Dagur - 12.12.1985, Qupperneq 16
Kiúkíi
V CROWN J
CHICKEN ^
AKUREYRI
Skipagötu 12 • Sími 21464
Kjúkímgar
eru gceðöfceða
\A CROWN j.
CHICKEN '
AKUREYRI
Skipagötu 12 • Sími 21464
Siglufjörður:
Hættir Verslunar-
félagið 1. mars?
- „Engin ákvörðun verið tekin en við erum að
selja húsnæðið“, segir stjórnarformaðurinn
Sparisjóður Siglufjarðar mun
að öllum líkindum kaupa hús-
næði Verslunarfélags Siglu-
fjarðar að Túngötu 3 og fá
húsnæðið til afnota 1. mars á
næsta ári.
„Húsnæðið er orðið gamalt og
óhentugt til verslunarreksturs og
þegar Sparisjóðurinn gerði okkur
tilboð í eignina ákváðum við að
selja,“ sagði Sigurður Árnason
stjórnarformaður Verslunarfé-
lags Siglufjarðar í samtali við
Dag.
Það skal tekið fram að ekki er
búið að ganga endanlega frá
kaupunum.
Túngata 3 er þriggja hæða hús
sem byggt var á stríðsárunum.
Síldarútvegsnefnd átti efstu hæð
hússins en framseldi hana síðan
Skattstjóraembættinu á Norður-
landi vestra. Eignarhluti Spari-
sjóðs Siglufjarðar í húsinu er nú
17% en með því að kaupa hús-
næði Verslunarfélagsins mun
Sparisjóðurinn eignast að fullu
fyrstu tvær hæðirnar og hækkar
þá eignarhluturinn í 67%.
„Við munum reyna að selja
þær vörubirgðir sem við eigum
áður en við þurfum að rýma
húsnæðið en hins vegar hefur
engin ákvörðun verið tekin um
hvort við hættum rekstri ellegar
flytjum okkur um set í bænum,“,
sagði Sigurður Árnason hjá
Verslunarfélagi Siglufjarðar að
lokum. BB.
Ekki ieggja bflum þarna! - Sundið milli Skipagötu og Hafnarstrætis, sunnan
Alþýðuhússins nýja, er ekki hugsað sem bflastæði, heldur gangstígur fyrir
þá m.a. sem leggja bflum sínum fyrir neðan Skipagötuna á bflastæðunum
þar. Lögreglan beinir því til ökumanna að ieggja ekki bflum sínum í sundið.
Mynd: - KGA.
Jólahreingerningin? Það þarf að snyrta og „snurfusa“ utanhúss og innan í
desember. Mynd: - KGA.
„Við höfum ekkert heyrt frá
stjórn Vatnsveitu Akureyrar
um vatnssölumálið, en erum
að sjálfsögðu tilbúnir til við-
ræðna við Vatnsveituna, því
við viljum koma þessu á hreint
og það sem fyrst,“ sagði Júlíus
Kristjánsson hjá vatnspökkun-
arfyrirtækinu Akva h.f. er
hann var spurður hvort þeirra
réttur til vatnssölu hefði verið
véfengdur.
Árekstur:
Einn á
sjúkrahús
Mjög harður árekstur varð í
gær á mótum Hamarsstígs og
Þórunnarstrætis á Akureyri.
Bifreið sem ekið var vestur
Hamarsstíg fór fyrir bifreið sem
var ekið norður Þórunnarstræti.
Sem fyrr sagði var áreksturinn
mjög harður og var önnur bif-
reiðin rnjög mikið skemmd. Einn
var fluttur á sjúkrahús en ekki
var vitað um meiðsli hans í gær.
Lögreglunni gekk erfiðlega að
vinna á vettvangi vegna forvitni
fólks sem dreif að. Á það reyndar
einnig við um bifreiðastjóra sem
áttu leið um á bílum sínum. Vett-
vangsrannsókn er nákvæmnis-
verk og er því komið á framfæri
að fólk troðist ekki nærri þegar
unnið er að slíku eftir umferðar-
óhöpp. gk-.
Aflatölur Fiskifélags íslands:
Aukin þorsk- og loðnuveiði
í lok nóvembermánaðar höfðu
íslensk fiskiskip samanlagt veitt
tæp 300 þúsund tonn af þorski
á árinu. Á sama tíma í fyrra
höfðu hins vegar veiðst 256
þúsund tonn af þorski.
