Dagur - 07.10.1985, Blaðsíða 11
7. september 1985 - DAGUR - 11
Munkaþverár-Klausturkiriqa
Prédikunar-
stóllinn og
altarisbríkin
Prédikunarstóllinn, sem áður er
minnst á, kom 1860. Fleiri gripir
bættust kirkjunni á því ári. Tvær
kristalsljósakrónur, tveir litlir altar-
isstjakar og altaristaflan, sem nú er á
hliðarvegg. Var Jón Chr. Stepháns-
son, timburmeistari á Akureyri feng-
inn til þess að koma gripum þessum
fyrir, ásamt með smíðinu á þakglugg-
anum. Prédikunarstóllinn, sem er
með himni, var fenginn frá Kaup-
mannahöfn, og pantaði hann E.
Möller, faktor. Kostaði gripurinn 70
ríkisdali, en amtmaður hafði sagt að
hann mætti í mesta lagi kosta 50-60
dali. En ekki var hægt að hætta við
kaupin þótt verðið væri þetta hærra,
og bjargaði Möðruvalla-klaustur-
kirkja málunum í bili. En þessi stóll
leysti af hólmi gamla fimmkantaða
stólinn úr krosskirkjunni. Mun sá
hafa laslegur verið orðinn, því að
Daníel prófastur sagði „gremjulegt
að sjá hann í svo snotru guðshúsi.“
Þessi gripur er nú í „ruslageymslu“
Pjóðminjasafns, og vissulega ekki
sem best á sig kominn. En forláta
gripur hefir þetta verið á sinni tíð.
Og víst mætti gera hann upp að nýju,
svo að ekki væri skömmin að. Hefir
mér dottið í hug, að reynandi væri að
fá hann í væntanlegan safnaðarsal í
kjallara kirkjunnar, ef sú hugmynd
nær fram að ganga.
Á prédikunarstól þessum er áletr-
un, tekin úr 19. sálmi Davíðs og upp-
hafi spádómsbókar Jesajasar: „Um
öll lönd er þeirra hljómur út genginn.
- Heyrið þér himnar og þú Jörð,
hlusta til með eyrunum, því að
Drottinn hann talar.“
Um gömlu altarisbríkina, sem var
í krosskirkjunni, segir 1821 svo:
„Gömul vængja Altarisbrík með Bí-
lætum af Alabasti, víða forgyllt, í
nokkrum stöðum gölluð." Árið 1862
var hún send „konunglega forngripa-
safninu í Kaupmannahöfn“.“ Léleg
„kópía“ eftir danskan málara kom í
staðinn. En sem borgun fyrir altaris-
bríkina var kirkjunni sendur „1
Messehagel af röd Atlask... noget
slidt'M
Hér tókst mjög slysalega til.. Nú er
þessi altarisbrík úr Munkaþverár-
klausturkirkju á virðulegum stað í
þjóðminjasafni Dana í Kaupmanna-
höfn, og er talinn hinn mesti dýrgrip-
ur. Örn Helgason skrifar ágæta grein
í 13. árg. Súlna, um altarisbrík þessa
og fylgir góð mynd af henni, sem hér
er fengin að láni.
0 Fleira, varð-
andi húsbúnað
kirkjunnar
Um aðra forna gripi kirkjunnar, þá
sem enn eru í eigu hennar, er ekki
margt að segja. Klukkur eru tvær,
önnur með ártalinu 1729, en hin frá
1766, tillögð af Sveini Sölvasyni, lög-
manni og skáldi, er hélt Munkaþver-
ár-klaustur frá 1759 til 1782. Þá er
skírnarvatnskanna „af engelsku
tini“, gefin 1759 af frú Málmfríði
Jónsdóttur, konu Sveins Sölvasonar.
Þá á kirkjan silfurrósóttan hökul,
sérkennilegan merkisgrip, sem nú er
í viðgerð í Þjóðminjasafni. Fleira
hirði ég ekki um að telja hér.
Orgelharmóníum kom fyrst í kirkj-
una 1902. Magnús Sigurðsson á
Grund útvegaði það og kostaði grip-
urinn 250 krónur að viðbættum
vöxtum, kr. 3,89. Pað var af amer-
ískri gerð, með mikilli yfirbyggingu.
Áður voru þó notuð orgel í kirkjunni
en þá fengin að láni, t.d. hjá Jóni
Arasyni á Þverá, sem stundum var
organisti í kirkjunni. Ekki veit ég,
hver muni hafa verið fyrsti organist-
inn, en það gæti hafa verið Jóhanna
-140 ára og ári betur
Gunnarsdóttir, síðar prestsfrú á
Bægisá. '
Árið 1875 skrifaði þáverandi um-
boðsmaður kirkjunnar, Eggert
Gunnarsson, amtmanninum á
Möðruvöllum og segir að sér sé
„einkar hugleikið að styðja Munka-
þverár sóknarbændur til að koma
upp orgeli í kirkjunni, sem kosta
mundi rúma 100 rd.“. Segir hann:
„Að ýmsir bestu menn í téðri sókn
hafi áhuga á þessu máli.“ Rúmum
aldarfjórðungi seinna rættist svo hug-
sjón þeirra.
