Dagur - 22.05.1986, Side 9
22. maí 1986- DAGUR -9
—íþróttic.
Umsjón: Kristján Kristjánsson
fslandsmótið 1. deild:
Þórsarar lágu í Laugardal
Það voru fegnir Framarar en
að sama skapi vonsviknir Þórs-
arar, sem gengu til búnings-
klefa eftir að Fram hafði sigrað
Þór 2-1 á Valbjarnarvelli í
Laugardal í gærkvöld. Eftir
jafnan og skemmtilegan fyrri
hálfleik var staðan 2-1 Fram í
vil og þrátt fyrir að Þórsarar
„ættu“ allan síðari hálfleikinn,
tókst þeim ekki að skora mark,
þótt oft hafí munað mjóu.
Framarar hófu leikinn og spil-
uðu gegn strekkingsvindi, en það
voru Þórsarar sem náðu sér mun
betur á strik í byrjun. Á 7. mín-
Þórsurum gekk illa að fínna leiðina
.mýmörg tækifæri.
Frammarkið í gærkvöld þrátt fyrir
útu gaf Kristján Kristjánsson
stórgóða stungusendingu inn fyr-
ir vörn Fram á Bjarna Svein-
björnsson en Friðrik markvörður
Fram náði að bjarga með góðu
úthlaupi. Þremur mínútum
seinna átti svo Siguróli þrumu-
skot rétt yfir mark Fram. Á 15.
mínútu skapaðist mikil hætta við
mark Fram þegar boltinn rúllaði
fyrir markið á markteig án þess
að nokkur Þórsari næði að stýra
honum yfir marklínuna.
Á 19. mínútu skapaðist loks
hætta hinum megin en Baldvin
varði vel skot frá Pétri Ormslev.
Tveimur mínútum síðar skor-
uðu svo Framarar gegn gangi
leiksins og var þar að verki Guð-
mundur Steinsson, sem skoraði
úr þvögu eftir hornspyrnu, óverj-
andi fyrir Baldvin markvörð.
Á 29. mínútu jafnaði Fllynur
Birgisson fyrir Þór eftir hræðileg
varnarmistök Framara. Hann
„stal“ knettinum af varnar-
mönnunum og skoraði örugglega
fram hjá Friðrik markverði.
Tveimur mínútum síðar náðu
Framarar forystu að nýju með
stórglæsilegu marki Guðmundar
Torfasonar beint úr aukaspyrnu
rétt utan vítateigs Þórsara.
Óverjandi skot í slána og inn.
Á 43. mínútu, markamínút-
unni, átti Þór tvö dauðafæri í
sömu sókninni. Fyrst varði
Friðrik frá Bjarna og síðan átti
Halldór Áskelsson skot rétt
framhjá.
Þórsarar byrjuðu leikinn með
miklum látum og strax á 2. mín-
útu komst Bjarni einn inn fyrir en
Fririk varði gott skot hans. Á 6.
mínútu átti Hlynur skot að marki
Fram en aðeins of hátt. Pétur
Ormslev svaraði með sams konar
skoti á 20. mínútu eftir skyndi-
sókn Fram. Á 24. mínútu átti
Halldór Áskelsson þrumuskot í
samskeyti Frammarksins eftir
góða sendingu frá Bjarna. Síðan
rak hvert færið annað. Þórsurum
tókst ekki að skora þótt þeir
kæmust 3 á móti 2 Frömurum inn
í vítateiginn og Halldór átti gott
skot rétt fram hjá eftir mikinn
einleik skömmu síðar. Á ioka-
mínútu leiksins átti Siguróli
þrumuskot að marki Fram sem
Fririk varði meistaralega. Og
Framarar fögnuðu sigri.
Bestir í liði Þórs voru þeir
Baldur Guðnason, Siguróli Krist-
jánsson og Hlynur Birgisson.
