Dagur - 21.05.1986, Qupperneq 3
21. maí 1986 - DAGUR - 3
Ætli ég sé ekki með um 10 ha sem þarf að vinna, sagði Benedikt Hjaltason
sem var að herfa.
„Ég bý með minnk-
andi kúabú“
- segir Benedikt Hjaltason á Hrafnagili
Krossapróf
fyrir sveitar-
stjómarmenn
-um skólamái ogkennslu
í tengslum við væntanlegar
sveitarstjórnarkosningar hefur
Kennarasamband íslands sent
frambjóðendum um allt land
krossapróf þar sem þeim gefst
kostur á að kanna þekkingu
sína varðandi skólahald. Einn-
ig eru þeir hvattir til að kynna
sér sem flest atriði skólamála í
heimahéraði.
Með þessu plaggi vill Kennara-
sambandið vekja athygli fram-
bjóðenda á skólamálunum í
þeirra sveitarfélagi og mælist til
að þeir taki þau til sérstakrar
athugunar. Frambjóðendur eru
spurðir hvernig einstaka þáttum
skólastarfsins er háttað í skólum í
þeirra umdæmi, t.d. hvað varðar
skólaskyldu, námsgreinar, sam-
felldan skólatíma, skólamáltíðir,
húsnæði, sálfræðiþjónustu og
fleira.
„Skólamál eru einn stærsti
málaflokkur hvers sveitarfélags
og því nauðsyn hverjum þeim
sem býður sig fram að kynna sér
þau mál rækilega. Samkvæmt
lögum hafa sveitarstjórnir
ákveðnum skyldum að gegna
varðandi skólarekstur og eru
ábyrgar fyrir skólahaldi í heima-
byggð.
Kennarasambandið vænt-
ir þess að bæklingur þessi stuðli
að málefnalegri umræðu og
úrbótum í þessum efnum - þess
er víða brýn þörf,“ segir m.a. í
fréttatilkynningu frá Kennara-
sambandinu vegna þessa. BB.
Benedikt Hjaltason bóndi á
Hrafnagili var að herfa þegar
blaðamann Dags bar að en gaf
sér þó tíma til að spjalla
smástund.
- f>ú ert byrjaður á vorverkun-
um þrátt fyrir kuldann?
„Já en það er nú varla hægt að
byrja á neinu, það er svo óvenju
kalt, en ég varð að byrja svona
snemma því það er svo mikið
sem ég er með af flögum.“
- Ertu með mikið af nýrækt?
„Það er verið að vinna þetta upp
en ætli ég sé ekki með um 10 ha.
af flögum sem fara undir grasfræ
og grænfóður.“
- Hvaða búskap ert þú með?
„Ég bý með minnkandi kúabú,
ætli það séu ekki svona 36 eða 37
kýr.“
- Hvað með kvóta og það allt
saman?
„Það verður náttúrlega að
minnka þetta, framleiðslan er of
mikil.“
- Og samt ert þú að rækta upp
meiri tún.
„Já maður verður að fá sem
best hey og reyna að kaupa lítinn
fóðurbætir."
- Hvernig er svo að búa svona
nálægt Akureyri?
„Pað er mjög gott. Ég vildi að
minnsta kosti ekki skipta á ein-
hverri afdalajörð." G.Kr.
Notar þúCÍO?
Pjónusta í miðbænum.
GLERAUGNAÞJÓNUSTAN DAVÍÐSSON
SKIPAGÖTU 7 - BOX 11 - 602 AKUREYRI - SÍMI 24646
Héraðssýning
Kappreiðar - Töltkeppni
Héraðssýning kynbótahrossa, kappreiðar og tölt-
keppni verða haldnar að Melgerðismelum 7. og 8.
júní nk.
Mótið verður jafnframt notað til úrtöku fyrir landsmót.
í kappreiðum verður keppt í 150 og 250 m skeiði 250,
350 og 800 m stökki og 300 m brokki.
