Dagur - 07.07.1986, Blaðsíða 2
2 - DAGUR - 7. júlí 1986
ÚTGEFANDI: ÚTGÁFUFÉLAG DAGS
SKRIFSTOFUR:
STRANDGATA 31, PÓSTHÓLF 58, AKUREYRI
SÍMI: 24222
ÁSKRIFT KR. 420 Á MÁNUÐI
LAUSASÖLUVERÐ 40 KR.
RITSTJÓRI OG ÁBYRGÐARMAÐUR:
HERMANN SVEINBJÖRNSSON
FRÉTTASTJÓRI:
GYLFI KRISTJÁNSSON
RITSTJÓRNARFULLTRÚI:
BRAGI V. BERGMANN
BLAÐAMENN:
ÁSLAUG MAGNÚSDÓTTIR, GESTUR E. JÓNASSON,
GESTUR KRISTINSSON (Blönduósi vs. 95-4070 hs. 95-4368),
HELGA JÓNA SVEINSDÓTTIR, INGIBJÖRG MAGNÚSDÓTTIR
(Húsavík vs. 41585 hs. 41529), KRISTJÁN G. ARNGRÍMSSON,
KRISTJÁN KRISTJÁNSSON, MARGRÉT Þ. ÞÓRSDÓTTIR,
ÞÓRHALLUR ÁSMUNDSSON (Sauðárkróki sími 95-5729)
AUGLÝSINGASTJÓRI: FRÍMANN FRÍMANNSSON
ÚTBREIÐSLUSTJÓRI:
HAFDfS FREYJA RÖGNVALDSDÓTTIR, HEIMASlMI 25165
FRAMKVÆMDASTJÓRI: JÓHANN KARL SIGURÐSSON
PRENTUN: DAGSPRENT HF.
Ueiðari._______________________________
Hrikalegur verðmunur
Á síðastliðnum vetri gerði Verðlagsstofnun
verðkönnun á um það bil 200 vörutegundum í
nokkrum smásöluverslunum og einni heildversl-
un í Glasgow í Skotlandi. Á sama tíma var kann-
að verð á sömu vörutegundum í nokkrum versl-
unum í Reykjavík. Bæði í Glasgow og í Reykjavík
var könnunin gerð í stórum verslunum, stór-
mörkuðum og öðrum stórum matvöruverslun-
um. Jafnframt því að kanna smásöluverð á
vörunum aflaði Verðlagsstofnun upplýsinga hjá
íslenskum innflytjendum um hið erlenda inn-
kaupsverð á vörunum sem könnunin náði til.
Niðurstöður þessarar könnunar hafa vakið
mjög mikla athygli, enda að vonum þar sem í ljós
kemur gífurlegur verðmunur. Smásöluverð var
allt að sex sinnum hærra í Reykjavík en í
Glasgow, eða 500% hærra. Þá kom sú athygl-
isverða staðreynd í ljós, að þegar íslenskir inn-
flytjendur eru að kaupa inn vörur þá hefur þeim
í 22% tilvika, eða 13 af 59, tekist að kaupa vörur
á jafnháu eða hærra verði en hægt er að fá þær á
í smásöluverslunum í Glasgow. I meira en helm-
ingi tilvika var innkaupsverð íslenskra innflytj-
enda jafnhátt eða hærra en í þeirri heildverslun
sem könnuð var í Glasgow.
Ein skýring á þessum hrikalega verðmun er sú
að álagning hérlendis leggst ofan á tolla og
vörugjald, auk innkaupsverðsins og flutnings-
gjalda. Þess vegna verður álagning sem lögð er
hlutfallslega ofan á kostnaðarverðið mun hærri
að krónutölu hérlendis en erlendis ef álagning-
arprósentan er sú sama. Könnunin leiðir það í
ljós að smásöluálagning var tvöfalt hærri og allt
upp í tæplega fimmfalt hærri í Reykjavík en í
Glasgow í krónum talið. Auk þess var álagning
innflytjenda allt að 2,4 sinnum hærri en smá-
söluálagningin í Glasgow.
