Dagur - 12.12.1985, Blaðsíða 2
_viðtal dagsins.
2 - DAGUR - 12. desember 1985
irnm
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31. PÓSTHÓLF 58. AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 420 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 40 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJORNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
GÍSLI SIGURGEIRSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR. BRAGI V. BERGMANN.
GESTUR E. JÓNASSON. INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Husavík).
YNGVI KJARTANSSON. KRISTJÁN G. ARNGRÍMSSON.
KRISTJÁN KRISTJANSSON. MARGRET Þ. ÞORSDÓTTIR.
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRIMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR. HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Jeiðari.________________________
Taugatitringur
peningaaflanna
Mikill taugatitringur er í Sjálfstæðisflokknum
þessa dagana og sér þess víða merki. Þetta er
e.t.v. ekki undarlegt, því margir flokksmenn
eru í vondum málum og til eru þeir sem setja
sama sem merki milli einstakra flokksmanna
og flokksins.
Sá sjálfstæðismanna sem erfiðast á þessa
stundina er að líkindum Albert Guðmundsson,
sem sakaður hefur verið um að hygla fyrir-
tæki sínu Hafskip. Fæstum dettur þó að lík-
indum í hug að Albert Guðmundsson hafi
framið nokkurt lögbrot í þessu máli. Hins veg-
ar gætu orð Vilmundar heitins Gylfasonar
„Löglegt en siðlaust" átt við í þessu sam-
bandi. Heppilegast væri ef Albert drægi sig í
hlé frá störfum á meðan rannsókn fjármála-
hneykslisins, sem Hafskip og Útvegsbankinn
blandast inn í, fer fram. Það myndi draga úr
þeirri tortryggni sem ríkir og þeim grunsemd-
um að pólitíkusar í toppstöðum geti jafnvel
haft áhrif á gang rannsókna af þessu tagi.
Taugatitringurinn í Sjálfstæðisflokknum á
sér eðlilegar skýringar. í gangi er mikil bar-
átta milli hagsmunahópa innan flokksins,
sem ýmist hafa verið á Hafskips- eða Eim-
skipslínunni. Fylkingarnar berjast um völd og
áhrif og ekki síst um fjármagn. Ef Sjálfstæðis-
flokkurinn er viðkvæmur fyrir einhverju, þá
eru það deilur um peningahagsmuni, því
uppbygging flokksins snýst fyrst og fremst
um slík mál. Gjaldþrotamál Hafskips, sem er
það stærsta í sögu lýðveldisins, gæti haft af-
drifarík og varanleg áhrif í Sjálfstæðisflokkn-
um.
Það er því e.t.v. ekki að undra, þótt forystu-
menn Sjálfstæðisflokksins í ríkisstjórn og á
þingi, grípi til hreint ótrúlegra röksemda fyrir
því að slíta stjórnarsamstarfinu, eins og
væntanlegur tillöguflutningur um frystingu
kjarnorkuvopna ber vitni um. Að hóta stjórn-
arslitum þótt þingmenn Framsóknarflokksins
kjósi að greiða atkvæði samkvæmt samvisku
sinni í þessu máli, eins og stjórnarskráin
boðar, ber vitni um alveg einstakt frum-
hlaup, því engar líkur voru á því að ríkis-
stjórnin missti meirihluta í þessu máli og
næði ekki sínu fram.
Það verður eftir því tekið ef Sjálfstæðis-
flokkurinn hleypur eins og hræddur rakki frá
hálfkláruðu verki, til þess að sleikja sárin sem
innbyrðisátök og slagsmál um peningavöld
hafa valdið.
