Dagur - 22.05.1986, Page 5
22. maí 1986 - DAGUR - 5
Jesendahornið-
Myndlistarfélag er
starfandi á Akureyri
Það er bjart yfir þeim þætti
bankastarfsins sem að myndlist
snýr, og vel heppnuðu starfi
þeirra tveggja banka sem hafa
kynnt akureyrska myndlist í
afgreiðslusölum sínum.
Annað er það, að þegar aug-
lýsing Alþýðubanka kemur,
dregur bliku á loft. Ekki er þó við
starfsfólk bankans að sakast, þar
er allt til stökustu fyrirmyndar
eins og fyrr getur. Nei - menn-
ingarmistökin eru Menningar-
samtaka Norðurlands.
í upphafi hvers sýningartíma-
bils er listamaðurinn kynntur eins
og vera ber, en inn í fréttatil-
kynninguna er laumað eftirfar-
andi klausu: „Þar sem ekkert
myndlistarfélag er starfandi á
Akureyri hafa Menningarsamtök
Norðlendinga haft umsjón með
þessum listkynningum, og hefur
Valgarður Stefánsson verið full-
trúi samtakanna í þessu samstarfi
frá upphafi."
Líklega hefur menningarfull-
trúinn endurtekið þetta svo oft,
að hann er farinn að trúa því
sjálfur.
Nú vita allir sem vilja, að
Myndhópurinn er ekki nýtt fyrir-
bæri, heldur eins og listrýnir
Dags, Ragnar Lár. skrifaði eitt
sinn: „.. hefur unnið sér fastan
sess í bæjarlífinu." Árvissar sýn-
ingar hafa ýmist verið innan
félags, með heiðursgestum, eða
að hluta til, minningarsýningar
um látna akureyrska listamenn.
Ef menningarfulltrúinn telur
menntun þessa fólks ónæga til
þess að um alvöru myndlistarfélag
geti verið að ræða, þá er hann
vonandi einn um þá skoðun.
Skólun félaganna er auðvitað
misjöfn, en allt að margra ára
námi hérlendis og erlendis. Hitt
ætti „menningarfulltrúinn“ að
viðurkenna, að sjálfmenntað fólk
skilar einnig oft ágætu verki.
Að lokum þetta. Ef ég hefði
umboð, væri fulltrúa Menningar-
samtakanna hér og nú, boðið
sem heiðursgesti til næstu sýning-
ar Myndhópsins, í þeirri von að
hann gæti viðurkennt að
„...myndlistarfélag er starfandi á
Akureyri...“.
Myndhópsfélagi.
Vantar gangstétt
Mér leikur forvitni á að vita,
hvort ekki er áformað að setja
gangstétt leiðina við Þingvalla-
stræti sem liggur upp á Pálmholt.
Hvorugu megin akvegar er
hægt að ganga, nema þá helst á
góðum fjallgönguskóm, og neyð-
ast því gangandi vegfarendur til
að nota götuna. Þau eru orðin
þrjú árin sem ég hef farið þessa
leið, svo til daglega, og finnst
kominn tími til úrbóta. Það má
- við Þingvallastræti að Pálmholti
bæta því við svona í leiðinni að
sjálfur vegurinn innan girðingar
barnaheimilisins er ekki til neinn-
ar fyrirmyndar, sér í lagi í bleytu.
Ég vil líka benda á það að í
Skógarlundi sunnan Þingvalla-
strætis verður gangandi vegfar-
andi að hringla yfir götuna sitt á
hvað til að geta notað gangstétt.
Þetta skapar slysahættu, því
þarna er mikil umferð og hröð.
Kylfingar
Norðurlandí
Bílaleigan Örninn og Flugleiðir bjóða til 36 hola golf-
keppni laugardag og sunnudag 24. og 25. maí og
hefst mótið kl. 8.30 f.h. á laugardag.
Leiknar verða 36 holur með forgjöf.
