Dagur - 29.05.1986, Side 13

Dagur - 29.05.1986, Side 13
29. maí 1986 - DAGUR - 13 Jþróttic Umsjón: Kristján Kristjánsson Árni Stefánsson leikmaður Þórs í knattspyrnu. „Munum selja 66 okkur dýrt segir Árni Stefánsson leikmaður Þórs sem leikur sinn 200. leik með Þór í Garðinum á iaugardag Þórsarar elga að leika gegn Víði í Garðinum á laugardag í 1. deildinni í knattspyrnu. Þórsarar töpuðu síðasta leik sínum í deildinni, gegn Fram á Laugardalsvelli fyrir skömmu. Leiknum gegn IBV sem fram átti að fara á Akur- eyri um síðustu helgi var frestað til 10. júní. Víðir frá Garði var eina liðið í 1. deildinni í fyrra sem náði stigi gegn Þór hér á Akureyri. Leiknum f Garðinum í fyrra lauk með 2:0 sigri Þórs í mikl- um rokieik og var það varnar- maðurinn sterki Árni Stefáns- son sem gerði bæði mörk Þórs. Árni leikur á laugardag sinn 200. leik með meistaraflokki Þórs. Við fengum hann í stutt spjail um leikinn gegn Víði. - Þá fyrst, hvernig leggst leikurinn f þig? „Þessi leikur leggst bara mjög vel í mig. Þetta er leikur sem við verðum að vinna. Ég geri mér þó fulla grein fyrir því að þeir verða erfíðir heim að sækja. í Víðisliðinu eru dugleg- ir strákar og miklir baráttujaxi- ar. En við munum ekki láta okkar eftir liggja og leika til sigurs.“ - Nú gerðir þú bæði mörk Þórs í leiknum í Garðinum í fyrra. Ætlarðu að skora á laug- ardaginn? „Auðvitað reynir maður að gera það. En svona innst inni á ég nú ekki von á því að mér tak- ist það, við sjáum til.“ - Varstu sáttur við úrslitin í leiknum gegn Fram um daginn? „Nei alls ekki við vorum miklar klaufar að tapa þeim leik. Við vorum betra liðið í leiknum en það eru mörkin sem gilda. Þeir gerðu tvö en við bara eitt þrátt fyrir að eiga fullt af dauðafærum. En það þýðirekki að gráta það við verðum bara að vinna næstu leiki og það ætl- um við okkur að gera. Þórsliðið kemur vel undirbúið til leiks að þessu sinni og við eigum alla möguleika á því að verða á toppnum f mótslok,“ sagði Árni Stefánsson. Þeir félagar Árni og Nói Björnsson fyrirliði eru lang leikjahæstu menn liðsins. Nói með rétt rúmlega 200 leiki og Árni að fara að leika sinn 200. leik á laugardag. Islandsmótiö í knattspyrnu 2. deild: KA og Völsungur leika á Akureyri - á morgun og Þróttur og KA í Reykjavík Á morgun fara fram tveir leikir í 2. deildinni í knattspyrnu. A Akureyri leika KA og Völs- ungur og í Reykjavík Þróttur og KS. Ekki er að efa að báðir þessir leikir verða miklir bar- áttuleikir en þetta eru liðin sem flestir spá að berjist um toppsætin í 2. deildinni, ásamt Selfyssingum og Víkingum. „Við verðum helst að vinna leikinn til að missa ekki af lest- inni. Okkur hefur gengið ágæt- lega og þetta á eftir að lagast. Við erum ákveðnir í því að vera í efri hluta deildarinnar og því dugir ekkert annað en sigur gegn Þrótti,“ sagði Hörður Júlíusson leikmaður KS í samtali við Dag. Hér á Akureyri verður örugg- lega um skemmtilega viðureign að ræða. Bæði KA og Völsungur hafa leikna og skemmtilega leik- menn í sínum röðum. Þá eru bæði lið með mikla marka- skorara. Völsungar með þá Jónas Hallgrímsson og Svavar Geir- finnsson. Svavar kom inná í síð- asta leik Völsungs og gerði þá tvö mörk. í KA-liðinu eru það Tryggvi Gunnarsson og Hinrik Þórhalls- son sem eru hvað marksæknastir. Steingrímur Birgisson hefur einnig verið iðinn við kolann en hann hefur átt við meiðsli að stríða að undanförnu og getur ekki leikið á morgun. Dagur fékk þá Jónas Hall- grímsson framherja Völsungs og Hinrik Þórhallsson framherja KA til að spá í leikinn. „Leikurinn leggst alveg ágæt- lega í mig. Við erum ákveðnir í því að ná jafntefli og fara heim með eitt stig. Við erum ekki komnir á fulla ferð ennþá, skóla- m' Hinrik Þórhallsson er bjartsýnn á sigur gegn Völsungi annað kvöld. strákarnir eru rétt komnir norður. Ég er samt viss um góðan