Dagur - 07.08.1986, Blaðsíða 3

Dagur - 07.08.1986, Blaðsíða 3
7. ágúst 1986 - DAGUR - 3 Gústaf með sjóbirtinginn og afabarnið Hafþór Einarsson 4ra ára, horfir hugfanginn á veiðina. Mynd: im Litlaá Kelduhverfi: 9 punda sjóbirtingur veiddur á flugu Silungsveiði í Litluá í Keldu- hverfi hefur gengið ágætlega í sumar að sögn Margrétar Þór- arinsdóttur í Laufási. Þó er veiðin ekki alveg eins góð og í fyrra, en þá var metveiði í ánni. Fiskurinn er yfirleitt stærri en undanfarin ár, og þann 1. ágúst voru komnir 1630 fiskar á skrá, þar af 7-8 laxar. Þrír 9 punda sil- ungar hafa veiðst í ánni í sumar, einn þeirra fékk Gústaf Guð- mundsson, matreiðslumaður á Húsavík, si. þriðjudag. Gústaf er mikill áhugamaður um veiði- mennsku og fluguhnýtingar. Hann veiddi þennan 9 punda sjóbirting á straumflugu, Grey ghost no. 4, sem hann hafði hnýtt sjálfur. Fiskurinn var feitur og fallegur, 70 sm á lengd og 20 sm á breidd. Þetta var í 3. sinn í sumar sem Gústaf fékk sér veiðileyfi í Litluá og hann hefur veitt vel þar. 21. júlí sl. fékk hann t.d. 6-7 punda lax, tvo 6 punda sjóbirt- inga auk 5 minni silunga, þar af flesta fiskana á IVi tíma. IM Bílvelta í Hörgárdal Á þriðjudagskvöldið valt bOI við bæinn Rauðalæk í Hörg- árdal. Tveir menn voru í bfln- um og voru þeir báðir fluttir á sjúkrahús. Meiðsli þeirra eru ekki talin alvarleg og fékk ann- ar að fara heim síðar um kvöldið. Bifreiðin, sem er af gerðinni Mazda, árgerð 1984, er talin ónýt. Voru mennirnir að koma úr veiði og voru á leiðinni til Akur- eyrar. Mun ökumaður hafa verið orðinn þreyttur og dottað undir stýri með þessum afleiðing- um. Festist ökumaðurinn í bíln- um og þurfti að skera bílinn í sundur til að ná honum út. -HJS Skagafjörður: Heyskap víða lokið Heyskap er nú víðast hvar lok- ið í Skagafirði og er það með fyrra móti. Þeir bændur sem blaðið hafði samband við töldu gæði heyjanna vera með albesta móti, en magnið svipað og eftir síðasta sumar. Skaginn er eina svæðið í sýsl- unni sem heyskapur stendur enn yfir. Nokkrir eru þar langt á veg komnir og heyskap lokið á ein- staka bæ. En á þrem eða fjórum bæjum er heyskapur tiltölulega nýhafinn. Bændur á Skaga verka að megninu til í vothey og er það eina svæðið í héraðinu þar sem votheysverkun er almenn. Þeir bændur í héraðinu sem luku slætti með fyrra móti munu marg- ir hverjir slá há seinna í þessum mánuði. -þá VEGAGERDIN Útboð Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í lagningu Norðurlandsvegar um Leirur, 4. áfanga 1986. (Fylling og sía 81.700 m3, neðra burðarlag 3.500 m3, sprengt grjót 9.700 m3). Verki skal lokið 20. desember 1986. Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á Akureyri og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og með 5. ágúst Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00 þann 18. ágúst 1986. Vegamálastjóri. Aðfaramám að hjúkrunarfræði Menntaskólinn á Akureyri auglýsir AÐFARARNÁM AÐ HJÚKRUNARFRÆÐI á vegum öldungadeildar skólans, vet- urinn 1986-’87. Tilgangur námsins er að veita einstaklingum með stúdentspróf eða próf frá Hjúkrunarskóla Islands sem hyggja á nám í hjúkrunarfræði, aukna þekkingu í undirstöðugreinum til að þeir verði hæfari til að nýta sér kennslu á fyrstu náms- árum í hjúkrunarfræði. Þær greinar sem boðið er upp á eru: Eðlisfræði Efnafræði Fagenska íslenska Líffræði Sálfræði Stærðfræði Tölvufræði Allar nánari upplýsingar eru veittar á skrifstofu Menntaskólans á Akureyri í síma 25660. Innritun hefst mánudaginn 18. ágúst. Skólameistari. r UTSALA UTSALA

x

Dagur

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagur
https://timarit.is/publication/256

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.