Dagur - 29.05.1986, Síða 16
Akureyri, fimmtudagur 29. maí 1986
Allttíl
tölvuvæðingar
Tölvutæki sf.
Gránufélagsgötu 4, 2. hæð • Akureyri • Sími'96-26155
Áhyggjur vegna
skoits á hjúkr-
unarfræðingum
Heilbrigðismálaráð Norður-
landshcraðs vestra lýsti á fundi
sínum 11. maí yfir miklum
áhyggjum vegna þess vanda
sem skortur á hjúkrunarfræð-
ingum hefur valdið rekstri
sjúkrahúsanna.
Ráðið hvetur til þess að þegar í
stað verði hafinn undirbúningur
til kennslu í hjúkrunarfræðum á
Akureyri og með því bætt úr því
ófremcíarástandi sem ríkir. Þá
lýsti ráðið yfir stuðningi við þá
hugmynd að tckin verði upp
kennsla á sjúkraliðabraut við
Fjölbrautaskólann á Sauðár-
króki. gk-.
Bæjarrabb.
Mynd: KGA.
Útgeröarfélag Skagfirðinga:
Fær ekki að flytja
Hekla
aftur
í gagnið
„Það var möguiegt að sinna
þessu verkefni af því að hliðar-
færslan var komin, annars hefði
ekki verið mögulegt að taka
skipið í slipp og lagfæra það
sem var að, á svo skömmum
tíma,“ sagði Sigurður Ring-
sted yfirverkfræðingur í Slipp-
stöðinni á Akureyri um við-
gerð sem unnin var á strand-
ferðaskipinu Heklu í Slipp-
stöðinni í síðustu viku.
Hekla kom til hafnar á Akur-
eyri í einni af sínum föstu ferðum
og kom þá í Ijós að kaðall var
fastur í skrúfu skipsins. Kafari
var fenginn til að fjarlægja kaðal-
inn og sá þá að skrúfa, stýri og
stýrishringur voru mikið
skemmd. Ekki er vitað hvernig
þessar skemmdir áttu sér stað.
Unnt var að taka skipið nteð
mjög stuttum fyrirvara í slippinn
og klára viðgerðina á einni viku,
með mjög mikilli vinnu. Var unn-
ið alla hvítasunnuna til að koma
skipinu sem fyrst í gagnið aftur.
Ekki er vitað hvort þessar
skemmdir hafi valdið verulegri
röskun á föstum ferðum Ríkis-
skips. gej-
Á þriðjudagskvöld var haldinn
sameiginlegur framboðsfundur
framboðanna á Blönduósi.
Fundurinn stóð í um tvo tíma
og þótti takast vel í alla staði,
talið er að liðlega 200 manns
hafi komið á fundinn.
Það verður þó að teljast stór
galli á fundi sem þessum að ekki
voru leyfðar fyrirspurnir frá
fundargestum til frambjóðenda.
Skriflegar fyrirspurnir hafa verið
leyfðar á margfalt stærri fundum
en þessum og nægir að nefna
framboðsfund D.V. í Háskóla-
bíói sem dæmi.
Ekki verður komist hjá því að
Blönduósingar velti því fyrir sér
hvort þeir frambjóðendur sem
stóðu fyrir því að fyrirspurnir
Eins og fram hefur komið er
slæmt ástand í fiskvinnslumál-
um á Sauðárkróki, vegna bil-
ana og breytinga í togurum
staðarins. Togarinn Skafti er
nú bilaður og tekur viðgerð á
honum langan tíma og er fyrir-
sjáanlegt að skipið verður frá
veiðum langt fram á sumar.
voru ekki leyfðar, hafi ekki treyst
sér til að svara svo vel færi.
Heyrst hefur að það hafi aðeins
verið frambjóðendur H-listans
sem vildu leyfa slíkt en orðið að
lúta í lægra haldi fyrir listunum
tveimur.
Eftir því sem næst verður kom-
ist var það H-listinn sem kom út
sem sigurvegari eftir fundinn, og
þótti málflutningur þeirra nánast
það eina sem bitastætt var á fund-
inum. Frambjóðendur D-listans
boðuðu að hreppurinn skildi
draga sig nær alfarið út úr öllum
atvinnurekstri, selja hluti sína í
hinum ýmsu fyrirtækjum og nota
allar tekjurnar af sölunni til að
greiða upp skuldir. Þegar svo
H-listamenn höfðu farið höndum
Bæjarráð Sauðárkróks kom
saman fyrir skömmu til að ræða
þetta mál. Á fundinn mættu
menn frá útgerðarfyrirtækjum og
verkakvennafélaginu á Sauðár-
króki til viðræðna við bæjarráð.
Ráðið lýsti þungum áhyggjum
sínum vegna bilunarinnar í Skafta
og þess samdráttar sem orðið
um tillögur þeirra reyndust
“allar“ tekjurnar ekki meiri en
svo að málflutningur D-listans
var gjörsamlega hruninn.