Gott vöruval og
lágt vöruverö
- er stefna okkar, segir Björg Þórsdóttir verslunarstjóri í KEA Hrísalundi
Verslunarstjóri í Hrísalundi er
Björg Þórsdóttir. Björg hefur
unnið við verslunarstörf síðan
um 1960 og lengst af hjá Kaup-
félagi Eyfirðinga. I fyrstu vann
Björg við almenn verslunar-
störf, en gegndi starfi verslun-
arstjóra í útibúi KEA við Rán-
argötu um tíma og einnig í úti-
búinu við Strandgötu. Síðast-
liðið sumar tók hún við starfi
verslunarstjóra í Hrísalundi.
,.Jú. það er vissulega annað að
vera verslunarstjóri í stórmark-
aði en í hverfisverslun. Það er allt
annað andrúmsloft í litlum hverf-
isverslunum. og óneitanlega
kynnist maður viðskiptavinunum
meira."
Við verslunina í Hrísalundi eru
25 stöðugildi, ..en það starfa hér
mikið fleiri. ég gæti trúað um 50
manns. Og á álagstímum fáurn
við fleira fólk til liðs við okkur."
Björg segir mestu breytinguna
í sambandi við verslun á þeim
árum sem hún hafi starfað að
henni þá. að nú séu stórmarkaðir
komnir til sögunnar, áður hafi
einungis verið um hverfisverslan-
ir að ræða. „Það er meiri sam-
keppni núna en áður. Jú. ég vona
að við höfum staðið okkur vel í
þeirri samkeppni. Nú vöruúrval-
ið hefur auðvitað vaxið mjög
mikið. Áður var það afskaplega
fábreytt, bæði vegna þess að sam-
göngur voru ekki eins miklar og
nú er og einnig voru kröfur fólks
allt aðrar. Ég man eftir því á
mínum fyrstu árum við verslun-
arstörf að það var fátítt að ávext-
ir og grænmeti fengjust nema rétt
í kringum jólin. “
Björg segist mæta til vinnu
klukkan átta að morgni og hún
vinnur oftast til klukkan sjö að
kvöldi. Hvað með frístundir?
„Þær eru ekki mjög margar, ég
hef ekki mikinn tíma til að sinna
áhugamálum. Ég á tvö börn og
reyni að vera heima með þeim á
kvöldin. Það er gaman að fást við
þetta starf, það er skemmtilegt,
en jafnframt krefjandi. Ég hitti
marga og kynnist mörgum í gegn-
um það. Én aðalatriðið er að
hafa gott starfsfólk og að fá það
til að vinna með sér. Ég er mjög
Björg Þórsdóttir
ánægð með starfsfólkið hér, það
er í alla staði mjög gott."
- Hrísalundur tók upp kredit-
kortaþjónustu fyrir skemmstu.
Hvernig hefur það gengið?
„Það hefur gengið ljómandi
vel. Notkun þeirra hefur aukist
nokkuð frá því fyrst. Mér sýnist
sem almennt sé kreditkortanotk-
un að aukast í bænum. Við höf-
um tekið eftir því að það verður
alltaf dálítil sveifla eftir 18. hvers
mánaðar. Og búumst við að svo
verði einnig í desember."
- Eruð þið í Hrísalundi farin
að undirbúa komu jólanna?
„Já, við erum farin að gera
það. Við reynum að hafa fjöl-
breytt úrval af kertum og kon-
fekti og öðru sem tengist jólun-
MyndiKGA.
um. Einnig höfum við lagt
áherslu á að vera með gott
kjötborð, við reynum að vera
með sem mest og best úrval. Al-
mennt má segja að það sé stefna
okkar að vera með gott vöruúrval
og sem lægst vöruverð."
- Hvað kaupir fólk helst í jóla-
matinn?
„Við seljum mikið af rjúpu,
einnig af svínakjöti. Aðrar fugla-
tegundir en rjúpa hafa aukist
mikið í sölu og get ég þar nefnt
kalkún og pekingendur. Ekki
má gleyma hangikjötinu, það
hafa allir á borðum hjá sér um
jólin. Þetta er ósköp svipað um
áramótin, nema hvað þá er ekki
keypt eins mikið af rjúpunni.“
-mþþ