Dagur - 18.03.1986, Blaðsíða 3

Dagur - 18.03.1986, Blaðsíða 3
18. mars 1986 - DAGUR - 3 •■"P Hvað skyldu þau hafa verið að ræða þessi? Laxveiði í fyrra: Þriðia besta veiði- frá upphafi - Fiestir iaxar á stöng úr Laxá í Aðaldal System Z 50 kr. 29.150,00 St.gr. Technics iUIWiBUÐIN •wvnMUHiJo S 96-22111 Laxveiði 1985 var alls 66.313■ laxar að heildarþunga 216.589 kg, samkvæmt upplýsingum Veiðimálastofnunar. Það er um 14% betri veiði en árlegt meðaltal 10 ára þar áður og fjórðungi betri veiði en árlegt meðaltal seinustu 20 ára. Árið 1985 er þriðja besta veiðiárið hér á landi. Meðalþungi laxins var 3,3 kg og er það aðeins undir meðallagi. Veruleg umskipti til hins betra urðu sl. sumar í laxgengd víðs vegar um land frá því sem verið hafði seinustu fimm árin þar áður. Þessa lægð í laxveiði má rekja að mestu til köldu áranna þriggja, 1979, 1981 og 1983 sem hafa samheitið: Köldustu ár aldarinnar. Var árið 1985 þannig í heild hagstætt þeim, sem stund- uðu laxveiði, sem fyrr greinir. Laxveiðin var hæg í upphafi veiðitímans 1985 gagnstætt því sem hafði verið 1984, en herti á sér þegar ársfiskur úr sjó (smá- laxinn) fór að ganga. Batanum í laxveiðinni olli því góð smálaxa- gengd. Stangveiðin 1985 var nær alls staðar betri en árið áður og umskiptin til hins betra eftir veiðilægð seinustu ára urðu mest í ám á Norðausturlandi, eins og í Vopnafirði. Hlutur stangveiði í heildar- veiði 1985 var 47,7%, netaveiðin gaf 22,5% og hafbeitarlaxinn gerði 29,8% eða tæplega 20 þús- und laxa, sem er það mesta úr hafbeit til þessa. Hæsta stangveiðiáin var Laxá í Aðaldal með 1911 laxa 8,6 pd að meðalþyngd, önnur í röðinni var Laxá í Dölum, en þar veiddust 1600 laxar 7,8 pd, þá kemur Þverá í Borgarfirði með 1550 laxa og 6,5 pd meðalþyngd. Fjórða hæsta áin var Grímsá og Tunguá í Borgarfirði, en þar veiddust 1463 laxar 5,9 pd og fimmta laxveiðiáin var Laxá á Ásum með 1440 laxa og 6,5 pd meðalþunga. Sjötta áin var Hofsá í Vopnafirði, en þar feng- ust 1219 laxar 5,4 pd. Sjöunda Elliðaár með 1157 laxa, áttunda Langá á Mýruni 1155 laxar, níunda Laxá í Kjós og Bugða með 1154 laxa og tíunda Norðurá, en þar veiddist 1121 lax. Útsölumarkaðurinn er enn í fullum gangi. Alltaf bætist eitthvað nýtt við á hverjum degi, nú: Diskamottur og svuntur, löberar, sængurfatnaður, nýjar tegundir af prjónagarni og svo vefnaðarvara í miklu úrvali. Allt á ótrúlega lágu verði. /ÉftVEfi/LUn JfnnvjonvöRUR CtFlUCL UlVlLCl ^ Sunnuhlíð. Flugieiðir: Hagnaður s.l. ár 196,9 milljónir Stjórn Flugleiða kom nýlega saman til fundar og samþykkti ársreikning félagsins fyrir árið 1985. Hagnaður á árinu nam 196,9 millj. kr., eða samsvarandi 3,4% af rekstrartekjum félagsins, sem Rafvirkjafélag Akureyrar: Bæjarsljómin stuðli að aukinni upplysingastarfsemi Fundur haldinn í Rafvirkjafélagi Akureyrar þann 11. mars skorar á bæjarstjórn að stuðla að stór- aukinni upplýsingastarfsemi um Verðmyndun og verðlag hjá bæjarstofnunum og gera bæjar- búunt ljóst hver framfærsluvísi- talan er á Akureyri miðað við Rcykjavík og hve t.d. Hitaveita Akureyrar vegur mikið í fram- færsluvísitölunni. Ennfremur er þess krafist að fenginn verði óháður aðili til að mæla hitastig vatns hjá Hitaveitu Akureyrar. voru samtals 5.783 millj. kr. Rekstrarafkoman á hinni reglu- legu starfsemi félagsins varð 37% lakari en árið áður, þ.e. hagnað- ur fyrir fjármagnskostnað varð 208,3 millj. kr., en var árið áður 329 millj. kr. reiknað á meðal- verðlagi ársins 1985. Heildarfjöldi farþega var 784.501, eða 10,9% fleiri en 1984. Hins vegar urðu frakt- flutningar 16,3% minni, eða 6.809 tonn, einkum vegna umtalsverðs samdráttar í slíkunt flutningum á Norður-Atlants- hafsflugleiðinni. Meðalsæta- nýting árið 1985 var 77,4% Á árinu störfuðu að meðaltali 1.607 starfsmenn hjá félaginu, og launagreiðslur námu samtals 949 millj. kr. í árslok áttu Flugleiðir sex þotur og fjórar skrúfuþotur. Eiginfjárstaða Flugleiða hefur batnað verulega, og er eigið fé nú bókfært á 286,6 ntillj. kr., þar af er núverandi hlutafé 35 millj. kr. Á aðalfundi Flugleiða, sem haldinn veröur n.k. fimmtudag mun stjórnin leggja til að greidd- ur verði 10% arður, og að hlutafé félagsins verði þrefaldað með útgáfu jöfnunarhlutabréfa. flö niOIMEER ’86 flD PIOIMEER' hljómflutningstæki í úrvali. Tilvalin fermingargjöf. SÍMI (96) 21400

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.