Dagur - 21.05.1986, Síða 8
8 - DAGUR - 21. maí 1986
Tónlistarskóli Sauðárkróks:
Skemmdir á grasi við íþróttavöllinn.
Húsavík:
Ökumenn valda spjöll-
um á graslendi
Það getur tekið langan tíma og
kostað mikla fyrirhöfn að
rækta fallegan grasblett. Hins
vegar er hægt að eyðileggja
grasi vaxið svæði á smástund í
augnablikskæruleysi, sérstak-
lega á þessum árstíma meðan
ræktað land er blautt og við-
kvæmt fyrir allri umferð.
Guðmundur Þorgrímsson yfir-
verkstjóri hjá Húsavíkurbæ hafði
samband við Dag og bað um að
því yrði komið á framfæri við
menn að þeir virtu grænu svæðin
í bænum.
Bæjarstarfsmenn höfðu nýlok-
ið við að reka niður hæla á kafla
umhverfis íþróttavöllinn en þar
voru menn farnir að aka bílum
sínum upp í hallann án tillits til
þess að hann er grasivaxinn.
Ræktaða landið í bænum ætti að
vera ölium bæjarbúum til yndis-
auka og þeir þyrftu að sameinast
um að veita því frið til að skarta
sínu fegursta í sumar.
Mjög blómlegt starf í vetur
Starf Tónlistarskóla Sauðár-
króks hefur verið mjög blóm-
legt í vetur. Skólastarf hófst
20. sept. sl. og í vetur hafa 163
nemendur stundað nám á hin
ýmsu hljóðfæri, þó hafa lang-
flestir verið í píanónámi.
Kennarar við skólann voru sjö
á þessu skólaári sem nú er
nýlokið, þar af fjórir fastráðn-
ir. Skólastjóri er Eva Snæ-
björnsdóttir.
Skólastarfinu í vetur lauk með
tveimur nemendatónleikum svo-
nefndum vortónleikum sem
haldnir voru í Safnahúsinu 8. og
11. maí sl. Þar léku nemendur
einleik og samleik á píanó, orgel,
fiðlu, selló, gítar og blásturs-
hljóðfæri. Tónleikarnir voru
mjög vel sóttir.
Blásarasveit sem í eru fimmtán
krakkar hefur verið starfandi við
skólann f vetur undir stjórn
Sigurðar Jónssonar. Einnig var á
tímabili í vetur starfandi kór í
skólanum sem Tim Beilby og Eva
Snæbjörnsdóttir stjórnuðu. Að
sögn Evu er mjög miður að ekki
skuli vera hægt að starfrækja kór
allan veturinn. „En sannleikur-
inn er sá að þetta eru sömu nem-
endurnir sem Grunnskólinn og
Tónlistarskólinn eru að berjast
um og svo verður kórstarfið ekki
nógu myndarlegt á hvorum
staðnum. Ég hef hug á að beita
mér fyrir að stofnaður verði sam-
eiginlegur kór þessara tveggja
skója. Það þarf endilega að koma
upp myndarlegum barnakór
hérna í bænum. Kórsöngurinn er
svo mikilvægur fyrir frekara tón-
listarnám barnanna,“ sagði Eva
skólastjóri að lokum. - þá.
Frá vortónleikum Tónlistarskólans á Sauðárkróki,
Sigurður Jóhannesson.
Úlfhildur Rögnvaldsd.
Ásgeir Arngrímsson.
Kolbrún Þormóðsd.
Þórarinn Sveinsson.
7
Unnur Pétursdóttir.
Sigfús Karlsson.
Magnússon.
Ibúar Glerarhverfis
Okkur langar til að ræða við ykkur sérstaklega um málefni:
Síðuskóla, sundlaugar, kirkju, Þórssvæðis og önnur
hugðarefni Glerárhverfinga.
Hittumst hress í starfsmannasal í kjallara Verslunarmiðstöðvarinnar 1
Sunnuhlíð í kvöld kl. 20.30.
Kaffiveitingar á staðnum.
Gerum góðan bæ að betri bæ.
Frambjóðendur Framsóknarflokksins.
Basar
verður haldinn laugardaginn 24. maí kl. 14.00 í
Skjaldarvík.
Kökur - Munir - Kaffisala.
Vistfólk og starfsfólk.
Vorum að
taka upp
nýja sendingu af
eldhúsgluggatjöldum.
Verð frá kr. 890.-
SÍMI
(96)21400