Dagur - 29.05.1986, Qupperneq 3
Hvítasunnusöfnuður-
inn á Akureyri:
50 ára
A
a
morgun
Þann 30. maí 1936 var Hvíta-
sunnusöfnuðurinn á Akureyri
formlega stofnaður og heldur
því upp á 50 ára afmælið þann
30. maí nk.
Fyrstu forstöðumannshjónin
voru Milda og Sigmund Jacobsen
frá Noregi og gegndu því starfi til
ársins 1940. Þá tóku Gyða og
Níls Ramselíus frá Svíþjóð við
forstöðu safnaðarins. Árið 1946
tóku svo Hulda Sigurbjörnsdóttir
og Jóhann Pálsson við forstöðu-
mannsstarfinu og gegndu því til
ársins 1981 en þá tóku hjónin
Ester Jacobsen og Vörður L.
Traustason við forstöðu safnað-
arins og er svo enn í dag.
Stofnendur safnaðarins voru
11 og eru 6 þeirra enn á lífi.
Búsettir á Akureyri og í söfnuð-
inum eru þrír stofnendur hans,
þær eru: Vigdís og Guðrún Jón-
asdætur og Hólmfríður Guð-
mundsdóttir.
Jóhanna Ögmundsdóttir,
búsett í Njarðvík, Milda Jac-
obsen, búsett í Noregi (er nú
gestkomandi hér á Akureyri) og
Sigríður Freysteinsdóttir eru
einnig stofnendur safnaðarins.
Fyrstu árin var söfnuðurinn til
húsa í Verslunarmannafélagshús-
inu, sem nú er horfið, en það
stóð við Gránufélagsgötu sunnan
Ráðhússins. Árið 1951 keypti svo
söfnuðurinn sitt fyrsta safnaðar-
hús, Fíladelfíu Lundargötu 12.
Árið 1980 fékk söfnuðurinn
lóð á mótum Undirhlíðar og
Skarðshlíðar (vestan við Vega-
nesti). Byggingarframkvæmdir
hófust svo árið eftir og var byrjað
á leikskóla og hluta af fyrirhug-
aðri kirkju. 20. des. 1985 flutti
svo söfnuðurinn í nýja húsnæðið
við Skarðshlíð og heitir það
Hvítasunnukirkjan. Byggingu
leikskólans er enn ekki lokið, en
vonast er til að henni ljúki á
næsta ári og mun þá söfnuðurinn
reka leikskólann í samráði við
Akureyrarbæ. Innritun barnanna
mun fara fram hjá Félagsmála-
stofnun.
Alls hafa meðlimir safnaðarins
orðið 150 en margir hafa flust
búferlum og nokkrir hafa kvatt
þetta líf. í dag telur söfnuðurinn
um 60 meðlimi.
Hátíðarsamkomur verða 30.
og 31. maí og 1. og 2. júní nk. og
hefjast kl. 20.00. Ræðumaður
ásamt fleiri gestum verður Garð-
ar Ragnarsson en hann er for-
stöðumaður Hvítasunnusafnað-
arins í Odense í Danmörku. Mik-
ill og fjölbreyttur söngur verður
og æskulýðskór Fíladelfíu í
Reykjavík mun syngja á sam-
komunum. Samkomur halda svo
áfram hvert kvöld frá 3. t.o.m. 8.
júní og hefjast kl. 20.00.
Allir eru hjartanlega velkomn-
ir á samkomurnar.
29. maí 1986 - DAGUR - 3
Kjörbúðir
Fátt er eins þægilegt og
að versla í lítilli búð
Þú færð persónulegri þjónustu
en í þeim stóru
l
Auk þess minnum við á samvinnusöluboð næstu daga
Kjörbúðir