Dagur - 20.05.1986, Page 1
69. árgangur
Akureyri, þriðjudagur 20. maí 1986
91. tölublað
Tölvuþjónusta
Hugbúnaðarþjón usta
Tölvutæki sf.
Gránufélagsgötu 4, 2. hæð ■ Akureyri ■ Sími 96-26155
Bílslys á Oxna-
dalsheiði
Á föstudaginn varð bílvelta á
Öxnadalsheiði. Þar var þrennt
í bíl sem fór út af veginum við
Sesseljubúð og lenti á hvolfi í
skurði.
Fólkið var flutt á Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri. Öku-
maðurinn fékk að fara heim eftir
skoðun en farþegarnir tveir voru
lagðir inn. Meiðsli þeirra eru tal-
in meiri en álitið var í fyrstu. gej-
Lögreglan á Akureyri:
Annasöm
helgi
„Það var nokkuð mikið að
gera hjá okkur yfír helgina, þó
ekkert meira en búist var við,“
sagði Ingimar Skjóldal lög-
regluvarðstjóri.
Á Akureyri og í nágrenni voru 9
árekstrar um helgina, en flestir
voru þeir óverulegir. 13 öku-
menn voru teknir fyrir of hraðan
akstur.
Nokkur ólæti urðu í miðbæn-
um eftir dansleiki og lentu nokkr-
ir í slagsmálum. Einn sem fékk á
„glannann," var fluttur á sjúkra-
hús. Ingimar sagði að eitthvað
hefði verið um lausar tennur og
glóðaraugu eftir átökin. Mikill
gleðskapur var í heimahúsum og
þurfti lögreglan að þagga niður í
fólki sem hélt vöku fyrir ná-
grönnum sínum. „Ég tel að ekki
hafi verið meira að gera um þessa
helgi en venjulega um hvíta-
sunnu. Þetta er stór helgi og
margir gera sér glaðan dag, sem
oft vill verða meira en áætlað
var,“ sagði Ingimar Skjóldal.
gej-
Blaðburðafólki Dags var boðið upp á veitingar þcgar því var kynnt nýja fyrirkomulagið á dreifingunni. Johann Karl framkvæmdastjóri og Freyja
Rögnvaldsdóttir dreifingastjóri sögðu frá breytingunum, sem verða til þess að nú kemur Dagur til lesenda fyrir klukkan 8,00 á morgnana. Mynd: gej-
Dagur með morgunkaftinu
Frá og með deginum í dag
verður útgáfutími Dags
breyttur frá því sem verið
hefur. Hingað til hefur blaðið
verið prentað kl. hálf níu á
morgnana og borið út til
áskrifenda fyrir miðjan dag.
- útgáfutíma blaðsins flýtt
Nú verður blaðið prentað eft-
ir miðnætti og dreifing fer
fram það tímanlega að Akur-
eyringar eiga að geta lesið
Dag með morgunkaffinu.
Þessi nýbreytni var kynnt
blaðberum á Akureyri fyrir
helgina. Fyrir þá sem bera út
blaðið með skóla er þessi breyt-
ing mjög til bóta, því dreifingu
á að geta verið lokið áður en
skóli hefst.
Fyrir vikið fá áskrifendur
blaðið nýrra og ferskara í hend-
ur en áður og er það von þeirra
sem að blaðinu starfa að þetta
eigi eftir að mælast vel fyrir.
Þessi breyting á einnig að
tryggja það að blaðið komist
samdægurs víðar út fyrir Akur-
eyri en áður. HS
DNG:
180 vindur seldar
frá áramótum
Alvartegt vélsleða-
slys við Gæsavötn
-Féll um 15-20 metra
niður í Rjúpnabrekkuhvísl
„Salan hefur gengið vonum
framar og eru farnar frá okkur
um 180 vindur síðan um ára-
mót,“ sagði Kristján Jóhann-
esson framkvæmdastjóri
D.N.G. á Akureyri. Eins og
flestir vita framleiðir D.N.G.
meðal annars sjálfvirkar færa-
vindur af fullkomnustu gerð og
hafa þær hvarvetna hlotið mik-
ið lof fyrir góða eiginleika.
