Dagur - 22.05.1986, Page 1
69. árgangur
Akureyri, fímmtudagur 22. maí 1986
93. tölublað
• Stúdentastjörnur
• Stúdentarósir
• Stúdentaskeiðar
• Stúdentarammar
Stúdentagjafir í miklu úrvali
GULLSMIÐIR
SIGTRYGÓUR & PÉTUR
AKUREYRI
Akureyri:
Mynd: - KGA
Upjpsagnir ekki
til framkvæmda
- hjá Híbýll vegna aðgerða bæjaryfirvalda
Öllum starfsmönnum Híbýlis
h.f., 30 að tölu, var sagt upp
þann 1. febrúar sl. og áttu
uppsagnirnar að koma til fram-
kvæmda í byrjun þessa mánað-
ar. Horfurnar í byggingariðn-
aði hafa hins vegar breyst svo
til batnaðar á síðustu vikum að
uppsagnirnar munu ekki koma
til framkvæmda.
Akureyrarbær hefur lagt sitt af
mörkum til þess að leysa þann
vanda sem steðjaði að bygginga-
fyrirtækjum í bænum. Samið var
við Híbýli um að byggja tengi-
bygginguna við Dvalarheimilið
Hlíð, S.S. Byggir fékk verkefni í
Síðuskóla auk þess sem fyrirtæk-
inu var úthlutað lóð undir fjölbýl-
ishús við Hjallalund og ákveðið
var að kaupa húsnæði af Aðalgeir
og Viðar h.f. undir iðngarða.
„Pegar bæjaryfirvöld brugðust
við gerðu þau það hraustlega.
Eftir því sem ég best fæ séð eru
bæjaryfirvöld að leggja sitt af
mörkum til þess að skapa verk-
efni og stuðla að framgangi bygg-
ingariðnaðarins í bænum,“ sagði
Haukur Sigurðsson hjá Híbýli í
samtali við Dag.
„Ég tel þessa leið sem bæjaryf-
irvöld hafa valið vera af hinu
góða,“ sagði Hörður Túliníus
framkvæmdastjóri Híbýlis. Hann
sagði að erfið lausafjárstaða væri
mesta vandamálið nú en hann
.vonaði að þessi meðbyr næði að
fleyta fyrirtækinu yfir mestu erf-
iðleikana.
„Pað er ýmislegt í þjóðfélaginu
sem gefur manni tilefni til að
halda að ástandið sé að lagast og
ég er bjartsýnn á framtíðina,“
sagði Hörður. BB.
Samiö við Kótó
- um hönnun nýs stóls
„Það er komið á hreint að
gengið verður til samninga við
Kótó um frekari hönnun og
þróun á stólum fyrir Verk-
menntaskólann,“ sagði Magn-
ús Garðarsson byggingastjóri
Verkmenntaskólans á Akur-
eyri.
þarf um 250 stóla, en alls þarf um
1200 stóla fyrir skólann. Einnig
hefur verið samið við Kótó um
smíði á um 250 borðum af ýms-
um gerðum fyrir næsta áfanga
Verkmenntaskólans. Samningar
um þessi verk verða væntanlega
frágengnir á næstu dögum. gej-
Lögreglan kærð til
Jafnréttisráðs
- vegna þess að engar konur voru ráðnar
Jafnréttisncfnd Akureyrar hef-
ur sent Jafnréttisráði bréf, þar
sem óskað er eftir rannsókn á
því hvort um sé að ræða brot á
jafnréttislögum, að umsóknum
kvenna um störf hjá lögregl-
unni á Akureyri hefur verið
hafnað.
í frétt frá nefndinni er vísað til
fréttar í Degi frá 24. apríl sl. þar
sem fram kom í viðtali við yfir-
lögregluþjón á Akureyri, að kon-
ur væru ekki ráðnar í auglýstar
stöður hjá lögreglunni þar. Jafn-
réttisnefnd Akureyrar telur að
með þessu séu brotnar 5. og 6.
grein laga nr. 65/1985 um jafna
stöðu og jafnan rétt kvenna og
karla m.a. til launa, ráðninga í
störf og fleira.
„Nefndin telur mikilvægt að
það komi fram hvort hér liggi til
grundvallar kynbundið mat á
hæfni umsækjenda, þ.e. hvaða
þættir það eru í fari kvenna sem
að mati lögregluyfirvalda gerir
þær óhæfar til starfa hjá lögregl-
unni, fremur en unga, óreynda
karlmenn, eins og fram kemur í
fréttinni.
