Dagur - 22.11.1985, Síða 15

Dagur - 22.11.1985, Síða 15
22. nóvember 1985 - DAGUR - 15 -hvað er að gerastZ Vottar Jehóva: „Verið u staðfastir í trúnni! Vottar Jehóva á íslandi halda nú um helgina tveggja daga mót í húsakynnum karlakórsins Geysis að Hrísalundi 1A. Mótið, sem hefst á morgun, kl. 10.00 ber einkunnarorðin „Verið stað- fastir í trúnni". Slík tveggja daga mót eru haldin á vegum votta Jehóva um allan heim tvisvar á ári, auk þess að haldin eru einu sinni á ári enn fjölmennari, fjögurra daga mót. Allmargt manna mun koma frá Reykjavík til að aðstoða við framkvæmd mótsins og flutning dagskrárinnar. Dagskráin fer fram í formi erinda, viðtalsþátta og um- ræðna, en aðalræðuna flytur Bjarni Jónsson á sunnudag kl. 14.00 og nefnist hún „Grundvöllur trúar í trúlaus- um heimi“. Vottar Jehóva vilja bjóða öllu áhugafólki um Biblíuna að sækja mót þetta og er að- gangur ókeypis. Frá viðtalsþætti á svæðismóti Votta Jehóva í Reykjavík. Opinfundur á Hvammstanga Samtök um jafnrétti milli landshluta, deildin í Vestur- Húnavatnssýslu, boðar til opinbers fundar í félags- heimilinu á Hvammstanga laugardaginn 23. þ.m. kl. 13.30. Þar verða í brennidepli baráttumál samtakanna, þ.e. breytingar á stjórnarháttum Helgarmót í bridds á Húsavík Guðmundur Pétursson og Magnús Torfason Reykjavfk urðu sigurvegarar í fyrsta „Opna mótinu“ á Húsavík, sem Samvinnuferðir/Land- sýn og Bridgesamband ís- lands gangast fyrir. Alls verða mótin þrjú, hið næsta helgina 6.-8. desember og þriðja mótið helgina 14.-16. febrúar ’86. Samanlagður árangur í tveimur mótum af þremur mun skera úr um heildar- verðlaunin, sem eru þau veglegustu, sem veitt hafa verið hér á landi í briddsmót- um til þessa. Eins og áður sagði, sigr- uðu þeir Guðmundur og Magnús í fyrsta mótinu, sem fór fram um síðustu helgi. Fyrir vikið fengu þeir Lund- únaferð í aukaverðlaun. Þór- Ajmœlis- fagnaður Karlakórinn Geysir heldur sinn árlega afmælisfagnað þann 1. des. næstkomandi í Lóni húsi kórsins við Gler- árgötu. Fagnaðurinn hefst með lystauka kl. 7.30, en síðan tekur við borðhald. Fjölmargt verður til skemmt- unar á afmælisfagnaðinum, ræður haidnar og mikið sungið. Nánar verður auglýst síðar um dagskrá fagnaðar- arinn Sigþórsson og Þorlákur Jónsson Reykjavík hrepptu 2. sætið, eftir mikinn enda- sprett og fá fyrir það frítt á tvö næstu helgarmót, sem aukaverðlaun. Alls komu 15 pör af Suðurlandi, önnur 15 pör frá Akureyri, 9 pör frá Húsavík og 1 par af Héraði. Keppnisstjóri var Ólafur Lárusson en Vigfús Pálsson annaðist tölvuútreikning spila. Mótið þótti takast vel, enda aðstæður á Hótel Húsa- vík með því besta sem hér gerist á landinu. í næsta móti verða auka- verðlaunin ferð til Amster- dam fyrir efsta sætið og pen- ingaverðlaun fyrir annað sætið. Athygli er vakin á því, að stigaútreikningur til heildarverðlauna er eftirfar- andi: Besti árangur í tveimur mótum af þremur sem haldin verða, fundinn út eftir pró- sentuskor hvers spilara í hverju móti. Sem dæmi, þá var skor þeirra Magnúsar og Guðmundar í fyrsta mótinu 60,357 prósent/40 pör (pró- senta miðað v/þátttöku hverju sinni). Þannig fást sanngjarnir sigurvegarar, óháð því hvort 40 pör eða 80 pör eru að keppa hverju sinni. Skráning á mótið á Húsa- vík 6.-8. desember er hafin. Stjórnir Bridgefélags Akur- eyrar og Bridgefélags Húsa- víkur og auk þess Ólafur Lárusson hjá B.