Dagur - 10.01.1986, Blaðsíða 10

Dagur - 10.01.1986, Blaðsíða 10
raddsvið sem er hreint ótrúlegt. Hljómsveitin kom fyrst saman fyrir um það bil tveimur árum. Þá var frægðin það langt undan að ekki var einu sinni hugsað um hana. „Á þessum tíma þurftum við ekki á athygli að halda, ekki held- ur blaðaskrifum. Við vorum al- gjörlega uppteknir við tónlistina. Með því að bíða með hlutina þróuðust þeir sjálfkrafa, þangað til sá tími var kominn, að við ætt- um að sýna hvað við gætum.“ „Stundum get ég farið upp á svið og gjörsamlega gleymt sjálf- um mér - ég veit ekki hvar ég er. Ég legg það hart að sjálfum mér að ég þjáist af súrefnisskorti." Það er söngvarinn Red sem á þessi orð, þó að hann virki oftast nær sem miðja og aðalmaður hljómsveitarinnar, fullyrða þeir að þeir hafi náð gæðunum vegna hins frábæra félagsanda sem ríki í hljómsveitinni. „Þaö eru litlar einingar innan sveitarinnar, en ég held að styrk- ur hennar sem heildar, hafi skap- að efnið og gert það svo gott sem það er. 10 - DAGUR - 10. janúar 1986 oppsíðarL. Soulhljómsveitin Simply Red, frá Manchester í Englandi var sú hljómsveit sem var af mörgum valin bjartasta vonin árið 1985. Þetta er ákaflega ung sveit, en ris hennar hefur verið ákaflega hratt. Fyrsta smáskífa þeirra, Money’sTo Tight To Mention,, endurgerð á lagi þeirra Valentin- es bræðra, vakti mikla athygli, og gerði það gott á vinsældalistan- um breska, komst hæst í 12. sæti. Ekki svo slæmur árangur af byrjendum. Líklegast kannast ekki margir íslendingar við sveit- ina, og er þar líklegast kynning- arskorti um að kenna. Lítillega verður bætt úr honum hér í Degi í dag. Allt í einu, út úr engu er hljóm- sveitin orðin vinsæl, getur sýnt árangur sinn á vinsældalistum án þess að þurfa að skammast sín fyrir neinum. Þeir eru orðnir þekktir fyrir kröftugt og vandað soul. Nokkuð sem hefur notið vaxandi vinsælda í Bretaveldi nú undanfarin misseri. Söngvarinn Red, nefndur eftir eldrauðu hári sínu, er helsta sprauta hljómsveitarinnar, þekkt- ur fyrir geysilegan kraft sinn, og Ég var plötusnúður, hér áður fyrr, þar gildir hart lögmál, annað hvort slá þær í gegn eða ekki, fá fólk til að dansa eða ekki. Ég held að við höfum náð þeim markmiðum, fundið púlsinn." Tónlist Simply Red er án vafa danstónlist byggð á soulgrunni. Þeir viðurkenna fúslega að vera undir áhrifum frá tónlist banda- rískra blökkumanna. „En það þýðir ekki að við séum að kópíera hana, ég elska hins vegar taktinn í henni og verð að viðurkenna að ég er frekar óánægður með flesta breska tónlistarmenn sem fylgja þessari línu.“ Simply Red hefur náð því tak- marki að skrá nafn sitt á spjöld poppsögunnar, að vísu aðeins með litlum stöfum enn sem kom- ið er. Smáskífurnar sem fylgdu á eftir Money’s To Tight To Ment- ion, Come To My Aid og Holding Back The Years, náðu ekki mikl- um vinsældum. Hins vegar vakti fyrsta breiðskífa þeirra Picture Book mikla athygli og naut tals- verðra vinsælda. Því bendi ég ykkur á nafnið Simply Red til að fylgjast með í framtíðinni. Umsjón: Tómas Gunnarsson Dynheimar: Topp 10 Fyrsti Dynheimalistinn á þessu ári, þó að hann sé reyndar valinn á síðasta ári. Miklar breytingar hafa orðið síðan hann var birtur síðast. Helst ber að vekja athygli á því að nú er helmingur af lögum listans eða fimm, ís- lensk og akureyrskt lag í öðru sæti, en það hefur mér vitanlega ekki gerst áður í sögu listans. Whitney Houst- on hefur náð toppsætinu, líkt og hún hefur áður gert á svo fjölmörgum vinsældalistum. Við skulum bara bíða og sjá hvað gerist á Rás 2. 