Dagur - 29.05.1986, Blaðsíða 14

Dagur - 29.05.1986, Blaðsíða 14
1JI4 - DAÖCm -29. rhaf 1986 Til sölu Honda MT árgerð 1982. Uppl. í síma 24673 á kvöldin. Honda XL-500 R, Pro-link til sölu. Uppl. í síma 22534 á kvöldin og í hádeginu. Til sölu furueldhúsborð og sex stólar. Einnig (dökkt) símaborð. Upplýsingar í síma 24707 eða 23033. Karlmannsreiðhjól DBS fimm gíra til sölu. Uppl. í síma 24441. Til sölu Honda XL-500 R árg. '82 ekin 6500 km. Nýleg afturdekk, litur vel út. Gott hjól og góður afsláttur við stað- greiðslu. Uppl. í síma 22947 milli kl. 8 og 8.30 á kvöldin. Til sölu Kawasaki Z-750 árg. '82. Ekin 13 þúsund. Uppl. í vinnusima 23003 og heimasími 21689. Til sölu 4ra manna fellihýsi úr áli. Lítið notaö. Uppl. í síma 22843 eftir kl. 17. Til sölu borðstofuborð + stólar, skenkur, bókahillur, hjónarúm án dýna, skrifborð og svefnbekkur, frystiskápur og sófaborð. Uppl. í síma 22549. Tilboð óskast í Ford LTD Brougham. Ljósbrúnn. Nýupptek- in vél. Uppl. i síma 26956. Hesiar Hestur til sölu. 8 vetra klárhestur til sölu, ekki full- taminn. Uppl. í síma 22338. Takið eftir Ég er 4ra ára og mig og mömmu mína vantar 2ja-3ja herb. íbúð til leigu sem fyrst. Uppl. í síma 24126 á morgnana og eftir kl. 17.30. 3ja-4ra herb. íbúð óskast til leigu. Uppl. í síma 41470 og 41212. Helga og Vigfús. Húsnæði óskast. Raðhús eða einbýlishús óskast til leigu frá og með 15. júní nk. til skemmri eða lengri tíma. Þarf að vera staðsett á Brekkunni. Uppl. í síma 25230. Til leigu (eða sölu) ca. 80 fm verslunarhúsnæði. Gæti hentað fyrir skrifstofu eða þjónustustarf- semi. Húsnæðið er tilbúið til notk- unar með verslunarinnréttingum. Upþl. í síma 21718 eftir kl. 17 og um helgar. Vantar herbergi. Ungan og reglusaman pilt vantar herbergi upp úr mánaðamótum. Helst nálægt Menntaskólanum. Uppl. veitir Bernharð í síma 23336 á kvöldin. 4ra herb. ibúð í Kjalarsíðu, Glerárhverfi til leigu til eins árs. Tilboð ásamt upplýsingum um fjöl- skyldustærð o.þ.h. leggist inn á afgreiðslu Dags merkt: Stór íbúð. Jeppakerra til sölu, stærð 1,15 m x 2,30 m. Uppl. gefur Rúnar í síma 96-41432 á Húsavík. Ungan bónda í Eyjafirði vantar ráðskonu. Helst strax. Má hafa með sér barn. Uppl. í sima 31280. Síðastliðinn þriðjudag tapaðist stólpulla í flutningum norður frá Akureyri. Finnandi vinsamlega hringi í síma 26823. Óska eftir að kaupa vel með far- inn barnavagn. Uppl. í síma 25197. Óskum eftir að kaupa notaðar rafmagnsfæravindur. Uppl. í síma 26428 Óska eftir að kaupa svalavagn og burðarrúm á vægu verði. Á sama stað til sölu fataskápur úr gullálmi. Upplýsingar í síma 26061. Bátar fes Óska eftir að kaupa 4ra-6 tonna bát, með góðum tækjum. Góð útborgun. Uppl. eftir kl. 8 á kvöldin í síma 97-3350. Nýja bílasalan Sauðárkróki aug- lýsir: Mazda 929 '82 ekinn 37 þús. km, einn með öllu verð 330.000. Daihatsu Charmant '83 ekinn 32. þús. km verð 260.000 Datsun Bluebird '81 ekinn 50.000 km verð 215.000 Nýr Pajero jeppi stuttur, turbo, diesel. Vantar allar