Dagur - 23.10.1985, Blaðsíða 3
23. október 1985 - DAGUR - 3
56% hækkun þungaskatts:
„Unum þessu ekki fyrr
en í fulla hnefana“
- segir Stefán Árnason framkvæmdastjóri Stefnis
Það er varla orðum aukið þegar
sagt er að dieselbflaeigendur hafi
fundið fyrir síðustu hækkunum
olíuverðs. Þungaskattur hækkaði
um 56% um mánaðamótin síðustu
og nú liggur fyrir beiðni frá olíufé-
lögunum um 7,2% hækkun á gas-
olíu vegna hækkunar á heims-
markaðsverði.
Afleiðing þungaskattshækkunar-
innar hefur nú komið fyrir sjónir
neytenda.
Gjaldskrá leigubíla hækkaði á
föstudag um 10%, fargjöld sérleyfis-
og hópferðabíla um 13-17% og
gjaldskrá vöruflutningabíla um
13-17%.
Ferð með leigubíl sem í síðustu
viku kostaði 200 krónur kostar 220
krónur í dag.
Fargjald með rútu frá Akureyri til
Reykjavíkur kostar 1110 krónur en
kostaði 980 krónur.
Og síðast en ekki síst verður
13-17% dýrara en áður að fá vörur
fluttar landleiðina út um landsbyggð-
ina.
„Það eru fyrst og fremst neytendur
úti á landsbyggðinni sem borga þess-
ar hækkanir,“ sagði Stefán Pálsson
framkvæmdastjóri Landvara, lands-
félags vörubifreiðaeigenda á flutn-
ingaleiðum.
Stefán sagði að árið 1970 hefðu
verið teknir upp ökumælar í diesel-
bifreiðar og þá hefði þungaskattur-
inn hækkað um 500-600% hjá Land-
varamönnum. Árin á eftir hefði svo
alltaf komið út reglugerð í hvert sinn
sem hækka þurfti bensíngjald og
þungaskatt.
Árið 1975 voru samþykkt lög þar
sem sagði að eftirleiðis mætti hækka
þessi gjöld að ákvörðun ráðherra
sem næmi hækkun á vísitölu bygging-
arkostnaðar.
„Ríkisvaldið hefur haldið hækkun-
unum innan þessara marka, þar til
nú síðast, hvað varðar „fasta
skattinn" og bensíngjaldið, en kíló-
metragjaldið hefur verið langt fyrir
ofan leyfileg mörk,“ sagði Stefán
Pálsson ennfremur.
Nafni hans, Stefán Árnason hjá
Stefni á Akureyri setti upp töfluna
hér að neðan þessu til skýringar. Þar
sést að hækkun kílómetragjalds á
stærri bílunum er geigvænleg.
„Stór vöruflutningabifreið kostar
nú tæpar 4 milljónir króna. Þar af
þarf að staðgreiða ríkissjóði 1,5
milljónir vegna aðflutningsgjalda og
söluskatts. Fyrir hvern kílómetra
sem bifreiðin er hreyfð, hlaðin eða
tóm, á vegi eða vegieysu, þarf að
greiða 8,61 krónu í þungaskatt. Og
þurfi að að tengja vagn aftan í til að
sækja rúmfrekan varning, svo sem
heyvinnuvél til Reykjavíkur, þarf að
greiða tæpar 5 krónur í viðbót fyrir
vagninn á hvern kílómetra. Þetta er
brjálæði," sagði Stefán Pálsson hjá
Landvara.
„Þessar hækkanir á þungaskattin-
um skila sér aldrei allar til okkar í
gjaldskrá, því þeir eru margir kíló-
metrarnir sem við ökum með tóma
bíla,“ sagði Stefán Árnason hjá
Stefni. „Það gerist eitthvað í þessu
máli á næstu dögum. Það verður far-
ið á fund ráðamanna á morgun því
það er ljóst að þessi hækkun verður
ekki liðin fyrr en í fulla hnefana. Það
verður gripið til einhverra aðgerða,
það er á hreinu,“ sagði Stefán Árna-
son að lokum. BB.
dags. staða dags. staða hækkun í °L
Byggingavísitala 10/2 ’77 126 10/10’85 3392 2590
Bcnsin 10/2’77 80 gkr. 10/10’85 35 kr. 4300
Þungaskattur 10 tonn 10/2’77 0,047 kr. 10/10’85 3,45 kr. 6800
Þungaskattur 16 tonn 10/2’77 0,063 kr. 10/10 ’85 5,67 kr. 8860
Þungaskattur 23 tonn 10/2’77 0,083 kr. 10/10 ’85 8,61 kr. 10300
Hækili og huppur
á um 300 krónur kflóið
Ýmsir selja lambalæri með hækli og hupp
(nárafitu) og lækka þannig kílóverðið. í
nýju pökkunardeildinni okkar fjarlægjum
við þetta, en pökkum aðeins nýtan-
legum hluta lærisins í lofttæmdar um-
búðir sem varðveita gæði kjötsins.
Við teljum okkur því bjóða st?
hagstæðara verð.
Gerðu raunhæfan
verðsamanburð!
A K U R E Y R 1
KJÖTIÐ FRÁ OKKUR FÆST í
ÖLLUM BETRI VERSLUNUM!
Félag harmonikuunnenda
óskar eftir að kaupa eða leigja litlar harmonikur sem hægt væri að
nota við kennslu.
Upplýsingar á kvöldin í síma 26140.
FRAM
TÖLVU SKÓLI
TÖLVUNÁMSKEIÐ
Tölvuskólinn Framsýn mun halda eftirtalin
tölvunámskeiö dagana 4.-10. nóvember.
GRUNNNÁMSKEIÐ
Námskeiðið hentar sérstaklega stjórnendum fyrir-
tækja, sem áhuga hafa á aö kynnast notkunar-
möguleikum einkatölva í rekstri fyrirtækja
ÁÆTIANAGERÐ
Námskeiöiö hentar öllum sem vilja kynnast
möguleikum áætlunargeröarforritsins
MULTIPLAN viö hverskonar áætlanagerð og
arösemisútreikninga.
RITVINNSIA
Námskeiöiö hentar öllum, sem vilja kynna sér
hina fjölmörgu notkunarmöguleika tölva viö
ritstörf. Þaö hentar sérstaklega vel þeim er
hyggjast tileinka sér þessa nýju tækni á sviöi
skrifstofusjálfvirkni.
STÝRIKERFIÐ MS DOS
MS - DOS er mest notaöa stýrikerfiö á einka-
tölvum í dag. Megináhersla veröur lögö á notkun
þess viö stjórnun tölvunnar. Námskeiðið er nauö-
synlegt öllum þeim sem nota eöa hyggjast nota
tölvubúnaö sem keyrir undir þessu stýrikerfi.
FRAMEWORK
FRAME WORK er allt í senn áætlanageröar-,
ritvinnslugagnasafns- og teikniforrtit.
Námskeiöiö hentar öllum sem áhuga hafa aö
hagnýta sér þennan vinsæla og
öfluga hugbúnaö.
°9n"Án8a ooVi,ka
viWSSr
26155t
\n
\rá K\-
VAin'í
\jesW
13.00
mendut
n^eoe^-
TÖLVUTÆKIsf
S: 2 6155 AKUREYRI