1. Saving All My Love For You Whitney Houston 2. Steini Skriðjöklar 3. Hjálpum þeim Hjálparsveitin 4. Broken Wings Mr. Mister 5. Alive And Kicking Simple Minds 6. Tangó Grafík 7. Gaggó Vest Gunnar Þórðarson 8. Fegurðardrottning Ragnhildur Gísladóttir 9. Samurai Michel Cretu 10. Say You Say Me Lionel Richie 5:24119 24170 Mazda 929 sjálfskipt árg. ’83. Verð 420.000. VW Jetta GLS árg. ’80. Verð 260.000. Subaru 1800 station ’85. Sjsk. Ekinn 13.000. Verð 650.000. Subaru 1800 station ’84. Beinsk. Ekinn 32.000. Verð 510.000. Opel Record diesel árg. ’82. Sjálfskiptur. Verð 400.000. Benz Unimog árg. ’57. Ekinn 10.000 frá upphafi. Verð 260.000. Einnig eigum við mikið úrval af vélsleðum í öllum verðflokkum. Opið frá kl. 9-19 daglega. Laugardaga kl. 10-17. Hringdu og kynntu þér auglýsingakjörin (96)24222 wmm, t IthreulihisUi dagblaðið fyrit norðun ^ð/ísnaþáttuL Nú er upp komin deila meðal Norð- lendinga, bæði lærðra og leikra, hvort setja beri niður biskup að Hólum í Hjaltadal. Eins og allir vita, var þarna biskupsstóll til forna. Þar sem deilan virðist harðna svo horfir til vandræða, leyfi ég mér að bera fram sáttatil- lögu: Pó að sæla blómabala bregðist ei í sumartíð, reynist fiestum fram til dala fátt um glaum í vetrarhríð. Pótt menn elski, eins og gengur óskhyggjunnar mjúka hjal, enginn biskup ári lengur eirir nú í Hjaltadal. Pví skal einhvern Drottins-dáta dýrri skrýða biskupsflík og Hólabiskup heita láta hressan klerk í Reykjavík. Næst koma vísur sem Ingólfur Davíðsson grasafræðingur í Reykja- vík sendi þættinum. Eins og sjá má, voru þær kveðnar á flugi. Arnarleið í sumarsól sveif á fimbulgandi. Vindum ofar hól af hól í himinskýjalandi. Hátt í lofti maður minn, mörgu er frá að segja. Kryddar lífsins kaleikinn kurteis himinfreyja. Halló Pór á þinni reið, þú ert snöggur lagsi. Fleiri nýta loftsins leið, laglega skeiðar Faxi. Og enn kveður Ingólfur: Pú fórst fram úr vindinum loftsalaleið úr landsuðri rétt fyrir jólin. Á blávegum himnanna brautin ergreið, nú brýst fram úr skýjunum sólin. Ekki veit ég af hvaða tilefni næsta vísa var gerð, eða hver orti, en sá er sagði mér vísuna, hafði grun um að hún væri eftir Einar Andrésson í Bólu: Ef þig vantar eyririnn ekki er von þér líki, ætlir þú með auðinn þinn inn í himnaríki. Jón Ásgeirsson á Þingeyrum heyrði látnum manni hallmælt. Féll hon- um ekki skrafið og skaut fram þess- ari vísu: Satt um manninn segja ber. Sjálfs að efnum bjó hann. Engum gerði hann illt af sér eða gott, - svo dó hann. Þegar aldur færðist yfir Jónas Jóns- son frá Hriflu, kvað einhver þetta: Jónas ætti að fá sér frí framsóknar á göngu. Kvöldúlfur er kominn í karlinn fyrir löngu. Maður nokkur átti stygglynda konu. Þorsteinn Magnússon í Gilhaga kvað þessa vísu í orðastað hans: Kalt er ástarþelið þitt, þó ei framar vonum. Pað er illt að eiga sitt undir haustveðronum. Kári Sólmundarson kastaði þessari vísu að Gísla Ólafssyni frá Eiríks- stöðum: Gísli að öllum hættum hló, hrósið svanna fær hann. Ut á lífsins unaðssjó alla daga rær hann. Gísli svaraði að bragði: Hefur Kári á konum lag, - kærleiksþráin brennir, - bæði nótt og nýtan dag nautnafæri rennir. Hér birtast vísur eftir Magnús Snæ- bjarnarson á Syðri-Grund. Eru þær nýjar af nálinni og sýna að hvorki Jón Bjarnason frá Garðsvík skrifar vinnur aldur á glettni hans né hag- mælsku: I ástum var ég ekki spar er opnir stóðu vegir. Ennþá kyssi ég konurnar hvað sem bóndinn segir. Nýlega átti Magnús erindi á ónefndan bæ og reyndist húsbónd- inn ekki heima. Virtist gestinum frú- in óvenju beygð og súr á svip. Að- spurð kvað hún það valda ama sínum, að bóndinn væri alltaf þreyttur og félli í svefn um leið og hann legði höfuðið á koddann. Þetta varð tilefni vísu: Frúin var á svipinn súr. Synjað öllum ráðum, því nú var hann kominn niður úr níutíu gráðum.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.