Dagur


Dagur - 29.05.1986, Qupperneq 15

Dagur - 29.05.1986, Qupperneq 15
29. maí 1986 - DAGUR - 15 Vald kjósenda - nýtum þann rétt sem við höfum til breytinga! Oft hafa heyrst óánægjuraddir um að lýðræði sé lítið á íslandi, því að val hins almenna kjósanda standi í raun milli afarfárra ein- staklinga. Hann geti aðeins valið milli nokkurra fyrirfram ákveð- inna lista. Til að koma til móts við þessar raddir hafa hin síðari ár víða ver- ið haldin prófkjör áður en fram- bjóðendum er raðað upp. Ekki hefur náðst samkomulag um almennar reglur um prófkjör, enda hafa framkvæmd þeirra og niðurstöður oft valdið ólgu, vin- slitum og kærum innan flokk- anna. Sums staðar erlendis hafa þessi vandamál verið leyst á einfaldan hátt, t.d. með því að draga um niðurröðun frambjóðenda, eða þá að þeim er raðað í stafrófsröð, þó með því að dregið er um það hvar í stafrófinu listinn hefst. Kjósendur ákveða svo sjálfir hvaða frambjóðanda eða fram- bjóðendum þeir greiða atkvæði sitt. Með þessu móti losna flokk- arnir við viðkvæmt val og upp- röðun á lista. Enginn frambjóð- andi situr árum eða áratugum saman í „öruggu sæti“. Kjósend- ur finna betur vald sitt til ákvörð- unar og þá ábyrgð sem því fylgir. Það dregur úr pólitískri deyfð og áhugaleysi. Dæmi eru um að enn lengra sé gengið, þannig að kjósandi merki við þrjá frambjóðendur sem mega vera á mismunandi listum. Skiptist þá í raun atkvæði hans milii lista, en hann velur aðeins þá einstaklinga, sem hann vill. Ég er ekki í nokkrum vafa um að finna mætti kerfi, sem væri bæði lýðræðislegra, réttlátara og vænlegra til kjörs á styrkri stjórn undir hæfilegum aga kjósenda, heldur en það sem við búum nú við. Þó er það svo, að samkvæmt nýjum sveitarstjórnarlögum er réttur kjósenda til breytinga á uppröðun lista töluverður. 17. grein laganna hljóðar svo: „Til þess að finna hverjir fram- bjóðendur hafa náð kosningu á hverjum lista skal kjörstjórn reikna frambjóðendum atkvæða- tölu á þennan hátt: Kjörstjórn tekur saman þá kjörseðla þar sem engin breyting hefur verið gerð á listanum. Þar telst efsta nafn listans vera í fyrsta sæti, næsta nafn í öðru sæti o.s.frv. Næst tekur kjörstjórn alla þá kjörseðla þar sem kjós- endur hafa gert einhverjar breyt- ingar á röð frambjóðenda og tel- ur atkvæði hvers frambjóðanda í hvert sæti listans. Nöfnum frambjóðenda á list- anum er nú raðað þannig, að sá sem hlotið hefur flest atkvæði í 1. sæti, samkvæmt næstu málsgrein hér á undan, hlýtur það sæti. Sá frambjóðandi, að þessum slepptum, sem hlotið hefur flest atkvæði í 1. og 2. sæti samanlagt, hlýtur 2. sætið o.s. frv. uns raðað hefur verið í sæti svo mörgum frambjóðendum listans að ljóst sé hverjir teljast fulltrúar hans og hverjir varafulltrúar." Samkvæmt þessari grein má líta á röðun frambjóðenda á kjörseðil sem tillögu, sem kjós- endur listans geta annað hvort samþykkt óbreytta eða þá núm- erað frambjóðendur að nýju eftir vild sinni. Jafnvel þótt ekki óski nægilega margir kjósendur eftir sömu breytingu til að það hafi áhrif á röðun, má gera ráð fyrir að ákveðnar ábendingar fáist fyrir uppröðun til næstu kosninga. Skilyrði þess að kjósendur njóti þessara auknu valda í kosn- ingum er að sjálfsögðu að þeir viti um þennan rétt sinn og ákveði ekki einvörðungu hvaða lista þeir greiða atkvæði, heldur einnig hvort þeir hefðu sjálfir kosið nákvæmlega þá uppröðun frambjóðenda sem á honum er. Þótt undarlegt sé, hef ég hvorki séð að félagsmálaráðu- neytið