Dagur - 25.10.1985, Blaðsíða 11
- Jóhann Ögmundsson?
„Já, sá er raaðurinn.
- Heill og sæll, Gísli Sigur-
geirsson á þessum enda.
„Já, sæll sé hann.
- Ertu ekki kátur?
„Jú, jú, það dugir ekki annað
Gísli minn. Það gagnar engum
að vera með vol eða væl. Það fer
verst með mann sjálfan.
- Ég frétti að þú værir kom-
inn á fjalirnar aftur hjá Leikfé-
lagi Akureyrar.
„Já, það á nú að heita svo.
Signý plataði mig í þetta. Það
var nú eiginlega alveg óvart, því
ég ætlaði mér ekki að taka bón-
orði hennar þegar hún hringdi
til mín og bað mig að koma. En
áður en ég vissi af var ég búinn
að segja já. Ég skil ekki hvers
vegna.
- Sérðu eftir því?
„Nei, nei, síður en svo. Þetta
er óskaplega gaman. Þetta er
fjörugur leikur og fjölmennur,
þannig að maður hverfur í
mannhafið á sviðinu.
- Hvernig leikur er þetta?
„Þetta er ævintýri eftir
Dickens, óskaplega fallegt og
skemmtilegt. Þar segir frá ógur-
lega ljótum og vondum karli,
sem allt hefur á hornum sér. En
hann mildast í leiknum og á
endanum er hann orðinn hið
mesta ljúfmenni. Árni Tryggva-
son leikur þennan karl og fer
þar á kostum.
- En hvað leikur þú?
„Ég fer með tvö hlutverk skal
ég segja þér. í fyrsta lagi leik ég
gamlan og góðlegan karl, sem á
uppkomnar dætur og virðulega
frú, sem Björg Baldvinsdóttir
leikur. Hins vegar leik ég góð-
hjartaðan einfeldning, sem allir
geta spilað með. Hann er hálf-
gerður kjáni sá.
- Við hvort hlutverkið fellur
þér betur?
„Ætli ég kunni ekki betur við
bjálfann; hann stendur mér lík-
lega nær!!!
- Pað er langt síðan þú varst á
fjölunum hjá LA síðast?
„Nei, ekki svo mjög. Ég var
með í Sjálfstæðu fólki fyrir 5-6
árum. Lék þar sr. Guðmund,
lítið hlutverk, en mér þótti
óskaplega vænt um karlinn. Eig-
inlega átti það að vera minn
svanasöngur á sviði. En svo álp-
aðist ég til að leika böðul
frammi í Freyvangi og einhvern
veginn féll mér ekki að hafa það
sem mitt síðasta hlutverk á
sviði. Ef til vill var það þess
fykfdááœtö
- Jóhann Ögmundsson á línunni
vegna, sem já-ið hrökk út úr
mér þegar Signý hringdi. En það
er mál til komið að hætta þessu.
Ég er orðinn 75 ára gamall og
þetta er mitt fertugasta og
fjórða verkefni með Leikfélag-
inu. Auk þess hef ég komið víð-
ar við sögu í leiklistinni.
- Hefur leiklistin haldið í
þinn ungdóm?
„Já, alveg tvímælalaust. Á
undanförnum árum hef ég starf-
að mikið með áhugaleikfélögum
víðs vegar um land og kjarninn í
þeim félögum er ungt fólk, í það
minnsta í andanum. Og það hef-
ur verið mér óskaplega mikils
virði í söng og leiklist, að starfa
með ungu og lífsglöðu fólki.
Ungt fólk er frjótt og hug-
myndaríkt og frá því hef ég oft
fengið góð ráð. Eg þekki ekki
kynslóðabil.
- Það er sungið í jólaævintýr-
inu, ekki rétt. Efmig misminnir
ekki, þá lofaðir þú sjálfum þér
því að syngja ekki oftar opin-
berlega, eftir að sýningum á
Bláu kápunni lauk fyrir 25
árum. Pú vildir hætta á
toppnum. Hvað kom þér til að
svíkja það loforð?