Með þessari íhlutun í málið vill
nefndin þó fyrst og fremst vekja
athygli á réttindum og skyldum
þeirra aðila sem hér eiga hlut að
máli, samkvæmt gildandi lögum,
og jafnframt hve mikilvægt það
er að opinberir aðilar þekki lögin
og fari eftir þeim,“ segir í frétta-
tilkynningu nefndarinnar.
í frétt Dágs sagði Erlingur
Pálmason, yfirlögregluþjónn, að
miklar breytingar hefðu orðið í
starfsliði lögreglunnar og margir
ungir og óreyndir menn komið til
starfa: „Á þeim grundvelli taldi
ég ekki mögulegt að ráða konur í
liðið að þessu sinni. En við vitum
að konur koma í lögregluna inn-
an tíðar ..." Hann sagði einnig
að það hefði verið samdóma álit
yfirlögregluþjóns og bæjarfógeta
að ráða ekki konur eins og staðan
væri í dag. Fimm konur sóttu um
starf hjá lögreglunni á Akureyri
að þessu sinni. HS
Þessi niðurstaða fæst eftir fund
með atvinnumálanefnd Akureyr-
ar í gærmorgun. Að undanförnu
hafa einnig farið fram viðræður
milli atvinnumálanefndar, bygg-
inganefndar skólans, væntan-
legra framleiðenda og hönnuða.
Miklar umræður hafa verið
vegna væntanlegra kaupa á stól-
um til VMA. íslenskum fram-
leiðendum var boðin þátttaka í
því að hanna stóla og önnur hús-
gögn fyrir skólann. Ekki voru
viðbrögð þeirra talin mikil og var
allt útlit fyrir að kaupa þyrfti
stóla erlendis frá.
Nú er málið komið á það stig
að gengið verður til samninga við
Kótó um frekari hönnun og vænt-
anlega smíði stólanna! Mun fyrir-
tækið fá eitt ár til að hanna og
útfæra áðurkomnar hugmyndir
að stól.
í þann áfanga sem tekinn
verður í notkun næst hjá VMA
Þrír,ráðnir
til Istess
Búið er að ráða í þrjár stöður
hjá fískifóðurverksmiðjunni
ístess á Akureyri. Einar
Sveinn Ólafsson, verksmiðju-
stjóri Fiskimjölsverksmiðju
Grundarfjarðar, hefur verið
ráðinn verksmiðjustjóri, en
um þá stöðu sóttu ríflega 30
manns.
Þá hefur Jón Árnason, fóður-
fræðingur og ráðunautur hjá
Búnaðarfélagi fslands, verið ráð-
inn forstöðumaður gæðaeftirlits,
auk þess sem hann mun hafa með
höndum leiðbeiningastarf fyrir
loðdýraræktendur. Ásgeir Bald-
ursson, verkstjóri hjá Iðnaðar-
deild SÍS, hefur verið ráðinn
vélgæslumaður. HS
Ofnasmiðja Norðurlands aftur norður:
Höfum fengið umtalsverð verkefni
segir Guðbjörn Garðarsson, framkvæmdastjóri
Ofnasmiðja Norðurlands er
nú flutt norður yfír heiðar að
nýju en fyrirtækið héfur haft
bækistöðvar í Reykjavík um
nokkurra ára skeið.
Haukur Adolfsson pípulagn-
ingameistari keypti ofnasmiðj-
una fyrir skömmu og flutti hana
til Akureyrar en samhliða rekur
Haukur pípulagningaþjónustu.
Ofnasmiðja Norðurlands er til
húsa að Frostagötu 3 og þar
standa nú yfir framkvæmdir við
stækkun húsnæðisins. Fyrstu
ofnarnir verða settir á markað-
inn í dag.
Að sögn Guðbjörns Garðars-
sonar framkvæmdastjóra hefur
fyrirtækið þegar fengið nokkur
umtalsverð verkefni, þótt það
hafi ekkert auglýst enn sem
komið er.
„Við munum einbeita okkur
að norðlenska markaðinum og
leggjum áherslu á að veita
skjóta og góða þjónustu. Ef sá
markaður reynist ekki nógu stór
munum við leita áfram suður á
bóginn. En ég vona að nienn
sjái hag sinn í því að skipta við
norðlenskt fyrirtæki frekar en
að leita lengra,“ sagði
Guðbjöm.
Fyrst í stað munu 5 manns
starfa’við frantleiðsluna. BB.