Bjartmar
Kristjánsson
skrifar
Þriðji hluti
0 Altarisljósin
Stearínkerti voru fyrst notuð á jólum
1892. Áður voru kirkjunni árlega til-
lögð 12 pund tólgur til kertagerðar.
Indriða Einarssyni, endurskoðanda
kirkjureikninga, þótti það mikil
eyðslusemi, að á þessu ári stóð á
reikningnum verðið á 12 pundum
tólgur og auk þess kr. 36,70 fyrir
stearínkerti. En Ari skýrði málið:
„Pessi 12 pd. tólgur eru tillögð kirkj-
unni fyrir fardaga 1891-92. En með
því að stearínkertin komu í septem-
ber, áður en reikningurinn var
saminn, setti ég þau á reikninginn.
Ég hefi ef til vill keypt heldur mikið
af altariskertum, en ég gjörði það svo
ég þyrfti ekki að biðja um þau frá út-
löndum árlega."
Og Grímur amtmaður lét sér detta
í hug, að spara mætti ljósmetið með
því að kveikja ekki á altariskertun-
um yfir sumarmánuðina! Ari lagði
málið fyrir prófast. En svo undarlegt
sem það var, vildi hann ekki tjá sig
um það. En sóknarmenn voru þess-
um sparnaði andvígir og Ari líka.
Sagði hann amtmanni, að ljósin væru
ekki kveikt um hásumarið til þess að
fá birtu. Petta væri venja, sem því
síður mætti missa sig, þar sem guðs-
þjónustan væri að öðru leyti ekki svo
ýkja hátíðleg! Altarisljósin væru
fyrst og fremst tendruð ljóssins og
lífsins föður til dýrðar. Og það varð
ekkert úr þessum sparnaði! Svona
kyndugt verður það stundum, þegar
sparnaðarandinn grípur yfirvöldin.
0 Hugað að
nýrri kirkju-
byggingu
í prófastsvísitasíu 1911 er bókað, að
kirkjan „megi heita í góðu ástandi".
Þó er sagt að hún sé „talsvert skinin
að sunnanverðu og allt bik af turnin-
um“. „En bæði prófastur og sóknar-
nefnd lítur svo á, að ekki sé vert að
kosta bikun að nýju, og yfir höfuð,
að úr þessu skuli sem allra minnst
upp á kirkjuna kosta." Og næstu árin
er lítið aðhafst og sýnist stöðugt síga
á ógæfuhlið með útlit kirkjunnar.
1922 vísiterar Jón biskup Helgason
kirkjuna. Þar er sagt „í áformi að
endurreisa kirkjuna úr steinsteypu,
jafnskjótt og byggingarefni lækkar,
enda megi hún heita vel efnum búin,
þar sem sjóður hennar sé nú kr.
8.000,00“. í prófastsvísitasíu 1924 er
sagt að söfnuðurinn sé alveg horfinn
frá því að lappa upp á kirkjuna, „en
hefir í þess stað í hyggju að leggja
þessa kirkju niður og byggja nýja á
öðrum hentugri og fallegri stað“.
En svo gerist það, að húsameistari
ríkisins, Guðjón Samúelsson, kemur
1925 og skoðar kirkjuna. Hafði hann
tal af tveimur sóknarnefndarmönn-
um og „hafði lagt það til við þá, að
horfið væri frá því að byggja upp
kirkjuna, því hún væri svo veglegt
hús, að réttara væri að gera heldur
við hana“.
En þrátt fyrir þetta heldur þó
sóknarnefnd og söfnuður sínu striki.
Er haft samband við biskup og hermt
upp á hann vilyrði fyrir lánveitingu til
nýsmíðinnar. En ekkert gengur eða
rekur. Og í prófastsvísitasíu 1926 er
þess getið, að biskup hafi verið beð-
inn um teikningu að nýrri kirkju, er
rúmaði 170 til 180 manns, en ekki
fengist svar. Er um kennt afstöðu
húsameistara, sem sé „mjög annt um
að kirkjan fái að standa áfram, því
húsið sé svo kirkjulegt og stíll þess
svo sérstæður og í hans augum svo
einkennilega fallegur".
Það er líka auðséð, að Guðjóni
Samúelssyni hefir verið þetta hjart-
ans mál, því að 1927 er sagt að hann
hafi komið og „athugað kirkjuna
vandlega". Og enn kemur hann
1930. Fljótt eftir það hljóðnar allt tal
um nýja kirkju, en farið að huga að
því að gera þeirri gömlu heldur til
góða. Og það var lán, að Guðjóni
tókst að bjarga kirkjunni. Ég efa, að
kirkja úr steini, reist á þessum árum,
hefði orðið ánægjulegt hús. Og enn
er sagt, að húsameistari hafi komið
1942 og skoðað kirkjuna, og „vildi
hann breyta henni í sitt upphaflega
form“.
Þegar Hallgrímur biskup Sveins-
son vísiteraði kirkjuna 1900 er sagt,
að hún sé „landssjóðseign en verði
innan skamms afhent söfnuðinum".
