Dagur - 29.05.1986, Page 1
69. árgangur Akureyri, fimmtudagur 29. maí 1986 98. tölublað
• Stúdentastjörnur • Stúdentaskeiðar
• Stúdentarósir • Stúdentarammar
14k gull
Verð kr. 1250 með festi
Stúdentagjafir í miklu úrvali
GULLSMIÐIR '
SIGTRYGGUR & PÉTUR
AKUREYRI
Akureyrarbær:
Greiðir
flutnings-
kostnað
Kennarar með full kennslu-
réttindi sem ráðnir verða að
grunnskólum Akureyrar næsta
vetur og búa nú utan Akureyr-
ar munu fá greiddan flutnings-
styrk úr bæjarsjóði í haust.
Þetta var samþykkt á fundi
bæjarstjórnar á þriðjudag.
Svo sem skýrt var frá í Degi,
sóttu 7 kennarar sem eru að út-
skrifast úr Kennaraháskóla
íslands um kennarastöður í Gler-
árskóla með þeim skilyrðum að
þeir fengju flutningskostnað
greiddan. Jafnframt vildu þeir að
Akureyrarbær útvegaði þeim
húsnæði á hagstæðum kjörum.
Akveðið var að styrkupphæðin
verði 12 þúsund krónur ef um er
að ræða flutning innan Norður-
lands, en 20 þúsund krónur
vegna flutnings frá öðrum
landshlutum. Jafnframt var sam-
þykkt að Akureyrarbær aðstoði
við húsnæðisöflun með því að
auglýsa nú þegar eftir leiguhús-
næði, sem síðan verði framleigt
kennurum sem koma að grunn-
skólum bæjarins.
Við afgreiðslu málsins kom
fram að það sé hálfgert neyðar-
brauð að fara þessa leið því í
raun sé bæjarfélagið að bæta
kennurum upp þau lágu laun sem
þeir hafa hjá ríkinu. Ríkið eigi að
sjá um þann hluta. Hins vegar
verði að grípa til þessara ráðstaf-
ana til þess að laða kennara með
kennsluréttindi til bæjarins. BB.
Hæ, ekki skilja mig eftir hérna!
Mynd: KGA.
Utankjörstaðaatkvæöagreiösla:
Minna kosið
en oft áður
Samkvæmt upplýsingum frá
þeim sem starfa við utankjör-
staðakosningu virðist sem
mun minni kosning ætli að
verða utan kjörstaða nú en oft
áður. Talið er að þetta stafi
aðallega af því að nú er kosið
seinna á árinu en oft áður og
skólafólk því flest komið til
síns heima.
Klukkan átta á þriðjudags-
kvöld höfðu aðeins 2265 manns
kosið utan kjörstaða í Reykja-
vík, og um miðjan dag í gær ekki
nema 374 á Akureyri en þess skal
þó getið að tölur um kosningar á
elliheimilinu og sjúkrahúsinu á
Akureyri eru ekki inni í þessari
tölu.
Til gamans látum við fylgja
upplýsingar um skiptingu utan-
kjörstaðaatkvæða frá Reykjavík,
á milli nokkurra staða á Norður-
landi.
Atkvæði greidd í Reykjavík
vegna bæjarstjórnarkosninga á
Akureyri voru á þriðjudagskvöld
aðeins orðin 59, á Dalvík 4,
Húsavík 28, Ólafsfirði 15
Hvammstanga 4, Blönduósi 9, og
Skagaströnd 17. G.Kr.
Allir
í skoðun
Nk. mánudag eiga allir bif-
reiðaeigendur á Ákureyri að
hafa fært bifreiðar sínar til
skoðunar.
Að sögn lögreglunnar á Akur-
eyri er nokkur misbrestur á því
að menn hafi komið með bifreið-
ar sínar í skoðun og hafa þessir
menn fengið aðvörun undanfarna
daga. Eftir helgina hyggst lög-
reglan síðan fara að taka á mál-
unum af meiri hörku og mega
eigendur óskoðaðra bifreiða þá
eiga von á því að þeir verði
stöðvaðir og númerin klippt af.