Skráning kynbótahrossa fer fram hjá BSE Óseyri 2 en
önnur skráning fer fram hjá Hestasporti Helgamagra-
stræti 30.
Mótið er öllvun opið en skráningu lýkur 26. maí.
Mótshaldarar.
Dalvík:
Sex verkamanna-
bústaðir afhentir
- Hægt að verða við öllum umsóknum
Fyrir skömmu voru afhentar 6
íbúðir sem byggðar voru á Dal-
vík samkvæmt verkamanna-
bústaðakerfinu. Eru íbúðirnar
í fjölbýlishúsi sem reist var við
Karlsrauðatorg. íbúðirnar eru
2ja, 3ja og 4ra herbergja og er
flutt í þær allar.
Snorri Finnlaugsson bæjarrit-
ari á Dalvík sagði að umsóknir
um íbúðirnar hafi verið 6 talsins,
þannig að hægt var að sinna þeim
öllum. Greiðsluskilmálar eru þeir
að kaupandi greiðir 10% í verði
íbúðarinnar og fær 90% lánuð
hjá húsnæðismálastjórn til 43
ára. íbúðirnar eru mjög góðar að
sögna Snorra. Hann sagði einnig
nokkuð af íbúðum í verka-
mannabústöðum hafa komið til
endursölu, en eftirspurn væri
nánast engin. Pví hyggðust
bæjaryfirvöld á Dalvík að staldra
við í srníði íbúða og kaupa frekar
íbúðir á frjálsum markaði, því
mjög mikil eftirspurn væri eftir
leiguíbúðum og mjög erfitt að fá
slíkar íbúðir á Dalvík. Er hug-
myndin að tengja kaupin á frjáls-
um markaði bústaðakerfinu og
hafa þannig íbúðir fyrir þá sem á
þyrftu að halda. gej-
Sauðárkrókur:
Kosn I ngaskrifstof a
Framsóknarflokksins
Framsóknarfélögin á Sauöár-
króki eru með kosningaskrif-
stofu fyrir bæjarstjórnarkosn-
ingarnar sem í hönd fara. Er
skrifstofan til húsa í Framsókn-
arhúsinu viö Suðurgötu og er
opin alla virka daga frá kl. 17
og á laugardögum frá kl. 10-18.
Að sögn Jóns E. Friðrikssonar
á skrifstofunni er heldur að fær-
ast líf í kosningabaráttuna og
stuðningsmenn flokksins hafa
verið duglegir að líta inn. T.d.
komu um sextíu manns á kaffi-
kvöld sl. mánudagskvöld þar sem
sýnd var nýleg kynningarmynd
um Sauðárkrók. Nk. mánudags-
kvöld verður á kaffikvöldi til sýn-
is mynd frá héraðssýningu kyn-
bótahrossa á Léttfetavelli 1985
o.fl. Að endingu vildi Jón hvetja
stuðningsfólk til að koma á skrif-
stofuna og taka þátt í starfinu
þessar síðustu vikur fram að
kosningum. -þá
Hleöslusteinar
Höfum tvær stærðir: A) Litla í garða og stalla.
B) Stóra í vegakanta og víðar. Gerðu garðinn þinn frægan
og notaðu hieðslusteinana frá okkur.
Litlir 36 kg.
Stórir 350 kg.
Höfum einnig hálfa
steina og hornsteina
fyrir 90° inn- og úthorn.
Reiðhjólasteinar
Framleiðum þrjár gerðir
reiðhjólasteina með mismunandi
breiðri hjólaklauf (A).
Hentugt fyrir skóla og vinnustaði
jafnt sem heimili.
Mismunandi möguleikar á uppröðun.
MOL&SANDUR HF.
STRENGJA-
STETPAN HF
v/SÚLUVEG - PÓSIHÓLF 618 - 602 AKUREYRI - SÍMI (86)21255