Dagur - 22.05.1986, Síða 11
22. maí 1986 - DAGUR - 11
Níræður:
Guðmundur Jónatansson
frá Litla-Hamri
Góðir tónlistar-
gestir á ferð
Hinn víðkunni danski kórstjóri,
organisti og píanisti Steen Lind-
holm heldur tónleika í Akureyr-
arkirkju í dag fimmtudaginn 22.
maí ásamt Kammersveit Kaup-
mannahafnar. Auk Steen Lind-
holm skipa hljómsveitina Hans
Gammeltoft Hansen flautuleik-
ari, Gert Herzberg óbóleikari,
Wladyslaw Marchwinsky fiðlu-
Leikari og Birthe Holst Christen-
sen sellóleikari.
Mörgu kórfólki er minnisstætt
frábært kórnámskeið haustið
1985 á Akureyri á vegum Lands-
sambands Blandaðra Kóra, en
þar hreif einmitt Steen Lindholm
þátttakendur með einstakri leið-
sögn og lifandi framkomu.
A efnisskránni í Akureyrar-
kirkju kl. 20.30 í kvöld verður
tónlist eftir Telemann, Bach,
Quantz og Hurnik.
Aðgöngumiðasala fer fram við
innganginn.
Hérna á dögunum sá ég í gamalli
afmælisdagabók að Guðmundur
Jónatansson væri að verða níræð-
ur, og af því tilefni langar mig til
að rifja upp í fáeinum orðum
gömul kynni við góðan mann,
sem ég á meira að þakka en flest-
um öðrum vandalausum.
Guðmundur er fæddur á Upp-
sölum á Staðarbyggð 23. maí
1896, sonur hjónanna Jónatans
Guðmundssonar frá Klauf og
Rósu Jónsdóttur frá Illugastöð-
um í Fnjóskadal. Fjölskyldan
fluttist að Litla-Hamri aldamóta-
árið, og þar ólst Guðmundur
upp, elstur fimm systkina. Árið
1927 kvæntist Guðmundur og átti ‘
Þóru Daníelsdóttur frá Sellandi í
Fnjóskadal. Þau bjuggu á hálfri
jörðinni Litla-Hamri til 1962,
lengst af á móti Tryggva bróður
Guðmundar, sem þar er enn.
Það var sumarið 1940, þegar
Bretar höfðu hernumið landið,
vopnaðir byssum og súkkulaði,
að móðir mín kom mér ellefu ára
gömlum til sumardvalar á Litla-
Hamri hjá þeim Guðmundi og
Þóru. Sumrin mín á Litla-Hamri
urðu sjö, þroskaskeið frá kúa-
smala til kaupamanns. Þarna leið
mér vel við leiki og störf á heimili
þar sem umhyggja var borin fyrir
öllu því sem lifandi var, jurtum,
dýrum og mannfólki.
Undir bæjarklöppinni hafði
Guðmundur ungur komið upp
fögrum blóma- og trjágarði, þar
sem við krakkarnir borðuðum
stundum brauðið okkar á góð-
viðriskvöldum og kölluðum það
brauðbarnahátíð. Sjálfsána birki-
kvisti, sem hætta var á að fénaður
grandaði, skar Guðmundur úr
jörðu og plantaði innan girðing-
ar, svo að þeir mættu ná þroska.
Við skepnur sínar gerði Guð-
mundur vel, og það kunnu þær
vel að meta; ég heyri enn fyrir
mér kýrnar drynja vingjarnlega
þegar hann kom í fjós á kvöldin,
og sé fyrir mér hersinguna sem
fylgdi honum oft þegar hann var
að bera mjólkurdunkana til
brunns á kvöldin, hund, kött og
heimalning í einni halarófu.
Guðmundi féll sjaldan verk úr
hendi, og á kvöldin og á sunnu-
dögum var hann oft úti við að
lagfæra eitthvað, en við almenna
útivinnu var aldrei verið lengur
en frá morgunmjöltum og fram
til kvöldmjalta - með löngu hléi
um hádegið, þegar fullorðna
fólkið hallaði sér og við krakk-
arnir lékum okkur eða litum í
bók.
Á sunnudögum var alls ekki ver-
ið við heyskap nema ef fyrir kom
að bjarga þyrfti flötu heyi í rign-
ingarútliti. Þóra húsfreyja gerði
líka vel við fólk sitt í mat og
þjónustu. „Hann á ekki illt,
drengurinn sem er hjá henni
Þóru, étur hálfmána í massavís,"
varð rosknum aðkomumanni að
orði, sem sá hvað mér hafði verið
fært á engjar með seinniparts-
mjólkinni.
Kaupsamningar okkar Guð-
mundar fóru fram nokkuð sér-
stöku móti. Um kaup var aldrei
samið fyrr en á haustin í slátur-
tíðinni. Þá kom Guðmundur
heim til mín á Akureyri og lét
mig setja upp kaup fyrir sumarið,
ég gerði það, og Guðmundur
nefndi aðra tölu hærri. Síðan
hófst samningaþóf, sem einlægt
lyktaði með því að Guðmundur
greiddi mér drjúgum meira en ég
hafði sett upp.
