Dagur - 07.07.1986, Qupperneq 11
7. júlí 1986 - DAGUR - 11
Hvað er góð auglýsing? Allir auglýs-
endur borga fyrir að fá auglýsingu
birta í blöðum. Hvers vegna auglýsa
fyrirtæki þá vöru sína? Jú, til þess
að hún seljist. Þannig er hægt að
láta auglýsingu borga sig. En þaðer
ekki sama í hvaða blaði auglýst er,
því mörg hafa litla útbreiðslu og fáa
lesendur. Dagur hefur aftur á móti
mikla útbreiðslu og lesendur eru
fjölmargir.
Það borgar sigþví að auglýsa íDegi.
þar eru allar auglýsingar góðar aug-
lýsingar.
Sumarheimilið að Botni
tekur til starfa
Fyrir nokkrum árum fengu
Styrktarfélag vangefinna á
Norðurlandi og Foreldrafélag
barna með sérþarfir til afnota
hluta af jörðinni Botni í
Hrafnagilshreppi til uppbygg-
ingar sumarbúða fyrir þroska-
hefta. Félögin hafa síðan unnið
að miklum framkvæmdum á
jörðinni í þessu skyni. Gamalt
íbúðarhús jarðarinnar hefur
verið endurbyggt og sl. sumar
var hafín bygging á 208 fm
húsi, sem nú er að mestu full-
búið. Sumarbúðir þessar voru
formlega opnaðar sl. þriðju-
dag.
Stærstur hluti þessara fram-
kvæmda hefur verið unninn í
sjálfboðavinnu ýmissa velunnara
þessa verkefnis og hefur sá stuðn-
ingur verið ómetanlegur þar sem
lítil fjárveiting hefur fengist frá
hinu opinbera. Félögin hafa verið
með skipulagða fjáröflun í
tengslum við þessar framkvæmd-
ir, t.d. sölu á ýmiss konar jólavarn-
ingi mörg undanfarin ár. Lions-
klúbbarnir á Akureyri hafa stutt
félögin með stórum fjárframlög-
um og einnig hafa bæði fyrirtæki
og einstaklingar veitt þeim mikla
aðstoð, sem þau segjast vilja
þakka af alhug.
Að Botni munu í sumar dvelja
um 30-35 einstaklingar, í eina til
sex vikur. Reksturinn er kostað-
ur af félagsmálaráðuneytinu en
er að öðru leyti í höndum Svæðis-
stjórnar málefna fatlaðra á Norð-
urlandi eystra.
Að sögn Jóns Aspar, formanns
foreldrafélagsins, breyta þessar
sumarbúðir miklu, bæði fyrir
þroskahefta og aðstandendur
þeirra. Nú hafa þroskaheftir
öruggan stað til sumardvalar,
áður var oft vafasamt hvort sum-
ardvöl fengist fyrir þessa aðila.
Jón sagði að þarna væri verið að
byggja upp stað sem hentaði
þessari starfsemi og mikið mun-
aði um það, t.d. væri þarna sal-
ernisaðstaða fyrir fólk í hjólastól-
um. Einnig munaði miklu að
vera komin með þessa starfsemi á
einn stað, áður hefði hún verið
mikið dreifð, aðallega verið í
heimavistarskólum hér og þar.
Jón sagði að þótt verulegt átak
hefði verið unnið að Botni þá
væri samt enn margt ógert. Fé-
lögin myndu því áfram þurfa að
leita til almennings um frekari
stuðning og vænta þess að fá not-
ið sama velvilja og hingað til.
JHB
Framtíðarstarf
Óskum eftir að ráða starfskraft í verslun okkar
sem fyrst.
Áhugasamir komi til viðtals þriðjudaginn 8. júlí og
miðvikudaginn 9. júlí frá kl. 16.30-18.00.
Bókabúðin EDDA
Hafnarstræti 100 - Sími 24334.
Ljósmyndari
Dagur óskar eftir aö ráöa Ijósmyndara
aö blaðinu frá og meö 1. ágúst nk. Um
er aö ræöa fullt starf. Viðkomandi þarf
aö hafa bíl til umráða. Upplýsingar um
menntun og störf aö Ijósmyndun fylgi
umsóknum. Umsóknarfrestur er til 15.
júlí.
D
Strandgötu 31, sími 96-24222.
Auglýsing i Degi
BORGAR SIG
Helgarþjónusta
Bændur og aörir viðskiptavinir. Eins og undan-
farin sumur verður varahlutaverslun okkar
opin laugardaga og sunnudaga kl. 10-12 í júlí
og ágúst.
Véladeild KÞ
Húsavík, sími 41447.
Fyrirtæki
í fullum rekstri til sölu
Hellusteypan við Frostagötu á Akureyri er til
sölu.
Væntanlegur kaupandi gæti tekið við rekstr-
inum nú þegar eða síðar eftir samkomulagi.
Aliar upplýsingar um reksturinn, söluverð
fyrirtækisins og greiðsluskilmála veitir Þor-
steinn Jónatansson, Glerárgötu 20, Akureyri.
Sími 21520.