árangur í sumar ef við náum að reita stig í fyrstu leikjunum, á meðan við erum að komast á fulla ferð,“ sagði Jónas Hall- grímsson. „Þessi leikur leggst bara vel í mig,“ sagði Hinrik Þórhallsson. „Ég reyni alltaf að vera bjartsýnn. Við megum náttúr- lega ekki spila eins og við gerðum í seinni hálfleiknum gegn KS. En með réttu hugarfari og og góðum leik eigum við að vinna Völsung- ana. Nú við erum á heimavelli og GA fær meira landsvæði Bæjarstjórn Akureyrar hefur samþykkt að verða við þeirri ósk Golfklúbbs Akureyrar að fá leyfí til að stækka svæði klúbbsins að Jaðri. Svæði þetta er 6,47 hektarar í suð- vestur við núverandi svæði. Dagur hafði samband við Árna Jónsson framkvæmdastjóra GA og spurði hann hvað klúbburinn hyggðist gera á þessa nýja svæði? „Við höfum hugsað okkur að stækka golfvöllinn, þ.e. setja fyrst og fremst upp æfingasvæði og æfingabrautir og í framtíðinni að stækka völlinn um 9 holur. Fjölgunin hefur orðið svo mikil í klúbbnum að það veitir ekkert af þessu nýja svæði,“ sagði Árni. Nýtt vallarsvæði á Dalvík: Stefnt að framkvæmdum í sumar Ungmennafélag Svarfdæla á Dalvík hefur fengið úthlutað svæði undir nýjan knatt- spyrnugrasvöll og æfíngaað- stöðu fyrir frjálsíþróttafólk í bænum. Til þessa hefur að- staða fyrir knattspyrnumenn verið frekar slæm og engin fyr- ir frjálsíþróttafólk. Mikill hugur er í forráðamönn- um íþróttamála á Dalvík um að ná samningum við bæjaryfirvöld og hefja framkvæmdir. Þegar hafa farið fram frumathuganir um stærð, gerð og kostnaðaráætl- un í samráði við íþróttafuiltrúa ríkisins. Það er stefnan hjá þeim mönn- um sem að þessu standa að hægt verði að ljúka við fyrsta áfangann í sumar, þ.e. ljúka allri undir- vinnu við knattspyrnuvöllinn og jafnvel að fullgera æfingasvæðið. Framkvæmdirnar yrðu fjár- magnaðar þannig að ríkið greiddi 40% og afgangurinn greiddur af heimamönnum. Bæjarstjórn hef- ur haft þá stefnu að styðja mynd- arlega við bakið á íþrótta- og fél- agasamtökum sem hafa hug á að byggja upp og bæta starfsaðstöðu sína. Mjög stór hluti af framlagi bæjarins í þessum fyrsta áfanga, yrði í formi efnis og véla- og tækjaleigu. Endanleg kostnaðar- ef við ætlum upp megum við ekki viö því aö tapa stigum á heima- velli," sagði Hinrik. Leikurinn hefst kl. 20 og fer fram á KA-vellinum við Lundar- skóla. Heyrst hefur að Völsungar mæti með öflugan stuðnings- mannahóp frá Húsavík. Það gæti því orðið góð stemning á áhorf- endapöllunum. Knattspyrnu- skóli Þórs - hefst á mánudag Innritun í knattspyrnuskóla Þórs fer fram mánudaginn 2. júní í Glerárskóla. Knattspyrnuskólinn er fyrir börn fædd á árunum '76-’80. Strax á þriðjudag verður sfðan byrjað á fullri ferð undir stjórn Jónasar Róbertssonar. Kennslan fer frarn á félagssvæði Þórs við Glerárskóla. Mjólkurbikarinn: KS sigraði Höfðstrending — 1:0 í fyrrakvöld Höfðstrendingur frá Hofsósi og KS léku í fyrrakvöld í 1. umferð Mjólkurbikarkeppn- innar. Leikurinn fór fram á Hofsósvelli og lauk með naum- um sigri KS 1:0. Það var Haf- þór Kolbeinsson sem skoraði mark KS. Lokatölurnar gefa ekki rétta mynd af gangi leiksins. KS-menn sóttu nær látlaust allan leikinn en það var fyrst og fremst stórleikur Árna Stefánssonar þjálfara og markvarðar Höfðstrendinga sem kom í veg fyrir stærri sigur Sigl- firðinga. KS-menn halda því áfram í keppninni en Hofsósingar eru úr leik. rr áætlun liggur ekki fyrir á þessu stigi, enda margt sem spilar þar inn í. Eins og áður sagði er aðstaða fyrir þessar íþróttir ekki góð. En það hefur sýnt sig að ef aðstaðan er góð þá kemur hitt á eftir. Fleira fólk fer að stunda viðkom- andi íþróttir og árangurinn verð- ur betri. Þar er árangur skíða- fólk.s og fjöldi skíðaiðkenda á Dalvík gott dæmi. J Hafþór Kolbeinsson skoradi mark KS gegn Höfðstrendingi.

x

Dagur

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.