Dagur - 22.11.1985, Síða 6

Dagur - 22.11.1985, Síða 6
6 - DAGUR - 22. nóvember 1985 ___________________________________________________________mannlíí rsendibréf til sigurlínu. Ó hann Kári minn Sæl og blessuð Sigurllna mín. Ég hef verið svo óskaplega tímabundin og ekki mátt vera að því að skrifa þór línu. En nú læt ég verða af því. Æi, nú hringir dyrabjallan, biddu aðeins meðan ég fer til dyra... Jæja, nú geri ég aðra tilraun að koma nokkrum línum niður á blað, hún Ella Jóns kom í heim- sókn þannig að ég hafði ekki tíma til að klára bréf- ið í dag. Kári er á fundi og ég ætla að bíða eftir honum, þó hann segðist koma seint heim. Klára bréfið á meðan. Annar er svo sem ekk- ert að frétta. Við fórum að vísu í helgarferð til Reykjavíkur um daginn og það var bara gaman. Ég fór aðeins ( búðir og eyddi víst allt of miklum peningum, eða það sagði Kári. Það var að vísu hálfpartinn í gríni. Spaugsemin þú manst. Hún var að segja mér hún Ella í dag að Ingi og Guðný væru að flytja burt úr bænum, hann fékk vist einhverja ægilega góða stöðu úti á landi. Hún bara mundi ekki hvar nákvæmlega. Við vorum að kaupa okkur nýjar flísar á baðið, ég sagði þér frá þvi um daginn að við hefðum farið og skoðað. Viö ætl- um að reyna að koma þeim upp fyrir jólin. Svo vorum við að hugsa um að skipta um teppi í stof- unni, en það verður lík- lega að bíða til vorsins og fermingarinnar. Það er ekki hægt að gera allt í einu segir Kári. Mamma hefur verið dálítið slöpp undanfarið, legið í flensu. Þannig að ég hef reynt að hugsa um heimilið fyrir hana. Heyrðu þá man ég það, hvernig var ( sex- tugs afmælinu hennar mömmu þinnar? Við komumst ekki því miður. Bíllinn var eitthvað bilað- ur, stóð á verkstæði. En mig langaði óskaplega mikið að koma. Ég reyni að komast um hvíta- sunnuna. Jæja, nú heyri ég að Kári er að setja bílinn inn í bílskúrinn. Ég ætla að taka til smá kaffi handa honum. Ég bið þá bara kærlega að heilsa þér ( bili og vona að allir hafi það gott. Vertu sæl Sigurlína mín. þfn Guðrún. Atli Örvarsson blæs lipurlega í trompetinn. Sólveig Birgisdóttir fór á kostum í söngnum. Sigurður Gestsson hef- ur myndarlegri vöðva en margur annar. - frá lokatónleikum djassnámskeiðs Paul Weeden í Sjallanum Síðastliðinn sunnudag gekkst Djassklúbbur Akur- eyrar fyrir fjölskylduskemmtun í Sjallanum á Akur- eyri og um kvöldið voru svo haldnir tónleikar. í bæði skiptin komu fram hljóðfæraleikarar sem sótt höfðu í smiðju Pauls Weeden, sem var í þriðja sinn kominn til Akureyrar í þeim erindagjörðum að kenna akur- eyrskum áhugamönnum að leika djass. Á tónleikun- um gaf að heyra árangur þess sem hljóðfæraleikar- arnir höfðu verið að nema þessar vikur sem Weeden stóð við hér á Akureyri. Margar hljómsveitir höfðu verið settar á stofn og greinilega voru meðlimir þeirra mislangt á veg komnir í hljóðfæraleiknum en allir lögðu sig fram og gerðu eins og þeir best gátu. Andrúmsloftið var létt og afslappað og kennarinn var alls staðar vakandi yfir óreyndum nemendum, lék ýmist með, stóð og stjórnaði eða sat úti í sal og klappaði. Meðfylgjandi myndir tók KGA á fjöl- skylduskemmtuninni. -yk. Vöxtur í vaxtmrœkt - íslendingar stóðu sig vel á Evrópumótinu í Finnlandi Þeir þóttu glœsilegir líkamarnir sem voru til sýnis almenningi á Norður- landamótinu í vaxtarrœkt sem fram fór sunnudaginn 17. nóvember sl. Þar voru að sjálfsögðu samankomnir allir bestu vaxtarrœktarmenn á Norðurlöndunum. Mótið fór fram í Helsinki í Finnlandi. Keppendur á þessu móti voru tæplega sjötíu talsins frá öllum Norðurlöndunum, þar af 3 frá ís- landi. Það voru íslandsmeistarinn sjálfur Sigurður Gestsson frá Akureyri, Einar Guðmann einnig frá Akureyri og Hrafnhildur Valbjörnsdóttir frá Reykjavík, Islandsmeistari í kvennaflokki. Fleiri áttu kost á að fara á mótið en heltust úr lestinni. Einnig fóru tveir menn á dómaranámskeið sem tengdist mótinu. Árangur var góður miðað við að vaxtarrækt hefur ekki verið stunduð sem keppnisgrein nema 4 ár á íslandi. Allir íslensku keppendurnir lentu í 5. sæti í sínum flokki. Var það mál manna að Sig- urður hefði átt að lenda ofar á listanum, slík var frammistaða hans. Eins og fram hefur komið. eiga íslendingar engan dómara á svona stórmót- um og segja menn sem til þekkja að hver dómari hygli keppanda frá sínu landi. Hrafnhildur sem „átti salinn“ eins og sagt er, lenti einnig í 5. sæti. Hrifust áhorfendur mjög af framkomu Hrafnhild- ar sem var einstaklega skemmtileg og lífleg. Það kom líka á daginn þegar úrslit voru tilkynnt, að fimmta sæti var ekki Hrafnhildar að áliti áhorf- enda. Var mikið púað og baulað þegar hún var dæmd í 5. sæti. Einar átti í harðri keppni um 4. sætið en varð að láta í minni pokann að lokum og lenti í 5. sætinu í unglingaflokki. Mikill áhugi er á vaxtarrækt og er það ekki ein- göngu bundið við fólk sem stundar hana sem keppnisgrein. Mikið er af „venjulegu" fólki sem æfir sér til heilsubótar. Keppnisfólk á Akureyri er milli tíu og fimmtán. Árangur íslendinganna er talinn góður miðað við þann tíma sem æft hefur verið, eins og sagði að framan. Því má búast við að árangur eigi eftir að skila sér enn betur en hingað til á næstu árum. Vaxtarrækt hefur það fram yfir margar aðrar íþróttagreinar að meiðsl eru sárafá og geta menn stundað íþróttina lengur en flestar aðrar. Vitað er um menn á sextugsaldri sem halda sér ótrúlega vel. En til að ná miklum og góðum árangri í íþróttinni sem keppnisíþrótt þarf miklar fórnir. Mataræði er sérstakt, og þarf að fara mjög vel með sig, að ógleymdum æfingunum sem þarf að stunda samviskusamlega. Þegar vaxtarræktar- maður var spurður hvort „venjulegur" maður gæti vogað sér með sinn venjulega skrokk, - sem jafnvel væri farinn að sverna um mittið, - að koma til æfinga sagði hann: „Það eru allir vel- komnir og hvattir til að koma í íþróttahöllina. Þar fá menn tilsögn hjá þjálfuðum manni sem gefur góðar leiðbeiningar ef einhver vill grenna mitti, eða bæta brjóstvöðva.“ gej Hrafnhildur Val- björnsdóttir vakti mikla hrifningu á mótinu.

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.