Dagur - 23.10.1985, Síða 8
8 - DAGUR - 23. október 1985
Volvo til sölu
Til sölu Volvo 244 árg. 1982.
Sjálfskiptur, vökvastýri, útvarp og snjódekk.
Ekinn 34.000 km.
Upplýsingar í síma 21410.
Konur
á Akureyri og nágrenni.
Framsóknarfélag Akureyrar hvetur konur til að taka
virkan þátt í dagskrá kvennafrídagsins fimmtudaginn
24. október í Alþýðuhúsinu, Skipagötu 14, Akureyri.
Stjórnin.
LETTIH
Pétur Pctursson og Valmundur Einarsson í stjórnstöð Videólundar.
verður haldið á Akureyri 25. og 26. okt. nk.
í tengslum við það verður haldin kvöldskemmtun í
Alþýðuhúsinu laugardagskvöldið 26. okt. og hefst
hún um kl. 19.30. Aðgöngumiðar til félagsmanna
Léttis verða seldir í Alþýðuhúsinu eftir kl. 18.00 á
föstudaginn, 4. hæð.
Undirbúningsnefndin.
-
K O IM U rqc
Takið fullan þátt í dagskrá kvennafrídagsins. Oj,
Alþýðubandalagið á Akureyri.
Kvennaframboðið
á Akureyri
hvetur konur til að leggja niður vinnu og taka
þátt í dagskrá kvennafrídagsins 24. október.
Umboðsmenn Dags
Sauðárkrókur:
Siglufjörður:
Blönduós:
Ólafsfjörður:
Hrísey:
Dalvík:
Grenivík:
Húsavík:
Mývatnssveit:
Kópasker:
Raufarhöfn:
Sísí Steindórsdóttir, Furuhlíð 1, sími 5828.
Matthías Jóhannsson, Aðalgötu 5, sími 71489.
Snorri Bjarnason, Urðarbraut 20, sími 4581.
Helga Jónsdóttir, Hrannarbyggð 8, sími 62308.
Halla Jóhannsdóttir, Norðurvegi 9, sími 61728.
Gerður Jónsdóttir, Miðtúni, sími 61247.
Anna Rósa Pálmarsdóttir, sími 33112.
Ingibjörg Magnúsdóttir, Sólbakka 5, sími 41529
Þuríður Snæbjörnsdóttir, sími 44173.
Anna Pála Kristjánsdóttir, Boðagerði 10, sími 52128.
Friðmundur H. Guðmundsson, sími 51225.
Videólundur með
mörg jám í eldinum
Stjórnendur Vídeólundar, sem
rekur kapalkerfi í Lunda-
hverfi, hafa ákveðið að boða
til fundar með þeim sem
tengdir eru kerfinu, auk þess
sem fundurinn verður opinn
öllum áhugamönnum um þessi
mál. Á fundinum verður rætt
um framtíðarskipulag Vídeó-
lundar, með tilliti til móttöku
á sjónvarpsefni frá gervihnetti
og hugsanlega stækkun á kap-
alkerfinu um önnur íbúðar-
hverfi í nágrenni Lundanna.
Þetta kom fram í samtali við
Pétur Pétursson, sem sér um við-
hald kapaikerfisins og Valmund
Einarsson, sem sér um allan dag-
legan rekstur. Að sögn Valmund-
ar eru um 400 áskrifendur að
kerfinu. Þar er um að ræða íbúa
í fjölbýlishúsunum í Lund-
ahverfi, en einnig eru raðhúsaí-
búðir í Furulundi og Heiðarlundi
tengdar inn á kerfið. Að sögn
Valmundar þyrftu notendur að
vera fleiri. Það myndi ekki auka
kostnað að nokkru marki, en
hins vegar skapa svigrúm til að
lækka afnotagjöldin.
- Við höfum orðið varir við
vaxandi áhuga fólks fyrir okkar
þjónustu. Við höfum ekki orðið
varir við mótbyr, þeir sem ræða
við okkur eru áhugasamir, en ef
til vill sitja hinir heima í þögn-
inni, sem hugsanlega hafa eitt-
hvað við þetta að athuga. Þess
vgna ákváðum við að halda þenn-
an fund og væntanlega verður
hann haldinn um eða upp úr
mánaðamótunum, sagði Pétur.
