Dagur - 23.10.1985, Blaðsíða 1
68. árgangur Akureyri, miðvikudagur 23. október 1985 126. tölublað
Hilmir SU 171:
- Fáum mun hærra verð þar, segir útgerðarmaður skipsins
möguleika á
sjónvarpsstöð
„Það er rétt, ég hef tryggt mér
einkarétt á nafninu „Utvarp
Akureyri“, en hins vegar hef
ég ekki áformað að hefja út-
varpsrekstur eftir áramótin,“
sagði Pálmi Guðmundsson í
samtali við Dag.
Pálmi er meðal þeirra sem orð-
aðir hafa verið við hugsanlegan
útvarpsrekstur eftir áramótin,
þegar ný útvarpslög taka gildi og
einkaréttur Ríkisútvarpsins til
sjónvarps- og útvarpssendinga
verður afnuminn. Ýmislegt er
þó enn óljóst varðandi þessi nýju
lög. Samkvæmt þeim á sérstök
nefnd að taka til starfa um ára-
mótin, sem fjalla mun um um-
sóknir tii útvarps- og sjónvarps-
reksturs, jafnframt því sem hún
mun móta reglugerð, þar sem
nánar verður kveðið á um ýmis
atriði, sem óljós eru í lögunum.
Samver hf. er fyrirtæki á Akur-
eyri, sem gert hefur þætti, fréttir
og auglýsingar fyrir sjónvarp og
auglýsingar fyrir Rás 2 og svæðis-
útvarpið. Fyrirtækið ræður yfir
mjög fullkomnum tækjabúnaði,
þannig að lítið vantar annað en
sendinn til að hefja sjónvarpsút-
sendingar.
„Viö höfum hugleitt þessi mál
og kynnt okkur grannt hvaða
Þórarinn Ágústsson framkvæmda-
stjóri og kvikmyndatökumaður
Samvers að störfum. Mynd: KGA.
tækjabúnaður er í boði fyrir sjón-
varps- og útvarpsstöðvar. Pessa
dagana er unnið að lokaathugun
á þessum málum og þegar niður-
staða hennar liggur fyrir má bú-
ast við því að ákvörðun verði tek-
in um hugsanlega sjónvarps-
stöð,“ sagði Þórarinn Ágústsson,
framkvæmdastjóri Samvers hf., í
samtali við Dag. - GS
Flugfreyjuverkfa11 hófst um miðnætti:
Allt áætlunarflug
fellur
„Það er Ijóst að ef verkfall
flugfreyja hefst í kvöld eins og
allar líkur eru á, þá stöðvast
allur flugfloti Flugleiða sam-
stundis,“ sagði Gunnar Oddur
Sigurðsson stöðvarstjóri Flug-
leiða á Akureyri í gær er hann
var spurður um verkfall það
sem flugfreyjur höfðu boðað
frá miðnætti sl.
Smærri flugfélög fljúga áfram
sem endranær vegna þess að þar
starfa ekki flugfreyjur um borð.
Samkvæmt íslenskum lögum er
niður
heimilt að fljúga nteð allt að rn'tj-
án farþega án þess að hafa
starfsmann í farþegarými af ör-
yggisástæðunr.
Gunnar Oddur sagði að lítil-
lega hefði borið á að fölk gerði
ráðstafanir og breytti ferðaáætlun
vegna fyrirhugaðs verkfalls.
Hann tók einnig frain að þrátt
fyrir að farþegar kærnust ekki
leiðar sinnar myndu Flugleiðir
gera allt til að sinna póst- og
fraktflutningum meðan á verk-
falli stæði. - gej
„Við fáum talsvert hærra verð
fyrir loðnuna í Danmörku en
hér heima og svo fáum við olíu
þar fyrir 20-25% lægra verð,“
sagði Jóhann Antoníusson, út-
gerðarmaður Hilmis SU 171 í
samtali við Dag.
Húsavík:
Riffilskot í
gegnum glugga
Tveir ungir Húsvíkingar, 12
ára gamlir, komust yfir riffll í
heimahúsi í fyrrakvöld. A öðr-
um stað í húsinu fundu þeir
skot í riffllinn og gátu hlaðið
hann og skotið tveimur
skotum.
Annað skotið lenti í íbúðar-
húsi, fór í gegnum glugga með
tvöföldu gleri og hafnaði í stofu-
loftinu. Hjón voru fyrir í fbúð-
inni en þau sakaði ekki.
„Mjög mikilvægt er að gengið
sé þannig frá skotvopnum að
börn geti ekki hlaðið þau þótt
þau komist yfir bæði skot og
skotfæri. Það þarf að taka lásinn
úr rifflunum og hafa haglabyssur
í tvennu lagi. Ekki má heldur
geyma hlutana á sama stað.
