Dagur - 07.08.1986, Blaðsíða 12
Akureyii, fimmtudagur 7. ágúst 1986
Þjónusta fyrir
háþrýstislöngur
olíuslöngur og barka
Pressum
tengin á
Fullkomin tækni
vönduð vinna
Eyfirskir verktakar
fengu verkefnið
- en munu þó ekki vinna verkið sjálfir
„Eins og fram hefur komið er
skólabyggingin alveg út úr
myndinni og sútunarverk-
smiðjan er ekki heldur inni í
myndinni í heild sinni. En við
munum ganga frá samningi um
þessi litlu verk tvö, sem við þó
ekki viljum vinna sjálfir, undir
nafni Eyfirskra verktaka og
Bjarna Pálssonar, sem er okk-
ar samstarfsaðili á Græn-
landi,“ sagði Frans Arnason er
hann var spurður hvort ákveð-
ið væri með þau verkefni sem
Eyfirskir verktakar hafa verið
að bjóða í á Grænlandi.
Sagði Frans að Bjarni myndi
vinna verkefnið að mestu eða
öllu ieyti. „Þetta er ákveðið
núna, svo fremi sem okkar sam-
starfsaðili á Grænlandi leggur
fram fullnægjandi tryggingar."
Sagði Frans að sá tími sem verkið
verður unnið á hefði verið lengd-
ur og það væri óhagstætt fyrir þá,
en hagstætt fyrir þennan aðila á
Grænlandi. Þeir munu því trú-
lega ekki senda menn til
Grænlands. -HJS
Steinullin:
Meirí sala
síðari hluta ársins?
Húsvískir lögreglumenn hella niður bjór úr 2880 dósum eða flöskum. Reikna má með að þarna hafi 1450 bannaðir
lítrar farið á haugana. Mynd:lM
Húsavík:
120 bjórkassar á haugana
„Ég veit ekki livaðan þessar
upplýsingar eru komnar. Þetta
uppgjör sem þarna kom fram
var eingöngu ætlað sem vinnu-
Eyjafjörður:
Flestir búnir
með fyrri slátt
„Það eru langflestir búnir
með fyrri slátt og menn eru
eitthvað byrjaðir á seinni
slætti,“ sagði Ævarr Hjartar-
son hjá Búnaðarsambandi
Eyjafjarðar.
Ævarr sagði heyskapinn hafa
gengið mjög vel og þó það væri
jafnvel hægt aö fá hetri sprettu
þá væru menn ekki að bíða eftir
því t' svona góðri tíð heldur
reyndu þeir áð nota tímann til
að Ijúka heyskap.
„Eg held að heyin séu mjög
góð f ár þó að magnið sé senni-
lega innan við meðallag,“ sagði
Ævarr Hjartarson. JHB
„Það er náttúrlega alveg frá-
leitt að það sé stefna ráðuneyt-
isins í sjálfu sér að fækka
bændum. Við viljum hins veg-
ar benda á þá þróun sem hefur
verið í gangi alla þessa öld.
Annars vegar hefur verið um
að ræða verulega aukningu
framleiðslu og hins vegar
umtalsverða fækkun framleið-
enda. Það er deginuin Ijósara
að það verður ekki um aukin
viðfangsefni að ræða fyrir
bændur í hefðbundnum
búgreinum á næstu árum,“
sagði Bjarni Guðmundsson,
aðstoðarmaður landbúnaðar-
ráðherra, þegar hann var
spurður um álit sitt á þeirri
gagn fyrir okkur til að sjá
hvernig staðan væri á þessu
tímabili. Þessir fyrstu 6 mán-
uðir ársins eru á engan hátt
dæmigerðir fyrir rekstur verk-
smiðjunnar, því meginhluti
sölu ársins á eftir að fara fram
en við höfum reiknað með að
hún eigi sér stað að haustinu,“
sagði Þórður Hilmarsson,
framkvæmdastjóri Steinullar-
verksmiðjunnar, þegar frétt í
einu dagblaðanna um verulegt
tap verksmiðjunnar á fyrri
hluta ársins var borin undir
hann.
Sagði Þórður að salan í mars
og apríl síðastliðnum hefði verið
mun minni en gert var ráð fyrir.
Þessa dagana væri verið að vinna
að áætlun fram til áramóta og
sömuleiðis væri í bígerð 5 ára
rekstraráætlun fyrir verksmiðj-
una og sagðist hann búast við að
hún hefði meiri þýðingu en
útkoman fyrstu 6 mánuði þessa
árs. Vinna í verksmiðjunni er
nýhafin að loknum sumarleyfum.
-þá
gagnrýni sem komið hefur
fram á landnýtingarskýrslu
sem landbúnaðarráðuneytið
lét nýlega frá sér fara. Hefur
m.a. veriö sagt að svo virðist
sem það sé stefna ráðuneytis-
ins að fækka bændum.
Umrædd skýrsla var unnin af
nefnd sem skipuð var af landbún-
aðarráðherra. Hún fjallar um
landnýtingu á íslandi og það eru
einkum niðurstöður úr þeim
kafla sem fjallar um landbúnað
sem vakið hafa óánægju margra.
