Dagur - 16.04.1986, Síða 9
16. apríl 1986 - DAGUR - 9
___íþróttic
Umsjón: Kristján Kristjánsson
„Staðreyndin er sú að
ég var einfaldlega bestur'
- segir Sigurður Gestsson fsiandsmeistari í vaxtarrækt
Sigurður Gestsson íslandsmeistari í vaxtarrækt 1986. Mynd: AE
Stúlkurnar unnu
til 8 verðlauna
Það var mikið fjör í íþróttahús-
inu í Digranesi í Kópavogi á
laugardaginn en þar fór fram
fimleikamót í almennum fim-
leikum. 40 stúlkur frá Fim-
leikaráði Akureyrar voru
mættar til keppni. I þessu móti
taka þátt þeir sem ekki eru
komnir mjög langt og geta því
ekki tekið þátt í öðruin mótum
Fimleikasambands íslands.
Keppt var í tveimur aldurs-
flokkum í a og b æfingum. A-
æfingarnar eru aðeins léttari en
b-æfingarnar. Stúlkurnar úr FRA
komu heim með 8 verðlaun.
Annars fer árangur þeirra er
komust í úrslit hér á eftir:
Flokkur 11 ára og yngri, b-æfing:
Hrefna Ólafsdóttir. 3. sæti á tvíslá
Flokkur 12 áraog eldri, a-æfing
Margrét Viðarsdóttir, 1. sæti á tvíslá og
3. sæti á slá
Flokkur 12 ára og eldri, b-æfing
Margrét Viðarsdóttir, 1. sæti á gólfi
Rósa Karlsdóttir, 3. sæti á gólfi
Margrét Jónsdóttir 2. sæti á tvíslá
Hildur Símonardóttir, 2. sæti í stökki
yfir hest
Elín Gunnarsdóttir, 3. sæti í stökki
yfir hest
Pátttakendur á mótinu voru
um 350.
Firma-
keppni
SRA
Skíðaráð Akureyrar efnir til
firmakeppni í svigi þann 19.
apríl og skíðagöngu 20. apríl. í
hverri sveit eru þrír einstakl-
ingar og heimilt er að hafa einn
úr keppnisliði SRA í hverri
sveit.
Þurfa einstaklingar að hafa
unnið minnst tvo mánuði hjá
fyrirtækinu af tólf mánaða tíma-
bili.
Þátttökugjald er 3500 kr. fyrir
hverja sveit og 2000 kr. fyrir
hverja aukasveit. Þátttökutil-
kynningar og nánari upplýsingar
í síma 23008 fyrir föstudaginn 18.
apríl.
Sigurður Gestsson frá Akur-
eyri varð um helgina Islands-
meistari í vaxtarrækt í karla-
flokki. Helsti keppinautur
Sigurðar var Jón Páll Sigmars-
son úr Reykjavík. Ekki voru
allir á eitt sáttir yfir sigri
Sigurðar og í sjónvarpsfréttum
í fyrrakvöld var verið að gera
kjör Sigurðar tortryggilegt fyr-
ir alþjóð. Var ýað að því að
þrír af fímm dómurum keppn-
innar hafi verið frá Akureyri
og einn af þeim hafl verið
bróðir Sigurðar. Þegar valinn
var Islandsmeistarinn í karla-
flokki fékk Sigurður 3 atkvæði
en Jón Páll 2.
Einnig er fjallað um úrslit
keppninnar í Morgunblaðinu í
gær. Er talað við nokkra vaxtar-
ræktarmenn og sagði einn þeirra
.m.a., „Sigurður er betri vaxtar-
ræktarmaður en ég hefði samt
valið Jón Pál. Pá segir einnig í
blaðinu að í hnotskurn hafi dóm-
urunum þótt Sigurður hafa haft
betra samræmi á milli líkams-
hluta en aftur hafi Jón Páll heill-
að áhorfendur upp úr skónum
með líflegri framkomu.“
En var verið að keppa um
framkomu eða skrokk?
Þá talar Finnur Karlsson eig-
andi einnar líkamsræktarstöðvar-
innar um að þessi úrslit hafi verið
hneyksli af því að Jón Páll vann
ekki. Sagði hann að Jón Páll hafi
verið hafður að leiksoppi á þessu
móti.
En hvað segir íslandsmeistar-
inn sjálfur, Sigurður Gestsson
um þessi mál.
