Dagur - 20.05.1986, Qupperneq 2
2 - DAGUR - 20. maí 1986
DACHJR
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 420 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 40 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN,
GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi sími 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík),
KRISTJÁN G. ARNGRÍMSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
MARGRÉT P. ÞÓRSDÓTTIR,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDÍS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF,
leiðari_____________________________
Samstaða um
störf meirihlutans
á Akureyri
Nú eru innan við tvær vikur til sveitarstjórna-
kosninganna, sem fram fara 30. maí nk. Kosn-
ingabaráttan hefur verið heldur hæglát það sem
af er, en búast má við að hún verði því kröftugri
þann tíma sem eftir er til kosninganna. Ef til vill
er ástæðan fyrir því hversu hægt kosninga-
baráttan hefur almennt farið af stað sú, að
almenningur hefur nú mun gleggri hugmyndir
um það en oft áður, hve almennar aðstæður í
þjóðfélaginu ráða miklu um það hver þróunin
verður í bæjarfélögunum.
Allur almenningur hefur verið nokkuð hart
keyrður vegna efnahagsaðgerða ríkisstjórnar-
innar, sem út af fyrir sig voru nauðsynlegar.
Fyrirtækin hafa átt í erfiðleikum af ýmsum
ástæðum, sem enn hefur hert að almenningi.
Þetta veit fólk og því þýðir lítið fyrir minni-
hlutaflokka í sveitarstjórnum að agnúast svo
mjög út í það að ekki hafi verð nægilega mikið
gert á kjörtímabilinu.
Hvað varðar Akureyri hefur ótrúlega margt
áunnist á því kjörtímabili sem nú er að líða. Ný
fyrirtæki hafa hafið starfsemi, sem kemur til með
að setja mikinn svip á atvinnulífið og raunar allt
svipmót bæjarins. Þrátt fyrir það að erfitt hafi
verið að fá ríkissjóð til að standa við lögboðnar
greiðslur vegna heilbrigðis- og skólafram-
kvæmda hefur geysimikið áunnist. Bæjarsjóður
hefur þurft að leggja fram mun meira af eigin fé
en lög gera ráð fyrir og þó hefur það ekki staðið
framkvæmdum fyrir þrifum. Fjárhagur Akureyr-
arbæjar er sem fyrr traustur.
Þrátt fyrir nánast algjört hrun í byggingariðn-
aðinum sem að sumu leyti mátti rekja til þess að
byggt var langt umfram þarfir á tímabili, hefur
atvinna á Akureyri aukist á kjörtímabilinu. Þetta
er staðfest þegar bornar eru saman trygginga-
skyldar vinnuvikur áður og nú. Meirihlutinn í
bæjarstjórn Akureyrar má því vel við una og
raunar unir minnihluti sjálfstæðismanna og
krata einnig vel við þann árangur sem náðst
hefur. Það sýna gerðir þeirra í bæjarstjórninni.
Nærfellt öll mál sem einhverju skipta fyrir bæjar-
félagið hafa verið samþykkt samhljóða. Minni-
hlutinn í bæjarstjórn Akureyrar hefur því lagt
blessun sína og lýst yfir velþóknun á störfum
meirihlutans.
Nú fyrir kosningar eru hins vegar gefnir út
bæklingar þar sem reynt er að sverta störf meiri-
hlutans. Raunin hefur hins vegar verið sú að
samstaða hefur verið um störf meirihlutans,
undir forystu framsóknarmanna.
-viðtal dagsins.
Q lAnloni' )|ín ami
r Koicim< nér ka iiin eru irusl“
- Spjallað við Sigfús Karlsson sem skipar 7. sæti lista
Framsóknarflokksins til bæjarstjórnarkosninganna á Akureyri í vor
Sigfús Karlsson rúmlega tví-
tugur Akureyringur verður
stúdent af viðskiptafræðibraut
Verkmenntaskólans nú í vor.
Hann skipar 7. sæti lista Fram-
sóknarflokksins til bæjar-
stjórnarkosninganna á Akur-
eyri. Sigfús er fæddur í sept-
ember árið 1965 á Akureyri og
„hef alltaf átt heima hérna og
vil hvergi annars staðar vera.“
Þar sem Sigfús er ekki maður
gamall, hefur hann verið í
skóla mestan hluta lífs síns.
Stúdentsprófíð í vændum og
hvað svo?
„Ég hef ekki í hyggju að setjast
í skóla alveg á næstunni. Fer
samt dálítið eftir atvinnutækifær-
um hérna. Það sem freistar mín
mest er að fara eitthvert til
útlanda að læra. Einu sinni ætlaði
ég reyndar í viðskiptafræði, en
það er bara svo gífurlegur fjöldi
sem sækir í það nám, að mér
finnst það ekki lengur spennandi.
Það á ekki við mig að vera með
þessum ægilega fjölda í bekk.
Iðnrekstrarfræðin sem byrjað
verður að kenna hér á Akureyri
haustið 1987 finnst mér áhuga-
vert nám og gæti vel hugsað mér
að fara út í það. Hvað iðn-
rekstrarfræðina varðar, þá er það
Sverrir Hermannsson sem kemur
þessu námi á og á hann skilið
hrós fyrir það. Hins vegar mega
menn ekki gleyma því að það
voru Framsóknarmenn sem búnir
voru að stilla boltanum upp og
ekki þurfti annað en rétt blása á
hann til að hann færi að rúlla.“
Sigfús hefur unnið jafnframt
námi, bæði í Búnaðarbankanum
og í Smiðjunni um helgar.
