Dagur - 21.11.1985, Side 9

Dagur - 21.11.1985, Side 9
21. nóvember 1985 - DAGUR - 9 Þingforseti ávarpar þingfulltrúa. Við ákváðum að taka viðtöl við nokkra þingfulltrúa sem tóku þátt í fjórðungsþingi æskunnar fyrir hönd sinna framhaldsskóla. Magnús Albert Sveinsson G.Ó. - Hvernig hefur fundurinn gengið fyrir sig? „Mér finnst hann hafa gengið mjög vel fyrir sig, það þyrfti að gera meira af þessu.“ - Hefur margt komið fram í umræðum sem þú vissir ekki um áður? „Nei, en umræðurnar hafa veitt manni aukinn skilning á mál- unum.“ - Telurðu að þessar tillögur sem samþykktar hafa verið á fundinum komist í framkvæmd hjá stjórnvöldum? „Ég veit ekki hvort þeir taka þær alvarlega, en vona það. - Við erum framtíðin." - Finnst þér ráðlegt að halda svona þing oftar? „Já, að minnsta kosti á hverju ári, það gefur mönnum innsýn í fundarstörf." Ingi Jónsson F.á S. - Hvernig hefur þingið gengið? „Það hefur gengið framar vonurn.1' - Finnst þér allir þátttakendur virkir í umræðunum? „Þátttaka er voðalega misjöfn, sumir eru virkir, aðrir ekki, en umræðurnar hafa verið fjörugar og skemmtilegar." - Hefur margt komið fram í umræðum og undirbúningi sem þú hefur ekki vitað um? „Mér finnst ýmislegt hafa kom- ið fram. Til dæmis að hver grunn- skólanemandi úti á landi er 380% dýrari en sambærilegur nemandi fyrir sunnan; það er m.a. vegna aksturs og mötuneyt- is.“ - Telurðu ráðlegt að halda svona þing árlega? „Já, ef það gengur jafnvel og núna, en ekki bara fyrir fram- haldsnema heldur á breiðari grundvelli." Reynir Kristjánsson M.A. for- seti þingsins. - Hvað finnst þér um þingið? „Mér finnst ekki rétt að bara námsmenn taki þátt í þessu. - En þetta er frumraun og það verður eflaust gert betur næst." - Telurðu ráðlegt að halda svona þing árlega? „Ja, kannski á tveggja ára fresti. - Var margt í umræðunum sem kom þér á óvart? „Nei, en það kom ýmislegt fram sem maður hafði ekki hugs- að út í.“ Friðný Siguröardóttir V.M.A. - Hvernig finnst þér þingið hafa farið fram og undirbúningi þingfulltrúa háttað? „Það hefur gengið mjög vel fyr- ir sig, við úr Verkmenntaskólan- um höfðum góðan undirbúning." - Eru allir þátttakendur virkir í umræðum? „( okkar starfshóþi sem fjallaði um samgöngumál voru allir virkir." - Hefur nokkuð komið fram i umræðunum sem þú vissir ekki um? „Ég hef lært heilmikið á þessu, Texti: Helga Björk Eiríksdóttir og Helga Kristjánsdóttir Myndir: Gísli Tryggvason. Askell Einarsson, framkvæmda- stjóri Fjórðungssambands Norð- lendinga. Friðný Sigurðardóttir, V.M.A. sérstaklega í atvinnu- og sam- göngumálum." - Telurðu að þær tillögur sem samþykktar hafa veriö á þessu þingi komist í framkvæmd hjá stjórnvöidum? „Ég veit það ekki. Ég er hrædd um að annað hvort verði þeim breytt eða stjórnmálamenn hafi ekki sama skilning á þessu og við höfum." - Nokkuð sem þú vilt bæta við að lokum? „Mér finnst nauðsynlegt að reynt verði áð stofna hagsmuna- samtök milli framhaldsskóla á Norðurlandi." „Ákveðið var á síðasta fjórðungsþingi að sama nefnd og sá um Norðurlands- leika æskunnar yrði einnig falið að sjá um þetta, vegna þess hve þeir tókust vel. Undirbúningur hefur verið mikill hjá nefndinni, en einnig hjá fulltrúum þingsins sem hafa sýnt góða frammi- stöðu." - Telurðu að eitthvert mark verði tekið á niðurstöð- um þessa þings? „Eg tel það tvímælalaust. Stjórn Fjórðungssambands- ins ákvað að láta ályktanir þessa þings fá sömu með- ferð og ályktanir sem komu frá þingi Fjórðungssambands Norðlendinga sem haldið var á Laugum í Reykjadal 29.-30. ágúst. Stjórnin kynnti sér þessar tillögur sl. þriðjudag." - Hví er fólk á sama aldri sem farið hefur út í atvinnu- lífið (að loknum grunnskóla) ekki látið taka þátt í þessum umræðum? „Þetta er spurning um vinnubrögð, það er mikið auðveldara að ná til þessa aldurshóps gegnum skóla- kerfið. Einnig má benda á að námsmenn eru i atvinnulífinu eða að búa sig undir það. Hér er mjög blandaður hópur í mismunandi námi." - Er nokkuð sem þú vilt bæta við að lokum? „Ég vil láta í Ijós ánægju með það hve vel þingfulltrú- arnir hafa búið sig undir þetta. Þeir virðast leggja áherslu á það sama og við höfum lagt áherslu á í þessum efnum." Við þökkum Magnúsi fyrir viðtalið. Þingfulltrúar að störfum.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.