Dagur - 07.02.1986, Síða 9
8 - DAGUR - 7. febrúar 1986
7. febrúar 1986 - DAGUR - 9
Hann er nýorðinn 69 ára gamall og hefur lifað
margt, búið við ólíkari lífsháttu en mörg okkar
hinna. Lengi bjó hann í fámennustu og af-
skekktustu sveit Norðurlands og á þar jörð,
Víðirhól, eina af stœrstu jörðum landsins. Ég
heimsótti Ólaf Stefánsson eitt kvöldið og fékk
hann til að segja svolítið frá sjálfum sér og því
sem á daga hans hefur drifið.
Mynd: KGA.
- Ólafur Stefánsson segir frá ævi sinni, búskap á Fjöllum og fleiru í helgarviðtali
„Ég er fæddur á Sauðanesi á
Langanesi 30. janúar 1917. Þegar ég
var tveggja ára fluttum við inn í
Arnarstaði í Núpasveit, sunnan við
Kópasker, á föðurleifð föður míns.
Þar var tvíbýli þar sem bjuggu
bræðurnir Jón og Stefán faðir minn
og samanlagt áttu þeir 20 börn. Það
var mannmargt á því heimili. Þarna
bjuggu foreldrar mínir til ársins
1933 en þá féll móðir mín frá. Þá
var ég sextán ára eða varð það þann
vetur. Heimilið leystist upp og
börnin fóru í ýmsar áttir. Ég var
orðinn nógu gamall til að ýmsir
vildu fá mig sem vinnumann. Það
varð svo úr að ég réðist að Austara-
Landi í Axarfirði. Þar bjó Páll Jó-
hannesson hreppstjóri og Margrét
dóttir hans sem þá var orðin
ekkja.“
0 300 krónur á
ári þótti mikið
fyrir 17 ára strák
- Áttu sextán ára menn auðvelt
með að komast í vinnu á þessum
árum?
„Já, já. Það var að vísu ekki boð-
ið hátt kaup. Hundrað og þrjátíu
krónur fyrir árið en svo fékk maður
frí til að vinna í sláturhúsi um
haustið og til að sækja unglinga-
skóla í Axarfirði um mánaðartíma.
Svo var ég þarna annað ár sem
vinnumaður og þá fór ég fram á full
vinnumannslaun sem voru 300 krón-
ur sem þótti mikið fyrir 17 ára
strák, en ég hafði það nú samt
fram. Ég var þá að vísu hjá bæði
Páli og Baldri Öxdal, dóttursyni
hans. Eg fékk líka að fara niður að
Laugum á íþróttanámskeið um
vorið. Það var skemmtilegur tími.
Næsta sumar var ég kaupamaður í
Axarfirði hjá smið sem fór á milli
og smíðaði hús. Þá var ég að safna
mér peningum til að geta komist í
skóla sem ég gerði svo um haustið.
Þá fór ég að Hvanneyri og var þar í
þrjú misseri."
9 Efnalitlir
strákar fengu vinnu
á Hvanneyri
- Var algengt á þessum tíma að
ungir menn færu í bændaskóla?
„Já, það var orðið það. Ég þekkti
m.a. ýmsa sem höfðu verið á
Hvanneyri.“
- En voru það þá ekki frekar
synir efnaðri bænda sem komust í
skólann?
„Sennilega hefur það ekki verið
algengt að menn gætu farið án þess
að hafa nokkurn bakhjarl. Hjá mér
munaði mikið um þessa vinnu sem
ég fékk sumarið áður en ég fór í
skólann, það var mikil vinna, og
svo gerðu strákar sem voru efnalitl-
ir það að vinna á Hvanneyri milli
vetranna. Við unnum þarna einir
fjórtán sumarið sem ég var þarna.
Við höfðum svona frá 42 upp í 50
krónur á viku eftir dugnaði. Ég
náði þarna 45 krónum og svo borg-
aði skólastjórinn mér eina vikuna
aukalega fyrir það sem hann kallaði
lipurð.
