Dagur - 22.05.1986, Side 12
★ Töflumælar
volt-amper-rið-KW mælar
með og án varna
-o-
-5-
STRAUMRASSF
ÞJÓNUSTA MEÐ LOFT- HÁÞRÝSTI- 06 RAFMAGNSVÖRUR
Furuvöllum 1 • 600 Akureyri • Sími 96-26988
Mývatn:
Flugvél
á bakiö
Um klukkan 3 í gærdag varð
það óhapp á flugvellinum við
Reynihlíð í Mývatnssveit að
flugvél af gerðinni Cessna
Skyhawk, sem er í eigu flugfé-
lagsins Mýflugs h/f í Mývatns-
sveit fauk á hvolf.
Enginn var í vélinni er óhappið
varð, en ráðgert var að fljúga
henni til Húsavíkur seinna um
daginn til kennslu. Ekki er
endanlega vitað hversu illa vélin
er leikinn eftir vindinn, en hún
mun vera mikið skemmd og jafn-
vel ónýt. gej-
Allt gler
er ónýtt
- í gamla Iðn-
skólahúsinu
„Ætli megi ekki telja þetta
eðlilegt viðhald á húsinu og
venjulega fæst ekki nema 10
ára trygging á gleri,“ sagði
Agúst Berg húsameistari
Akureyrarbæjar. Nýlega bauð
Akureyrarbær út viðgerð á
gluggum gamla Iðnskólans,
en þar hefur borið á því að gler
í gluggum vilji springa óeðli-
lega mikið.
Glerið sem sett var upphaflega
í húsið er sænskt og er mál marg-
ra að það hafi í upphafi verið of
þunnt og þess vegna hafi það
sprungið meira en eðlilegt mætti
teljast. „Það sem gerði, var að
menn fengu ekki fullnægjandi
leiðbeiningar með glerinu þegar
það var sett í húsið. Var það sett
í kítti og þótti betra eftir því sem
það var þéttara. Fyrir vikið varð
glerið of fast í körmunum og
hafði ekki þann sveigjanleika
sem nauðsynlegur er með stórar
rúður. Með tímanum harðnaði
kíttið mjög og byrjuðu rúðurnar
að springa hver af annarri,"
sagði Ágúst.
„Frá því húsið var tekið í notk-
un hefur verið nokkuð um að
rúður springju og brotnuðu og
var skipt um jafn óðum. Síðan
var tekin ákvörðun um að skipta
alveg um gler og koma þessu í
nútímalegt horf,“ sagði Ágúst.
Ekki sagðist hann geta gefið upp
kostnað við verkið en hann væri
töluverður. gej-
Það er gott að hafann heima í garði, ef bíllinn bilar. Mynd: gej-
Nýjung á Akureyri:
Kynning á gervi-
hnattaemi
Nokkrir aðilar hafa nú þegar
fengið leyfl til að setja upp
skerma til að taka á móti
erlendu sjónvarpsefni sem sent
er um gervihnött. A sunnudag-
inn gefst Akureyringum kostur
á að sjá sýnishorn af dagskrá
eins slíks.
Félag ungra framsóknarmanna
á Akureyri og nágrenni,
FUFAN, stendur þá fyrir kynn-
ingu á útsendingum frá gervi-
hnettinum „Eutelesat“ sem býð-
ur upp á fjölbreytt efni frá ýms-
um þjóðum á mörgum rásum.
Meðal dagskrárliða „Eutelesat“
má nefna hinn vinsæla tónlistar-
þátt Music-box, sem eflaust
margir kannast við, en hann er
ekki ósvipaður „Skonrokkinu"
sáluga.
„Tilgangurinn með þessari
kynningu er að gefa ungu fólki og
öðrum sem áhuga kunna að hafa
kost á því að kynnast þeim mögu-
leikum sem bjóðast með tilkomu
útsendinga um gervihnött,“ sagði
Magnús Orri Haraldsson, einn
aðstandenda kynningarinnar í
samtali við Dag.
Kynningin hefst klukkan 15 á
sunnudaginn í Eiðsvallagötu 6 og
stendur til klukkan 9 um kvöldið.
Boðið verður upp á kaffi og með-
læti á staðnum gegn vægu gjaldi
en aðgangur er ókeypis. Ekki er
að efa að margan fýsir að kynnast
þessari hlið fjölmiðlabyltingar-
innar. BB.
Svæöisútvarpiö:
B og D á
mánudag
Vegna bæjarstjórnarfundar sem
verður þriðjudaginn 27. maí, hef-
ur verið ákveðið að breyta
útsendingu á kynningu framboðs-
lista til bæjarstjórnarkosninga á
Akureyri í Svæðisútvarpinu.
Áætlað var að kynna B og D lista
þann dag, en ekkert verður af því
vegna bæjarstjórnarfundarins. í
stað þess verða B og D listar
kynntir mánudaginn 26. maí
klukkan 17,30. 28. maí verða G,
A og M listar kynntir á sama
tíma.
