Dagur - 23.10.1985, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 23. október 1985
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SlMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 360 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 35 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GI'SLI SIGURGEIRSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN,
GESTUR E. JÓNASSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík),
YNGVI KJARTANSSON, KRISTJÁN G. ARNGRÍMSSON,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT P. ÞÓRSDÓTTIR,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
UeiðarL
Herðum sóknina
Ríkisstjórn Steingríms Hermannssonar
hefur gert efnahagsáætlun til þriggja ára.
Megintilgangurinn með þeirri áætlun er að
sýna fram á, að með markvissum aðgerð-
um, sem hafa áhrif til langs tíma, er hægt
að koma á jafnvægi í efnahagsmálum þjóð-
arinnar. En til þess að þetta takist þarf að
ná ákveðnum grundvallaratriðum. Um það
sagði Steingrímur Hermannsson m.a. í
stefnuræðu sinni á Alþingi:
„Lækkun erlendra skulda verður að mati
ríkisstjórnarinnar óhjákvæmilegt megin-
markmið í efnahagsmálum þjóðarinnar
næstu árin. Jafnframt er nauðsynlegt að
leggja áherslu á, að hjöðnun verðbólgu
haldi áfram. Þetta ber þó að gera með að-
haldi á öllum sviðum, án þess þó að til at-
vinnuleysis komi, og með aukinni fram-
leiðslu.
Stefna sem þessi er að sjálfsögðu annars
vegar háð þróun sjávarútvegs hér á landi
og hins vegar efnahagsmálum í helstu við-
skiptalöndum okkar. Þótt slíkir þættir
breytist til hins verra, er það skoðun ríkis-
stjórnarinnar, að ekki megi slaka á því
meginmarkmiði að lækka erlendar
skuldir."
Síðar í ræðu sinni sagði Steingrímur:
„Ein mikilvægasta forsendan er að sjálf-
sögðu áætlun um aukinn útflutning. Byggt
er á 5 af hundraði árlegri aukningu næstu
þrjú árin. í því sambandi er gert ráð fyrir,
að aflaverðmæti aukist heldur minna, eða
um 4-5 af hundraði á ári. Til þess að ná til
fulls 5 af hundraði, verður útflutningur
annarra greina að aukast meira. í því efni
eru vonir m.a. bundnar við iðnað, ekki síst
nýjar framleiðslugreinar, og þjónustuút-
flutning hvers konar.“
Þetta eru orð að sönnu og sérstaklega er
ástæða til að undirstrika síðustu máls-
greinina. Það þarf að efla nýjar framleiðslu-
greinar og hvers konar þjónustuútflutning.
Og þar verður hlutur landsbyggðarinnar að
verða stór. Ýmis fyrirtæki og samtök á
landsbyggðinni hafa sýnt framsækni í
þessum efnum og hafa þau náð umtals-
verðum árangri. En betur má ef duga skal;
það þarf að herða sóknina enn frekar.
-viðtal dagsi
„Hér eru m
ekki skotr"
Jón B. Gunnarsson.
Um fátt er jafnmikið talað þessa
dagana og rjúpnaveiði og í því
sambandi hver hafi fengið hvað
margar hvaða dag.
Frétt birtist í Degi um að Jón
B. Gunnarsson sjómaður á Húsa-
vík hafi fengið 26 rjúpur fyrsta
daginn.
A laugardagskvöld heyrðist að
Jón hefði fengið 55 rjúpur yfir
daginn. Á sunnudag var Jón
heima og reyndist fús til að svara
nokkrum spurningum um rjúpna-
veiði.
„Já það er rétt ég hafði 55 í
gær. Við fórum þrír saman til
rjúpna og höfðum samtals 143.
Sonur minn fékk 40 og Jón Kjart-
ansson 48. Við lögðum af stað kl.
6 um morguninn og vorum
komnir heim um áttaleytið um
kvöldið. Þreyttir en að sjálfsögðu
ánægðir."
