Dagur - 22.05.1986, Síða 2
2 - DAGUR - 22. maí 1986
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SI'MI: 24222
ÁSKRIFT KR. 420 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 40 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, BRAGI V. BERGMANN,
GESTUR E. JÓNASSON, GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi sími 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR (Húsavík),
KRISTJÁN G. ARNGRÍMSSON, KRISTJÁN KRISTJÁNSSON,
MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR,
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRIMANN FRlMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDlS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASÍMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
leiðari.______________________________
Konur hafa haft
eríndi sem erftði
Landssamband Framsóknarkvenna hefur á
undanförnum árum starfað ötullega að ýms-
um málum innan flokksins. Meðal annars
hefur Landssambandið haldið félagsmála-
námskeið víða um land til að efla konur og
styrkja þær til pólitískrar þátttöku. Eitt slíkt
námskeið var haldið hér á Akureyri og var
það vel sótt. Konur hafa vakið á sér mikla
athygli innan flokksins, þær hafa starfað vel
og gefið kost á sér til ábyrgðarstarfa.
A landsþingi síðastliðið haust var sam-
þykkt ályktun þess efnis að kona skyldi vera
í fyrsta eða öðru sæti á framboðslistum
Framsóknarflokksins í komandi sveitar-
stjórnarkosningum og jafnrétti kynjanna
haft í huga við uppröðun í önnur sæti, svo
og í ráðum og nefndum á vegum flokksins.
Við uppröðun á listum flokksins til kom-
andi sveitarstjórnakosninga kemur í ljós að
þær hafa haft erindi sem erfiði. Fáir flokkar
geta í dag státað af jafnmörgum konum í
öruggum sætum á listum sínum. Framsókn-
arkonur skipa nú fyrsta sæti á lista Fram-
sóknarflokksins á fimm stöðum á landinu. í
öðru sæti eru framsóknarkonur á tólf stöð-
um á landinu. 68 konur eru í fystu fimm sæt-
um framboðslista Framsóknarflokksins til
sveitarstjórnarkosninga nú í ár.
A lista framsóknarmanna á Akureyri
skipa konur annað, fjórða og sjötta sætið og
það sem meira er, við val á listann var við-
haft prófkjör. Þetta sýnir glögglega að fram-
sóknarmenn eru jafnréttissinnaðir og
treysta konum fyllilega til ábyrgðastarfa
fyrir flokkinn.
Framsóknarkonur á Akureyri vilja leggja
áherslu á að viðhorf karla og kvenna eru um
margt ólík, en nauðsynlegt er að bæði við-
horfin fái að njóta sín til þess að unnt sé að
byggja upp gott samfélag.
Þess vegna vilja Framsóknarkonur á
Akureyri hvetja konur til að taka afstöðu og
starfa meira á opinberum vettvangi. Innan
Framsóknarflokksins fær fólk að vinna eftir
eigin sannfæringu en er ekki keyrt eftir
harðri flokkslínu. í ljósi þessa er Framsókn-
arflokkurinn kjörinn vettvangur fyrir konur
sem hafna öfgum til hægri og vinstri, en
velja leiðir samvinnu, jafnréttis og félags-
hyggju.
-Viðtal dagsins.
Mynd: KGA.
„Er rekinn eins
og fýrirtæki“
- segir Kristján Jóhannsson sem er í stuttri heimsókn
og ætlar að syngja fyrir Norðlendinga
Hann var vörpulegur og hress
er hann gekk inn á ritstjórn
Dags á þriðjudaginn. Ekki hár
í loftinu, en brjóstkassamikill
og vöðvastæltur. Hann kemur
alltaf við til að heilsa upp á
fólkið er hann á leið um
bæinn. Enda er hann héðan og
heldur tryggð við sitt fólk,
þrátt fyrir að starfsvettvangur
hans sé úti í heimi. Nú hefur
hann verið að syngja 5 óperur
á 5 mánuðum. Aðallega heldur
hann sig í Bandaríkjunum og
þá helst í New York og Mill-
wakee. Ferðalög hafa líka ver-
ið á dagskrá og söng hann niðri
á Puerto Rico fyrir skömmu.
Auðvitað eru menn með það á
hreinu þegar talað er um að
hann hafi sungið hér og þar, að
þetta er Kristján Jóhannsson
óperusöngvari frá Akureyri.
Kristján er hvergi samnings-
bundinn og er því það sem kallað
er „free lance,“ sem þýðir að
hann er hvergi samningsbundinn
og getur tekið hvaða hlutverki
sem hann kýs sjálfur. „Það gefur
meira í aðra hönd og flestir sem
geta, vilja hafa það þannig. Það
er betra og skemmtilegra að geta
valið og hafnað, það gefur starf-
inu meira gildi,“ segir Kristján.
- Hvernig fara útlönd með
Þig?
„Mjög vel. Ég kann vel við mig
erlendis, þótt það sé alltaf gott að
koma heim. Enda kem ég eins oft
og mögulegt er. Nú er ég að flytja
lögheimili mitt frá Italíu til
Bandaríkjanna. Ég og unnusta
mín hún Sigurjóna Sverrisdóttir
leikkona erum að kaupa okkur
íbúð í New Jersey, sem er rétt
fyrir utan miðborg New York.