Þar segir m.a. að með breyt-
ingum á lögum um framleiðslu,
verðlagningu og sölu á búvörum
hafi verið stefnt að því að laga
búvöruframleiðsluna að mark-
„Auðvitað erum við með tárin
í augunum,“ sagði lögreglu-
maður á sorphaugunum við
Húsavík á fimmtudaginn. Þar
var hann staddur ásamt tveim
félögum sínum með fullan lög-
reglubílinn af bjórkössum sem
þeir gengu vasklega fram við
að hella niður úr.
Alls voru upprættir um 120
kassar af bjór, eða 2900 dósir og
flöskur, líklega um 1450 lítrar,
enda rann bjórlækur frá sorp-
haugunum. Þeir félagar opnuðu
hverja dós og brutu hverja flösku
og þó þeim væri bent kurteislega
á að blaðamönnum í starfi væri
oft boðið kaffi eða eitthvað að
drekka helltu þeir hverjum dropa
samviskusamlega niður. Síðan
gengu þeir vandlega úr skugga
um að hvergi leyndist heil flaska
aðsaðstæðum. Slíkt myndi hafa í
för með sér verulega fækkun
sauðfjár og nautgripa frá því sem
nú er. Sauðfé þyrfti t.d. að fækka
um 35-45% ef eingöngu væri
miðað við framleiðslu fyrir
innanlandsmarkað. Þá segir að
slíkur samdráttur væri aðeins
mögulegur ef mikill hluti bænda
hyrfi frá búskap eða tæki upp
nýjar búgreinar. Nauðsynlegt sé
að efla jarðakaupasjóð ríkisins til
að gera bændum sern hafa slæma
búrekstraraðstöðu kleift að hætta
búskap.
Bjarni sagði að vélvæðing
myndi halda áfram, framleiðni
aukast, fólk gerði kröfur um
afkomu og vinnuaðstöðu og þetta
eða hálf dós í hrúgunni og báru á
hana grjót.
Bjórinn sem þarna rann til
sjávar var smyglvarningur orðinn
það gamall að ekki var um annað
að gera en henda honum.
Þröstur Brynjólfsson yfirlög-
regluþjónn sagði að haldið væri
stíft utan um varning sem gerður
væri upptækur og allt væri skráð
og bókað. Leyfi fengist til að
selja bjór í skip en þarna hefði að
„Þetta gengur allt eftir áætlun.
Það er ekki búið að taka
ákvörðun um hvenær vinnsla
hefst. Við bíðum eftir vélun-
leiddi til þess að jafnvel þó mark-
aðurinn breyttist ekkert innan-
lands, t.d. fyrir mjólk og kinda-
kjöt, þá væri fækkun í þeim
greinum óumflýjanleg.
„Hins vegar er lögð rík áhersla
á það af hálfu ráðherra, fram-
sóknarmanna og ríkisstjórnar-
innar, eins og sést best af búvöru-
lögunum, að leggja verulegt kapp
á að byggja upp aðrar greinar
þannig að fækkun í dreifbýli þurfi
ekki að verða það sem við blasi.
Það verði nánast um tilfærslu á
vinnuafli að ræða, úr þessum
hefðbundnu greinum yfir í önnur
viðfangsefni," sagði Bjarni
Guðmundsson. JHB
mestu leyti vertð um að ræða bjór
sem bruggaður var í Færeyjúm
og enginn hefði viljað kaupa.
Áður en bjórnum var hellt niður
hafði hann verið geymdur í
fangaklefa á Húsavík en þegar
verslunarmannahelgin nálgaðist
óttuðust lögregluyfirvöld að full
þörf gæti orðið á að geyma áfengi
í öðrum umbúðum í klefanum
um helgina og því var drifið í að
rýma klefann. IM
um,“ sagði Valtýr Sigurbjarn-
arson bæjarstjóri á Olafsfírði,
en þar í bæ er fyrirhugað að
hefja vinnslu á kavíar á vegum
fyrirtækisins Sævers.
Valtýr sagði að búið væri að
ganga frá húsnæðinu þar sem
fyrirtækið verður til húsa, en það
hefur til umráða um 500 fermetra
húsnæði við Strandgötu. Valtýr
sagði að keypt hefði verið tölu-
vert af vélum, en ákveðið hefði
verið að vélvæða fyrirtækið ekki
alveg til fullnustu í fyrstu umferð.
Bæði til að halda stofnkostnaði
niðri og eins væri reiknað með að
fyrirtækið veitti um 12-15 manns
vinnu.
Sæver mun ganga inn í sölu-
samtök lagmetisframleiðenda og
mun njóta allrar þeirrar markaðs-
þekkingar sem fyrir er í þessari
framleiðslugrein.
„Það hrelldi okkur dálítið
hversu grásleppuvertíðin var
léleg víðast hvar um landið og
framboð á hrognum er minna en
verið hefur undanfarin ár. En ég
hygg þó að það bjargist. A
undanförnum árum hefur verið
selt geysilega mikið ntagn af
óunnum hrognum úr landi, þann-
ig að það má við töluverðu áður
en skorts fer að gæta. Það vantar
mikið á ennþá að fullunnin séu
öll þau hrogn sem hér koma á
>and,“ sagði Valtýr. -mþþ
„ Fráleitt að það sé stefna ráðu-
neytisins að fækka bændum"
- segir aðstoðarmaður landbúnaðarráðherra vegna gagnrýni á landnýtingarskýrsluna
Kavíarframleiðsla í Ólafsfirði:
Vélar væntanlegar