- Mönnum virðist ganga
rjúpnaveiðin misjafnlega, þú
virðist fá fleiri en flestir aðrir.
Hver er ástæðan?
„Ég veit það ekki. Þetta geng-
ur svona í öllum veiðiskap. Eg
þekki mig á veiðisvæðunum, það
er aðalmálið.
Ég fór að fara með frændum
mínum til rjúpna þegar ég var
smágutti. Hef stundað alls konar
veiðiskap frá því ég man eftir
mér fyrst. Veiðieðlið er ríkt í
manni. Mér finnst mest gaman að
veiða með byssu, þó gaman sé á
sjónum þegar vel gengur."
- Ætlar þú að stunda rjúpna-
veiðina mikið í vetur og hvað
gerir þú við allan fenginn?
„Það fer nú eftir tíðarfarinu,
veðrið hefur verið mjög gott. Við
höfum ekki fengið svona gott
haust lengi. Það er autt svo rjúp-
an sést vel og færðin er góð.
Þetta er aðallega sport hjá mér
en ekki atvinna, þó við seljum
alltaf eitthvað af rjúpunni, þá
borðum við hana líka.“
- Er mikið af rjúpu í ár?
„Maður sér stóra hópa, en hún
er stygg. Það hefur ekki veiðst
eins mikið og sést hefur vegna
þess hve stygg hún er. Við sjáum
talsvert mikið af fálka og hann er
að stríða okkur. Rjúpan verður
hrædd og stygg þegar hann er
nærri. Það eru alltaf sveiflur á
rjúpnastofninum. Hann virðist
töluvert stór í ár. Og eftir því
sem rjúpnastofninn er stærri virð-
ist fálkinn komast betur upp. Það
gerði hret í sumar þegar rjúpna-
ungarnir voru litlir, en það virðist
hafa sloppið til með þá.“
- A ekki rjúpan í vök að verj-
ast gegn tæknivæðingunni
rjúpnaskyttum á snjósleðum
o.þ.h.?
„Það er rétt tæknin eykst en
rjúpan bjargar sér alltaf. Hún
hefur skóglendi og víðáttuna sem
friðland.“
- Nú gengur á ýmsu, rjúpna-
skyttur að týnast og stafar ekki
hætta af öllum þessum byssum?
„Það hefur nú verið lítið um að
menn týnist hér. Menn þurfa að
temja sér að koma snemma að
bílunum. Vara sig ef það er þoka
og ég hef alltaf áttavita með. Það
hafa ekki orðið slys hér í sam-
bandi við rjúpnaveiðar til fjölda
ára. Það er eins með skotvopn og
annað menn þurfa að kunna að
fara með þau. Það getur svo
margt verið hættulegt ef menn
vita ekki hvað þeir hafa í hönd-
unum.“
- Hefurðu trú á því að óhætt sé
að fara til rjúpna með hvíta
„Já, ég hef trú á því, menn eru
ekki skotóðir hér um slóðir.“
- Nú auglýsa margir landeig-
endur bann við veiðum.
„Það getur verið erfitt að fylgj-
ast með því hvar maður stígur
fæti inn fyrir landamerki. En við
höfum yfirleitt átt góð samskipti
við landeigendur hér í kring.“
- Að lokum Jón, hvað er
svona gaman við veiðarnar og
hvað hefurðu fengið mest á ein-
um degi?
„Það er tvímælalaust hreyfing-
in og útiveran. Þetta er oft mikil
ganga. Það er gaman að fá góðan
feng en ekki aðalatriðið.
Það mesta sem ég hef fengið á
einum degi eru 70 rjúpur. Það er
talsvert langt síðan. Þá var Karl
Hannesson með mér og hann
fékk 90. Það er mesta dagsveiði
sem ég man eftir. Við vorum um
fimm km frá bílnum og það þótti
hraustlega gert af Karli að bera
fenginn sem verið hefur um 45 kg
alla þá leið.“ IM
s
o
■
M
A
N
U
O
A
G
U
R