gk--
Reikningar Flóabátsins Drangs:
Oendurskoðaðir sl. 2 ár
„Ég tel að við séum samstíga
Siglfirðingum í þessu máli. Eg
hef setið 2 síðustu aðalfundi
félagsins og í bæði skiptin hafa
reikningar verið lagðir fram,
án þess að vera uppáskrifaðir
eða yfirfarnir af endur-
skoðendum, svo hvorki ég né
fulltrúi Siglfirðinga samþykkti
þá,“ sagði Valtýr Sigurbjarnar-
son bæjarstjóri í Ólafsfirði, er
hann var spurður um afstöðu
Valið er auðvelt
að
tryggja Kolbrúnu sæti
- í bæjarstjórn Akureyrar, segir Sigurður Jóhannesson forseti bæjarstjórnar
„Skoðanakönnun Dags gefur
góða vísbendingu um það að
Alþýðuflokkurinn sé öruggur
með annað sæti Kvennafram-
boðsins. Baráttan um hitt sæt-
ið er á milli Kolbrúnar sem er í
fjórða sæti á lista okkar fram-
sóknarmanna, Heimis á G-lista
og Tómasar á D-lista. Val
kjósenda er um það hvern
þessara frambjóðenda þeir
vilja fá inn í bæjarstjórn Akur-
eyrar,“ sagði Sigurður Jóhann-
esson, forseti bæjarstjórnar og
fyrsti maður á B-lista í viðtali
við Dag.
„Miðað við þetta ætti að vera
auðvelt að velja Famsóknar-
flokkinn í kosningunum. Hann
hefur haft forystu í bæjarmálum
Akureyrar undanfarin kjörtíma-
bil, sem hafa verið mesti upp-
gangstími í bænum þegar til
lengri tíma er litið, og farist það
vel úr hendi. Prátt fyrir erfið-
leikatímabil í landinu almennt
hefur Framsóknarflokkurinn átt
þátt í að skjóta fleiri og fjöl-
breyttari stoðum undir atvinnu-
lífið í bænum og af þessum sök-
um einnig ætti valið að vera auð-
velt.
Hins vegar verður það að segj-
ast um minnihluta Sjálfstæðis-
flokks og Alþýðuflokks að þeir
hafa engar tillögur lagt fram sjálf-
ir í atvinnumálum á síðasta kjör-
tímabili en stutt allar tillögur
meirihlutans þar um og staðið að
öllum samþyícktum atvinnumála-
nefndar undir forystu framsókn-
armanna til stuðnings auknu
Sigurður Jóhannesson.
atvinnulífi í bænum. Núna telja
þeir sig hafa efni á að segja að
ekkert hafi verið gert, en töfra-
lausnir þeirra sjálfra bíði á næsta
götuhorni. Lausnir þeirra í at-
vinnumálum hafa þó hvergi séð
dagsins ljós og munu ekki gera
það, enda trúa bæjarbúar þeim
ekki. Það ætti því að vera auðvelt
val að kjósa þá ekki.
Varðandi Alþýðubandalagið
er það að segja að þeir eru á kafi
í landsmálapólitíkinni, auk þess
sem alheimskommúnisminn
blandast inn í málin og engu lík-
ara en Karl Marx sé í framboði á
bæjarstjórnarlista þeirra á Akur-
eyri. Valið ætti því að vera auð-
velt - að tryggja Kolbrúnu Þor-
móðsdóttur sæti í bæjarstjórn
Akureyrar," sagði Sigurður
Jóhannesson að lokum. HS
Ólafsfirðinga til sölu á hluta-
bréfum bæjarins í Flóabátnum
Drangi h/f.
Eins og fram hefur komið í
blaðinu áður liggur fyrir tilboð
frá Finnboga Kjeld í Reykjavík
um kaup á hlutabréfum fyrir-
tækisins og bíður Finnbogi hlut-
höfum upphæð sem nemur 10%
af nafnverði hlutabréfanna.
Á aðalfundi s.l. haust voru
reikningar lagðir fram óendur-
skoðaðir og létu fulltrúar Ólafs-
fjarðar og Siglufjarðar bóka að
reikningar væru samþykktir með
þeim fyrirvara að innan 2 mán-
aða yrðu þeir komnir endur-
skoðaðir og uppáskrifaðir í hend-
ur hluthafa, „en þeir eru ekki
komnir enn. Eftir þetta hafa bæði
við og Siglfirðingar óskað eftir að
fá reikningana, en ekkert gerist.
Því má ekki gleyma að þarna er
ég að tala um aðalfund sem var
haldinn í fyrrasumar og reikninga
ársins 1984. En reikninga ársins
1985 höfum við ekki séð. Þess
vegna þykir okkur að reikningar
ársins 1985 eigi að liggja fyrir áður
en farið er fram á þessa sölu
hlutabréfanna. Menn geta ekki
áttað sig á því hvort einhver
verðmæti eru þarna á ferðinni,
fyrst reikningar eru ekki til,“
sagði Valtýr.
Bæjarráð Ólafsfjarðar
afgreiddi bréf um sölu hlutabréf-
anna á þann hátt, að ekkert væri
hægt að fjalla um málið, fyrr en
svör hefðu borist við áður fram-
komnum spurningum varðandi
reksturinn. „Þess vegna er ekki
hægt að taka afstöðu til málsins
eins og það er fyrir lagt," sagði
Valtýr Sigurbjarnarson. gej-