Þessar upplýsingar koma fram
í bráðabirgðatölum Fiskifélags
íslands frá 9.12.1985. Þar kemur
einnig fram að á sama tíma höfðu
íslendingar dregið samanlagt
1.477 þúsund lestir af fiski úr sjó
á móti 1.367 þúsundum lesta á
sama tíma í fyrra. í þessari aukn-
ingu munar mest um aukningu á
loðnuveiðum. Fyrstu 1.1 mánuði
ársins var landað 850 þúsund
tonnum af loðnu en á sama tíma
í fyrra höfðu 762 þúsund tonn af
loðnu borist á land.
Veiðar á rækju og hörpudiski
hafa aukist nokkuð fyrir Norður-
landi og sömu sögu er að sjálf-
sögðu að segja um loðnu og
þorsk. Veiðar Norðlendinga á
öðrum tegundum standa nokkuð
í stað. -yk.
„Ég veit ekki hvort þeir ætla að
fara að tryggja sig á einhvern hátt
núna. Við greiðum fyrir þetta
vatn samkvæmt mæli eins og aðr-
ir og þeir hafa vitað af okkar mál-
um frá upphafi," sagði Júlíus
ennfremur.
Sigurður Svanbergsson vatns-
veitustjóri sagði að vatnssölumál-
in hefðu ekkert verið rædd hjá
stjórn Vatnsveitunnar.
„En það er fundur hjá stjórn-
inni í dag og þá verður sjálfsagt
gerð fyrirspurn um það, hverjir
það eru sem hafi fylgst með mál-
inu. Þetta mál verður krufið til
mergjar og vatnsveitustjórn látin
gera grein fyrir því. Ég vil fá að
vita hverjir hafa fylgst með þessu
máli. Annað get ég ekki sagt á
þessu stigi,“ sagði Sigurður Svan-
bergsson. BB.
Fiskiðjusamlag Húsavíkur:
Reksturinn stóð
á núlli
Aö sögn Tryggva Finnssonar,
framkvæmdastjóra Fiskiðju-
samlags Húsavíkur, stóð rekst-
ur Fiskiðjusamlagsins á núlli í
fyrra þegar búið var að reikna
með eðlilegum afskriftum.
Hins vegar stendur fiskvinnsl-
an verr að vígi í ár og líklegt að
tap verði á rekstrinum.
Á aðalfundi Fiskiðjusamlags-
ins sem haldinn var í gær, var
mikið rætt um stöðu fiskvinnslu
og sjávarútvegs á Húsavík. Á
Húsavík háttar þannig til að út-
gerð og fiskvinnsla eru aðskilin,
að öðru leyti en því að Fiskiðju-
samlagið á hluta í togaraútgerð-
inni. Tryggvi kvaðst telja heppi-
legt að samvinna vinnslu og út-
gerðar yrði nánari með það fyrir
augum að stýra dreifingu afla
þannig að fiskvinnslan fengi að
hafa hönd í bagga með það
hvernig hráefni skiptist milli fisk-
vinnslu á Húsavík og útflutnings
með gámum. -yk.
Saurbæjarhreppur:
Bændur hyggja
á refarækt
Nokkrir bændur í Saurbæjar-
hreppi hafa í hyggju að hefja
loðdýrarækt innan skamms,
þar sem vonlaust er að aukning
verði í hinum hefðbundna bú-
rekstri.
íbúar Saurbæjarhrepps eru
verr settir hvað atvinnutækifæri
varðar, en þeir sem búa nær þétt-
býlinu. Hins vegar eru nýir at-
vinnumöguleikar takmarkaðir.
Refarækt er talin kosta vænleg-
ust og nú þegar hafa tveir bændur
tryggt sér lán til stofnfram-
kvæmda og fleiri eru „volgir.“
Helsta vandamálið sem þarf að
leysa er fóðuröflunin. Þeir flutn-
ingabílar sem nú flytja fóður
austur um, þyrftu að fara stóran
krók til að koma fóðrinu á refa-
bú í Saurbæjarhreppi. Slíkt mun
hafa ærinn kostnað í för með sér,
ef um litlar einingar er að ræða.
Hugsanlega mætti nota þurrfóður
ef það fengist á viðráðanlegu
verði. BB.