Dagur - 10.01.1986, Side 15
10. janúar 1986 - DAGUR - 15
/
Iþróttir
Mgar-
rnrnr
Um helgina leika Pór og
Völsungur sína tvo leikina
hvor í 3. deildinni hér fyrir
norðan. í kvöld leika Þórsar-
ar gegn liði Selfoss í Höllinni
kl. 20 og á sama tíma leika
lið Völsungs og Hveragerðis
á Laugum. Á morgun laug-
ardag koma Hvergerðingar
til Akureyrar og leika við
Þór í Hölíinni kl. 14 og Sel-
fyssingar fara austur í Lauga
og leika gegn liði Völsungs á
sama tíma.
KA-liðin í blaki fá Þrótt-
ara úr Reykjavík í heim-
sókn. Kvennaliðin leika í
kvöld kl. 20.30 í Glerár-
skóla. Á morgun leika karla-
liðin fyrst kl. 14 og síðan
reyna kvennaliðin með sér
öðru sinni strax á eftir. Allir
þessir leikir eru í I. deildinni
og fara fram í Glerárskóla.
Guðrún Leonards
sýnir í Alþýðubanka
I Alþýðubankanum a Akur-
eyri stendur nú yfir kynning
á verkum eftir Guðrúnu
Leonardsdóttur. Hún lauk
námi frá málunardeild
Myndlistaskólans á Akureyri
vorið 1985 og hefur tekið
þátt í nokkrum samsýning-
um. Það eru Menningar-
samtök Norðlendinga sem
standa að kynningunni.
Sýningum fer að
fœkka á Jóíaœvintýri
Nú fer sýningum á söng-
leiknum Jólaævintýri hjá
Leikfélagi Akureyrar að
fækka, þar sem frumsýning
á Silfurtunglinu eftir Halldór
Laxness fer að bresta á. Jóla-
ævintýrið hefur fengið ein-
stakt lof gagnrýnenda, ekki
síst leikur Árna Tryggvason-
ar í hlutverki nirfilsins.
Næstu sýningar verða sunnu-
daginn 12. janúar kl. 16.00
og fimmtudaginn 16. janúar
kl. 20.30. Síðan verður sýn-
ingahlé hjá LA fram að
frumsýningu á Silfurtunglinu
þann 24. janúar.
Valgarður sýnir í
afgreiðslusal
Einingar
í afgreiðslusal VLF Einingar
stendur nú yfir sýning á verk-
um eftir Valgarð Stefánsson.
Þetta er fjórða einkasýning
Valgarðs en auk þeirra hefur
hann tekið þátt í fjölda sam-
sýninga. Það eru Menningar-
samtök Norðlendinga sem
standa að kynningunni.
Jbridds.
Eftirfarandi átti sér stað í lands-
liðskeppni í bridds fyrir
skömmu. Suður var sagnhafi í 6
laufum.
Norður
4 I0x
4 Áxx
+ Áxx
4 KGlOxx
Suður
♦ ÁKDGxx
4 Gxxx
♦ -
4 Áxx
Útspilið var tígull og sagnhafi
byrjaði illa þegar hann drap á
ásinn í borði og henti hjarta
heima. Trompgosa var spilað úr
blindum, vestur fékk á drottn-
ingu og spilaði aftur tígli en
sagnhafi trompaði og tók
trompásinn. Til að komast inn í
blindann og taka síðasta tromp-
ið af andstæðingnum, þá spilaði
sagnhafi litlum spaða á tíuna.
Nú lagðist vestur undir feld;
sagnhafi missti þolinmæðina og
sagðist reikna með því að tapa
einum slag til viðbótar, því
augljóslega ætti vestur tromp en
engan spaða. Austur bætti þá
um betur og sagði spilið tvo nið-
ur því sannarlega ætti makker
tígul drottningu sem væri hæsti
tígullinn og gæfi líka slag og
vestur sýndi hróðugur tígul
drottninguna.
Norður, viðurkenndur stór-
spilari, var snöggur að fullyrða
að nú stæði spilið þar eð vestur
væri búinn að sýna tígul drottn-
ingu og því skyldugur að gefa
hana í. Ekki var kallað á keppn-
isstjóra og tókst stórspilaranum
með aðstoð makkers að sann-
færa vörnina um að nú væri spil-
ið staðið.
Þrem mánuðum síðar fjallaði
dómstóll viðkomandi bridds-
sambands um málið og niður-
staðan varð; norður sekur er
hann tók sér dómsvald og hinir
þrír spilararnir sekir er þeir
Umsjón: Hörður Blöndal.
beygðu sig undir úrskurð hans, í
stað þess að kalla á keppnis-
stjóra.
Refsing: Einnar keppni bann
á norður - suður og tveggja
keppni bann á austur - vestur.
Og þar með missti stórspilarinn
í norður af heimsmeistara-
keppninni í Brasilíu haustið
1985.
Þetta spil kom fyrir í Rubertu-
bridds N-S á hættu og vestur
gaf.
4
4
♦
4
Norður
1032
K43
D6
K7642
4
4
♦
4
Suður
ÁG97654
ÁK4
D108
Sagnir:
Vostur Norður Austur Suður
Pass Pass 4H 4S
Dobl Pass Pass Pass
Útspil hjartatvistur:
Hvernig viltu spila?
Þú getur reiknað með að gefa
tvo slagi á tromp. Hvernig viltu
spila laufinu? Annars er lauf-
liturinn þannig að best er ef
andstæðingarnir spila honum
fyrir mann.
Lausn: Trompa hjarta, inn á
tígul drottningu og trompa ann-
að hjarta, taka ás og kóng í
tígli, henda hjarta úr blindum
og spila litlum spaða á tíuna.
Vestur er endaspilaður því allt
spilið er þannig.
Allt spilið var þannig:
Norður
1032
K43
D6
K7642
Vestur
4 KD8
4 G72
4 7532
+ ÁG9
Austur
4 ÁD109865
4 G1098
4 53
4
4
4
4
Suður
ÁG97654
ÁK4
D108
Vantar vitni
að árekstri
Vitni vantar að árekstri tveggja
bíla við untferðarljósin á mótum
Kaupangsstrætis og Glerárgötu
þar sem hún tengist Drottning-
arbraut. En þar varð nokkuð
harður árekstur um kl. 17.00 í
fyrradag. Rannsóknarlögreglan
óskar að hafa tal af einhverjum
sem sá áreksturinn. Vitað er af
ökumanni llutningabíls sem var
á staðnum þegar áreksturinn átti
sér stað og er hann talinn hafa
séð hann. Eru það því góðfúsleg
tilmæli lögreglunnar að bílstjóri
flutningabílsins, eða aðrir sem
kynnu að hafa séð áreksturinn,
hafi samband við rannsóknarlög-
regluna.
Námskeið hefjast
mánudaginn 13. janúar.
Nú fer hver að verða síðastur að láta
innrita sig.
Upplýsingar og innritun í síma 24979
milli kl. 16 og 20.
Afhending skírteina og greiðsla
verður laugardaginn 11. og
sunnudaginn 12. janúar
milli kl. 16 og 18.
VISA
Tryggvabraut 22 • Akureyri • Sími 24979.