Dagur - 31.01.1986, Side 12
12 - DAGUR - 31. janúar 1986
slíkt kostar óhjákvæmilega ein-
hverja aukningu á eldsneytis-
notkun. Tredian hefur fremur
stutt hjólahaf og er þar að auki
há frá vegi, svo það er hægt að
komast nokkuð vondar slóðir á
þessum bíl án þess að eiga á
hættu að skemma hann. Hátt og
lágt drif hefur Tredian reyndar
ekki, en lágan gír áfram. Stýrið
er hæfilega létt og bremsurnar
vinna mjög vel þó ástigið sé
e.t.v. í það léttasta fyrir minn
smekk. Innréttingin er hlýleg og
sætin góð, a.m.k. framsætin.
Rýmið er nægjanlegt, þó meira
mætti vera af því fyrir fætur
aftursætisfarþega. Farangurs-
rými er í minna lagi en reglulegt
að lögun tekur e.t.v. meira en
virðist við fyrstu sýn.
Okkur þótti Mitsubishi Tre-
dia 4WD sérlega skemmtilegur
og vel búinn bíll með aksturs-
eiginleika, sem komu okkur á
óvart.
bílac
Mítsubíshi
Tredia 4WD
Mitsubishi er eitt af st^erri fyrir-
tækjum í Japan. Framieiðsla
þess er mjög margbreytileg og
bílar og flugvélar hafa lengi ver-
ið þar á meðal. Þannig státar
Mitsubishi m.a. af því að hafa
framleitt fólksbíl með drifi á öll-
um hjólum fyrir 50 árum.
Eitt nýjasta afsprengi Mitsu-
bishi er Tredia 4WD, fólksbíll
með drifi á öllum hjólum. Við
fyrstu sýn er Tredia 4WD lítið
frábrugðin framhjóladrifnum
bróður sínum, en er þó nokkuð
hærri frá vegi. Bílar sem eru að
upplagi framhjóladrifnir, en
hafa hlotið afturdrif í kaupbæti
eru flestir þannig, að áberandi
betra er að aka þeim í fjórhjóla-
drifi í hálku og á malarvegi.
Reyndar eru þeir sumir ekki
jafnokar sams konar bíla með
drifi á tveim hjólum, nema í
fjórhjóladrifi, enda þótt þeir
séu eins í öllum aðalatriðum.
Tredian kom okkur ánægjulega
á óvart að því leyti að bíllinn er
alveg prýðilegur í akstri í fram-
hjóladrifinu einu. Fjöðrunin er
lengri en venjulega í japönsk-
um, einkum að framan, en fyrir
kom að högg heyrðust frá aftur-
hjólum ef ótæpilega var ekið.
Bíllinn er 5 gíra og búinn öllum
þessum venjulega japanska
lúxus, rafdrifnum rúðum og
speglum, og svo auðvitað
vökvastýri. Frágangur er mjög
góður. Aðstaða ökumanns er
hin ákjósanlegasta, helst er
hægt að setja út á staðsetningu
gírstangarinnar, sem féll ein-
hvern veginn ekki alveg í hendi.
í gírstönginni er hins vegar lítill
rauður takki sem ýtt er á til að
tengja afturdrifið og vinnur sá
búnaður óaðfinnanlega.
Vélin í Mitsubishi Tredia
4WD er 1,8 1, 90 hö. Hún er
einstaklega þýðgeng, jafnvel á
miklum snúningshraða. Það er
því nokkkuð freistandi að lofa
henni að snúast dálítið, ekki
hvað síst fyrir það að hún er
ekki sérlega dugleg á litlum
snúningshraða. Ég mátti hafa á
mér vara til þess að ganga ekki
of langt í þessu því lítill munur
er á hljóði og titringi frá vélinni
þó snúningshraðinn 5 faldist
eða rúmlega það. Þessi góði ár-
angur næst m.a. með því að
hafa sérstakan reimdrifinn titr-
ingsdeyfi, sem flestar vélar frá
Mitsubishi hafa verið búnar síð-
ustu árin.
Við ókum Trediunni um
vonda malarvegi, upp og niður
brattar brekkur, í lausamöl,
sandi, aurbleytu og um jeppa-
slóðir. Bíllinn reyndist hinn ör-
uggasti í akstri við allar aðstæð-
ur. Fjórhjóladrifið á auðvitað
sinn þátt í því, en okkur þótti
bíllinn þó ágætur í framhjóla-
drifinu einu, eins og áður er
getið, jafnvel svo, að ekki er
neinn finnanlegur munur á
aksturseiginleikum á góðum
vegi þó framhjólin séu ein um
hituna. Þetta er kostur og spar-
ar eldsneyti, því freistandi er að
nota fjórhjóladrifið, þó aðstæð-
ur krefjist þess ekki, ef aksturs-
eiginleikarnir batna við það, og
Umsjón:
Úlfar
Hauksson
Gerð:
Mitsubishi Tredia 4WD, 4 dyra fólksbifreið, 5 manna, vél að
framan, drif á öllum hjólum.
