Dagur - 31.07.1986, Page 12
Akureyri, fimmtudagur 31. júlí 1986
Ritstjórn • Auglýsingar • Afgreiðsla Síminn er 2 4 222
Akureyri:
Tveir bílar með
sama númeri?
í byrjun júlímánaðar tóku ung
hjón á Akureyri sig til og
keyptu sér nýjan bíl. Ákváðu
þau að halda ekki númerinu af
þeim gamla heldur fá sér nýtt
og fengu þau númerið A-10774.
Segir síðan ekki af þeim fyrr en
konan er að versla í Hagkaup-
um sl. mánudag. Þegar hún
kemur út sér hún að við hlið
bflsins stendur annar með
sama númeri.
Konan varð að sjálfsögðu
steinhissa og gekk marga hringi
Laxá í Aðaldal:
Þyngsti
laxinn
29 pund
Góð laxveiði liefur verið í
Laxá í Aðaldal í sumar. í
veiðiheimilinu Árnesi feng-
ust þær upplýsingar að
meira hefði veiðst nú þegar
en allt veiðitímabilið í fyrra.
Þar er aðeins veitt á flugu og
leyfi er fyrir 7 stöngum.
Alls hafa vciðst 253 laxar,
þar af 28 sem voru 20 pund
eða þar yfir. Pyngsta laxinn,
sem var 29 pund, fékk Nick
Ruwe frá bandaríska sendi-
ráðinu. í veiðiheimilinu Vöku-
holti við Laxamýri var sagt að
veiði væri mjög góð. Þar hafa
veiðst um 1400 iaxar, sá
þyngsti 24 pund, hann fékk
Daníei Daníelsson, læknir.
1M
umhverfis bílinn og fullvissaði sig
um að hún sæi rétt. Síðan tók
hún til þess ráðs að ná í mann
sinn en hann var við vinnu í húsi
þar rétt við hliðina. Þegar þau
koma aftur á staðinn er bíllinn
farinn og til allrar óhamingju
hafði konan ekki tekið eftir því af
hvaða tegund bíllinn var. A bif-
reiðaeftirlitinu og tryggingastofn-
unum hér í bæ fengu þau að vita
að enginn bíll væri skráður á
þetta númer nema þeirra eiginn og
lítið væri því hægt að gera í mál-
inu.
Á bifreiðaeftirlitinu varð fyrir
svörum Björn Guðmundsson og
sagði hann það vissulega vera
fræðilegan möguleika að þetta
gæti komið fyrir. Hins vegar væri
annar sams konar bíll skráður á
númerið A-10447 og taldi Björn
líklegt að konan hefði ruglað
tölunum saman.
Ekkert svona tilfelli hefur
komið upp á Akureyri en sams
konar atvik mun hafa komið upp
í Reykjavík. Einnig hefur það
komið fyrir að það hafi ekki verið
sömu númeraplötur aftan og
framan á sama bílnum.
Aðspurður hvernig svona lag-
að gæti gerst sagðist Björn ekki
geta ímyndað sér það. Þegar
hann var spurður hvað bifreiða-
eftirlitið myndi gera í málinu
sagði hann það vissulega vera
slæmt að vita ekki af hvaða teg-
und bíllinn er. „Við höfum
ekkert að styðjast við nema full-
yrðingu konunnar og getum því
lítið gert,“ sagði Björn Guð-
mundsson.
Og þá er það bara spurningin
um hvort konan hafi ruglað sam-
an tölum í númerinu. Ef það er
ekki raunin þá gerði sá, sem er
með sama númer, rétt í því að
gefa sig fram. JHB
Seglbrettaíþróttin er í stöðugri sókn hér á landi og nýta þeir áhugasömu sér öll tiltæk tækifæri til að sýna
bæjarbúum snilli sína. Mynd: RI,B
Greiðslustaða bæjarsjóðs:
Um 40 millj. krónum
lakari en í fyrra
Greiðslustaða bæjarsjóðs
Akureyrar er mun erfiðari nú
en á sama tíma í fyrra. Búið að
nota 47,9% af áætlaðri upp-
hæð gjaldaliða. Valgarður
Baldvinsson bæjarritari sagði
það aðeins meira en á síðasta
ári, en þá hefðu margir kostn-
Verkefnin á Grænlandi:
Ollum tilboðum í skóla-
bygginguna hafnað
„Við höfum enn ekki fengið
neitt bréflegt frá þessum
mönnum en við fengum símtal
þar sem sagt var að öllum til-
boðum í skólabygginguna yrði
hafnað. Það liggur fyrir að
annað hvort verða teikning-
arnar endurskoðaðar í þeim
tilgangi að gera framkvæmdir
ódýrari eða þá að verkið verð-
ur boðið aftur út í sömu mynd
að ári,“ sagði Hörður Tuliníus
Frost í Aðaldal
Á Staðarhóli í Aðaldal mældist
2 gráðu frost klukkan 2 í nótt.
