Dagur - 07.08.1986, Blaðsíða 11
7. ágúst 1986 - DAGUR - 11
_orö í belg__________
Fleiri útibú
Enn einu sinni á að stinga snuði
upp í okkur sem á landsbyggð-
inni búum. Byggðastofnun verður
ekki flutt út á land, en okkur til
sárabóta verða sett hér og þar um
landið nokkur ósjálfstæð útibú.
Einn starfsmanna stofnunar-
innar, Bjarni Einarsson, reynir
að heilaþvo menn með mikilli
langloku um Byggðastofnun í
Degi og réttlætir þar ákvörðun
stjórnar stofnunarinnar um
áframhaldandi uppbyggingu
hennar á Reykjavíkursvæðinu.
Bjarni segir að ekki verði um að
ræða útibú heldur „stjórnsýslu-
miðstöðvar" eða „Þróunarstof-
ur“. Hann heldur áfram orða-
smíðinni með því að segja að í
Byggðastofnun verði ekki starfað
í nefndum heldur „starfshópum“.
Nýtt nafn breytir litlu og hræddur
er ég um að Byggðadeild Fram-
kvæmdastofnunar verði jafn
gagnslítil landsbyggðinni og áður
þrátt fyrir endurskírnina og nýtt
og ábúðarmikið nafn - Byggða-
stofnun. Nei, nöfnin skipta engu
máli heldur mennirnir sem innan-
borðs eru, og mér sýnist stjórn
Byggðastofnunar hafa klúðrað
besta tækifærinu sem hún hafði
til að efla stofnunina. Með flutn-
ingi út á land hefði margt unnist,
m.a. það að skilningslítið starfs-
fólk stofnunarinnar hefði neitað
að flytja og hætt en annað hæfara
komið í staðinn.
Landsbyggðarmenn sem flytja í
höfuðborgina lenda því miður
flestir í slæmum félagsskap,
gleyma uppruna sínum, hugsjón-
um og ætlunarverki furðu fljótt
og snúast (líklega óviljandi) á
sveif með miðstýringaröflunum.
Bjarni sjálfur er dæmi um slíkt
svo og stjórnarmenn Byggða-
stofnunar. Meira að segja Olafur
Þ. Þórðarson er orðinn spilltur
Útflutningsráð íslands:
Þráinn Þor-
valdsson ráðinn
framkvæmda-
stjóri
Undirbúningsstjórn fyrir stofn-
setningu Útflutningsráðs
íslands hefur hafið störf. Unn-
ið er nú að undirbúningi stofn-
setningar ráðsins en það tekur
til starfa 1. október n.k. Aug-
lýst hefur verið eftir stofnfé-
lögum ráðsins og ber að skila
umsóknum til viðskiptaráðu-
neytisins fyrir 1. september
n.k. Fyrsti fundur Útflutnings-
ráðs íslands verður haldinn 7.
október n.k. Þar munu aðilar
ráðsins koma saman og ræða
starfsemi ráðsins.
Formaður undirbúningsstjórn-
ar Útflutningsráðs íslands er
Magnús Gunnarsson, fram-
kvæmdastjóri Sölusambands
íslenskra fiskframleiðenda.
Þráinn Þorvaldsson, rekstrar-
hagfræðingur, hefur verið ráðinn
framkvæmdastjóri Útflutnings-
ráðsins. Þráinn er fæddur á Akra-
nesi. Hann hefur lokið Master
prófi í Markaðs- og sölufræðum
frá Háskólanum í Lancaster í
Bretlandi. Hann starfaði áður
sem framkvæmdastjóri Útflutn-
ingsmiðstöðvar iðnaðarins. Þrá-
inn er kvæntur Elínu G. Óskars-
dóttur, viðskiptafræðingi, og eiga
þau 3 börn.
Bjarni E.
Guðleifsson
skrifar
og býsna djúpt virðist á byggða-
stefnu Framsóknarflokksins.
Svo virðist sem álit starfs-
manna stofnunarinnar hafi vegið
mjög þungt í ákvarðanatöku
stjórnar Byggðastofnunar. Lík-
legt þykir mér að langloka
Bjarna Einarssonar í Degi sé efn-
islega greinargerð hans til stjórn-
arinnar áður en hún tók ákvörð-
unina. Ef álit starfsmannanna,
rótróinna höfuðborgarbúa, á að
ráða því hvort stofnun Verður
flutt eða ekki, þá verða aldrei
neinar stofnanir fluttar frá
Reykjavík. Það vefst t.d. ekki
fyrir starfsmönnum Rannsókna-
stofnunar landbúnaðarins að rök-
styðja hvers vegna slík dreifbýlis-
stofnun eigi að vera í Reykjavík
eða hvers vegna varasamt sé að
efla útibúin (tilraunastöðvarnar)
úti á landi.