Árin mín á Litla-Hamri voru
að mestu fyrir daga tæknibylting-
ar í landbúnaði, þó að smám
saman fjölgaði heyvinnutækjum
sem hestar drógu og dráttarvél
væri komin undir lokin. Túnið
var stórt á þeirrar tíðar mæli-
kvarða og að heita mátti allt
véltækt, en engi þurfti að miklu
leyti að slá með orfi og ljá, sumt
þýft og sumt blautt - flæðiengjar
með kúgæfu, grasi, stör og fer-
gini. Þar var skemmtilegra að slá,
og gekk jafnvel ögn undan heldur
lélegum sláttumanni, en hjakkið
í móunum bætti Guðmundur upp
með elskulegu viðmóti, gaman-
málum, sögum og fróðleik.
Guðmundur á Litla-Hamri
naut ekki skólagöngu fremur en
þorri jafnaldra hans, en hann las
kynstrin öll og var vel að sér um
marga hluti, ekki síst náttúru-
fræði, sögu og bókmennir. Frá
unga aldri hafði hann tekið þátt í
starfi ungmennafélags og lestrar-
félags, og um nær fjögurra ára-
tuga skeið var hann bókavörður
Lestrarfélags Munkaþverársókn-
ar, varðveitti bækur þess og miðl-
aði félagsmönnum eftir áhuga-
málum og smekk hvers og eins,
sem hann þekkti. I hreppsnefnd
Öngulstaðahrepps átti hann sæti í
mörg ár.
Guðmundur var duglegur
bóndi, en hann gerði sér ljóst að
búnaðarframkvæmdir voru ekki
nema hluti þeirrar bænda-
menningar sem hafði verið líftaug
þjóðarinnar um aldir. Sjálfur er
Guðmundur verðugur fulltrúi
þeirrar menningar, hagmæltur,
fróður, hugsandi og traustur.
Árið 1962 brugðu þau Guð-
mundur og Þóra búi á Litla-
Hamri og fluttust ásamt dætrum
sínum, Aðalbjörgu og Rósu, til
Akureyrar. Hjónin voru þá tekin
að lýjast, en Guðmundur vann
þó næsta áratuginn á Skinnaverk-
smiðjunni Iðunni þangað til sjón-
in fór að bila. Þóru konu sína
missti Guðmundur 1974, en sjálf-
ur unir hann enn í góðu skjóli
dætra sinna á Byggðavegi 101 E.
Þrátt fyrir háan aldur er Guð-
mundur ern, og þó að sjóninni
hafi hrakað sýslar hann við lestur
og skriftir. Síðasta áratuginn hef-
ur hann miðlað Þjóðminjasafni
íslands kynstrum af fróðleik um
gamlar venjur og vinnubrögð,
enda er minnið trútt og hugsunin
skýr. Ofurlítið hefur einnig birst
eftir Guðmund á prenti, m.a.
fróðleg og greinargóð ritgerð um
Lestrarfélag Munkaþverársóknar
í Súlum 1983.
Hafðu þökk, Guðmundur fyrir
iðju þína alla og fóstur forðum.
Megi hamingjan vera þér hliðholl
nýjan áratug.
Stefán Karlsson.
Horft til
framtíðar
A sunnudaginn (25. maí) ætlum við
ungir framsóknarmenn að beina
diski mót góðu gervitungli
og ná nokkrum erlendum
sjónvarpsrásum á skjá.
Þetta ætlum við að gera milli kl.
15 og 21 í húsakynnum
Framsóknar, Eiðsvallagötu 6.
Auðvitað ert
þú velkomin(n)!
Ungir frammarar.
Framtíðarstarf
Okkur vantar góöan og glaölegan starfskraft í
fatadeild.
Vinnutími frá 13.00-18.00.
Upplýsingar veittar frá kl. 10.00-12.00 fimmtudag
og föstudag. Ekki í síma.
HAGKAUP
Norðurgötu 62
Óskum að ráða konu
til starfa í kjötvinnslu, viö afgreiðslu og þrif, frá 1.
júní nk.
Lágmarksaldur 20 ára. Vinnutími 13.00-18.30.
Upplýsingar hjá verslunarstjóra, ekki í síma.
MATVÖRU
MARKADURINN
Kaupangi.
Matreiðslumaður
Óskum aö ráöa matreiöslumann sem fyrst.
Uppl. í síma 61405.
Sæluhúsið Dalvík.
Ráðskonu vantar
sem fyrst til aö elda fyrir vegavinnuflokk í ca. fjóra
mánuði. Uppl. í síma 22462 eftir kl. 17 á daginn.
SECURITAS
AKUREYRI sf.
TJARNARLUNDUR 19 G
BOX 662
NAFNNR. 7483-7239
602 AKUREYRI
Starfsmaður óskast
í öryggisgæslu, ekki yngri en 25 ára.
Upplýsingar í síma 26261 milli kl. 5 og 7 dagana
22. og 23. maí.
L fc fcfc i