0 Fannst Axar-
fjörðurinn alltaf
vera mín sveit
Næstu árin vann ég víða, en átti að
vísu alltaf heima í Austara-Landi.
Mér fannst Axarfjörðurinn alltaf
vera mín sveit eftir að ég kom
þangað þó það væri dásamlegt fólk
í Núpasveit. Fegurðin er svo mikil í
Axarfirði.
Það var gaman að vera ungur
maður í Axarfirði á þeim árum. Éé-
lagslífið var mikið. Ég lék venju-
lega í tveimur leikritum á vetri,
með ungmennafélaginu og kvenfé-
laginu.“
- Hvað léku menn á þessum
tíma?
„Það voru ýmis leikrit. Ég lék
t.d. í Happinu eftir Pál J. Árdal. Ég
lék í þýsku leikriti sem var kallað f
borgarafötum og var þýtt af prest-
inum okkar sem leikstýrði líka. Ég
man nú ekki lengur nöfn á þessum
leikritum en þau voru nokkuð
mörg.
0 Gaman að
koma til
Reykjavíkur, en
ekki vera
Síðan dreif ég mig til Reykjavíkur
og vann einn vetur í Blikksmiðju
Guðmundar Breiðfjörð, en þótti
leiðinlegt í Reykjavík. Því réði ég
mig sem ráðsmann í Belgsholti í
Borgarfirði."
- Þú segir að þér hafi þótt leiðin-
legt í Reykjavík.
„Já, það er bara gaman að koma
þangað, en ekki vera.“
- Hvað varstu lengi í Belgsholti?
Ég var þar í tæp tvö ár. Þá lenti
ég í bruna og varð að fara á sjúkra-
hús.“
- Hvernig bar það til?
„Ég var að setja bensín á
Chevrolet vörubíl í myrkri. Það var
blæjalogn og ég var með lukt úti á
planinu svo ég fengi birtu til að sjá
til við að hella í tankinn sem var
undir sætinu. Bensínið tók ég úr
fullri 200 lítra tunnu. Líklega hefur
gufað svona mikið upp af bensíninu
og af því að það var logn rauk það
ekki burtu, en allt í einu logaði allt
loftið yfir planinu og svo varð
sprenging inn í bílinn. Eg brenndist
töluvert á andliti og víðar og þurfti
að liggja á sjúkrahúsi í mánuð. Eft-
ir það mátti ég ekki vinna um tíma
svo ég snaraði mér bara austur í
Axarfjörðinn, fjörðinn kæra.
9 Þannig náði
ég í konuna
Síðan fréttist það austur í Möðru-
dal að ég væri kominn heim í
Axarfjörð og ekki við neitt bundinn
og var ég þá fenginn sem kennari í
Möðrudal seinnipart vetrar. Upp úr
því hafði ég konuna. Hún heitir
Kristín Gunnlaugsdóttir. Þetta
varð allt að gerast til þess að ég
næði í hana. Síðan hefur hún nátt-
úrlega alltaf verið betri helming-
urinn. Við giftumst árið 1946.“
- Hvað eigið þið af börnum?
„Við eigum 5 börn: Guðlaugu og
Gunnlaug sem eru fædd í Möðrudal
og Oktavíu, Margréti og Stefán
sem eru fædd eftir að við komum í
Víðihól.
Við erum svo við búskap í
Möðrudal í sex ár. Tengdafaðir
minn, Jón Stefánsson, var búinn að
missa konuna og við vorum með
eitt heimili en aðskildan bústofn.
9 Var sexdaga
frá Akureyri
í Möðrudal
Þessi ár sem ég bjó í Möðrudal
voru vond ár. T.d. voru veturnir
árin 1949 og 1951 mikiir harðinda-
vetrar báðir. Það voru margar erf-
iðar ferðir sem menn urðu að fara
austur í Jökuldal. Möðrudalur er í
Jökuldalshreppi en það eru um 45
kílómetrar á milli. Við urðum t.d.
að koma skattaskýrslum þangað
um hávetur. Svo sköpuðust ferðir á
haustin og seinnipart vetrar. Marg-
ar ferðir fór maður austur á fjall-
garða til að bjarga bílum sem þar
voru strand, leita að bílum og fólki.
