Gunnari Gunnars-
syni), hefur alla burði til að verða
nokkuð gott.
Bestir í liði Þórs voru, Baldvin
Heiðarsson, Ingólfur Samúelsson
og Hermann Karlsson sem varði
13 skot í leiknum þar af eitt víti.
AE/Reykjavík.
____íþróttic__________
Geysileg spenna
í lokin
- þegar Þór og Selfoss gerðu jafntefli 16:16
Það var allt á suðupunkti í
Iþróttahúsinu á Selfossi á síð-
ustu mínútu leiksins á laugar-
dag. Selfyssingar misstu niður
öruggt forskot og eftir að Þórs-
arar höfðu jafnað 16:16 sýndi
klukkan að 1 mínúta var eftir
af leiktímanum.
Selfyssingar hófu sókn en
misstu boltan þegar um hálf mín-
úta var til leiksloka.
Þórsarar hófu sókn en brotið
var á þeim þegar um 4 sekúndur
voru eftir. Þórsarar stilltu upp í
aukakast en brotið var á Aðal-
birni þegar 2 sekúndur voru eftir.
Aftur stillt upp og úr því átti
Aðalbjörn skot rétt yfir um leið
og tímabjallan gall.
Ekki blés byrlega fyrir Þórsara
í fyrri hálfleik því eftir jafnræði
V ...—s,
til að byrja með komust Selfyss-
ingar í 11:5 en Þórsarar skoruðu
svo síðustu 3 mörk hálfleiksins og
minkuðu muninn í 11:8.
Þórsarar hófu svo seinni hálf-
leikinn eins og þeir höfðu endað
þann fyrri og skoruðu 3 mörk í
röð og jöfnuðu þar með leikinn
11:11.
Selfyssingar svöruðu með 2
mörkum og komust svo í 15:12,
en á síðustu mínútunum skoruðu
Þórsarar svo 4 mörk gegn 1. Síð-
ustu mínútunni var svo lýst hér
að ofan. Eins og markatalan ber
með voru varnir beggja liða
sterkar og markvarslan góð.
Sóknarleikurinn var hins vegar
nokkuð lakari og ekki mikið
augnayndi.
Bestir í liði Selfoss voru Ólafur
Einarsson markvörður, Steindór
Gunnarsson og Sigurður Sævars-
son.
í liði Þórs voru Hermann
Karlsson, Kristinn Hreinsson,
Aðalbjörn Svanlaugsson og
Gunnar Gunnarsson bestir.
Gunnar var reyndar útilokaður
frá leiknum þegar nokkrar mín-
útur voru til leiksloka.
Mörk Selfoss: Sigurður Sæ-
varsson 7, Steindór Gunnarsson
5, Arnar Friðþjófsson 3 og Grím-
ur Hergeirsson 1.
Mörk Þórs: Aðalbjörn Svan-
laugsson og Kristinn Hreinsson
4, Gunnar Gunnarsson 3, Einar
Áskelsson 2, Sigurpáll Aðal-
steinsson, Baldvin Heiðarsson og
Ingólfur Samúelsson 1 mark
hver. AE/Reykjavík.
Marítasúpa í Hveragerði
Völsungar skomðu 39 mörk
Þeir féhgar Þorsteinn og Björn þjálfa meistaraflokk
Þórs. Mynd: KK
Þórsarar ráða
Þorstein
Þórsarar léku sterkan leik um helgina, er þeir
gengu frá ráðningu Þorsteins Ólafssonar til að
vera Birni Árnasyni til aðstoðar í vetur þegar
æfíngar hefjast úti fyrir komandi knattspyrnu-
tímabil. Þorsteinn mun einnig þjálfa 2. fíokk
næsta ár og mun hann sjá um allar markmanns-
æfíngar hjá Þór næsta sumar.
Gæti það orðið til þess að Þórsarar eignist
marga unga og efnilega markverði á komandi
árum. Þetta þýðir einnig að bæði Leiftur og
Magni þurfa að halda áfram í þjálfaraleit, en eins
og kom fram í blaðinu á dögunum höfðu bæði lið-
in mikinn áhuga á að fá Þorstein til starfa.
Járn- og glervörudeild.
Ingólfur Samúelsson skorar gegn Selfossi.
á leikmenn. Langatkvæðamestur
var þó Pálmi Pálmason eins og
fyrri daginn með 13 mörk og mik-
ið af góðum sendingum. Arnar
Guðlaugsson og Sigurður Illuga-
son léku einnig vel.
Mörk Hvergerðinga: Stefán
Halldórsson 13, Anton Tómas-
son 8, Sveinn Erlendsson 3,
Sæmundur Pálsson og Kristinn
Theodórsson 2 og Gunnar Ein-
arsson 1.
Mörk Völsunga: Pálmi Pálma-
son 13, Arnar Guðlaugsson 7,
Sigurður Ulugason 6, Sigmundur
Hreiðarsson 4, Pétur Pétursson
og Bjarni Bogason 3, Gunnar Jó-
hannsson 2 og Sigurður Þrastar-
son 1. AE/Reykjavík.
Jónas
og
Guðmundur
prúðastir
Eins og fram kemur annars
staðar á síðunni héldu knatt-
spyrnudómarar fund um helg-
ina. Eitt atriði á dagskrá fund-
arns var val dómara á besta
leikmanni í 1. og 2. deild og
einnig þeim prúðasta í hvorri
deild.
Besti leikmaður 1. deildar var
valinn Guðmundur Þorbjörnsson
úr Val og prúðasti hinn hugljúfi
leikmaður úr Þór Jónas Róberts-
son.
