Dagur


Dagur - 29.05.1986, Qupperneq 12

Dagur - 29.05.1986, Qupperneq 12
12 - DAGUR - 29. maí 1986 Auglýsing númer 2 Handfæragirni og krókar, pilkar og sökkur, festingarpollar og kefar, bátasink og neyðarblys. Fyrír sjómannadaginn: íslenski fáninn, flaggstangahúnar og flaggstangalínur. Opið laugardaga 9-12. Eyfjörö Hjalteynwgotu 4 simi 22275 Tilboð á herraskyrtum, stutt- og langerma. Verð frá kr. 390. Einnig herra velúr peysur á tilboðsverði Kr. 695. xB Húsavík xB Egill Olgeirsson 6. sæti B-listans „Auka þarf fjölbreytni í sjávarútvegi, sem er undirstöðugrein atvinnulífsins á Húsavík. “ af erlendum vettvangi.________ Tvö blóm í helvíti Tvíburasysturnar June og Jennifer hafa frá bernsku lifað í óhugnanlegri ein- angrun, sem engum hefur enn tekist að rjúfa. Þær voru ósköp venjulegir tvíburar, þegar þær fæddust í Aden í Suður-Jemen 11. apríl 1963. June Allison kom fyrst, Jennifer Lorraine tíu mínútum síðar. Móðirin, Gloria Gibbons, sem átti tvö börn fyrir, var yfir sig hamingjusöm að hafa tvöfaldað barnahópinn svona allt í einu! Og hamingja fjölskyldunnar var fullkomnuð, þegar fimmta barnið, Rosie, fæddist fjórum árum síðar. f>á hafði fjölskyldufaðirinn verið fluttur í starf á Norður-Eng- landi og fjölskyldan sest þar að. Allir dáðust að því, hve sam- rýmdar June og Jennifer voru. Þær gerðu allt sameiginlega, sátu, skriðu, sváfu eða grétu. Báðar reyndu þær að komast á sama móðurþrjóstið til að sjúga. Aðeins eitt olli foreldr- unum áhyggjum: A þriggja ára afmælisdeginum þeirra sögðu þær enn aðeins tveggja eða þriggja orða „setningar“. Fimm árum síðar stóð í einkunnabók þeirra: „Jennifer sýnir varla nein heyranleg viðbrögð, en hún er dugleg að skrifa. June er mjög hljóð og vill ekki tala. Báðar eru afar tilbaka haldnar." Foreldrar telpnanna höfðu þó enn sem komið var minni áhyggjur en gera hefði mátt ráð fyrir. Þau voru fædd á eynni Barbados (við Vestur- Indíur), og þar er sú trú að tví- burar séu alltaf mjög sérstakir. Ellefu ára gamlar töluðu syst- urnar enn aðeins hvor við aðra. Þær höfðu þróað með sér eigið tungumál, mjög hratt og með sérkennilega ýktum hljóðum. Þær sinntu því engu, þótt yrt væri á þær yfir matborðinu, í besta falli kinkuðu þær kolli stöku sinnum. Annars sátu þær þöglar og svipbrigðalausar við borðið án þess að líta upp. Auðvitað vöktu þessar hljóðu samlokur athygli í þorpsskólan- um. Börnin stríddu þeim, og skólastjórinn, Cyril Davis, skrifaði eitt sinn í minnisbók sína: „Út um gluggann fylgdist ég með tvíburunum, þar sem þeir gengu eins konar gæsagang með tíu metra millibili. Flreyf- ingar beggja voru nákvæmlega eins.“ Þegar skólalæknirinn Dr. Rees kom í skólann til að gera berklaprufu, brá honum illi- lega: „Inn á milli allra hvítu handieggjanna kom allt í einu einn brúnn. Ég leit upp, en kom ekki upp orði. Fyrir framan mig stóð lítil, brún telpa, sem starði tómum augum niður fyrir sig. Hún sýndi ekki minnstu við- brögð við sprautunni. Telpan var ekki eins og lík. Hún var eins og svefngengill. Það var óhugnanlegt að sjá hana þannig innan um hin börnin.