Dagur - 07.07.1986, Side 5
7. júlí 1986-DAGUR-5
_Jesendahornið.
Tökum höndum saman
- Gerum bæinn enn fallegri
Frá konu á Brekkunni:
Akureyri er fallegur bær, vafinn
gróðri í sumarblíðunni og víða
vel snyrtur. En alltaf má betur
gera. Við skulum taka höndum
saman ungir sem gamlir og kasta
.ekki rusli eða sóða út þar sem
búið er að þrífa til.
Víða eru fallegir garðar við
íbúðarhús, það kostar vinnu að
hirða garða og lóðir en það er
heillandi verkefni.
Kirkjutröppurnar voru teknar
fyrir í haust sem leið. Það verk
var vel af hendi leyst og gekk
með hraði, vil ég segja. Kringum
Hótel KEA er allt með nýjum
svip nema hvað mér sýnist þurfa
að vökva nýja grasþakið.
Þakkir
til ÚA
Starfsmaður hjá Útgerðarfélagi
Akureyringa hringdi og vildi
koma á framfæri þakklæti til for-
ráðamanna félagsins fyrir launa-
uppbótina sem hann fékk í síð-
asta launaumslagi. Sagði hann að
oft gleymdist að þakka það sem
vel væri gert. Þessu er hér með
komið á framfæri.
Fleira mætti telja vel gert. En
þegar gengið er frá kirkjutröpp-
um stíginn að Sigurhæðum versn-
ar vegurinn, þá blasir við skilti
sem á að heita í bláum lit en nú
allt skellótt og illa til reika, það á
að vísa leiðina að Matthíasar-
húsi.
Þetta er malarstígur, látum
það vera en þegar komið er að
trébrúnni sem hangir á völtum
yfir snarbröttum mel með skriðu-
hlaupi í rigningu, dettur manni í
hug: Hvernig er hægt að bjóða
gestum bæjarins ár eftir ár þessa
leið. Síðan bera fyrir augað for-
ljótar gjótur að baki safnahúss-
ins, ryðgað þak þess, niðurfallnar
vírnetsdruslur sem eitt sinn hafa
verið girðing, og brotnar grindur.
Þetta er ljót lýsing en sönn.
Framan í stallana fyrir neðan
Sigurhæðir var plantað viðarteg-
undum síðastliðið haust, en það
vantar hellulagðan stíg á ská nið-
ur þessa brekku. Það væri í stíl
við umhverfið þarna. Á stöllun-
um við kirkjutröppurnar eru
tveir setubekkir þeir eru mikið
notaður og mætti bæta öðrum
tveim við.
Nú er nýkosin menningarmála-
nefnd í bæjarfélaginu, ég vona að
hún láti til sín taka í sambandi
við það sem ég er hér að lýsa.
Með kveðju.
Sundlaugin:
Handklæði
stolið
Kona hringdi.
„Mig langaði til að segja frá því
að dóttir mín fór í sundlaugina á
Akureyri og þegar hún kom upp
úr var búið að stela handklæðinu.
Mér finnst þetta mjög leiðinlegt,
sérstaklega vegna þess að hand-
klæðið var hluti af setti sem vinir
okkar í Svíþjóð gáfu heimilinu.
Handklæðið er brúnt öðru megin
og drapplitað hinu megin og á því
eru hjörtu. Ég ætla bara að lok-
um að skora á þann sem stal
handklæðinu að skila því í
afgreiðslu sundlaugarinnar, ég
mun athuga eftir nokkra daga
hvort því hafi verið skilað.“
Kristinn G. Jóhannsson skrifar
Bakþan kar
Gula pressan, þ.e. ríkisfjöl-
miðlarnir og Helgarpóstur-
inn, sem eru eins og kunnugt
er æðsta dómsvaldið í land-
inu, hafa ákveðið að allir séu
sekir þar til þeir geta sannað
sakleysi sitt. Af þessu er
augljóst hagræði enda fagna
þessu allir réttsýnir menn.
Þá hefur einnig verið
ákveðið að góðmennska
skuli talin fram til skatts og
jólagjafir skuli teljast mútur
og bæði gefendur og viðtak-
endur ærulausir upp frá því.
Menn skulu forðast að gera
vinum sínum greiða, það er
tortryggilegt nema báðir hafi
greitt árgjöld sin í sama
stjórnmálaflokki. Fái menn
lánaðan sykurbolla hjá ná-
granna sínum ber fyrst að
kanna pólitískar skoðanir
hans, þ.e. nágrannans, og
ganga úr skugga um hvar
sykurinn er framleiddur,
hvernig kominn til landsins
og hver annaðist sölu hans
hér á landi, einnig ber að fylla
út eyðublöð í fjórriti, sem
ofangreindir aðilar munu
dreifa, og skal þar getið um
magn þess sem fengið er að
láni, til hverra nota það er
ætlað, ættartölu lánandans,
hver sé tannlæknir hans
o.s.frv.
