Dagur - 12.12.1985, Side 3
12. desember 1985 - DAGUR - 3
Sveit Páls Pálssonar Akureyrarmeistari 1985. Aftari röð frá vinstri: Hörður Blöndal,
Grettir Fránannsson. Fremri röð frá vinstri: PáD Jónsson, Páll Pálsson og Þórarinn
B. Jónsson. Ljósmynd: Norðurmynd.
Bridgefélag Akureyrar:
Sveit Páls varð
Akureyrarmeistari
Nú er lokið sveitakeppni
Bridgefélags Akureyrar, Ak-
ureyrarmóti. Sigurvegari varð
sveit Páls Pálssonar, en auk
Páls eru í sveitinni, Grettir Frí-
mannsson, Hörður Blöndal,
Pórarinn B. Jónsson og Pálí
Jónsson.
í öðru sæti varð sveit Stefáns
Sveinbjörnssonar, en auk hans
spiluðu í sveitinni, Máni Laxdal,
Tryggvi Gunnarsson og Reynir
Helgason.
Alls tóku 15 sveitir þátt í Ak-
ureyrarmótinu að þessu sinni og
voru spiluð 16 spil milli sveita,
tveir leikir hvert spilakvöld. Eins
og undanfarin ár stjórnar Albert
Sigurðsson keppnum félagsins.
Röð efstu sveita varð þessi:
1. Páll Pálsson 288
2. Stefán Sveinbjörnsson 267
3. Gunnlaugur Guðmundsson 265
4. Jón Stefánsson 262
5. Örn Einarsson 260
6. Gunnar Berg 258
7. Kristján Guðjónsson 255
8. Haukur Harðarson 232
9. Júlíus Thorarensen 231
10. Stefán Vilhjálmsson 219
Tvímenningur - Jólamót
Sunnudaginn 29. desember verð-
ur Jólamót ’85 haldið í Blóma-
skálanum Vín við Hrafnagil og
hefst kl. 9.30 fh. stundvíslega.
Spilaður verður tvímenningur
eftir Mitcel-fyrirkomulagi. Öllum
er heimil þátttaka. Þátttökugjald
er kr. 1.500.- á parið og er inni-
falinn matur í hádeginu í því
verði. Skráning er hafin hjá
stjórn BA og þarf að vera lokið
fyrir Þorláksdag. Spilað verður
um silfurstig.
Sportveiðiblaðið:
Mjög
fjölbreytt
efni
Sportveiðiblaðið, 2. tbl. 4. ár-
gangs er komið út, með marg-
víslegu efni tengdu veiði-
mennsku að venju. Biaðið er
88 síður að stærð, prentað á
mjög vandaðan pappír og í því
er fjöldi greina auk mynda sem
eru bæði svart-hvítar og lit-
myndir.
Fjöldi greina er í blaðinu sem
tengist stangveiði og skot-
mennsku. Af efni má nefna
greinina „Laxinn með mannsheil-
ann,“ grein um Hofsá í Vopna-
firði, Veiðiferð í Mýrarkvísl eftir
Árna Baldursson, grein um dýr-
bít á Barðaströnd. Þá er ítarlegt
viðtali við Lúðvík Jósepsson fyrr-
um ráðherra um stangveiði.
Grein er um veiðar með labra-
dorhundi eftir Stefán Hauk
Grímsson á Kópaskeri, Fyrsti
flugulaxinn eftir Sigurð Kr.
Jónsson, grein um miðunarsjón-
auka og áfram mætti telja. Rit-
stjóri Sportveiðiblaðsins er
Gunnar Bender.
Náðu 200 minkum
Arnkell Þórólfsson á Hraunkoti norðan frá Sléttu og vestur í í sumar unnu þeir félagar rösk-
og Vilhjálmur Jónasson á Sílalæk Ljósavatnsskarð, að Kelduhverfi lega 200 dýr og er það svipuð tala
annast minkaveiðar á svæðinu að undanskildu. og undanfarin ár.
ÚTBOÐ
Rafmagnsveitur ríkisins óska eftir tilboðum
í eftirfarandi:
RARIK-85015: Innlend stálsmíði. Háspennulínur.
Opnunardagur: miðvikudagur 15. janúar 1986, kl.
14.00.
Tilboðum skal skila á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, fyriropnun-
artíma og verða þau opnuð á sama stað að við-
stöddum þeim bjóðendum er þess óska.
Útboðsgögn verða seld á skrifstofu Rafmagnsveitna
ríkisins, Laugavegi 118, 105 Reykjavík, frá og með
mánudegi 16. desember 1985 og kosta kr. 300.-
hvert eintak.
Reykjavík 11. desember 1985
Rafmagnsveitur ríkisins.
j Bjöm Sigurðsson, Baldursbrekku 7. Simar 41534 & 41666. Sérleyfisfcrðir. Hópferðir. Sætaferðir. Vöruflutningar.
Húsavík - Akureyri - Húsavík
Daglegar ferðír
Sérleyfishafi.
vetrarvorum
Bakpokar ★ Tjöld og fleira
Svefnpokar ★
Skátar
björgunarsveitamenn
snjósleðaeigendur
og annaö útiverufólk,
notiö þetta einstaka tækifæri
CARAVAN RAUKA
Caravan Rauka
Tilboðsverö kr.
Fiber fylling • Þyngd 2.3 kg
(Rétt verð kr. 7.130,-)
og kynnist frábærum
CARAVAN' ZtRMATl
vetrarútbúnaði
Einnig verður
til sýnis
&RAVAN JW.
snjóslcði frá
dúnfylling • þyngd 1.1 kg
Véladeild KEA
CARAVAN 1000
Tilboðsverð kr. 6.400
(96)21400
I tilefni af kynningunni bjóðum við Caravan
Rauka og Caravan 1ÖÖ0 svefnpoka á sérstöku
tilboðsverði.
1
1
Q