gerðir bíla á skrá, mjög mikil eftirspurn. Nýja Bílasalan Sauðármýri 1 Sauðárkróki sími: 95-5821. Jörð til sölu. Rauðaskriða 1 í S,- Þing. er til sölu. Uppl. gefa Ríkarð- ur í síma 96-43504 og Sigurður í síma 96-41690. Nýjar vörur. Smyrnapúðar og teppi, Ibisa bóm- ullargarn tískulitir 85 kr. dokkan, nýir litir í Opus bómullargarni. Nýj- ar prufur af dúkum. Nýtt dúka- prjónablað, nýjar eldhúsmyndir og fleiri myndir. Sólógarn 120 kr. DK. Ótal tegundir af heklugarni. Fullt af vörum. Verslun Kristbjargar Norðurbyggð 18. Heimasími 23799 opið frá kl. 1-6 og 10-12. Póstsendi. Starfskraftur óskast til landbún- aðarstarfa. Uppl. í síma 26964. Nökkvi félag siglingamanna óskar eftir starfsmanni til að sjá um unglingastarf félagsins í sumar. Siglingakunnátta ekkert skilyrði. Upplýsingar gefur Karl í síma 23143 milli kl. 19 og 20 alla daga. Blómasala Sel fjölærar plöntur um 140 teg- undir. Helga Jónsdóttir Guilbrekku II. Eyjafirði sími 31306. Blómabúðin ( Laufás auglýsir: Stúdentagjafirjj! stúdentablóm á Opið nk. laugardag frá 9-ló| sunnudag kl. 10-12. Blómabúðin Laufás Hafnarstræti 96, sími 24240. Sunnuhlíð, sími 26250. Laugalandsprestakall. Séra Hannes Örn Blandon umsækjandi um prestakallið mess- ar að Munkaþverá sunnudaginn 1. júní kl. 14. Sama dag í Kristnes- spitala kl. 15.30. Sunnudaginn 8. júní messar séra Hannes í Saurbæ kl. 11. Sama dag á Grund kl. 14. Sóknarprestur. Dalvíkurprestakall. Urðakirkja. Fermingarguðsþjónusta verður sunnudaginn 1. júní kl. 13.30. Fermingarbörn: Birkir Arnason, Ingvörum. Börkur Árnason, Ingvörum. Gauti Hallsson, Skáldalæk. Magnús Marinósson, Búrfelli. Valdimar Búi Hauksson, Skeiði. Sóknarprestur. Fundartímar AA-samtakanna á Akureyri. Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Föstudagur Föstudagur Laugardagur Laugardagur Laugardagur Sunnudagur kl. 21.00 kl. 21.00 kl. 12.00 kl. 21.00 kl. 12.00 kl. 21.00 kl. 24.00 kl. 14.00 kl. 16.00 kl. 24.00 kl. 10.30 Annar og síðasti fimmtudagsfund- ur í mánuði er opinn fundur svo og föstudagsfundur kl. 24.00. Ferðafélag Akureyrar Skipagötu 12 Sími 22720 Drangey á Skagfirði. Þar sem ekki viðraði til ferðar í Drangey sl. laugardag er ákveðið að fara íaug- ardaginn 31. maí. Lagt af stað kl. 9 að morgni og ekið til Sauðárkróks og siglt með bát þaðan. Komið heim um kl. 19-20. Tekið á móti pöntunum í þessa ferð á skrifstofu FFA að Skipagötu 12, sími 22720, föstudaginn 30. maí kl. 17.30-19. Fólk sem átti pantað far sl. laugar- dag er beðið að láta vita hvort það ætlar að fara þessa ferð. Fjöru- og fuglaskoðunarferð sem átti að vera Iaugardaginn 31. maí er frestað til laugardagsins 7. júní. Nánar auglýst í næstu viku. Nokkrar staðreyndir um byggingariðnað á Akureyri Mál byggingamanna hafa verið óvenju mikið til umræðu nú undanfarnar vikur og hafa þar ákveðnir aðilar talið að atvinna byggingamanna væri til þess að gera góð. Til dæmis taldi þriðji maður á lista Framsóknar, Ásgeir Arn- grímsson þetta tóman barlóm, hér væri kappnóg