Að sögn þeirra félaga sendir
Vídeólundur út a.m.k. 4 kvöld í
viku. Útsendingartíminn er um
20 tímar á viku og stundum
meira. Vikulega eru sýndar 4-5
kvikmyndir, en að undanförnu
hefur verið lögð áhersla á heima-
fengið efni. Þannig hófst dagskrá-
in kl. 21.00 í fyrrakvöld með
fréttamynd frá bæjarstjórnar-
fundi, þar sem málefni Vídeó-
lundar fléttuðust inn í umræður
um boðveitukerfi. Einnig var
sýnd mynd með Bubba Mortens.
Steindór G. Steindórsson og Sig-
urður Hlöðversson hafa tekið
upp mikið af efni fyrir Videó-
lund, en það sem háir þessari
„heimabruggun“ er vöntun á
klippiborði, tii að hægt sé að
fínisera efnið til fyrir útsendingu.
í bígerð er að kaupa slíkan
klippibúnað.
Einnig hefur Videólundur
fengið innlent efni frá Samveri,
t.d. frá fegurðarsamkeppni í
Sjallanum, fræðslumynd um
hvernig skór verða til og fleira.
Þá hafa íþróttafélögin lagt til
efni. T.d. hafa verið sýndir allir
útileikir KA í 1. deildinni í hand-
bolta í haust og hefur það efni
notið mikilla vinsælda. Þá hefur
Vídeólundur verið með samning
við Háskólabíó í undanfarin 2 ár
og hliðstæður samningur við
Regnbogann er í burðarliðnum.
Eins og fram kom í Degi í gær,
þá hafa ráðamenn Vídeólundar
mikinn áhuga á að ná efni frá
gervihnetti. í athugun er að
kaupa skerm til að ná slíkum út-
sendingum. Verði það ofan á, þá
geta þeir sem tengdir eru Vídeó-
lundi valið um þrjár rásir; ís-
lenska sjónvarpið, dagskrá frá
Vídeólundi og einhverja erlenda
stöð. En þetta mál er enn óljóst,
þar sem ekki hafa fengist á hreint
þær reglur sem koma til með að
gilda varðandi móttöku á erlendu
sjónvarpsefni. Og það er óvíst að
það skýrist fyrr en eftir áramót,
þegar nýju útvarpslögin hafa tek-
ið gildi og ný reglugerð um fram-
kvæmd þeirra hefur verið sett.
Vídeólundur hefur sjálfur
kostað lagningu kaplanna og
kapalkerfið er eign þessa félags-
skapar, sem myndaður er af hús-
eigendum í hverfinu. En hver er
afstaða þeirra til þátttöku bæjar-
ins í svonefndri boðveitu?
- Ég hef ekki hugsað það
dæmi til enda, svaraði Pétur. -
Við höfum lagt okkar kapal í
mjög góðri samvinnu við þau
bæjarfyrirtæki, sem eiga lagnir í
jörð, þannig að það hefur ekki
komið til árekstra. En það má vel
vera að það sé eðlilegast að bær-
inn sjái um að leggja þetta og þá
held ég að það væri eðlilegast að
feia rafveitunni þetta verkefni.
- Éf úr þessu verður þyrfti
þetta að verða mjög fullkomið
gagnvirkt boðveitukerfi, sagði
Valmundur. - Við berumst hrað-
byri inn í tölvuöld og þess verður
eflaust ekki langt að bíða að tölv-
ur verða komnar inn á hvert
heimili. Þá þarf að vera hægt að
tengja þær við tölvubanka og
tölvur hjá ýmsum stofnunum og
fyrirtækjum. Þá þurfa menn ekki
annað en að slá eina skipun inn á
tölvuna, til að greiða reikningana
sína, svo fremi sem einhvers
staðar sé hægt að vísa á innistæðu
fyrir þeirn, sagði Valmundur.