Og 1903 er sagt að kirkjan sé „nýlega
komin í hendur safnaðarins".
0 Lokaorð
Farið hefir verið fljótt yfir sögu þessa
forna helgidóms að Munka-Þverá, og
skal nú staðar nema. En í lokin vil ég
minna á, að sóknarbændur vildu hafa
kirkjuna sína eins vandaða, full-
komna og fagra og kostur var, á sinni
tíð. En það er samt ekki við því að
búast. að þetta bús frá miðri nítjándu
öld. svari nú kröfum tímans. Og nú.
þegar mikil viðgerð og endurbót á
Munkaþverár-klausturkirkju stendur
fyrir dyrum, þá vil ég ekki efa, að
sóknarfólkið vilji enn hafa kirkju
sína svo úr garði gerða, að „ekkert
vanti á fullkomna prýði hennar".
Munka-Pverá, er í tölu merkustu
sögustaða landsins. Hallast þar ekki
mikið á. hvort litið er á ..veraldlega"
sögu staðarins eða hina kirkjulegu.
Pað er því vandgert við þennan stað.
svo að sómi megi að vera. Og þetta
mál er miklu stærra en svo, að það
snerti sóknina eina: Munkaþverár-
kla usturkirkj usókn.
Bjartmar Kristjánsson.
Heimildir: Gamlar gjörðabækur
Munkaþverár-Klausturkirkju.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 30., 33. og 35. tbl. Lögbirtingablaðsins 1984
á fasteigninni Seljahlíð 7f, Akureyri, þingl. eign Jóhanns Péturs
Valssonar, fer fram eftir kröfu innheimtumanns ríkisjóðs og
bæjargjaldkerans á Akureyri á eigninni sjálfri föstudaginn 11.
október 1985 kl. 16.30.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 2., 5. og 8. tbl. Lögbirtingablaðsins 1984 á
fasteigninni Lerkilundi 7, Akureyri, þingl. eign Júlíusar Björg-
vinssonar, fer fram eftir kröfu Hreins Pálssonar hdl. og bæjar-
gjaldkerans á Akureyri á eigninni sjálfri föstudaginn 11. októ-
ber 1985 kl. 15.15.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 60., 62. og 65. tbl. Lögbirtingablaðsins 1981
á fasteigninni Skarðshlið 12d, Akureyri, þingl. eign Einis Þor-
leifssonar, fer fram eftir kröfu Gunnars Sólnes hrl., veðdeildar
Landsbanka Islands, Ragnars Steinbergssonar hrl., Guðjóns
Á. Jónssonar hdl. og Jóns Kr. Sólnes hrl. á eigninni sjálfri
föstudaginn 11. október 1985 kl. 16.45.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 14., 17. og 20. tbl. Lögbirtingablaðsins 1984
á fasteigninni Sunnuhlíð 2, Akureyri, þingl. eign Fjölnis Sigur-
jónssonar, fer fram eftir kröfu Iðnaðarbanka íslands hf. og
Jóns Kr. Sólnes hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 11. október
1985 kl. 16.15.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
Vegna vanefnda uppboðskaupanda á greiðslu uppboðsverðs
fasteignarinnar Ásabyggðar 16, Akureyri, þingl. eign Hjalta
Rögnvaldssonar og Önnu Rögnvaldsdóttur, og að kröfu
Björns J. Arnviðarsonar hdl., Gunnars Sólnes hrl., Ragnars
Steinbergssonar hrl. og Benedikts Ólafssonar hdl., fer fram
lokauppboð á Ásabyggð 16, Akureyri og verður haldið á eign-
inni sjálfri föstudaginn 11. október 1985 kl. 17.15.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síöasta á Rauðumýri 12, Akureyri, þingl. eign Jón-
steins Aðalsteinssonar o.fl., fer fram eftir kröfu veðdeildar
Landsbanka íslands, Hjalta Steinþórssonar hdl. og Gunnars
Sólnes hrl. á eigninni sjálfri föstudaginn 11. október 1985 kl.
17.00.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Nauðungaruppboð
annað og síðasta á Kjalarsíðu 8c, Akureyri, þingl. eign Hall-
gríms Stefánssonar, fer fram eftir kröfu Tryggingastofnunar
ríkisins, Arnar Höskuldssonar hdl., Gunnars Sólnes hrl., veð-
deildar Landsbanka íslands og bæjargjaldkerans á Akureyri á
eigninni sjálfri föstudaginn 11. október 1985 kl. 14.15.
Bæjarfógetinn á Akureyri.
Blaðabingó
Spjöld til sölu í
Ferðanesti,
Shell við Mýrarveg,
Essó við Tryggvabraut.
Ennfremur hafa eftirtaldur aðilar
spjöld til sölu:
Ólafur Ásgeirsson, sími 21606,
Sigurður Sigurðsson, sími 24719,
Jóhann Karl Sigurðsson, sími 22236,
Erlendur Hermannsson, sími 25185,
Gunnar Níelsson, sími 22287.
Hafðu samband og við færum þér
spjaldið heim.
Handknattleiksdeild KA.