að gera hjá byggingamönnum. Á síðasta áratug var hér mjög öflugur byggingariðnaður og mikið byggt bæði af iðnaðar- og íbúðarhúsnæði. Það er ekki rétt, sem kemur fram í viðtali við Jón Sigurðarson í Degi nýlega, að hér hafi þá verið byggt langt umfram eftirspurn, staðreyndin er sú að það var byggt þetta mikið til að anna eftirspurn. Það var svo árið 1980 að íbúða- sala datt skyndilega niður í 30% af því sem hún hafði verið á undanförnum árum. Síðan hefur stöðugt sigið niður á við og sem dæmi má nefna að frá apríl 1980 og til dagsins í dag hafa 9 fyrir- tæki í byggingariðnaði hætt störfum. Þessi fyrirtæki voru með um 180 til 200 manns í vinnu. Samkvæmt þeim niðurstöðum er við höfum fengið úr þeim atvinnukönnunum sem við höf- um gert í samvinnu við Lands- samband iðnaðarmanna frá 1980 kemur í ljós að fækkun mannafla í byggingariðnaði frá 1980 til árs- loka 1985 er um 53% og það sem af er þessu ári hefur verið um fækkun að ræða. Sem dæmi má nefna að eitt fyrirtæki hér í bæ, sem var með á bilinu 50-60 manns í vinnu er nú með 25 manns og búið að segja þeim öll- um upp og þar af hættir um helm- ingur um næstu mánaðamót. Það sem hér kemur fram með mannafla er miðað við fasta starfsmenn á fyrsta og fjórða árs- fjórðungi ár hvert og er þá ótalinn allur sá fjöldi skólafólks, sem atvinnu hafði við byggingafram- kvæmdir yfir sumartímann, sem nánast þekkist ekki í dag. Akureyri, 27. maí 1986 Marinó Jónsson, framkvæmdastjóri. Meistarafélags byggingamanna Norðurlandi. 30 nýir leiðsögumenn Þrjátíu nýir leiðsögumenn voru útskrifaðir frá Leiðsögu- skóla Ferðamálaráðs þann 9. maí sl. og bætast þeir við þann 160 manna hóp í Félagi leið- sögumanna sem stundar leið- sögustörf hér á landi. Sl. sumar bar þó nokkuð á skorti á þjálf- uðum leiðsögumönnum og gekk svo langt að auglýsa varð eftir leiðsögumönnum I útvarpi og blöðum. Orsök leiðsögumannaskorts er tvíþætt, annars vegar varð mikil fjölgun á erlendum ferðamönn- um sem komu til landsins og hins vegar hurfu margir leiðsögumenn til annarra betur launaðra starfa. Nú þegar 30 nýliðar koma til starfa við leiðsögu má búast við að þeir fái nóg að gera í sumar, ef spár um enn frekari aukningu ferðamanna standast. Ibúð óskast Viljum taka á leigu tvær einstaklingsíbúðir frá 1. júní. Aðra til þriggja mánaða tíma hina til eins árs eða lengur. Nánari upplýsingar gefur Jón Arnþórsson í síma 21900. Iðnaðardeild Sambandsins. Skátabandalag Akureyrar vill minna á foreldrafundinn í Dynheimum í kvöld 29. maí kl. 20.30. Á fundinum verður m.a. rætt um starfið sl. vetur, starfið í sumar og væntanlegt landsmót. VI6 hvetjum alla foreldra til að mæta og taka þátt í starfi skátanna. Félagsforingjar. Hjartans þakkir sendi ég börnum mínum, tengdabörnum og barnabörnum og öllum þeim sem glöddu mig á sjötugsafmæli mínu 18. maí oggerðu mérdaginn ógleymaniegan. Guð blessi ykkur öll. VÍGLUNDUR ARNLJÓTSSON Hafnarstræti 23, Akureyri.

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.