Menn eiga að ganga þannig frá
byssum að óviðkomandi geti ekki
notað þær,“ sagði Daníel Guð-
mundsson lögreglumaður á
Húsavík.
Það var mesta mildi að ekki fór
verr og menn sluppu með skrekk-
inn að þessu sinni. IM/BB.
Hilmir er á leið til Danmerkur
með 1350 tonn af loðnu eftir að
hafa komið við á Siglufirði í gær-
morgun. Ekki var laust löndun-
arpláss nema í Vestmannaeyjum
og á sunnanverðum Austfjörðum
og var því tekin ákvörðun um að
sigla alla leið til Danmerkur með
aflann. Um þriggja og hálfs sól-
arhrings sigling er af loðnumið-
unum til Danmerkur þannig að
gera má ráð fyrir að 8-9 dagar fari
í siglinguna fram og til baka og
löndunina.
Jóhann sagði að hefðu þeir get-
að fengið löndun strax á Siglu-
firði eða nálægri höfn hefðu þeir
þegið það til að missa ekki svo
langan tíma frá veiðum en þar
sem ekkert pláss var laust á
Norðurlandi hefðu þeir tekið
þann kostinn að sigla til Dan-
merkur.
í fyrra sigldi Hilmir tíu sinnum
með loðnu og sagði Jóhann að
þeir væru búnir að reikna það
fram og aftur að þeir fengju upp
undir helmingi hærra verð fyrir
loðnuna í Danmörku og þar með
verður hásetahluturinn sömuleið-
is tæplega helmingi hærri, en ef
þeir hefðu landað heima.
Eftir því sem Dagur kemst
næst hættu íslenskar loðnuverk-
smiðjur að yfirborga loðnu við
síðustu loðnuverðsákvörðun og
fá loðnuseljendur því aðeins það
verð sem ákveðið er af Verð-
lagsráði í sinn hlut. Samkvæmt
því hefði útgerð Hilmis fengið
eitthvað nálægt 2.500 krónum
fyrir tonnið miðað við fituinni-
hald loðnunnar um þessar
mundir. -yk.
Þungaskattur 23ja tonna vörubifreiða:
Svona bflar kosta 4 millj. stykkið, þar af eru tollar lVi miUj., hjólbarðar ca.
200 þús. Og svo kostar 9 kr. í þungaskatt hver ekinn kflómetri!
Mynd: KGA.
10.300% hækkun á 8 árum
- síðasta hækkun 56% - gjaldskrá hækkar í kjölfarið
Það hefur víst ekki farið fram
hjá nokkrum manni að álögur
á bifreiðaeigendur eru alltaf að
þyngjast. Mest hefur heyrst í
eigendum bensínbfla, enda eru
þeir fjölmennastir. Dieselbfla-
eigendur hafa þó ekki farið
varhluta af hækkununum og þó
sérstaklega eigendur vörubif-
reiða.
Stefán Árnason framkvæmda-
stjóri Vörubifreiðastöðvarinnar
Stefnis á Akureyri hefur tekið
saman mjög athyglisverðar tölur
um hækkanir á bensíni og þunga-
skatti frá árinu 1977 og til 10.
Hræringar í fjölmiðlaheiminum vegna
nýju útvarpslaganna:
Samver kannar
október sl.
Á þessum tíma hefur bygginga-
vísitalan hækkað um 2590%,
bensínið um 4300%, þungaskatt-
ur 10 tonna dieselbifreiða um
6800% og þungaskattur 23ja
tonna dieselbifreiða um hvorki
meira né minna en 10300%.
„Það er auðvitað landsbyggðin
fyrst og fremst sem borgar þessa
gífurlegu hækkun, því hækkunin
veltur beint áfram út í verðlagið.
Það er fólkið í dreifbýlinu sem
notar flutningabílana mest,"
sagði Stefán Pálsson, fram-
kvæmdastjóri Landvara, landsfé-
lags vörubifreiðaeigenda á flutn-
ingaleiðum.
Seinasta hækkun þungaskatts
hljóðaði upp á 56% og þykir
dieselbílaeigendum að nú sé nóg
komið og eru með ýmsar aðgerð-
ir í bígerð."
„Þetta er hreinasta skattpín-
ing,“ sagði einn vörubílstjórinn,
„og við getum ekki setið undir
þessu mikið lengur.“
Sl. föstudag varð hækkun á
gjaldskrám leigubifreiða, sérleyf-
isbíla og vörullutningabíla.
Hækkunin er á bilinu 10-17%.
Sjá bls. 3.
Siglir til Danmeriair
með loðnufarm