Dagur - 31.01.1986, Blaðsíða 6
6 - DAGUR - 31. janúar 1986
Bjóðum fullkomna viðgerðarþjónustu á sjón-
varpstækjum, útvarpstækjum, steríomögnur-
um, plötuspilurum, segulbandstækjum, bíl-
tækjum, talstöðvum, fiskileitartækjum og sigl-
ingartækjum.
fsetning á bíltækjum.
7ÉPPRLRND
Við rýmum fyrir nýjum birgð-
um og bjóðum gólfteppi,
teppabúta, gólfdúka og fleira
með góðum afslætti.
Greiðsluskilmálar.
Opið laugardag kl. 10-12.
Tépprlrno
Tryggvabraut 22, sími 25055.
___________________________mannlít_____
Aðalatriðið er að vera óragur
- segir Ágúst Ásgrímsson, leiðbeinandi á námskeiðum
Skautafélags Akureyrar og æskulýðsráðs
í þessari viku hófust
námskeið á vegum
Skautafélags Akureyrar
og æskulýðsráðs. A
KA-velli er byrjenda-
námskeið fyrir börn
þrjú kvöld í viku,
mánudaga, miðviku-
daga og föstudaga milli
klukkan sex og sjö, þar
sem börnum eru kennd
undirstöðuatriði skauta-
íþróttarinnar. Á svæði
Skautafélagsins, norðan
Leirutjarnar er svo
námskeið í ísknattleik
fjórum sinnum í viku
fyrir 16 ára og yngri.
Leiðbeinandi á báðum
námskeiðunum er Ágúst
Ásgrímsson.
Ágúst og tvíburabróðir hans,
Bergþór, hafa rennt sér á skaut-
um frá því þeir muna eftir sér, •
enda eru þeir af skautamönnum
komnir og uppaldir í Innbænum
sem hefur löngum verið uppeldis-
stöð akureyrskra skautamanna.
Ágúst er sonur Ásgríms Ágústs-
sonar ljósmyndara, en bæði Ás-
grímur og Agúst faðir hans voru
löngum í flokki fremstu skauta-
manna landsins. Þegar útsendar-
ar Dags komu á svellið á KA-
vellinum á mánudaginn var
Ágúst þar með hirð áhugasamra
barna í kringum sig og leiðbeindi
þeim um notkun skautanna.
Námskeiðið er börnunum að
kostnaðarlausu og öllum heimill
aðgangur.
Eina athugasemd þurfti Ágúst
að gera við skautana hjá flestum
barnanna. Þau voru langflest á
óskerptum skautum. „Það er
ekki hægt að skauta á óskerptum
skautum,“ sagði Ágúst og ráð-
lagði þeim að fara með skautana
í skerpingu. Það væri maður í
Rauðumýri 10 sem tæki að sér að
skerpa skauta og gerði það mjög
vel. Um leið brýndi Ágúst það
fyrir börnunum að nota skautana
ekki annars staðar en á svelli.
Það er fljótt að fara bitið ef mað-
ur er á skautum á götunni þar
sem sandur og ryk liggur á
snjónum.
Ágúst byrjaði að eigin sögn að
spila ísknattleik með karlaliði
Skautafélags Akureyrar aðeins
16 ára gamall og ég spurði hann
hvort það hefði ekki verið erfitt
fyrir unglinginn að keppa í þess-
ari hörðu íþrótt við fullvaxna og
íturvaxna karlmenn, eins og þeir
eru sumir í félaginu.
„Nei,“ sagði Ágúst. „Aðal-
atriðið er að vera óragur. Um
leið og maður fer að vera hrædd-
ur við keppinautana eykst hættan
á að maður verði fyrir meiðslum.
Auðvitað verður maður að vera
vel á verði en aðalatriðin eru
hraði og snerpa.“
- Áttu von á að skautaíþróttin
eigi eftir að ná aftur einhverju af
þeim vinsældum sem hún naut
fyrr á árum?
„Það er ekki spurning um það
að þegar við fáum vélfryst svell
hópast fólk á skauta. Þá má líka
reikna með að fljótlega verði
stofnað annað félag til að hægt
verði að koma á keppni í ísknatt-
leik.“
Skautamönnum hefur gengið
erfiðlega að fá úthlutað svæði þar
sem þeir gætu byggt upp framtíð-
araðstöðu sína en með samþykkt
deiliskipulags fyrir Innbæinn
komst það mál endanlega í höfn
og Ágúst kvað jafnvel hugsanlegt
að þeir kæmu upp svelli inni við
Krókeyri strax næsta vetur. Til
þess að það geti orðið þarf bær-
inn að vísu að fylla upp í hluta
Leirutjarnai þannig að hægt sé
að útbúa svell. Þar er ætlunin að
koma upp vélfrystu svelli og síðar
hlaupabraut. Þá ætti að vænkast
hagur skautamanna og væntan-
lega munu þá fleiri leggja stund
á þessa skemmtilegu íþrótt. -yk.
Ágúst Ásgrímsson, umkringdur upprennandi skautasnillingum?!