Af þessum 180 vindum hafa
farið 40 vindur til Færeyja og
þykir það góð sala. Kristján sagði
að ekki hafi verið búist við svo
góðri sölu svo snemma árs, en
þetta sýndi að framleiðslan líkaði
vel og nú væri þannig komið að
allar vindur sem til voru á lager
væru seldar. „Við höfum ekki
undan að framleiða upp í pantan-
ir og fer hver einasta vinda beint
til sjómanna þegar hún er saman-
sett og fullprófuð. Það skemmti-
legasta við þetta er að vindan lík-
ar mjög vel og hefur sannað ágæti
sitt,“ sagði Kristján Jóhannes-
son.
Eins og fram kemur urn sölu
fyrirtækisins eru margir trillu-
karlar nú með D.N.G. vindur í
bátum sínum. Einn þessara trillu-
karla er Arthúr Bogason sem nú
gerir út frá Vestmannaeyjum.
Okkur lék forvitni á að vita
hvaða reynslu hann hefði af vind-
unum. „Ég hef verið með 3
D.N.G. vindur á mínum báti og
tel að þær hafi borgað sig upp á
skömmum tíma og þær fullnægja
öllum kröfum sem ég geri til
slíkra tækja. Þær eru hraðvirkar,
Á síðasta stjórnarfundi í
Fjórðungssambandi Norðlend-
inga var samþykkt ályktun þar
sem áhersla er lögð á að hafin
verði háskólakennsla á Akur-
eyri á þessu ári.
öflugar og einfaldar í notkun,
auk þess sem bilanatíðni er mjög
lág. Ég tel að framleiðendur hafi
hitt naglann svo sannarlega á
höfuðið með þessu tæki,“ sagði
Arthúr Bogason. gej-
„Minnir fjórðungsstjórn á
afstöðu síðasta fjórðungsþings
um að háskólakennsla á Ákur-
eyri er mál allra Norðlendinga og
reyndar baráttumál allrar lands-
byggðarinnar. í því sambandi
leggur fjórðungsstjórn til við
Alvarlegt vélsleðaslys varð við
Rjúpnabrekkukvísl, sem er 8
km norðan við Gæsavötn á
iniðhálendi landsins. Þar voru
á ferð fjórir menn frá Akur-
eyri, sem lögðu upp úr Bárð-
ardal um klukkan 8 á laugar-
menntamálaráðherra, að sem
fyrst verði tekin ákvörðun í mál-
inu og jafnframt verði ráðinn
sérstakur starfsmaður til að vinna
að uppbyggingu háskólanáms á
Akureyri," segir í ályktun stjórn-
ar Fjórðungssambandsins. HS
dagskvöld og ætluðu í Gæsa-
vötn.
Klukkan 10 mínútur yfir 10 um
kvöldið, er þeir áttu eftir um 15
mín ferð í gæsavötn keyrði
einn mannanna fram af þver-
hníptri brún og féll hann ofan í
Rjúpnabrekkukvísl og er fallið
um 15-20 metrar. Slasaðist mað-
urinn mikið við fallið. Strax var
reýnt að hafa samband við Gufu-
nesradíó, sem var beðið að kalla
til Slysavarnafélagið og biðja um
þyrlu til að ná í hinn slasaða.
Kom þyrlan og sótti manninn og
flutti til Reykjavíkur, þar sem
hann liggur nú á Borgarspítalan-
um. Er hann mikið slasaður, en
er ekki talinn í lífshættu.
Mjög gott veður var, bjart og
sólskin, þegar þetta gerðist. Allir
þeir menn sem þarna voru á ferð
eru þaulvanir vélsleðaferðum um
hálendið. gej-
Stjórn Fjórðungssambandsins:
Starfsmaður verði ráðinn
vegna uppbyggingar háskóla