“ Leitin að lausn gátunnar hófst. Sálfræðingurinn Dr. Jam- es Brown rannsakaði tvíburana. Þegar honum tókst ekki að fá þá til að segja aukatekið orð, taldi hann rétt að láta ganga úr skugga um, hvort um meðfædd- an tungurótargalla gæti verið að ræða, sem ylli erfiðleikum við að stjórna tungunni. Uppskurð- ur var reyndur, en breytti engu. Geðlæknirinn Dr. Evan Davies taldi mögulegt, að þetta væri sjaldgæft tilfelli af „sjálf- ráðri einangrun", sem þekkt er eftir tilfinningalegt áfall. Á meðan var hegðan telpn- anna sífellt óhugnanlegri. Þær hreyfðu sig helst ekki nema snúið væri við þeim baki. Ef þær krosslögðu fótleggina eða annað ámóta, gerðu þær það nákvæmlega eins og á sama augnabliki, eins og spegilmynd hvor af annarri. Virtist þá engu skipta, þótt þær sneru baki hvor í aðra! June var örlitlu opnari en systir hennar. Hún tautaði stöku sinnum „já“ eða „takk“, ef yrt var á hana. En þá var Jennifer fljót að stöðva hana. Án orða, án þess að líta til hennar. í herberginu sínu byggðu systurnar sér eigin töfraheim. Heim, þar sem tvíburar voru ráðandi. Þar voru deilur, átök, slysfarir og dauðsföll daglegir viðburðir. Við móður sína töl- uðu telpurnar með pappírsmið- um, sem þær stungu undir hurð- ina. „Ekki trufla“ stóð á sumum. Eða þá: „Láttu matinn ekki við dyrnar fyrr en kl. 4. J. og J.“ Og rétt eins og Bronté syst- urnar, sem á síðustu öld skrif- uðu um sinn eigin ímyndunar- heim í eyðilegri sveit á Eng- landi, leituðu June og Jennifer á vit hugmyndaflugsins. Þær keyptu sér tvær ritvélar, og 12. janúar 1980 hóf June rit- un hinnar átakanlegu táninga- sögu „Pepsi-Cola sjúklingur- inn“, sem síðan var gefin út hjá New Horizon forlaginu. Jennif- er samdi skáldsöguna „Hnefa- leikarinn", sem enn hefur ekki komið út. Söguhetjan fæðist með hjartagalla og fær grætt í sig hjarta úr hundi. Blaðakonan Marjorie Wall- ace, sem lýsir ævi systranna í bókinni „Þöglu tvíburarnir", fann í herbergi þeirra handrit í sekkjatali. Þau eru skrifuð með örsmárri, næstum ólæsilegri skrift. June og Jennifer hefur enn ekki tekist að brjótast út úr hinni lokuðu einkaveröld sinni til að lifa eðlilegu lífi. í örvænt- ingu hafa þær gripið til hinna ólíklegustu ráða. Þær hafa hald- ið svartar messur, drukkið vodka og sniffað lím. Jennifer skrifaði í dagbók sína: „í dag missti ég meydóminn marglof- aða til Carls Kennedy. Loksins! Það var býsna sárt. Við gerðum það í kirkjunni. Fyrirgefðu, Guð minn.“ Þegar þessi hliðarskref hættu að vera spennandi, fóru Jennif- er og June að brjótast inn í skóla og kveikja í verslunum. Hinn 10. nóvember 1981 voru þær teknar fastar og ári síðar lagðar inn um óákveðinn tíma til meðferðar á geðdeildinni í Broadmoor. Þar búa stúlkurnar enn þann dag í dag „viðkvæmar sem blóm í helvíti,“ eins og June skrifar á einum stað. Marjorie Wallace, sem heimsæk- ir þær reglulega, gat þó nýlega glaðst yfir einu örlitlu bata- skrefi: „June og Jennifer,“ sagði hún eftir eina heimsókn- ina, „eru núna komnar í sjúkra- hússkórinn.“

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.