Svo lenti ég í því haustið 1950 að
leita að Geysi sem fórst á Bárðar-
bungu. Við fórum tvær ferðir
Möðrudælingar, fyrst inn að Brúar-
jökli og svo fórum við strax næstu
nótt í aðra leit og fórum þá upp á
jökulinn. Á meðan við vorum í
þeirri leit fannst vélin á Bárðar-
bungu.
Þetta sama haust, 1950, fór ég
hingað til Akureyrar seinnipart nóv-
embermánaðar og lenti í hinni
frægu stórhríð, 30 nóvember, á
Vaðlaheiði. Þá var ég á austurleið.
Þá nótt lágu menn víða úti. Ég var
með Mývetningum í jeppa. Ég var
sex daga að komast frá Akureyri í
Möðrudal, með bíl héðaní Reykja-
hlíð og afganginn á skíðum.
9 Víðihóll eða
Víðirhóll?
Frá Möðrudal fórum við í Víðihól,
hann var þá í eyði, hafði verið það
í eitt ár og Grímsstaðabændur áttu
jörðina."
- Einhvers staðar á korti sá ég
að jörðin var nefnd Víðirhóll.
Hvort er nú rétta nafnið, Víðihóll
eða Víðirhóll?
„Það er ýmist talað um Víðirhól
eða Víðihól. Vernharður heitinn
Þorsteinsson, menntaskólakenn-
ari, kallaði bæinn Víðirhól. Ég veit
raunverulega ekki hvort nafnið er
rétt. Hvort nafnið er dregið af víði,
sem er mikill í landinu, eða því
hvað er víðsýnt þarna.
Þarna bjuggum við í þrettán ár,
fram til 1964. Ég keypti jörðina eft-
ir að hafa verið þar í ár og á hana
enn.“
- Er þetta ekki ein af stærstu
jörðum landsins?
„Jú, sjálfsagt er hún með þeim
stærstu."
- Hefur þú einhverjar tekjur af
henni núna?
„Ekki nema ég veiði silung í
vötnunum. Það er andsk... gott að
éta silunginn."
- Fá fleiri að njóta þess að veiða
silunginn úr vötnunum þínum og
borða hann?
„Nei, nei. Ekki nema bara einka-
vinir sem fá að fara með mér,“ segir
Ólafur og hlær, sposkur á svip.
„Það er alveg eins og með rjúpurn-
ar. Ég hef ekkert gaman af því að
skjóta rjúpur til að selja þær, en ég
hef gaman af að borða rjúpur sem
ég skýt í mínu eigin landi.“ Ekki
sagðist Ólafur geta fullyrt neitt um
flatarmál jarðarinnar. En var ekki
dýrt að kaupa svona stóra jörð?
„Nei. Ég hafði hana á leigu í eitt
ár fyrir 600 krónur. Svo fékk ég
síma og keypti jörðina og það kost-
aði samanlagt 17000 krónur.“
9 Allir með
pyttlu í
göngumar
- Þú varst áfengisvarnaráðunautur
í þinni sveit þegar þú bjóst fyrir
austan.
„Nei, en ég var í áfengisvarna-
nefnd. Við Kristján hreppstjóri á
Grímsstöðum vorunt eitt sinn á
héraðsfundi þar sem verið var að
ræða urn áfengisvandamálið. Það
voru m.a. þarna fulltrúar frá Þórs-
höfn og Raufarhöfn. Svo vorurn við
spurðir hvað væri að segja af Fjöll-
unum. Við sögðum að þar væri
ekkert áfengisvandamál. Það hefðu
allir nteð sér á pyttlu þegar þeit
færu í göngurnar og væru jafn góðir
eftir sem áður.“
% Síðasti land-
pósturinn á hestum
- Varst þú ekki póstur á Fjöllum?