„Eg veit það eiginlega ekki. Ég
held að það sé best að segja sem
minnst. Það er alltaf leiðinlegt
þegar svona mál koma upp. En
ég gef nú lítið fyrir það sem Finn-
ur Karlsson lét hafa eftir sér um
þetta mót.
Bróðir minn var í þessari 5
manna dómnefnd en þegar kom
að kjörinu sem ég var þátttak-
andi í gekk hann úr nefndinni og
annar aðili kom í staðinn. Einnig
er talað um að meirihluti nefnd-
arinnar hafi verið skipuð Akur-
eyringum. Það býr aðeins einn af
þessum fimm sem í nefndinni
voru á Akureyri hinir búa og
starfa í Reykjavík.
Málið er það að Reykvíkingar
eiga erfitt með að kyngja þessum
ósigri. Jón Páll hefur hylli fólks-
ins að svo til öllu leyti. En það
var ég sem var einfaldlega bestur
í karlaflokki og það má koma
skýrt fram.
Það má það líka koma fram að
við stofnuðum landssamtök
vaxtarræktarmanna og það eru
allir í þessum samtökum nema
Finnur Karlsson og hans stöð.
Því reynir hann með sínu röfli að
koma höggi á samtökin. Hann er
einnig á móti okkur Akureyring-
um og heyrst hefur að hann hefði
fullan hug á að vera í samtökun-
um ef Akureyringum yrði úthýst.
Það er annað sem er líka
ikrýtið, Finnur er að eigna sér
Jón Pál. Jón Páll æfir ekkert hjá
honum að ráði. Hann æfir út um
allan bæ og aðallega í Engihjall-
anum í Kópavogi. Þá talar Finn-
ur um það að verið sé að refsa sér
fyrir að vera ekki í samtökunum.
Það var mættur fríður flokkur fimleikastúlkna ■ Kópavoginn um helgina. Stúlkurnar frá FRA eru í hvítum bolum.
Mynd: AE
En hann sjálfur hefur í gegnum
tíðina reynt að koma höggi á
þessi samtök okkar,“ sagði
Sigurður Gestsson að lokum.
Mjólkurbikarinn:
Völsungur og KA
í fyrstu umferð
Tekist hafa samningar á ntilli
KSÍ og mjólkurdagsnefndar en
nefndin hefur ákveðið að
styðja vel við bakið á sam-
bandinu. í staðinn mun nafn
bikarkeppninnar nú verða
Mjólkurbikarinn, bikarkeppni
KSI. Samningur aðilanna er út
keppnistímabilið.
Þegar hefur verið dregið í
fyrstu umferð keppninnar og
verða nokkrir stórleikir strax í
fyrstu umferð. Má þar fyrst nefna
leik Völsungs og KA sem leikinn
verður á Húsavík. Á Ólafsfirði
leika Leiftur og Vaskur og á
Sauðárkróki leika Tindastóll og
Magni. Allt verða þetta hörku-
leikir.
Fyrsta umferðin fer fram dag-
ana 27.-28. maí og 2. umferð fer
fram 11. júní.
Þannig lítur drátturinn í fyrstu
tvær umferðirnar út:
1. umferð
Þróttur R-Leiknir R
Stjarnan-Léttir
Fylkir-Hafnir
Víkingur R-Augnablik
UMFN-Árvakur
Afturelding-Grindavík
Grundarfjörður-HV
Hveragerði-Selfoss
Leiftur-Vaskur
Völsungur-KA
Tindastóll-Magni
Höfðstrendingur-KS
Leiknir F-Einherji
Höttur-Austri
Þróttur N-Huginn
Valur Rf-Hrafnkell
2. umferð
Reynir S-Ármann
Haukar-ÍK
ÍR-Þróttur/Leiknir R
Afturelding/Grindavík-Víkingur Ó
Víkverji/Skallagrímur-Skotfélag R
UMFN/Árvakur-Selfoss/Hveragerði
Víkingur/Augnablik-Stjarnan/Léttir
Fylkir/Hafnir-Grundarfjörður/HV
Völsungur/KA-Leiftur/Vaskur
Höfðstrend./KS-Tindastóll/Magni
Valur/Hrafnkell-Leiknir/Einherji
Höttur/Austri-Þróttur N/Huginn
Þriðja umferðin, þar sem leik-
ið er um sæti í 16-liða úrslitum
keppninnar fer fram 1.-2. júlí.