Langbestur Framara var Friðrik
Friðriksson markvörður og má
segja að hann hafi bjargað
stigunum fyrir lið sitt. Dómari
leiksins var Magnús Theodórsson
og stóð hann sig heldur slælega.
AE/Reykjavík.
Björn Arnason:
„Betra liðið tapaði“
„Þór var tvímælalaust betra
liöið í þessum leik og þess
vegna var sérstaklega sárt aö
tapa þessum leik,“ sagði Björn
Dags-mótió í kraft-
lyftingum á laugardag
Torfi Ólafsson mætir til leiks
Dags-mótið í kraftlyftingum
fer fram á laugardaginn kemur
í Sjallanum og hefst kl. 13. Að
þessu sinni fer Akureyrarmót-
ið í kraftiyftingum fram sam-
hliða Dags-mótinu. Keppt
verður í 6 flokkum karla og 1.
einum flokki kvenna.
Keppendur á verða þessir:
Kvennaflokkur:
60 kg flokkur
Kristjana ívarsdóttir
Karlaflokkar:
60 kg flokkur Aðalsteinn Kjartansson
75 kg flokkur
Kári Elíson
Jónas Helgason
Pálmi Bragson
82,5 kg flokkur
Þorvaldur Vestmann
Gunnar Magnússon
Knattspyrna:
Ungir
KA-menn
- æfingar að hefjast
Æfingar hjá yngstu knattspyrnu-
mönnum KA hefjast á mánudag-
inn kemur og fara fram við
Lundarskóla.
6. flokkur mætir kl. 9,30 en 7.
flokkur kl. 13,30. Þjálfari er eng-
inn annar en Tryggvi Gunnarsson
markaskorari úr meistarflokks-
liði KA. Er nú um að gera fyrir
unga knattspurnumenn í KA að
fara nú að æfa undir stjórn
Tryggva.
Ingi Jóhann Valsson
90 kg flokkur
Pétur Broddason
Öm Traustason
Sigurður Gestsson
100 kg flokkur
Flosi Jónsson
Friðbjörn Benidiktsson
125 kg flokkur
Víkingur Traustason
Plús 125 kg flokkur
Torfi Ólafsson
Keppt verður um hinn glæsilega
Dags-bikar en í fyrra hreppti
Kári Elíson gripinn. Að þessu
sinni koma þeir Kári, Víkingur
og Torfi til með að berjast um
bikarinn.
Torfi loðfíll ætlar að reyna við
íslandsmet í hnébeygju og rétt-
stöðulyftu og jafnvel Norður-
landamet sem er 378 kg í rétt-
stöðulyftu. Torfi á íslandsmetið í
þeirri grein sem er 370 kg. Flosi
gullsmiður gælir við 700 kg í
samanlögðu sem er íslandsmet.
Kári Elíson er ekki í toppformi,
er orðin keppnisþreyttur en mun
reyna að halda Dags-bikarnum.
Víkingur Traustason er í sókn.
Mun hann taka 215 kg í bekk-
pressu? Lætur Víkingur Torfa
fara með Dags-bikarinn suður?
íslandsmeistarinn í vaxtar-
rækt, Sigurður Gestsson verður
að öllum líkindum með. Hvernig
tekst honum til? Aðalsteinn
Kjartansson íslandsmeistari
unglinga ætlar að reyna við
íslandsmet. Að auki munu
nokkrir ungir og upprennandi
kraftlyftingamenn lyfta á sínu
fyrsta móti.
Eins og áður sagði fer mótið
fram í Sjallanum og verður
örugglega um skemmtilega
keppni að ræða sem gaman verð-
ur að fylgjast með.