„Jú, þetta er alveg rétt hjá
þér, en er ekki alltaf einhver að
svíkja einhvern? Það er þá strax
skárra ef maður svíkur ekki
aðra en sjálfan sig. Hins vegar
hef ég mér það til málsbóta, að
ég get varla kallað þetta söng hjá
mér núna. Það væri nær að
nefna það raul. Þar að auki söng
ég alltaf tenór hér áður fyrr, en
nú syng ég með byljandi bassa-
rödd. Ég er að vísu enginn
Kristinn Sigmundsson, en bassi
er það samt!
- Nú er frumsýning um miðj-
an næsta mánuð, ertu komin
með skrekk?
„Nei, nei, ekki enn.
- Færðu aldrei skrekk?
„Jú, jú, alltaf. Það er verst
síðustu mínúturnar áður en ég á
að koma fram, en þegar ég er
kominn inn og byrjaður að leika
hverfur skrekkurinn. En ég held
að hann sé sjálfsagður og eðli-
legur. Ef maður finnur ekki fyrir
örlitlum skrekk, þá er það vegna
þess að maður er orðinn of
sannfærður um eigi ágæti. Ég
held að það sé engum leikara
hollt.
- Hvernig heldur þú lífsgleð-
inni Jóhann?
„Með því að láta mér aldrei
detta í hug að frelsa heiminn.
Það hafa margir reynt að gera,
meira að segja Guð almáttugur,
en engum hefur tekist það, að
því er mér sýnist. Þess vegna
held ég að ég fái þar engu um
bætt. Eg hef því ekkert verið að
slíta mér út við slíkt. Einhverjir
kalla það ef til vill kæruleysi og
leti, en ég um glaðurvið mitt.
- 75 ára sagðir þú, það þýðir
að þú verður níræður árið 2000.
„Já, já, og þá verður heljar-
mikil veisla, sem lengi verður í
minnum höfð.
- Alveg rétt, þú varst ein-
hverju sinni búinn að bjóða mér
í þessa veislu.
„Stendur heima Gísli, og það
boð stendur enn. Þú ert velkom-
inn ásamt öllum góðum vinum
mínum. Ég vona að það komi
sem flestir.
- Ég þakka boðið, það verð-
ur gaman að hitta þig þá, ef þú
verður jafn hress og lífsglaður
og þú ert í dag. Sjáumst þá, en
lifðu sæll á meðan.
„Lifðu sjálfur sæll. - GS
25. október 1985 - DAGUR^
Gleraugu - Gleraugu
Notar bamíð þitt gleraugu?
Níðsterkar barna- og unglinga-
umgjarðir frá þekktum framleiðendum
Barnagleraugu eru sérgrein okkar.
Gleraugnaþjónustan
Skipagötu 7 - í miðbæ Akureyrar
BILARAFMAGN
ÖLL ÞJÓNUSTA
VARÐANDI RAF-
KERFIBIFREIÐA
LALTLHXATOHAH
norðurljós sf.
RAFLAGNAVERKSTÆÐI
FURUVÖLLUM 13 SÍMI 21669
AKUREYRARBÆR
Unglingaathvarf
á Akureyri
Óskum eftir að ráða starfsmann í u.þ.b. hálft
starf. Vinnutími er síðdegis og á kvöldin, mánu-
daga-fimmtudaga. Uppeldisfræðileg menntun/
reynsla æskileg.
Upplýsingar veitir forstöðumaður í síma 24600
og félagsmálastjóri Akureyrar í síma 25880.
Félagsmálastjóri.
Aðalfundur
Framsóknarfélags Húsavíkur
verður haldinn mánudagskvöld 28. okt. kl. 8.30 í
Garðar.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf.
2. Kosning fulltrúa á kjördæmisþing.
3. Önnur mál.
Framsóknarfélag Húsavíkur.
-