Skráningu lýkur föstudaginn 23. maí kl. 21.
Golfklúbbur Akureyrar.
Ég vænti svars frá þeim for-
ráðamönnum bæjarfélagsins sem
hafa 'með þessi mál að gera.
Ein á venjulegum skóm.
Svar:
Stefán Stefánsson bæjarverk-
fræðingur sagði að ekki væri
fyrirhugað að setja gangstétt á
þessari leið í ár. Hins vegar væri
verið að ganga frá framkvæmd-
um við Pálmholt og yrði þá vænt-
anlega gengið frá leiðinni heim
að húsinu. „Það liggur fyrir að
gera gangstétt á þessari leið, lík-
lega á næsta ári. Ég á von á að úr
þessu rætist fljótlega,“ sagði
Stefán.
Stír
iiijólk
1 t-ÍTRI
SÚT-
mjólk
Hollur og góður
morgunmatur
Mjólkursamlag
Framhaldsaðaifundur
íþróttafélagsins Þórs
verður haldinn þann 28. maíkl. 19.45 í Þórsherberg-
inu í íþróttahúsi Glerárskóla.
Félagar fjölmennið. Stjórnin.
_ _____ . ■ . .. .
hr- /\
| SHARPVISOM j'ÆTÆSÍ] T j ° * lO'-CD tm ) * 16
Iðnaðarhöllin Yarmahlíð
I Varmahlíð í Skagafirði er risið hús er nefnist Iðnaðarhöllin. Þar kennir
margra grasa svo sem Bifreiða- og vélaverkstæðið Naust hf., þar er gert við
allar gerðir bíla og búvéla, bæði fljótt og vel, smíðaðar innréttingar í fjós og
önnur útihús, gróðurhús, handrið á svalir og stiga, og raunar allt sem nöfnum
tjáir að nefna.
í Iðnaðarhöllinni er vísir að'verslun, þar fást allar þær búvélar sem bændur
þurfa á að halda og fluttar eru inn af Boða hf. í Hafnarfirði: Silva rafmagns-
girðingarefnið frá Boða er 1. flokks og á ótrúlega lágu verði, votheysturnar
með fullkomin losunarbúnað, ódýr LEWIS ávinnsluherfi vbr. 4.20 m kr.
14.350, frábæru JÖLA áburðardreyfararnir sem taka 650 kg á kr. 29.875,
SITREX stjörnumúgavél vbr. 3.10 m, lyftutengd. kr. 50.275, bindigarn 400
m í kg 142 kr. pr./kg, og margt fleira.
Þar fást einnig gæða graskögglar frá Fóður og fræ í Gunnarsholti á kr. 12.900
pr./t, rafgeymar í öll farartæki og síðast en ekki síst ódýrustu dekkin undir
alla bíla og búvélar.
Verðsýnishorn: 155x13 á kr. 1.880
700x16 á kr. 5.938 Komið og reynið viðskiptin,
traktorsdekk 11x28 á kr. 16.406 það borgar sig.
Virðingarfyllst
IÐNAÐARHÖLLIN Sími 95-6004. Axel Gíslason.
BIFREIÐA- OG VÉLAVERKSTÆÐIÐ NAUST HF.
Sími 95-6003. Böðvar Finnbogason, Pétur Víglundsson,
Víglundur R. Pétursson.
Vkto - Video
video m/þráðfjarstýringu
kr. 36.980- staðgreitt
v^eo m^jarst> kr- 36.980-
\JUlQ3t\ir staðgreitt
JVC video m/fjarstýringu kr. 44.980-
JVC
staðgreitt
video Hi Fi. Stereo m/fjarst.
kr. 65.940- staðgreitt
Einnig gott úrval af sjónvörpum
verð frá kr. 31.330. Staðgreitt 20“
SÍMI
(96)21400
»J».» * >.**»• * 9 *
ttlft *»