Staðan
Staðan í 1. deild íslandsmóts-
ins í knattspyrnu að loknum
tveimur umferðum er þessi:
Víðir-KR 0:0
ÍBV-ÍA 0:3
Valur-UBK 0:1
FH-ÍBK 2:1
Fram-Þór 2:1
FH 2 2-0-0 5:2 6
UBK 2 2-0-0 2:0 6
KR 2 1-1-0 4:0 4
ÍA 2 1-1-0 3:0 4
Fram 2 1-1-0 2:1 4
Þór 2 1-0-1 3:3 3
Víðir 2 0-1-1 1:3 1
ÍBK 2 0-0-2 1:3 0
Valur 2 0-0-2 1:3 0
ÍBV 2 0-0-2 0:7 0
Markahæstir:
Valgeir Barðason, ÍA 3
Björn Rafnsson, KR 2
Hlynur Birgisson, Þór 2
Ingi B. Albertsson, FH 2
1 Jón Þ. Jónsson , UBK 2
J
Árnason þjálfari Þórs eftir
leikinn.
„Framarar áttu tvö raunveru-
leg tækifæri og þau gáfu bæði
mörk. Ef Framarar ætla sér stóra
hluti á Islandsmótinu í sumar
verða þeir að spila betur en þeir
gerðu í kvöld,“ sagði Björn.
Hann sagði að þrátt fyrir tapið
hefðu strákarnir sýnt góðan leik
og góða baráttu og þeir ættu
örugglega eftir að gera betur
enda væri sumarið rétt að byrja.
AE/Reykjavík.
Fyrsta alvöru
golfmótið
- að Jaðri
Fyrsta alvöru golfmót sumars-
ins að Jaðri fer frani laugar-
daginn 24. maí og hefst kl. 8,30
og því líkur á sunnudag. Bíla-
leigan Örninn og Flugleiðir
halda mótið sem 36 holu mót
með fullri forgjöf.
Mótið er opið fyrir alla kylf-
inga á Norðurlandi. Þetta er opn-
unnarmót og verður spilað á
sumargrínum og sumarteigum.
Skráningu í mótið líkur föstudag-
inn 23. maí kl. 21 og hún fer fram
í golfskálanum að Jaðri.
„Er með mjög
fámennan hóp“
- segir Óskar Ingimundarson þjálfari Leifturs
Knattspyrnulið Leifturs á
Ólafsfírði féll í 3. deild á síð-
asta ári eftir aðeins eins árs
veru í 2. deild. Nýr þjálfari er
tekinn við liðinu og er það
Óskar Ingimundarson sem
þjálfaði á Fárskrúðsfírði í
fyrra og mun hann einnig
leika með liðinu. Óskar hefur
spilað áður bæði með KR og
KA og var jafnan hættulegur
upp við mark andstæðingana
og skoraði mikið af mörkum.
Ég náði tali af Óskari og
spurði hann hvernig tímabiiið
legðist í hann.
„Það leggst svona þokkalega
í mig. Þetta verður örugglega
mikil barátta. Ég hef mjög
fámennan hóp að spila úr og
einnig er um miklar breytingar
á mannskapnum svo það getur
brugðið til beggja vona hjá okk-
ur í suntar. Ég veit varla hvort
raunhæft er að stefna á sæti í 2.
deild en 1.-3. sætið væri vel við-
unandi. Það má þó lítiö út af
bera hvað varðar meiðsli og
leikbönn hjá okkur, ef það
skeður er lítil von.
í vorleikjunum hjá okkur
hafa aðeins 4 af fastamönnum
liösins frá því í fyrra verið með,
hinir eru farnir.“
- Nú spilið þið fyrsta leikinn
í deildinni á laugardaginn og á
heimavelli, gegn Reyni Árskóg-
strönd, ertu bjartsýnn á sigur í
þeim leik?
„Ég veit ekki hvað skal segja.
Við lékum við Reyni um pásk-
ana og þá fór jafntefli. Þetta
verður örugglega hörkuleikur.
Reynismenn unnu 4. deildina í
fyrra og lið sem það gerir hlýtur
að vera sterkt.
En það er alveg ljóst að ef við
ætlum upp verðum við að vinna
að minnsta kosti 90-95 % af
heintaleikjunum," sagði Óskar
að lokum.
Oskar Ingimundarson þjálfarí
Leifturs. Mynd: KK