í 2. deild var valinn bestur
Ómar Jóhannsson úr ÍBV og
prúðasti leikmaðurinn var Guð-
mundur Garðarsson frá Leiftri
Ólafsfirði.
Mega norðanmenn vel við una
eftir þessa miklu ráðstefnu dóm-
aranna um helgina.
Tæknilegar upplýsingar:
Þvottur: 5 kg.
Vatnsmagan: 381.
Þeytivinda: 550 sn./mín.
Belgur úr stáli og polypropylene.
Hiti: 1950 W.
Dæla: 80 W.
Mótor í þvotti: 250 W.
Mótor í þeytivindingu: 800 W.
Ummál: 85x60x41,8.
Verð kr. 20.235,- stgr.
Fyrri hálfleikur var jafn og
spennandi og skiptust liðin á
um að hafa forystu fyrstu 15
mínúturnar en þá tóku Selfyss-
ingar kipp og náðu 3ia marka
forskoti 9:6.
Völsungar tóku sig svo á og
minnkuðu muninn í 1 mark og
staðan í hálfleik 12:11 fyrir
Selfoss. Selfyssingar skoruðu 2
fyrstu mörkin í seinni hálfleik og
staðan orðin 14:11, en Völsungar
svöruðu með 3 mörkum í röð og
jöfnuðu 14:14. Eftir þetta seig
hins vegar á ógæfuhliðina fyrir
Völsunga því Selfyssingar skor-
uðu næstu 3 mörk og bættu svo
hægt og bítandi við forystu sína
allt til leiksloka.
Lokatölur leiksins 22:17..
Enginn rekinn út af
Selfyssingar sýndu það í þess-
um leik að þeim verður sýnd
veiði en ekki gefin í vetur í 3.
deildinni í handknattleik.
Liðið virkar þó nokkuð sann-
færandi með stóra og sterka
stráka innan raða sinna, sem
Steindór Gunnarsson fyrrum
Valsari stjórnar eins og herfor-
ingi.
Völsungar sýndu það líka að
með meiri samæfingu ættu þeir
að geta gert ágæta hluti. Sóknar-
leikurinn hjá liðinu var ágætur en
vörnin og markvarslan veiku
punktarnir í þessum leik. Til
dæmis var fáránlegt að leyfa
gamla línupotaranum Steindóri
Gunnarssyni að skora skipti eftir
skipti utan af punktalínu.
Bestir í liði Selfoss voru
Steindór Gunnarsson, Sigurður
Sævarsson og Ólafur Einarsson
sem varði markið mjög vel.
Bestir í liði Völsunga voru
Pálmi Pálmason, Arnar Guð-
laugsson og Pétur Pétursson.
Mörk Selfoss: Steindór Gunn-
arsson 8 (2), Sigurður Sævarsson
5, Grímur Hergeirsson 3 og aðrir
minna.
Mörk Völsunga: Pálmi Pálma-
son 8 (1), Arnar Guðlaugsson 4,
Birgir Skúlason 3, Pétur Péturs-
son 3, Sigmundur Hreiðarsson og
Gunnar Jóhannsson 1 mark hvor.
Það má geta þess að markvörð-
urinn hjá Völsungum Bjarni Pét-
ursson lék ekki með í leikjunum
fyrir sunnan af ókunnum ástæð-
um undirritaðs. AE/Reykjavík.
góðan sprett og komust í 8:3 eftir
aðeins 10 mínútna leik. Áfram-
haldið var svipað og eftir 20 mín-
útur var staðan 17:10. Staðan í
hálfleik 23:17 eins og fyrr segir.
Markaflóðið hélt síðan áfram í
næstum því jafn stríðum straumi
í síðari hálfleik og lokatölurnar
urðu 39:29.
Sóknarleikurinn var í góðu lagi
hjá báðum liðum eins og marka-
talan ber með sér, en vörn og
markvarsla voru að sama skapi í
lakara lagi.
Langbestur Hvergerðinga var
Stefán Halldórsson en Anton
Tómasson spilaði einnig vel.
Hjá Völsungum má segja að
allir hafi spilað vel í sókninni
enda dreifðist markaskorunin vel
SÍMI
(96)21400
Það var sannkölluð markasúpa
sem áhorfendum í Hveragerði
var boðið upp á laugardag í
Ieik Hvergerðinga og Völs-
unga. Lokatölur urðu 39:29
fyrir Völsunga og staðan í hálf-
leik var 23:17.
Sigurður Illugason skorar eitt af 6 mörkum sínum geen Hveraeerði.
Mynd: AE
miklum látum og sýnt var frá
upphafi hvert stefndi í marka-
skorun. Varnir beggja Iiða frem-
ur slakar og markvarslan þar af
leiðandi líka. Sóknarleikurinn
var hins vegar mun frískari og sá-
ust mörg falleg mörk.
Það voru norðanmenn sem
byrjuðu betur og komust í 2:0, en
Hvergerðingar minnkuðu mun-
inn í 3:2, en þá tóku Völsungar
Oruggur sigur Selfoss
á Völsungi
Vorusalan
Hmn þekkti enski
snyrtifræðingur
frá Boots kynnir
nr. 7 a morgun.
Faiö okeypis
raöieggingar.
Jón Kristjánsson dregur fyrstu töl-
urnar. Mynd: KGA
Bfla-
bingó KA
Blaöabingó KA:
Fyrstu tölur:
G-50.
N-40.
Möridn vitlaust talin