Niðurstöður þessarar könnunar leiða hugann
fyrst og fremst að því ófullkomna og vitlausa
kerfi sem tíðkast við innkaup og álagningu hér á
landi. í þessu kerfi er ekki innibyggður neinn
hvati til þess að fá vörur á sem lægstu verði er-
lendis frá. Þvert á móti græða innflytjendur
meira á því að flytja inn dýrari vöru þar sem
álagningarprósentan gefur þá meira í aðra hönd.
Þetta á við svo fremi sem varan verði ekki það
dýr í samanburði við vörur frá öðrum innflytj-
endum að hún seljist ekki. Verðskyn íslendinga
er hins vegar ennþá það bágborið að það virðist
vera hægt að bjóða þeim hvað sem er. Sama á
við um smásöluálagninguna. Fáránlegast í
þessu öllu virðist svo vera það að álagningin
skuli leggjast ofan á tolla og önnur innflutnings-
gjöld.
Vafalaust er hægt að færa einhver mótrök í
þessu máli, en staðreyndum verður hins vegar
ekki neitað. Vöruverð hér á landi er óeðlilega
miklum mun hærra en í nágrannalöndunum. Það
er furðulegt að innflytjendur skuli geta keypt á
heildsölu inn til landsins á hærra verði en hægt
er að fá vörurnar á út úr búð í Glasgow. Þetta er
svo sannarlega vert frekari skoðunar. HS
—viðtal dagsins.___________________
„Hef mesta ánægju
af að selja bækur“
- Ingvar Þórarinsson, Bókaverslun Þórarins Stefánssonar Húsavík
Bókaverslun Þórarins Stefáns-
sonar á Húsavík verður 77 ára
í haust. I júní var verslunin
stækkuð og innréttingar
endurnýjaðar, vel hefur verið
staðið að breytingunum og er
verslunin rúmgóð og vistleg.
Um þessar mundir er þriðji
ættliðurinn að taka við versl-
unarrekstrinum. Stefán Örn
Ingvarsson er að taka við af
föður sínum Ingvari Þórarins-
syni sem þó mun starfa við
verslunina og m.a. gegna
áfram störfum sínum sem
umboðsmaður Brunabótafé-
lags íslands.
- Ingvar er þetta ekki elsta
bókaverslun á landsbyggðinni?
„Jú, þetta er elsta bókaverslun
úti á landi. Bókaverslun Sigfúsar
Eymundssonar í Reykjavík er
elst og einnig er Bókaverslun
Sigurðar Kristjánssonar eldri, þó
hún sé nú hætt að sinna sölu
íslenskra bóka.
Faðir minn stofnaði verslunina
1909 og rak hana þar til ég tók
við að mestu 1945 eða fyrir rúm-
um fjörutíu árum.“
- Nú var verið að stækka og
breyta í versluninni en verslunar-
reksturinn mun hafa hafist í einu
herbergi.
„Já, hann hófst í einu herbergi
í húsi sem kallaðist Kirkjubær og
var byggt úr viðum gömlu Húsa-
víkurkirkju. Síðan fluttist verslun-
in í Templarahúsið sem faðir minn
keypti um 1915, þar var einnig til
húsa ljósmyndastofa móður
minnar Sigríðar Ingvarsdóttur
sem hún rak til 1944.
Á árunum 1966-8 byggði ég
þetta hús sem stendur við gatna-
mót Garðarsbrautar og Stóra-
garðs og er besta lóð fyrir versl-
unarhúsnæði í Húsavíkurbæ.
Verslunarreksturinn varð fjöl-
breyttari með árunum og ástæð-
an var sú að ekki var hægt að
reka bókaverslun á Húsavík í
samkeppni við 1-2 aðrar bóka-
verslanir.
Þróunin hefur orðið sú að
vörutegundum hefur fjölgað,
venjulega reynum við að hafa
eina vörutegund sem aðalsölu-
vöru í hverjum mánuði. Undan-
farin ár höfum við breytt í versl-
uninni um fimm sinnum á ári.
Bækur eru allsráðandi frá okt-
óber fram í janúarlok, skíðavör-
ur í febrúar og mars, síðan sport-
vörur yfir sumarmánuðina og
seinni árin hefur verið lögð meg-
Ingvar Þórarinsson í verslun sinni.
ináhersla á ferðamannaverslun á
sumrin, sérstaklega með lopavör-
ur og alls konar íslenskar fram-
leiðsluvörur.