„Launin eru ekki það há, að
maður geti neitað vellaunaðri
aukavinnu. Ég þurfti að vinna
með námi, ég er ekki úr fjöl-
skyldu þar sem vaðið er í pening-
um. Þannig að ég hef alltaf unnið
fyrir mér sjálfur."
- Er það algengt áð krakkar
vinni jafnframt námi?
„Það er upp og ofan. Jú, ég
myndi segja að það væri nokkuð
algengt. í sumum bekkjum eru
aðeins örfáir sem ekki stunda
einhverja vinnu.“
- Kemur það ekki niður á
náminu?
„Ef menn leggja hart að sér við
námið, þá á það að vera í lagi þó
að menn vinni líka. En geri menn
það ekki, þá kemur það óneitan-
lega niður á náminu."
- Áhugamál?
„Eins og flest ungt fólk í dag,
hef ég áhuga á íþróttum. Ég gutla
dálítið í körfubolta með bræðr-
um mínum og öðrum góðum
mönnum. Þegar ég var yngri æfði
ég handbolta, en vegna veikinda
í baki hætti ég því. Það er alveg
lífsnauðsynlegt að hreyfa sig
dálítið."
„Önnur áhugamál? Á síðasta
ári fékk ég ljóðabakteríu. Ekki
þannig að ég skrifi ljóð sjálfur, ég
held mig við að lesa þau. Aðal-
ástæða þess að ég fékk þennan
áhuga á ljóðum, er sú að í
íslensku í fyrra tókum við tvo
áfanga um þetta efni. Kennarinn,
Benedikt Bragason gerði þetta
líka svo áhugavert. Skemmtileg-
ur maður, Benedikt, hann hefur
húmor að mínu skapi.“
- Framsóknarflokkurinn,
Sigfús.
„Já, Framsóknarflokkurinn og
hvenær hann kom inn í líf mitt.
Það var þannig að í bekknum
mínum mátti telja þá á fingrum
annarar handar sem voru annað
en íhaldsmenn. Ég vildi ekki vera
eins og allir hinir. En það er nú
samt ekki síður það, að stefnan
heillaði mig. Ég lít þannig á, að
blandað hagkerfi eins og við höf-
um í dag, sé besta og skynsaml-
egasta leiðin til að allir geti haft
það nokkuð gott. Góð blanda
einkaframtaks, samvinnufélaga
og ríkisfyrirtækja held ég að best
sé fyrir þetta þjóðfélag og ég tel
að við íslendingar búum við eitt
opnasta og besta hagkerfi sem
völ er á í heiminum. Mér finnst
stundum sem það fólk sem lengst
er til hægri og vinstri sé öfga-
kennt í sínum skoðunum. Þess
vegna vel ég Framsóknarflokk-
inn.“
- Sigfús, nú ert þú ungur mað-
ur í Framsóknarflokknum. Ungt
fólk hefur ekki verið mjög áber-
andi í flokknum til þessa. . .
„Það er eitt af því sem ég ekki
skil. Ég veit ekki hvort skýring-
anna geti verið að leita til þess að
ungt fólk setur samasem merki á
milli Kaupfélagsins og Fram-
sóknarflokksins. Ég held að fólk
geri sér rangar hugmyndir um
samband þessara tveggja, ég vil
segja ólíku aðila.“
- Snúum okkur þá að bæjar-
málunum?
„Skólamálin eru mér kærust.
Ég get byrjað á Verkmennta-
skólanum, sem er mjög góður
skóli nú þegar, en á eftir að verða
enn betri þegar hann er kominn
undir eitt þak.
Nú, það að hér á Akureyri
hefjist háskólakennsla er eitt af
okkar baráttumálum og við mun-
um berjast fyrir því máli. Ein-
hver sagði einhverntíma að
samstaða hefði aldrei náðst innan
Framsóknarflokksins um há-
skólamálið. Það er öðru nær,
menn eru mjög einhuga í því
máli. Og það voru Framsóknar-
menn sem unnið hafa hvað mest
að framgangi þessa máls. Þeir
stilltu boltanum upp.
Þegar hér hefst háskólakennsla
vantar húsnæði fyrir fólkið, því
hingað mun koma fólk víða að af
landinu. Um það bil einn þriðji af
nemendum MA og VMA eru
utanbæjarmenn, sem gæti þýtt 4-
500 manns. Það vantar heima-
vistir, samkvæmt úttekt á þessu
máli hefur verið talið vænlegast
að byggja heimavist við Mennta-
skólann, auk þess sem mötuneyti
skólans getur tekið við fleira fólki
í mat en nú er. Ég tel að jafn-
framt byggingu heimavistar væri
ráð að setja upp leigjendasamtök
nemenda, einhvers konar hags-
munasamtök sem gættu þess að
verð ryki ekki upp úr öllu valdi í
kjölfar aukinnar eftirspurnar."
Eitthvað að lokum?
„Já, ég vil beina því til þeirra
sem nú kjósa í fyrsta skipti að
íhuga vel stefnu flokkanna og
athuga hvort menn eigi ekki
samleið með Framsóknarflokkn-
um.“
i Ititr