Dagur - 22.11.1985, Blaðsíða 4

Dagur - 22.11.1985, Blaðsíða 4
4 - DAGUR - 22. nóvember 1985 ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS SKRIFSTOFUR: STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI, SlMI 24222 ÁSKRIFT KR. 360 Á MÁNUÐI ■ LAUSASÖLUVERÐ 35 KR. RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR: HERMANN SVEINBJÖRNSSON RITSTJÓRNARFULLTRÚI: GlSLI SIGURGEIRSSON FRÉTTASTJÓRI: GYLFI KRISTJÁNSSON BLAÐAMENN: ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN, GESTUR E. JÓNASSON, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (HÚSAVlK), YNGVI KJARTANSSON, KRISTJÁN G. ARNGRlMSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR AUGLÝSINGASTJÓRI: FRlMANN FRlMANNSSON ÚTBREIÐSLUSTJÓRI: HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165 FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON PRENTUN: DAGSPRENT HF. Fjármagnsskortur en ekki verkefnaskortur JeiðarL Bragi Bergmann blaða- maður, fjallar ítarlega um bygginariðnaðinn á Akureyri í Degi í gær. Þar fjallar hann um þann mikla samdrátt, sem orðið hefur í byggingariðnaðin- um, og kemur víða við. í lokaorðum sínum segir Bragi: Ljóst er að slíkur upp- gangur sem var í bygging- ariðnaðinum á árunum 1976-1979 mun ekki endurtaka sig. En verk- efnin eru engu að síður næg, en skortur er á fjár- magni. Bent hefur verið á ýmsar leiðir til úrbóta. Með einhverjum ráðum þarf að efla atvinnulífið á Eyjafjarðarsvæðinu, því öflugt athafnalíf er nauð- synleg forsenda þess að byggingariðnaðurinn geti dafnað. Akureyrarbær þarf að gera allt sem í hans valdi stendur til þess að fá ný fyrirtæki til þess að velja Akureyri sem athafna- svæði. Má þar t.d. hugsa sér að fyrirtækjum yrðu boðin ákveðin lóðahlunn- indi, afsláttur frá gatna- gerðargjöldum o.s.frv. Hið opinbera er í hús- næðishraki í bænum. Nægir þar að benda á að Skattstofan er í leigu- húsnæði, skortur er á skólahúsnæði, ÁTVR þarf stærra húsnæði ef bjórinn fær grænt ljós, vöntun er á íbúðarhúsnæði fyrir framhalds skólanemendur yfir veturinn og svona mætti lengi telja. Vel má hugsa sér að svo kallaðar þjónustuíbúðir verði byggðar í eldri hverfun- um, t.d. niður á Oddeyri. Hér er sem sagt ekki um verkefnaskort að ræða, heldur fjármagnsskort. Ég læt Ingólf Jónsson formann Meistarafélags byggingamanna á Norð- urlandi eiga lokaorðin í þessari umfjöllun. Þegar ég spurði hann hvað hægt væri að gera til bjargar byggingamönnum á Ak- ureyri, benti hann mér á að spurningin væri ekki rétt orðuð: „Það þarf nefnilega enginn að bjarga byggingamönnum, þeir bjarga sér sjálfir. Spurningin er hins vegar þessi: Hversu mikill má samdrátturinn verða áður en bæjarfélagið bíður verulegt tjón af?“ Sú spurning er vissu- lega verð gaumgæfilegrar umhugsunar. - GS .úr hugskotinu- Dagurinn 7. nóvember er fyrir margra hluta sakir merkilegur. Þann dag var á sínum tíma gerö bylting í stóru laridi, bylting sem kom til valda mönnum sem urðu hvað duglegastir í mann- réttindabrotum af ýmsu tagi, að minnsta kosti í Evrópu, þó svo hið gagnstæða hafi að öllum lík- indum vakað fyrir frumkvöðl- um þessarar byltingar. Og þennan sama dag var fyrir 435 árum framið eitt frægasta mannréttindabrot íslandssög- unnar, þegar þeir voru háls- höggnir í Skálholti Jón Arason og synir hans. Nútímaleg aðferð Sunnudaginn 10. nóvember, sama daginn og hinn dæmalausi Gluggaþáttur frá Akureyri birt- ist á skjánum, gat að líta ein- staklega merkilega auglýsingu í blaði allra landsmanna. Þessi auglýsing var frá húsgagna- framleiðanda einum í Kópavogi (svo þeir eru með iðnað í því plássi). Við lestur þessarar aug- lýsingar kom það í ljós að ekki hafa allir gleymt mannréttinda- brotunum í Skálholti forðum daga. Hins vegar verður það nú að segjast að söguskoðun auglýsingahönnuðarins, hún er nú svona og svona. Það þarf lík- lega að koma á fót endurmennt- unarnámskeiðum í íslandssögu. í Skálholti í fyrrnefndri húsgagnaauglýs- ingu er látið að því liggja að það hafi verið nauðsyn fyrir fram- þróun á íslandi að höggva höfuðið af Jóni Arasyni og son- um hans. Þetta er í sjálfu sér ekkert frumlegt. Svona rök- semdir hafa ávallt verið notaðar til að réttlæta það ef menn hafa þurft að losna við óæskilega ein- staklinga, og í þessu tilfelli var því svo sannarlega til að dreifa. Þær aðferðir sem notaðar voru við alla framkvæmd morð- anna í Skálholti