Dagur - 10.01.1986, Blaðsíða 3
10. janúar 1986 - DAGUR - 3
,,Ég verð alltaf
Akureyringur“
- Hafliði Hallgrímsson hlaut tónskáldaverðlaun Norðurlandaráðs
„Ég verð nú að játa, að þetta
kemur mér mjög á óvart,
þetta er eitthvað sem ég hef
aldrei leitt hugann að. Engu
að síður er þetta mikill heiður
fyrir mig og hvatning til
áframhaldandi tónsmíða. Og
ég er þakklátur þeim
mönnum, sem ákváðu að
leggja verk mitt fram. Það
sýnir traust til mín, sem ég
met mikils. “
Þetta sagði Hafliði Hallgríms-
son, sellóleikari og tónskáld,
þegar ég sló á þráðinn til hans til
Edinborgar í gær, í þeim erind-
um að óska honum til hamingju
með „tónskáldaverðlaun Norður-
landaráðs“. Þau féllu í hlut Haf-
liða í ár, fyrir verk hans,
„Póemi“, sem er einleiksverk fyr-
ir fiðlu ásamt nokkuð stórri
strengjahljómsveit. Atli Heimir
Sveinsson fékk hliðstæð verðlaun
fyrir nokkrum árum.
„Þetta verk var frumflutt
heima á íslandi fyrir rúmu ári
en það var síðan lagt fram
sem annað af verkum íslands til
þessara verðlauna, án þess að ég
vissi af því. Útkoman varð þessi
og ég var að fá fréttirnar rétt áður
en þú hringdir,“ sagði Hafliði, og
hann var spurður nánar um
verkið.
„Skoska kammersveitin pant-
aði þetta verk hjá mér fyrir mörg-
um árum. Ég skrifaði það 1984.
Það var síðan frumflutt heima,
skömmu seinna í Skotlandi
og það hefur komið oft við
sögu síðan. M.a. var það flutt á
stórri alþjóðlegri keppni í Pól-
landi, þar sem það hlaut önnur
verðlaun."
- Nú býrð þú í Edinborg; hvað
hefur þú verið lengi þar, Hafliði?
„Ég er búinn að vera hér síðan
1977; kom hingað frá London,
þar sem ég bjó í mörg ár. Ég kom
hingað til að taka við föstu starfi
sem fyrsti sellóleikari hjá Skosku
kammersveitinni, sem er mjög
virt og góð hljómsveit. Þar var ég
fastráðinn í 5 ár, en síðan ákvað
ég að segja því starfi lausu, til að
geta snúið mér meira að tónsmíð-
um. „Póemi“ kom eftir nokkurra
ára hlé frá tónsmíðum, en ég
vona að ég geti fengið meiri tíma
til slíkra verka í framtíðinni.“
- Hefur þú átt þess kost, að
helga þig eingöngu tónsmíðum
undanfarin ár?
„Nei, ég verð að skipta tíma
mínum milli þess að koma fram
sem sellóleikari víðs vegar um
heim, en vinna þess á milli hér
heima við, þegar fjárráðin leyfa,
við tónsmíðar.“
- Þú ert uppalinn hér við
brekkuræturnar á Akureyri?
„Já, já ég er fæddur og uppal-
inn í Gránufélagsgötu 5, það er
efsta húsið í Gránufélagsgötunni,
þar sem móðir mín, Fríða Sæ-
mundsdóttir, býr enn. Ég tel mig
alltaf Akureyring í húð og hár og
reyni að koma heim eins oft og ég
get.“
- Hvenær leiddist hugurinn
inn á tónlistarbrautir?
„Mjög snemma, ég held ég hafi
ekki verið nema 11-12 ára þegar
ég var viss um að ég færi út á
þessa braut.“
Þessi mynd af Hafliða og Ragnheiði konu hans var tekin fyrir um 10 árum.
Þau eru með yngsta son sinn, Almar, en síðan hafa bæst við tveir drengir til
viðbótar.
Hafliði Hallgrímsson við sellóið.
- Eitthvað sérstakt sem leiddi
til þess?
„Góð músík í útvarpinu o§
einhver tilfinning fyrir músík. í
það minnsta var það ekki popp-
músík, sem hreif mig. Hefði ég
verið alinn upp við poppmúsík,
hefði ég líklega aldrei náð að
spila eins og maður. En það var
mikil og góð tónlist í útvarpinu
og ég þakka Ríkisútvarpinu að
vissu leyti fyrir það tónlistarlega
uppeldi sem það veitti mér. Ég
vona að sú stofnun haldi þeim
uppeldisstörfum áfram."
- Hvar lærðir þú?
„Ég byrjaði í Tónlistarskólan-
um á Akureyri, hjá norskum
kennara, sem hét Ivan Knudsen.
Síðan fór ég til Reykjavíkur þeg-
ar ég var 17 ára og lauk tónlistar-
skólanum þar tvítugur. Eftir það
hef ég verið langdvöluin erlendis,
en ég hef alltaf reynt að koma
eins oft heim og við verður
komið. Það er alltaf takmarkið,
að hafa sem mest samband
heim.“
- Eigum við von á þér eitthvað
heim á næstunni?