í. sími 91-18350, taka við skráningu til miðvikudaes 4. desember. íslenska lýðveldisins. Á fundinum setja fram skoðanir sína allir þingmenn Norðurlandskjördæmis vestra og eftirtaldir fulltúar samtakanna: Árni Steinar Jóhannsson Akureyri, Málmfríður Sig- urðardóttir Reykjadal, Pétur Valdimarsson Akureyri, Sig- ríður Rósa Kristinsdóttir Eskifirði og Örn Björnsson Vestur-Húnavatnssýslu. Ræðutími verður tak- markaður við 15 mínútur á mann, í tveim til þrem um- ferðum. Á eftir geta fund- argestir beint skriflegum fyrirspurnum til ræðumanna. Fundurinn er öllum opinn og býður Kvennabandið fundargestum upp á kaffi- veitingar. Upplýsingar um sætaferðir frá Akureyri gefnar í síma 96-23858. Jþrótár helgarinnar Um helgina verða tveir leikir í 1. deild Islandsmótsins í körfubolta. Grindvíkingar koma í heimsókn og spila 2 leiki við Þór. Þórsarar eiga harma að hefna, en þeir töpuðu fyrir arindvíkingum um síðustu íelgi í deildinni. Leikirnir verða á föstudagskvöld kl. 20 og á laugardag kl 14.30 í Höllinni. Þá verða um helgina 2 leikir í 3. deildinni í hand- bolta. Keflvíkingar koma norður og spila við Völsung og Þór. Á föstudagskvöld við Völsung á Laugum kl. 20 og gegn Þór á laugardag kl. 13 í Höllinni, á undan leik Þórs og UMFG í körfubolta. KA-liðin í blaki fara suður yfir heiðar og leika tvo leiki hvort í 1. deildinni. Á laug- ardag við Þrótt í Hagaskóla, kvennaliðið kl. 14 og karla- liðið kl. 15.15. Á sunnudag fara liðin svo til Kópavogs og þar leikur karlaliðið við HK kl. 14 og kvennaliðið kl. 15:15 við UBK. Ásthildur Cesil í Sjallanum Ásthildur Cesil Þórðardóttir frá ísafirði hefur nú nýverið gefið út hljómpíötuna Sokkabandsárin. Hún verð- ur á Akureyri um helgina og mun kynna plötuna í Sjallan- um á föstudagskvöldið, en á sunnudaginn kl. 15 mun hún koma fram á sýningu Kjur- egej Alexandru sem haldin er á Bjargi, er þetta jafn- framt síðasti dagur sýningar- innar. Ándlit Mgarinnar Um helgina verður valið sjötta og síðasta andlit helg- arinnar í H-100. Hafa öll andlitin þátttökurétt í keppninni um andlit H-100 sem verður haldin 6.-7. desember næstkomandi. Þessi keppni hefur vakið mikla athygli og þykir hafa tekist mjög vel. Dómnefnd hefur verið skipuð og verður skipan hennar tilkynnt opin- berlega í næstu viku. Verð- laun hafa heldur ekki verið alveg ákveðin en verða mjög glæsileg. Meðal verðlauna verður Lundúnaferð. Jólaœvintýrið sýnt um helgina Um helgina verða þrjár sýn- ingar á Jólaævintýri hjá Leikfélagi Akureyrar, en leikurinn var frumsýndur um síðustu helgi og hefur hann hlotið mikið lof gagnrýn- enda. Árni Tryggvason fer á kostum í hlutverki okrarans Scrooge, en alls koma 40 leikarar, dansarar, börn og hljómlistarmenn fram í sýn- ingunni. Leikurinn er byggð- ur á einni vinsælustu sögu Dickens „A Christmas Carol“ og gerist frá aðfanga- dagskvöldi til jóladagsmorg- un árið 1843, en fyrir tilstilli ólíkra anda er flogið aftur og fram um nítjándu öldina. Sýningar verða á föstudags- og laugardagskvöld kl. 20.30 og á sunnudaginn verður sýning kl. 16.00. Jólin nálgast Heilar breiður af jólastjörnum, rauðar og hvítar, mjög góðar og mjög ódýrar. Erum að taka upp jóla- og gjafavörur í úrvali. A'ArfAf-* Bló Verið velko » við Hrafnagil. Sími 31333 Kökubasar Kökubasar verður í blómaskálanum Vín við Hrafnagil, laugardaginn 23. nóv. nk. kl. 14.00. Allir velkomnir. Ágóðinn rennur í ferðasjóð nemenda. 9. bekkur Hrafnagilsskóla. Þeim fjölmörgu kunningjum, vinum og vandamönnum, sem heimsóttu mig eða glöddu á einn og annan hátt á áttræðisafmæli mínu, sendi ég mínar bestu kveðjur. Ástarþakkir ykkur sendi öllum, sem mér veittu greiða. Æðri máttar milda hendi megi ykkur vernda og leiða. INGIBJÖRG EINARSDÓTTIR, ljósmóðir frá Engihlíð, Skarðshlíð 15d, Akureyri. ★ Framtíðarvinna Við leitum að nema í bílasprautun til starfa hjá traustu fyrirtæki. Góð laun eru í boði fyrir réttan mann. irRafvirki Við óskum að ráða rafvirkja til starfa hjá verktakafyrirtæki sem fyrst. Umsóknareyðublöð á skrifstofunni. glRÁÐNINGARÞJÓNUSTA FELL hf. Kaupvangsstræti 4 -Akureyri - simi 25455 Óska eftir starfsmanni. Borgarsalan. n föstudag 22. nóvember frá kl. 3-6 e.h. innbakaða fugla frá Kjötiðnaðarstöð KEA. ★ Einnig kynnir Sjöfn „nýju mildu línuna“ og kraftþrif Kynningarafsláttur. ★ Lítið inn. - Það er mikið um að vera í Byggðavegi þessa dagana. Kjörbúð KEA Byggðavegi 98

x

Dagur

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.