Vél og undirvagn:
4 strokka, vatnskæld, fjórgengis-bensínvél; yfírliggjandi knastás; 1
blöndungur; borvídd 80,6 mm; slaglengd 86,0 mm; slagrými 1755
cm; þjöppun 9,5:1; 90 hö. (64 KW) við 5500/min.; 137 Nm við 3500/
mín.; sjálfberandi yfírbygging, drif að framan með tengjanlegu
afturdrifí. Gírkassi 5 gíra með sérstökum aflgír, sjálfstæð fjöðrun á
öllum hjólum; að framan með þverarmi, gormlegg, togstöng og
dempurum; að aftan skáarmar gormar og demparar. Aflbremsur,
diskur að framan, skálar að aftan; handbremsa á afturhjólum; afl-
stýri; hjólbarðar 165 SR 14; eldsneytisgeymir 50 1.
Mál og þyngd:
Lengd 428,0 cm; breidd 166,0 cm, hæð 142,5 cm, hjólahaf 245,0
cm, sporvídd 140,5/138,5 cm, fríhæð 19,0 cm, þyngd ca 1135 kg.
Hámarkshraði ca. 161 km/klst. Viðbragð 0-100 ca. 14,0 sek.
Framleiðandi:
Mitsubishi Heavy Industries, Tokyo, Japan.
Umboð:
Höldur hf., Akureyri.
Verð:
U.þ.b. kr. 670.000,-
j/ísnaþáttun________________________
Haraldur Hjálmarsson frá Kambi
orti þessa frábæru vísu:
Fagrar ræður, fögur Ijóð,
frjálsmannlegur andi,
eitt það hæfir okkar þjóð
og okkar kæra landi.
Ekki man ég hver er höfundur
næstu vísu, en hana lærði ég á
barnsaldri:
Pótt ég annars vera var
vildi um sannleiks þankafar,
Veginn banna betrunar
bölvaðar mannaskammirnar.
Páll Ólafsson mun hafa hitt naglann
á höfuðið, þegar hann kvað þessa
vísu. Gömlu meisturunum var sum-
um eins létt um stöku og óbundið
mál:
Alla daga yrki ég.
Ógn er vísnagrúinn.
Áður en ég andann dreg
oft er vísan búin.
Það henti fyrir allmörgum árum í
norðlensku þorpi, að spaugari
nokkur kvað eftirfarandi vísu um
bakara staðarins og líklega ekki að
ástæðulausu:
Maðurinn sem bakar brauð
barnar fyrir hreppinn.
Dýrð sé þessum drottins sauð.
Djöfull er hann heppinn.
Heimsádeilu, mætti kalla þessa vísu
Gríms Sigurðssonar frá Jökulsá:
Verðir sofna, dáðir dofna,
dólgar stofna klfði - mis.
Flokkar klofna, ríki rofna,
roðna ofnar helvítis.
Þá koma tveir húsgangar sem not-
aðir voru við kennslu. Annar við-
víkjandi stafsetningu, en hinn
snerti tölu daga í mánuði hverjum:
Mysa, drykkur, mygla, skyr,
mylding, hnykkur, treyja,
hreysti, lykkja, hrygla, byr,
hreyfing, þykkva, meyja.
Ap., jún., sept., nóv. þrjátíu hver.
Einn til hinir taka sér.
Febrúar tvenna fjórtán ber,
frekar einn þá hlaupár er.
í „stólastríðinu“ fræga mun Albert
hafa kvatt ráðuneyti sitt þann
16.1Ö.’85. Þóttu sumar aðgerðir hans
í lokin, orka tvímælis:
Hann kvaddi við almennan ánægjuhreim,
í annað fór karlinn að rýna.
Skömm þótti í kvíum að skjátunum þeim
sem skitu í nytina sína.
Frú á Akureyri sendi þættinum
þessa vísu. Þarf hún ekki skýringa
við:
Kaupmennsku áráttan alls staðargrær.
Arðsemin virðist því klár.
Pað sem að kostaði krónu í gær
kostar nú tvær - eða þrjár.
Flestir ganga fagnandi í hjónaband,
sem betur fer. Þó hefur út af því
brugðið. Rögnvaldur Björnsson í
Réttarholti á að hafa kveðið þessar
vísur á brúðkaupsdegi sínum:
Líður á daginn meir og meir.
Mælt er allt og vegið.
Eftir eru tímar tveir.
Tíu hefur klukkan slegið.
Einskis framar óska meir,
angurs særður pínu,
en að væru aðeins tveir
eftir af lífi mínu.
Þá snúum við að öðru. Jón
Tryggvason frá Finnstungu kvað:
Pótt mér vinnist seint að sjá
salarkynni lista há,
fæ ég inni ennþá hjá
æsku minnar söngvaþrá.