„Jú, öll þessi ár sem ég bjó á
Fjöllum hafði ég með höndum
dreifinguna á pósti um Fjöllin. Um
haustið 1964, þegar ég hætti að
búa, bætti ég svo við póstflutning-
um frá Mývatnssveit og austur í
Möðrudal. Þetta gátu verið erfiðar
ferðir. Ég komst upp í að vera 9
tíma á' jeppa frá Reykjahlíð í
Grímsstaði og upp í 11 tíma á
hestum. Þetta er 45 kílómetra leið.
Allur hringurinn sem ég þurfti að
fara í hverri viku var tæpir tvö
hundruð kílómetrar."
- Mér hefur verið sagt að þú haf-
ir kosið að fara einhesta í þessar
ferðir.
„Ég var með tvo hesta í húsi. Eft-
ir fyrstu ferðina sem var mjög erfið
sá ég að ég mátti ekki þreyta þá
báða á því að sækja póstinn í
Reykjahlíð, sem tók tvo daga, því
þá átti ég eftir að fara í Möðrudal
og til baka. Ég varð heldur að
ganga aðra leiðina með hestinum ef
pósturinn var mikill.
Það voru nú ekki mjög margar
ferðirnar sem ég þurfti að fara ríð-
andi með póstinn. Um miðjan vet-
ur hlánaði nokkuð og þá var farið
með hefil úr Mývatnssveit og austur
á mið fjöll og þá myndaðist slóð
sem ég gat alltaf keyrt eftir. Hún
var nú kannski ekki alls staðar þar
sem vegurinn var undir en það
skipti engu máli. Fjallamenn eru
vanir því að keyra jafnt utan vega
sem á vegi ef því er að skipta. En ég
held að ég hafi áreiðanlega verið
síðasti lándpósturinn sem fór ríð-
andi í póstferðir, því upp úr þessu
fóru snjóbílar og vélsleðar að koma
til sögunnar þegar ófært var fyrir
bíla.
9 í síldina á
Reyðarfirði
Um vorið fór ég að vinna í Létt-
steypunni í Mývatnssveit milli ferða
þangað til ég fór austur á Reyðar-
fjörð á síld. Þá flutti ég konuna og
fjölskylduna austur á Eyvindará,
rétt hjá Egilsstöðum. Þar var hún
hjá sómafólki, fósturbróður hennar
Vilhjálmi og hans konu, Margréti.
Fyrstu vertíðina á Reyðarfirði
vann ég sem verkamaður, aðra
vertíðina sem beykir og tvö síðari
sumrin var ég verkstjóri á planiu.
Við flytjum hingað í bæinn
haustið 1965. Ég fékkst við ýmis
störf fram til 1970 og fóralltaf aust-
ur í síld á haustin þar til síldin
hætti. En árið 1970 fékk ég vinnu
hjá Sambandinu og hef verið þar
síðan. Fyrst í teppadeild en síðan á
lager."
0 Hitti ekkert
nema indœlisfólk
á Akureyri
- Það hljóta að hafa verið mikil
viðbrigði að flytja til Akureyrar úr
fámenninu austur á Fjöllum.
„Fyrst eftir að ég kom í bæinn
langaði mig alltaf austur. Svo var ég
að álpast austur á haustin og fara í
göngur og líðanin var alltaf verst
eftir það. Þannig að ég ákvað bara
að hætta þessu og steinhætti að fara
í göngur og réttir.
Auðvitaö langar mann alltaf
mest til að vinna við það sem mað-
ur hefur lært til og vanist við. Ég
kveið því rnikið að fara að vinna
hér á Ákureyri. Sveitabóndi að fara
að vinna innan um svona margt
ókunnugt fólk. Það var svo ekkert
vandamál. Ég hitti ekkert nenia
indælisfólk hér á Akureyri og allir
tóku ntér vel. Ætli það sé ekki sama
hvar inaður er. Ef maður leitar ekki
eftir óánægju sjálfur fara aðrir ekk-
ert fremur að gera það.“ -yk.