Byggðastofnun hefur brugðist.
Áfram verða höfuðstöðvarnar í
Reykjavík. Þær munu vaxa og
dafna því þar er hjarta þeirra sem
fjármagninu deila út. Væntanleg-
um útibúum verður haldið í
skefjum og stjórnað af miðstýr-
ingaröflunum. Og líklega hlýtur
háskólamálið sömu örlög. Áfram
munu prúðbúnir sendimenn
koma að sunnan með morgunvél-
inni til að sitja fund „starfshóps“
á „Þróunarstofunni“. Þeir láta
smella hátt í læsingunum á stress-
töskunum sínum og draga upp
áætlanir, skýrslur og greinargerð-
ir um málefni sem þeir hafa tak-
markaða þekkingu og e.t.v. engan
áhuga á. Hvernig væri að við Ey-
firðingar tækjum að okkur að
efla Grjótaþorpið og Breiðholt-
ið? Við gætum þá stofnað fyrsta
útibúið í Reykjavík.
Eigum nokkra bíla óselda
Verð frá kr. 138 þúsund.
Góð greiðslukjör. Hafið samband.
Laus staða
» - Fulltrúi
Sjávarútvegsráðuneytiö óskar að ráða fulltrúa til að
annast fræðslumál fyrir verkafólk í fiskiðnaði.
Laun samkvæmt launakerfi starfsmanna ríkisins.
Umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri
störf skulu berast Sjávarútvegsráðuneytinu eigi síð-
ar en 15. ágúst nk.
Sjávarútvegsráðuneytið
1. ágúst 1986.
qym
vegac^rðin UtbOð
Vegagerð ríkisins óskar eftir tilboðum í gerð Skaga-
fjarðarvegar, Daufá - Varmilaekur, 1986.
(Magn 24.000 m3, lengd 3,0 km).
Verki skal lokið 10. október 1986.
Útboðsgögn verða afhent hjá Vegagerð ríkisins á
Sauðárkróki og í Reykjavík (aðalgjaldkera) frá og
með 5. ágúst
Skila skal tilboðum á sömu stöðum fyrir kl. 14.00
þann 18. ágúst 1986.
Vegamálastjóri.
Afgreiðslumann vantar
í raflagnadeild KEA
Upplýsingar veitir starfsmannastjóri í síma
21400. Umsóknareyðublöð fást á aðalskrif-
stofu.
<^^^>Kaupfélag Eyfirðinga.
Yið leitum að
starfsfólki
í nýtt og betra
svæðisútvarp
Ef þú hefur hugmyndirnar, höfum við vinnu fyrir
þig. Umsóknarfrestur er til 15. ágúst.
Ríkisútvarpið á Akureyri,
Fjölnisgötu 3a, sími 27000.
Vantar þlg vinnu
með skólanum
í vetur?
Þú þarft að hafa góða rödd, þægilega framkomu, og
umfram allt áhuga á útvarpi.
Vinnutími er milli klukkan 17.00 og 19.00.
Umsóknarfrestur er til 15. ágúst.
Ríkisútvarpið á Akureyri
Fjölnisgötu 3a, sími 27000.
fC~~\ FJÓRÐUNGSSJÚKRAHÚSIÐ
Á AKUREYRI.
Fóstrur og starfsfolk
óskast að dagheimilinu Stekk við Fjórðungs-
sjúkrahúsið á Akureyri. Um er að ræða heilsdags
og hálfsdags stöður.
Upplýsingar gefur forstöðumaður Stekkjar í síma
96-22100 frá kl. 10.00-11.00 árdegis og 13.30-
14.30 síðdegis.
Fjórðungssjúkrahúsið á Akureyri.
Sjúkrahús Húsavíkur auglýsir:
Starfsstúlkur vantar
á sjúkrahús Húsavíkur strax, eða frá 1. septem-
ber ’86.
Upplýsingar veitir hjúkrunarforstjóri eða deildar-
stjóri, sími 96-41333.
Mötuneyti - Ráðskona
Mötuneyti Stórutjarnaskóla auglýsir eftir forstöðu-
manni. Nánari uppl. gefur form. skólanefndar,
Helga Erlingsdóttir, Landamótsseli, 641 Húsavík
(s: 43247) og skulu umsóknir hafa borist henni
fyrir 20. ágúst.
Skólanefnd.
Kennara vantar
að grunnskólanum í Skúlagarði, Öxarfirði.
Umsóknarfrestur er til 19. ágúst. Allar upplýsing-
ar veitir Þórarinn Þórarinsson, skólastjóri í síma
41111.
Skólanefnd.