Hjálpi menn af ásettu ráði
sjúkum eða ellimóðum skulu
þeir umsvifalaust brottrækir
úr vinnu og óhæfir til þátt-
töku í hvers kyns félögum
eða samtökum. Þeir sem
hjálpina hlutu eru síðan
útskúfaðir enda þátttakendur
í augljósu og skelfilegu sam-
særi. Báðir aðilar yrðu að
sæta réttarhöldum í beinni
útsendingu úr sjónvarpssal.
Allt heiðarlegt fólk reynir
síðan að flýja sem lengst frá
sökudólgunum og þess
vegna höfum við hvítskúraðir
og geislabaugaðir alþýðu-
bandalagsmenn á Akureyri
gert um það samþykkt að við
viljum alia þá út í ystu myrkur
sem fjölmiðiar hafa dæmt til
útlegðar frá mannlegu sam-
félagi. Veikt fólk er eitur í
okkar beinum ekki síst ef það
er fátækt líka.
Einn liður í dómskerfi
pressunnar er eins konar
spurningaleikur sem fundinn
hefur verið upp til notkunar í
gúrkutíð. Leikur þessi er, að
því er virðist til þess ætlaður
að koma óæskilegum ríkis-
stjórnum frá. Hann er í því
fólginn að stjórnmálamenn,
helst ráðherrar eru spurðir í
þaula í þeim tilgangi að rugla
þá svo í ríminu að þeir að lok-
um segi það sem þeir.ætluðu
síst af öllu að segja. Eru síð-
an orð og setningar slitin úr
samhengi, og úr gerð upp-
sláttarfrétt sem eftir fyrstu
notkun er borin undir aðra
ráðherra og spurt hvort ekki
hrikti nú í stjórnarsamstarf-
inu. Fréttamenn eru þá gjarn-
an með eftirvæntingarblik í
augum, rétt eins og þeir væru
að fylgjast með velheppnuð-
um leðjuslag. -
Tískusýnendur Sævars
Karls og ástmegir flugfélaga
og ferðaskrifstofa, vodka-
framleiðendur, ævisöguritar-
ar og laxveiðimenn búa síðan
til drulluköku úr því sem eftir
verður og slengja framan í
þjóðina sem hvíar af hrifn-
ingu.
Er nú aðeins að vona að öll
þau fríðindi sem við samvisk-
ur þjóðarinnar njótum í krafti
starfa okkar séu nú rétt og
skilmerkilega tíunduð til
skatts, afslátt^rferðirnar, frí-
fargjöldin, sólarlandareisur
og annað smáræði sem að
okkur er rétt. Þó er það
kannski aukaatriði. Hitt skipt-
ir auðvitað öliu máli að við
látum ekkert tækifæri ónotað
til að sparka í þá sem þegar
liggja í valnum.
Kostnaður vegna
krabbameinsleitar
Ágæta A.G.
Það er mjög gott að fá fyrirspurn-
ir eins og þína sem birtist í Degi
30. júní sl.
Krabbameinsleit hjá konum
fer fram á vegum Heilsugæslu-
stöðvarinnar á Akureyri. Starfs-
lið krabbameinsleitarinnar er á
launum hjá Heilsugæslustöðinni
við þetta verk og Heilsugæslu-
stöðin borgar húsaleigu fyrir
starfsemina.
Beinn kostnaður við hvert sýni
er þannig: Rannsókn á sýni og
efniskostnaður: 450 kr. Pappír og
sendikostnaður: 50 kr. Alls: 500
kr. Þessar 500 krónur borgar
hver kona.
Rannsóknargjaldið, 450 kr. er
greitt til Krabbameinsfélags
íslands sem sér um að skoða öll
sýni sem tekin eru á landinu. Til
verðsamanburðar má benda á að
gjald fyrir samskonar skoðun hjá
Krabbameinsfélagi íslands er í
dag 750 kr.
Það er rétt athugað hjá þér að
við höfum ekki gefið kvittun fyrir
þessum greiðslum, enda getur þú
hvergi fengið þetta endurgreitt.
Við reynum að halda skriffinnsk-
unni í lágmarki til þess að spara
tíma og kostnað. Eins og þú hef-
ur ábyggilega tekið eftir þá geng-
ur starfsemin fljótt og vel fyrir sig
en aukin skriffinnska gæti valdið
því að færri konur kæmust að.
Með bestu kveðju
Konný K. Kristjánsdóttir
hjúkrunarforstjóri.
Reiðskóli %
LETTIH
Næsta námskeið Hestamannafélagsins Léttis og
Æskulýðsráðs hefst 14. júlí við Jaðarsrétt. Full-
bókað er í það námskeið.
Ef næg þátttaka fæst verður haldið eitt námskeið í
viðbót og hefst það 28. júlí. Aldurstakmark 8 ára og
eldri. Kennari Jón Matthíasson.
Námskeiðið skiptist í þrjá flokka: Framhaldsflokk kl.
9 og byrjendaflokka kl. 13 og 15.30. Þátttökugjald er
kr. 1.500,00.
Innritun er á skrifstofu Æskulýðsráðs, Hafnarstræti
81, sími 22722 milli kl. 10 og 12 og eru þar veittar
frekari upplýsingar. Börn sem voru á biðlista sitja fyr-
ir á þetta námskeið.
Hestamannafélagið Léttir,
Æskulýðsráð Akureyrar.
Nýkomnar