Júlí og ágúst er töluverður
annatími hjá okkur þó að í des-
ember sé alltaf mest um að vera.
Mesta ánægju hef ég haft af að
selja bækur en hitt verður að
fylgja með þegar ekki er hægt að
lifa af bókasölunni einni saman.“
- Á bókin í vök að verjast í
þjóðfélaginu í dag með sam-
íkeppni við vídeó og fleira?
„Ég held það sé ýmislegt fleira
en vídeó, síðustu árin hefur mjög
aukist lestur blaða og tímarita,
þau eru einnig í samkeppni við
bókina þó sjónvarpið og vídeóið
séu ef til vill það hættulegasta fyrir
hana, en enn heldur hún velli.“
- Heldurðu að það verði ekki
áfram?
„Ég hef trú á því, en maður
veit ekki hvað framtíðin ber í
skauti sínu. Hins vegar finnst
mér eftirtektarvert hér á Húsavík
og ef til vill víðar að áður fyrr
lásu allri fullorðnir danskar bæk-
ur og blöð m.a. blöð eins og
Familie Journalen og Hjemmet
og þetta hélt við dönskukunnátt-
unni. Þetta er á hraðri niðurleið
þrátt fyrir að danskan er það
tungumál sem gengur næst á eftir
íslenskunni í skólunum."
- Hefur sala á enskum blöðum
og bókum aukist?
„Frekar, en þó ekki í þeim
mæli sem dregið hefur úr hinu.“
- Hverjar voru helstu breyt-
ingar sem gerðar voru á verslun-
arhúsnæðinu núna?
„Við stækkuðum verslunina
þannig að það var sagað gat í
gólfið og innréttuð ný verslun í
kjallaranum um 100 fm að stærð.
Þar var komið fyrir sportvörum,
hljómplötum og heimilistækjum.
Stefán Örn og hollenskur maður
sem vinnur hjá mér, Bert Jonker
hafa átt mestan þátt í þessum
breytingum og húsvískir iðnaðar-
menn hafa lagt þar gjörva hönd
að verki. Ég held að flestum sem
koma inn finnist breytingin vera
til batnaðar og ég vona að það
sýni sig í framtíðinni.
Ef Húsavík á framtíð fyrir sér,
og því hef ég trú á, ætti að vera
hægt að halda áfram verslun á
þessu horni. Það hefur verið erf-
itt að fá fjármagn á liðnum árum
og ekki verður byggt við nema
fjármagn fáist. Meining mín var
að rífa gamla húsið og byggja
150-160 fm við þetta en til þess
þurfti allmikið lán sem ekki hefur
auðnast að fá enn.
Maður veit aldrei hvað gerist
á næstu árum, ef við fáum ný
fyrirtæki á staðinn sem veita okk-
ur jafnmikið í bæjarsjóðinn og
annars staðar í bæjarlífið eins og
John Manville hefur veitt
Húsavík hef ég trú á að hægt
verði að fá lán til að byggja á
þessu horni sem ég trúi að verði
jafnmikilvægt í framtíðinni og til
þessa.
Þessi 40 ár hafa verið ákaflega
ánægjuleg og maður hefur séð
verslunina vaxa og dafna. Þegar
ég flutti í þetta nýja hús voru
ekki til vörur nema í hluta af
versluninni.
Ég útbjó smáskrifstofu og
tjaldaði einnig fyrir hluta rýmis-
ins til að minnka verslunarpláss-
ið, en smátt og smátt hefur þetta
vaxið það mikið að ég hef ekki
komið fyrir öllum þeim vörum
sem ég hefði viljað selja eða get-
að selt.“
- Að lokum Ingvar manstu
eftir skemmtilegri sögu frá versl-
unarrekstrinum?
„Einu sinni dvaldist ég rúm-
lega hálft ár vestur í Bandaríkj-
unum og á meðan rak Stefán
bróðir minn verslunina með
miklum ágætum. Það hefur aldrei
verið meira í sjóði en hans rekstr-
artíma. Ýmsar gamansögur eru
til frá þessu tímabili og skemmti-
legar auglýsingar eins og sú sem
sett var upp rétt áður en ég kom
og var á þessa leið: „Húsvíking-
ar, Húsvíkingar. Komið og gerið
góð kaup í dag, Ingvar kemur
heim á morgun.““
Myndir: IM