„Já, já, ég er alltaf að skipu-
leggja ferðir heim. Ég kem í apríl
og maí, til þess að taka þátt í
tónleikahaldi í Reykjavík. En ég
spila að líkindum ekki á Akur-
eyri í þeirri ferð. Ég hélt oft tón-
leika heima á Akureyri, en nú er
Nú er Almar orðinn 10 ára og í fyrra
vann hann til fyrstu verðlauna í sam-
keppni 75 barna við tónlistarskól-
ann í Edinborg - fyrir sellóleik.
Hann fetar því í spor föðursins.
nokkuð um liðið síðan ég hef
komið þar fram. Það er mikið til
vegna þess hvað ég hef verið
bundinn við föst störf, en nú fer
að losna meira um mig, þannig
að ég ætti að geta bætt úr þessu."
- Er gott að búa í Edinborg?
„Já, ekki síst vegna þess að þar
er ég nær íslandi, heldur en ef ég
væri t.d. í London. Þetta er mjög
þægileg borg, ekki síst vegna þess
að ég er með nokkuð stóra fjöl-
skyldu. Við eigum þrjá stráka.
Hér er allt miklu rólegra og við-
ráðanlegra og talsverð gróska í
listurn," sagði Hafliði í lok sam-
talsins.
Eiginkona Hafliða er Ragn-
heiður Árnadóttir. Hún er líka
frá Akureyri, en þau þurftu til
London til að kynnast. Hún er
píanóleikari og var þar við tón-
listarnám samtíða Hafliða. For-
eldrar hennar eru Árni Sörens-
son, sem í mörg ár var bifvéla-
virki á Akureyri, en býr nú á
Raufarhöfn, og Ragnheiður
Arinbjarnardóttir.
Eins og fram kemur í viðtalinu
við Hafliða er móðir hans Fríða
Sæmundsdóttir, sem lengi var
kaupmaður í Markaðinum. Faðir
hans var Hallgrímur Stefánsson,
en hann lést 1951. Dagur sendir
Hafliða og fjölskyldu hans inni-
legar hamingjuóskir. - GS
Hjúkrunarfræðingar
Norðurlandsdeild eystri
Félagsfundur verður haldinn mánudaginn 13.
janúar kl. 20.30 í Dvalarheimilinu Skjaldarvík.
Dagskrá:
1. Hjúkrunarþjónusta við aldraða.
2. Önnur mál.
Stjórnin.
Orgelskóli Ragnars Jónssonar
Innritun fyrir vorönn er hafin
Hægt er að bæta við byrjendum
bæði í yngri deildir og eldri deildir.
Hringið og leitið upplýsinga í síma 26699.
Sólarkaffi
Vestfirðingafélagsins
veröur haldið föstudaginn
24. janúar kl. 8.30 í Lóni fé-
lagsheimili Karlakórsins Geysis.
Sólarkaffi, söngur og skemmtiatriði.
Dans. Hljómsveit Pálma Stefánssonar leikur.
Vestfirðingar, fögnum hækkandi sól.
Nefndin.
Endurbætur húsa
með tilliti til orkusparnaðar
Námskeið á vegum Fræðslumiðstöðvar iðnaðarins,
verður haldið í Verkmenntaskólanum á Akureyri,
húsi tæknisviðs v/Þórunnarstræti dagana 23.-25.
janúar 1986 og hefst kl. 13.00 fimmtudaginn 23. jan.
Námskeiðið er einkum ætlað fyrir iðnaðarmenn og
hefur þegar verið haldið í Reykjavík, Vestmannaeyj-
um og á ísafirði. Þátttökugjald er kr. 5.000.
Innritun og nánari upplýsingar hjá Meistarafélagi
byggingamanna Norðurlandi í síma 96-21022.
Tilkynna þarf þátttöku fyrir 15. janúar nk.
Nauðungaruppboð
sem auglýst var í 114., 117. og 121. tbl. Lögbirtingablaðsins
1985 á fasteigninni Hólakoti, Saurbæjarhreppi, þinglesinni
eign Eiríks Björnssonar fer fram eftir kröfu Sigríðar Thorlacius
hdl. á eigninni sjálfri miðvikudaginn 15. janúar 1986 kl. 14.00.
Sýslumaðurinn í Eyjafjarðarsýslu.
Umboðsmenn Dags
Sauðárkrókur: Sísí Steindórsdóttir, Furuhlíð 1, sími 5828.
Siglufjörður: Matthías Jóhannsson, Aðalgötu 5, sími 71489.
Blönduós: Snorri Bjarnason, Urðarbraut 20, sími 4581.
Ólafsfjörður: Helga Jónsdóttir, Hrannarbyggð 8, sími 62308.
Hrísey: Halla Jóhannsdóttir, Norðurvegi 9, sími 61728.
Dalvík: Gerður Jónsdóttir, Miðtúni, sími 61247.
Grenivík: Anna Rósa Pálmarsdóttir, sími 33112.
Húsavík: Ingibjörg Magnúsdóttir, Sólbakka 5, sími 41529
Mývatnssveil: Þuríður Snæbjörnsdóttir, sími 44173.
Kópasker: Anna Pála Kristjánsdóttir, Boðagerði 10, sími 52128.
Raufarhöfn: Friðmundur H. Guðmundsson, sími 51225.
Kópavogur: Guðbjörg Bjarnadóttir, Vallhólma 12, sími 641562.