Þá þóttu frainbjóðendur K-list-
ans heldur kraftlitlir, nema þá
helst Eiríkur Jónsson sem fjallaði
aðallega um skólamálin, enda
skólastjóri grunnskólans á staðn-
unt og honum málið því hugleik-
ið.
Niðurstaðan af fundinum hlýft-
ur því að verða sú að kjarkleysi K
og D frambjóðenda, að leyfa
ekki fyrirspurnir á fundinum, svo
og slæleg frammistaða þeirra í
ræðustól, hafi aukið verulega
sigurlíkur H-listans í kosningun-
um á Blönduósi á laugardaginn
kemur. G.Kr.
hefur í fiskvinnslu þess vegna.
Útgerðarfélag Skagfirðinga
sem gerir út Skafta hefur leitað
fyrir sér með leiguskip í stað hans
og jafnframt farið þess á leit að fá
að færa sóknarkvóta Skafta yfir á
væntanlegt leiguskip. Bæjarráð
skoraði því á sjávarútvegsráð-
herra að leyfa að umrætt leigu-
skip gangi inn í sóknarkvóta
Skafta, þar til hann kemur aftur
til veiða. Einnig samþykkti
bæjarráð að senda þingmönnum
kjördæmisins þetta erindi með
ósk um að þeir beiti sér fyrir
úrlausn þess máls.
Nú hefur svar sjávarútvegsráð-
herra borist bæjarráði Sauðár-
króks og er á þessa leið. „Vísað
er til símskeytis frá bæjarráði
Sauðárkróks varðandi leiguskip
til veiða í stað b/v Skafta. Sam-
kvæmt lögum og reglugerðum
um stjórn botnfiskveiða er
óheimilt að færa sóknarkvóta
milli skipa. Ráðuneytið getur því
ekki orðið við beiðni um flutning
sóknarkvóta b/v Skafta til annars
skips.“
Ólafur Jóhannsson hjá Útgerð-
arfélagi Skagfirðinga sagði að
menn frá fyrirtækinu væru nú til
viðræðna við ráðamenn í Reykja-
vík unt þetta mál, en ekkert hefði
komið upp sem gæti leyst þennan
vanda, sem væri mjög mikill.
Hann sagði einnig að fyrirtækið
Framboðsfundur á Blönduósi:
H-listinn kom best út
„Krógaból":
150 þús. til
kaupa á
stofubúnaði
Fyrstu foreldrareknu dagvist-
inni á Akureyri, Krógabóli,
hefur verið veittur 150 þúsund
króna styrkur úr bæjarsjóði
Akureyrar til kaupa á stofn-
búnaði.
„Velunnarar Krógabóls“, eins
og aðstandendur dagvistarinnar
kalla sig, sóttu jafnframt um
rekstrarstyrk úr bæjarsjóði en
ákvörðun um styrkupphæð var
frestað þar til fyrir liggja nánari
útreikningar um rekstrarkostnað.
Þó er ljóst að Akureyrarbær mun
taka þátt í rekstrarkostnaði, svo
framarlega sem „Krógaból" fær
rekstrarleyfi frá menntamála-
ráðuneytinu.
Félagsmálaráð mælir með að
dagvistin fái rekstrarleyfi að
ákveðnum skilyrðum uppfylltum.
Félagsmálaráð telur að setja
þurfi neyðarútgang á húsið með
tilliti til eldvarna og jafnframt
þurfi að setja traustari handrið á
stiga. Þá er talið að leiksvæðið í
kring um húsið sé of lítið. Hins
vegar vill svo vel til að Krógaból
liggur að lítt notuðum leikvelli í
eigu bæjarins og því eru hæg
heimatökin að færa örlítið út
kvíarnar, ef til þess fæst leyfi.
Þessum skilyrðum þarf að full-
nægja áður en „Krógaból“ fær
„grænt ljós “ á starfsemina. BB.
kvóta
hefði þegar fengið vilyrði fyrir
skipi til leigu frá Noregi, sem gæti
komið með stuttum fyrirvara, ef
leyfi fengist. gej-
Húsavík:
6 hætta
í bæjar-
stjórn
Ljóst er að mjög miklar breyt-
ingar verða í röðum bæjarfull-
trúa á Húsavík, hverjar sem
niðurstöður kosninganna
verða.
Af þeim 9 fulltrúum sem sitja í
bæjarstjórninni gefa 6 ekki kost á
sér til framboðs að þessu sinni og
er því ljóst að a.m.k. 6 nýir
bæjarfulltrúar verða kosnir á
Húsavík á laugardag.
Þeir sem ekki gefa kost á sér
eru fulltrúar Alþýðuflokksins
Gunnar B. Salomonsson og
Herdís Guðmundsdóttir, fulltrú-
ar Framsóknarflokksins Sigurður
Kr. Sigurðsson og Jónína Hall-
grímsdóttir, sj álfstæðismaðurinn
Hörður Þórhallsson og alþýðu-
bandalagsmaðurinn Freyr
Bjarnason. gk-.