Dagur - 29.05.1986, Síða 8
8 — DAGUR - 29, maí 1986
Kosningabaráttan hefur
einkennst af málefna-
fátækt andstæðinganna
- sagði Úlfhildur Rögnvaldsdóttir bæjarfulitrúi Framsóknarflokksins
„Það sem mér finnst hafa ein-
kennt þessa kosningabaráttu
er málefnafátækt andstæðinga
okkar framsóknarmanna. Þeir
hafa dregið upp allt of dökka
mynd af atvinnuástandinu í
bænum til þess eins að koma
höggi á okkur. Þetta er auðvit-
að ákafiega broslegt, einkum í
Ijósi þess að þeir sjálfstæðis-
og alþýðuflokksmenn hafa
ekki fiutt eina einustu tillögu
um nýjar leiðir í atvinnumál-
um. Eins og margoft hefur
komið fram þá hafa 90% allra
mála sem bæjarstjórn hefur af-
greitt verið samþykkt sam-
hljóða,“ sagði Úlfhildur Rögn-
valdsdóttir bæjarfulltrúi Fram-
sóknarflokksins.
„Málflutningur andstæðinga
okkar er með ólíkindum, þeir
tala um að samdráttur hafi verið í
atvinnulífinu, en staðreyndin er
sú að þrátt fyrir fækkun starfa í
byggingariðnaði er enginn bygg-
ingariðnaðarmaður á atvinnu-
leysisskrá og störfum hefur fjöjg-
að í bænum á kjörtímabilinu.
Mér þætti fróðlegt að heyra
Gunnar Ragnars forstjóra Slipp-
stöðvarinnar tengja uppsagnir
starfsmanna sinna í Slippstöðinni
við aðgeröir meirihluta bæjar-
stjórnar. Á undanförnum árum
hefur starfsmönnum stöðvarinn-
ar verið sagt upp störfum, þótt
þær hafi ekki komið til fram-
kvæmda hafa þær vissulega kom-
ið róti á fólk og margir hafa flutt
úr bænum vegna þessa. Menn
geta svo velt því fyrir sér hvaða
tilgangi þessar uppsagnir hafi átt
að þjóna. Getur verið að þær hafi
átt að koma óorði á bæjarfélagið
út á við?“
Nýtt stjórnskipulag -
mikill ávinningur
- Hvað með samskipti ykkar
bæjarfulltrúa við bæjarbúa, eru
þau nægileg?
„Þó að við séum ekki nema
tæplega 14 þúsund hér í bænum,
þá erum við með ótrúlega stirt og
flókið kerfi. Það getur tekið
ótrúlega langan tíma að koma
málum í gegnum það. Nýlega
hafa verið gerðar breytingar á
stjórnskipulagi bæjarins sem
verður til þess að auðvelda og
flýta fyrir gangi mála. Þetta tel ég
vera mjög mikinn ávinning.
Bæjarfulltrúar hafa verið með
viðtalstíma hálfsmánaðarlega tvo
tíma í senn og hefur fólki gefist
kostur á að koma málum sínum á
Afríkuhlaupið:
Hið svo kallaða Afríkuhlaup
fór fram kl. 15 á sunnudag.
Hlaupið var á sama tíma út um
allan heim og var þátttakan
víðast hvar mjög góð. Hlaup
þetta sem á ensku var kallað
Sport-Aid var eins og nafnið
bendir til tengt uppákomum
þeim sem tónlistarmaðurinn
Bob Geldoff liefur staðið fyrir
síðastliðið eitt og hálft ár til
styrktar baráttunni gegn hung-
urvofunni í Afríku.
Á Akureyri var hlaupið úr
göngugötunni og hófst með því
að hljómsveitin Rokkbandið spil-
aði í hálftíma fyrir þá rúmlega
2000 þátttakendur sem talið er að
hafi verið mættir í göngugötuna á
sunnudag. Var gerður góður
rómur að leik þeirra Rokk-
bandsmanna.
Mjög góð þátt-
taka á Akurevri