Ekki hefur enn fregnast hvern-
ig frostið fór með kartöflurnar.
Hermann Hóimgeirsson,
bóndi að Staðarhóli, leit á hita-
mælinn um klukkan 2 í nótt og sá
þá að hann sýndi 2 gráðu frost.
Mælirinn er í 2 metra hæð yfir
jörðu og er því líklegt að hitinn
niðri við jörð hafi verið um 4-5
mínusgráður. Um klukkan 3, var
Hermann síðan vakinn aftur, því
hann hefur bensínafgreiðsiu með
höndum, leit þá á mælinn, og
sýndi hann þá 1 gráðu hita. Frost-
ið hefur því líklegast ekki varað
nema svona um hálfan annan
tíma. Það verður bara að vona að
kartöflurnar hafi ekki orðið fyrir
skemmdum. -SÓL
þegar hann var spurður hvort
eitthvað væri að frétta af verk-
efnum þeim á Grænlandi sem
Eyfirskir verktakar gerðu til-
boð í.
Hörður sagði að þeir væru enn
að vinna í að reyna að fá sútunar-
verksmiðjuna en þeir samningar
væru allir orðnir mun flóknari en
áður. „Sútunarverksmiðjan var
boðin út í þremur áföngum og
við vorum með lægstu tilboð í tvo
af þeim. Nú er hins vegar búið að
skipta hverjum áfanga niður í
þrennt og það breytir stöðunni
töluvert þannig að þetta er nú í
endurskoðun hjá okkur. Þeir
óska nú eftir nýjum tölum í þessa
áfanga og við munum senda þær
út í dag. Þeir óskuðu einnig eftir
fundi um þetta í Grænlandi en
við munum fara fram á að sá
fundur verði í Reykjavík," sagði
Hörður Tuliníus. JHB
aðarliðir farið framyfir áætlun.
„Við höfum verið að reyna að
láta það ekki endurtaka sig,“
sagði Valgarður.
Greiðslustaða bæjarsjóðs er
um 40 milljón krónum lakari en
hún var á sama tíma á síðasta ári.
Valgarður sagði stöðuna veru-
lega slæma nú á þessum tíma, en
fyrri hluti árs er bæjarsjóði léttari
en sá seinni. „Við verðum að
vona að þetta jafnist út er lengra
dregur fram árið. Álagningin var
hærri en áætlun gerði ráð fyrir og
innheimtan ætti því að skila sér
inn þegar líður á,“ sagði Valgarð-
ur.
Valgarður sagði að á fyrri hluta
árs væru innheimtur á fasteigna-
gjöldum og væru þau nokkuð
stór tekjuliður bæjarsjóðs, „það
er því eðiilegt að fyrri hluti árs sé
léttari greiðslulega séð, en sá
seinni. Aðalframkvæmdatími
okkar kemur meira inn á síðari
hluta ársins.“ Valgarður sagði að
það gerði einnig erfitt fyrir að
enginn'gjalddagi væri á útsvörum
og aðstöðugjöldum í júlímánuði.
„Ég tel þessa erfiðleika fyrst og
fremst stafa af því að við fórum
framyfir í fyrra og vorum því að
greiða mikið af lausaskuldum frá
fyrra ári á fyrri hluta þessa árs.
Þess vegna áttum við lítið upp á
að hlaupa er kom að hinum erfið-
ari mánuðum."
Valgarður sagði helstu ástæðu
þess að farið var fram úr áætlaðri
kostnaðaráætiun á síðasta ári að
farið var í framkvæmdir sem fóru
verulega fram úr áætiun en
ákveðið hefði verið að halda
þeim áfram. Einnig hefði verið
farið út í framkvæmdir þrátt fyrir
að vitað væri að ekki væru fjár-
veitingar fyrir þeim. Þá sagði
Valgarður að launabreytingar hjá
starfsmönnum bæjarins hefðu
orðið meiri en áætlunin gerði ráð
fyrir.
Innheimta bæjargjalda var
1,3% betri í júnílok en á sama
tíma í fyrra. -mþþ
„Bjóst við þessu“
-sagði Oddur C. Thorarensen skattakóngur
á Akureyri
„Þetta er svipað og ég bjóst
við. Eg vissi það nokkurn veg-
inn fyrirfram hvað ég myndi fá
í skatta,“ sagði skattakóngur-
inn á Akureyri, Oddur C.
Thorarensen lyfsali í samtali
við Dag. „Ég hef svo sem ekk-
ert hugsað út í hvort mér líst
vel eða illa á þetta.“
Oddur greiðir 2.050.286 í
skatta. Næstur honum í röðinni
er Gauti Arnþórsson yfirlæknir
með 1.349.351, sá þriðji er Jón
Steindórsson stýrimaður með
1.161.927. Valur Arnþórsson
kaupfélagsstjóri greiðir 1.125.466
í skatta og Jónas Franklín læknir
1.106.410. -mþþ