þennan nóvem- berdag voru að ýmsu leyti eink- ar nútímalegar. Þær minna um margt á aðferðir ýmissa herfor- ingjastjórna til dæmis í Suður- Ameríku, þarna voru að verki útsendarar stjórnvalda sem unnu í anda þeirra, en þó ekki beinlínis eftir fyrirmælum þeirra. Að sjálfsögðu var þarna engum dómstólum til að dreifa, enda skyldi verkið unnið eins hratt og frekast var mögulegt, og helst án þess að það vekti allt of mikla athygli. Fjölmiðlaleysi þessa tíma gerði auðvitað allt auðveldara. Ómögulegt er nefnilega um það að segja hvað gerst hefði, ef fréttin um morð- in hefði borist út um landið á, segjum sólarhring. Lýðhylli En hver var svo sá glæpur sem því olli að þeir feðgar væru þarna höggnir sem óbóta- menn? Jú svarið er einfalt. Þeir höfðu dálítið aðrar skoðanir á málunum en ráðmenn, og nutu ofan í kaupið lýðhylli sem glöggt má marka af þessum fleygu orð- um Jóns biskups: „Nú hef ég undir mér allt ísland nema hálf- an annan kotungsson.“ Það er í sjálfu sér ekki svo erfitt að út- skýra þessa lýðhylli. Því má ekki gleyma að kaþólska kirkj- an á Islandi var að mörgu leyti einkar þjóðleg og alþýðleg stofnun þó svo að hún lyti í orði kveðnu boði erkibiskups, um- boðsmanns páfa. Og kirkjan var í reynd einasta brjóstvörn alþýðunnar gegn yfirgangi út- lendra sem innlendra höfðingja. Auk þess má ekki gleyma hlut- verki kirkjunnar í alþýðu- fræðslu og varðveislu þjóðlegra verðmæta. Við getum endalaust velt því fyrir okkur hvort og þá hversu lengi kaþólskan hefði getað var- ist á íslandi hefði Jóni biskupi og sonum hans tekist það ætlun- arverk sitt að knésetja „hálfan annan kotungssoninn". Líklegt má þó teljast að það hefði dreg- ist að minnsta kosti í nokkra áratugi að koma á hinum nýja sið, og vel má vera að Danir hefðu orðið að standa frammi fyrir því hvort það svaraði kostnaði að senda herlið til íslands, til að lenda þar í blóð- Reynir Antonsson skrifar ugum átökum, ef til vill ekki að- eins við íslensku þjóðina, held- ur einnig Hansakaupmenn og ýmsa aðra sem hér áttu hags- muna að gæta. Afturför Það er augljóst, að þeir atburðir sem áttu sér stað í Skálholti þann 7. nóvember 1550 voru í rauninni ekkert annað en pólit- ísk morð sem ríkjandi valdhafar urðu að grípa til ef þeir áttu að geta treyst sig í sessi. Þar vár ekki um sögulega framþróun af neinu tagi að ræða, og hæpiö verður að teljast, svo ekki sé meira sagt, að þeir sem að þess- um morðum stóðu hefðu farið að hlífa einhverjum Selko skáp ef feðgarnir hefðu leitað þar hælis. Reyndar ber öllum heim- ildum saman um það að þeir Jón Arason og synir hans hafi verið meiri vitmenn en svo að þeim hefði dottið í hug að fara að leita hælis í þvílíkri hráka- smíð. Reyndar bendir flest sem vitað er um hina svokölluðu „vopnabræður Lúthers" á ís- landi, til þess að þeir hafi ekki verið neinir sérstakir listvinir, enda þeim engu síður kappsmál að fylla fjárhirslur konungs ís- lenskum menningarverðmætum til að afla honum tekna sem verja skyldi í svallveislur hirðar- innar eða herferðir gegn eigin þegnum og annarra, en að boða hinn nýja sið. Sú skoðun Nób- elsskáldsins að hin svonefnda „siðbót", hafi í raun markað mestu afturför íslandssögunnar bæði í menningarlegu, verklegu og stjórnarfarslegu tilliti, er nú almennt orðin viðurkennd sagn- fræði, enda hafa engar heimildir komið fram sem benda til hins gagnstæða. Nema nýtt ljós hafi kviknað hjá þeim húsgagna- framleiðendum í Kópavogi, ljós sem upplýsi alla sögu lands- ins að nýju. Og það er ef til vill ekki alger tilviljun að þetta nýja ljós skuli kvikna einmitt á þeim stað. Þar var jú haldinn fundur- inn þar sem íslendingar gengust undir danskt einveldi. Og er það ekki í Kópavogi sem hann býr maðurinn sem stundaði hinn nýja aðalatvinnuveg þjóð- arinnar það er að segja okur- lánaviðskipti, en var bara svo óheppinn að lenda vitlausum megin við lögin. Áðrir eru nægi- lega kænir til þess að kunna að hoppa rétt yfir marklínuna eftir því sem við á. Okurviðskiptum, löglegum sem ólöglegum fylgja ávallt mannréttindabrot sem lítt gefa eftir þeim sem framin voru í Skálholti fyrir fjórum öldum. Menn eru að sönnu ekki lengur hálshöggnir á Islandi. Þess þarf heldur ekki með. Fórnar- lömb okurkarlanna sjá oftast sjálf um böðulsverkin. Og af- tökurnar fara ekki alltaf hátt. Reynir Antonsson.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.