Dagur - 16.04.1986, Qupperneq 8
8 - DAGUR - 16. apríl 1986
„Þaö fóru allir heim meö rjóö
andlit og freknur," sagöi Björn
Björnsson í Mývatnssveit, en
um síöustu helgi fór fram dorg-
veiðikeppni á Mývatni, sú fyrsta
sinnar tegundar.
Þátttakendur voru skráðir um
40 og sagði Björn aö m.a. hefðu
vegagerðarmenn frá Akureyri
fjölmennt til keppninnar. Kepp-
endur komu víös vegar að,
flestir frá Akureyri, nokkrir frá
Hrísey, Húsavík, Kinn og Bárð-
ardal að ógleymdum Mývetn-
Myndir: - KGA
Dorgveiði í Mývatni
þrátt fyrir trega veiði
• ■; ;. ■ -.'.Y
llíll$il
■: ■ ■ "■ ...'■■'.
.
■ ■ : ■
ingum, sem að vísu voru ekki
mjög margir.
Verðlaun fyrir stærsta fiskinn
og besta gæðamatið hreppti
Gylfi Gunnarsson Akureyri.
Birgir Steingrimsson Akureyri
fékk verðlaun fyrir að hafa veitt
flesta fiska og einnig flestar teg-
undir. Það var svo Jón bóndi
Aðalsteinsson sem veiddi fyrsta
fiskinn og var það örfáum sek-
úndum eftir að keppni hófst.
„Ég held ég geti sagt að
dorgveiðikeppnin. hafi tekist
með ágætum. Menn fóru
ánægðir heim, þrátt fyrir að ekki
fiskaðist. Og við höfum ákveðið
að gera þetta að árlegum við-
burði.
Ástæður fyrir því að ekki fisk-
aðist geta verið m.a. að það var
ákaflega kyrrt veður, enginn
straumur í vatninu og um nótt-
ina hafði verið logndrífa. En það
var greinilega fiskur í vatninu,
það urðu margir varir og margir
sáu fisk,“ sagði Björn Björnsson
í Mývatnssveit.
■
: '.
'