Það er rétt handan við Hudson-
fljótið og stutt að fara í vinnuna.
Auk þess vil ég hafa grænt gras
og náttúru í kringum mig og það
er möguleiki á slíku utan við New
York.“
- Er ekki íbúðaverð geysihátt
á þessum stað?
„Ekki svo mjög. Það er svipað
og á Reykjavíkursvæðinu."
- Þýðir þetta að þú sért að
verða útlendingur?
„Nei, nei. Auðvitað er ég alltaf
íslendingur. En starfið krefst
þess að ég sé erlendis, svo það
verður að taka því.“
- Hvert er erindið heim að
þessu sinni?
„Ég á 10 daga frí núna og kom
heim til að sjá fólkið mitt og
byrja æfingar á Tosca í Þjóð-
leikhúsinu. Það á að sýna það í
haust.“
- Nú dvelur þú aðeins 10 daga
á íslandi í þessari ferð. Er það
nægjanlegur tími fyrir æfingar á
heilli óperu?
„Ég kem nú aftur,“ segir
Kristján og hlær sínum alkunna.
Ég kann mitt hlutverk nokkuð
vel, því ég hef sungið það 55
sinnum í óperu að undanförnu,
auk hljómsveitaruppfærslu hér
heima í Háskólabíói. Ég skal
segja þér sögu. Það hafa orðið
svo miklar breytingar á uppfærsl-
um á Tosca og þá sérstaklega á
leiktjöldum og búningum í sam-
bandi við sýningar á óperunni.
Ég var að skoða myndir frá fyrri
uppfærslum á Tosca í Þjóð-
leikhúsinu. Myndirnar voru eins
og um gamanóperu hafi verið að
ræða, en Tosca er hádramatískt
verk. Það var því engu líkara en
búningurinn sem Guðrún A.
Símonar var í, hafi átt að vera
grímubúningur, því hún var eins
og stór útgáfa af ameríska fánan-
um, eða eins og stór randafluga,
svo skrautlegir voru búningarn-
ir.“ Nú hlær Kristján aftur sínum
hressa hlátri.
- Hvað tekur við er þú ferð
aftur til Bandaríkjanna?
„Fljótlega fer ég að æfa í La
Bohema. Sú sýning verður í
Loncoln Center, New York City
óperunni. Það er mikilvægasta
sýning fyrir mig í langan tíma,
því ég hef ekki áður sungið þar.
Það er mikiö og gott tækifæri sem
verður að nýta vel. Á næsta ári
verður svo sýning á Tosca á sama
stað og þar á ég líka að syngja,
svo það er margt framundan. Það
er skemmtilegt við þessar sýning-
ar og reyndar sýninguna í Þjóð-
leikhúsinu, að þetta eru mínar
uppáhaldsóperur. “
- Eru ekki góð laun hjá mönn-
um sem syngja í svo þekktum
húsum sem Loncoln Center?
„Launin eru góð, en kostnað-
urinn er líka mjög mikill. Ég eyði
geysilegum peningum í hótel og
uppihald. Það þarf líka að borga
umboðsmönnum, það þarf að
borga fyrir prentun, telex, og
fleira sem er mjög dýrt. Ég er því
rekinn eins og fyrirtæki. En ég er
vonandi arðbært fyrirtæki," segir
hann og hlær nú enn hærra en
áður. Hress alltaf hann Kristján.
- Fylgja mikil ferðalög starf-
inu?
„Geysilega mikil. Núna er
unnusta mín með mér á ferðum
og er gott að hafa hana hjá sér.
Hún er mín stoð og stytta í þessu
öllu.“
- Ætlarðu að syngja fyrir okk-
ur Norðlendinga í þessari stuttu
heimsókn?
„Til þess kom ég nú. Ég ætla
að halda tónleika í íþrótta-
skemmunni á laugardaginn kem-
ur klukkan 21,00. Ég ætla að
syngja nýjar og gamlar lummur,
íslenskar og erlendar. Það verða
tveir undirleikarar á tónleikun-
um, þeir Barbacini, sem leikur
með í erlenda prógramminu og
Kristinn Örn Kristinsson sem
leikur með í íslensku lögunum.
Auk þess söng ég fyrir fólk á Elli-
heimilinu Hlíð í gær og vonast til
þess að geta sungið á sjúkrahús-
inu líka. “
- Má búast við plötu frá þér
fljótlega?
„Það er aldrei að vita hvað ger-
ist í þeim efnum,“ segir hann og
brosir.
- Nú syngur þú sömu hlutverk
og stórstjörnur á borð við Dom-
ingo og Pavarotti. Stendurðu í
skugganum?
„Það kemur að því að ég tek
þeirra sess, því þetta eru ekki
ungir menn lengur, báðir komnir
vel á sextugsaldur. Hins vegar
eru þetta menn sem ég læri mest
af.“
- Eru tónleikar þínir og sýn-
ingar vel sóttar?
„Mjög vel. Það er komíð að
því að óperuáhugafólk erlendis
er farið að leita að nýrri stjörnu í
stað þeirra eldri. Það yrði gaman
að verða fyrir valinu,“ segir hinn
hressi Kristján Jóhannsson og var
rokinn á æfingu fyrir tónleikana á
laugardaginn. gej-
T
TT