né yfirkjörstjórn hafi vak- ið athygli almennings á 17. grein hinna nýju laga, en væntanlega verður það gert í vikunni. Magnús Kristinsson. Guðrún Sölvadóttir eiginkona Óttars sem einnig vinnur í bakaríinu og Ottar á tali við einn viðskiptavininn Jóhönnu Haraldsdóttur. Kökuhús á Króknum Nú standa yfir töluverðar breytingar í Sauðárkróks- bakaríi. Að sögn Óttars Bjarnasonar bakaramcistara eiganda bakarísins er aðallega verið að breyta og bæta vinnslurásina í brauðgerðinni. Föstudaginn 9. maí sl. var tek- ið í notkun lítið kökuhús inn af versluninni. Þar getur fólk eftir að vera búið að kaupa sér nýtt brauð eða kökur sest niður og fengið ókeypis kaffi með. „Ég vona að fólk kunni að meta þessa nýjung. Þetta er svona tilraun til að fá fólk til að versla í sérverslunum, og með þessu er fólki gefinn kostur á að koma og sjá hvað er á boðstólum og hvernig er að borða brauðið og kökurnar meðan þetta er glænýtt,“ sagði Óttar Bjarnason í samtali við Dag af þessu tilefni. - þá Auglysing númer 3 Veiðivörur í miklu úrvali Allar bætur hækka 1. júní Allar bætur almannatrygginga hækka frá og með 1. júní nk. sem nemur 3,06% miðað við það, sem þær eru í dag. Ennfremur hefur verið ákveðið að greiða með júníbótum 3.000 krónu líf- eyrisuppbót þeim elli- og örorku- lífeyrisþegum, sem njóta óskertr- ar tekjutryggingar og þeim sem njóta skertrar tekjutryggingar hlutfallslega lægri lífeyrisuppbót. Yfir 30 gerðir af hjolum og yfir 40 gerðir af flugu- og kaststöngum. Brjóstvöðlur, stærðir 42-48 nelgdar og onegldar, Mittisvöðlur, stærðir 39-48. Bússur, 37-48. Negldar bússur, stærðir 41-48. Komið, sjáið, sannfærist Opið laugardaga 9-12. Eyfjörð Hjatteyrvgotu 4 simi 22275 V/SA Við óskum að ráða FRAMKVÆMDASTJÓRA fyrir veitingastað. ★ Framkvæmdastjóri sér um bókhald, fjár- málastjórn, mannaráðningu og annan dag- legan rekstur. ★ Við leitum að traustum manni með við- skiptamenntun, skipulagshæfileika og sjálf- stæði í vinnubrögðum. ★ Laun eru í samræmi við gerðar kröfur. Upplýsingar aðeins veittar á skrifstofu okkar. Matráðskona óskast að Hótel Þelamörk frá 10. júní-25. ágúst. Umsóknum skal skilað til Ferðaskrifstofunnar Akureyri, Ráðhústorgi 3 fyrir 4. júní nk. Ferðaskrifstofa Akureyrar. Hótel Þelamörk. Rafvirkjar Rafvirki óskast til starfa hjá Vélsmiðju Húnvetn- inga, Blönduósi. Góð laun og vinnuaðstaða. Uppl. gefa Sigurður eða Hafsteinn í síma 95- 4128 á daginn og í síma 95-4031 og 95-4553 á kvöldin. Vélsmiðja Húnvetninga. Tónlistarkennarar Tónlistaskóli Dalvíkur óskar að ráða skóla- stjóra og tvo kennara við skólann frá 1. sept- ember nk. Æskilegar kennslugreinar eru píanó, flauta og gítar en aðrar kennslugreinar koma til greina. Umsóknarfrestur er til 1. júlí nk. Nánari upplýsingar veitir Rögnvaldur Friðbjöms- son í síma 96-61415 og 96-62100. Tónlistarskóli Dalvíkur. Óskum eftir að ráða mann til sumarafleysinga í varahlutaverslun okkar. Upplýsingar gefur Haukur. Bílasalan hf. Strandgata 53 Sími 21666. Sjúkraliðar Sjúkraliða vantar að dvalar- og sjúkradeild Hornbrekku, Ólafsfirði. Umsóknarfrestur til 10. júní 1986. Uppl. gefur forstöðumaður í síma 96-62480 eða á kvöldin í síma 96-62257. Viljum ráða nú þegar trésmiði vana verkstæðisvinnu Nóg verkefni. . Upplýsingar gefur Óskar. Upplýsingar eftir kl. 18 í síma 97-1609. I Baldur&Oskarsf. Sími 1777, verkst. byggingaverktakar s[mj 1 766, skrifst.

x

Dagur

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.