Má afhenda stefnu hverjum
sem er í fjölbýlishúsi?
„Mér finnst þetta vera
einkamál fólks og því ætti ekki
að vera hægt að biðja hvern
sem er að taka við svona skjali
fyrir mann,“ sagði kona sem
hafði samband við Dag vegna
óánægju með hvernig staðið var
að birtingu stefnu í máli gegn
henni.
Konan sagði að þar sem eng-
inn hefði verið heima hjá henni
þegar komið var með stefnuna
nema 10 ára drengur þá hefði
stefnan verið afhent alls óskyld-
um manni í annari íbúð, en kon-
an býr í fjölbýlishúsi. Þá sagði
konan að stefnuvottur hefði ver-
ið einn á ferð en að sér skildist
að þeir yrðu alltaf að vera tveir.
Þegar ummæli konunnar voru bor-
in undir Frey Ófeigsson héraðs-
dómara sagði hann það rétt að
stefnuvottar ættu að vera tveir en
hins vegar væri það ekki rétt að
það þyrfti að afheoda stefnda
sjálfum stefnuna. „Það má
afhenda stefnuna einhverjum sem
fyrirfinnst í húsinu ef að viðkom-
andi býðst þá ekki eindregið und-
an því, það hefur að minnsta
kosti verið „praktiserað“ þannig.
Það er náttúrlega spurning hvað
átt er við í lögunum, hvað heimili
manns er víðtækt en alla tíð hef-
ur þetta verið svona.“ Sá sem
tekur við stefnu þarf ekki að
kvitta fvrir viðtöku en stefnuvott-
arnir votta það að viðkomandi
hafi lofað að reyna að koma
stefnunni til skila. Freyr sagði að
stefnuvottarnir væru tveir en þeir
hefðu það þannig að annar þeirra
sæti úti í bíl og fylgdist með að
hinn færi og afhenti stefnuna.
Þá hlýtur sú spurning að vakna
hvernig í ósköpunum maður sem
situr úti í bíl veit hvað er að ger-
ast einhvers staðar inni í stiga-
gangi í fjölbýlishúsi? Þá benti
Freyr á að í svokölluðu „Þing-
vallastrætismáli" hefði Hæstirétt-
ur staðfest að birtingin hefði ver-
ið lögleg þótt annar stefnuvottur-
inn hefði setið út í bíl.
„Þingvallastrætismálið“ er þó
varla samanburðarhæft við það
sem hér er fjallað um þar sem sá
sem sat í bílnum í því tilfelli gat
séð það sem fram fór. Þetta vek-
ur því upp spurningu um hvort
ekki sé þörf lagfæringa í þessum
efnum eða að tekin verði upp þau
vinnubrögð sem lög gera ráð fyrir
þ.e. að stefnuvottar lesi stefn-
una fyrir stefnda. Það orkar alla-
vega tvímælis hvort hægt eigi að
vera að afhenda slíkt plagg nán-
ast hverjum sem vera skal og
einnig er það vafasamt hvort telja
skuli heila blokk heimili manns,
eða einungis íbúðina sem við-
komandi býr í. G.Kr.
Vorsyning Myndlista-
skólans um helgina
Vorsýning Myndlistaskólans á
Akureyri verður opnuð í
Iþróttaskemmunni klukkan
tvö eftir hádegi laugardaginn
24. maí. Á sýningunni verða
sýnd verk nemenda hinna
ýmsu deilda skólans.
StaTfsemi Myndlistaskólans er
einkum tvíþætt. Annars vegar
eru það sídegis- og kvöldnám-
skeið fyrir börn og fullorðna í
hinum ýmsu greinum sjónmennta
og hins vegar fullgildur dagskóli
þ.e. fornámsdeild, sem er fyrsta
ár reglulegs listnáms og málunar-
deild, sem er þriggja ára sérnám.
Til að hefja nám í fornámsdeild
þurfa umsækjendur að standast
inntökupróf sem haldið er fyrstu
viku júnímánaðar ár hvert. Rétt
til inngöngu í málunardeild hafa
þeir sem lokið hafa námi í for-
námsdeild, forskóla Myndlista-
og handíðaskóla íslands eða
stúdentsprófi af myndlistarbraut.
Nemendur Myndlistaskólans á
Akureyri voru rúmlega tvö
hundruð á hvorri önn í vetur og
kennarar ellefu. Aðalkennari í
málunardeild var Nini Tang,
hollenskur myndlistarmaður.
Skólastjóri er Helgi Vilberg.
Vorsýningin verður opin laug-
ardag 24. maí kl. 14-18 og sunnu-
dag kl. 14-22.
Nemendur Myndlistaskólans unnu við uppsetningu sýningarinnar í gær.
Mynd: KGA